Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1979 19 AUGLYSINGATEIKNISTOFA MYNDAMÖTA Adalstræti 6 simi 25810 Ljósm. Ól. K. M. Reifar kvennaskólastúlkur á peysufatadegi fyrir stuttu. Tala Bahá’ía á íslandi yfir 200 ÁTTUNDA landsþing Baháía á íslandi var haldið I Munaðarnesi da»;ana 27.-29. aprfl. Til þings- ins komu fulltrúar frá svæðisráð- um Bahá'ía um land allt auk fjölda gesta. Nú í apríl lauk sérstakri fimm ára áætlun um útbreiðslu Bahá’í trúarinnar í öllum heimshlutum. í þessari áætlun var m.a. gert ráð fyrir að íslenskir Bahá’íar stofn- uðu níu svæðisráð hérlendis. Þetta markmið náðist í desember síðast- liðnum, er Andlegt svæðisráð Bahá’ía á Akureyri var myndað. Mikil fjölgun hefur orðið í Bahá’í-samfélaginu á síðasta ári og er tala Bahá’ia á íslandi komin yfir 200. Landsþingið í Munaðar- nesi fylgdi úr hlaði nýrri sjö ára áætlun Bahá’í-samfélagsins og er enn stefnt að aukinni kynningu og útbreiðslu þessara yngstu trúar- bragða heims. (Fréttatilk.) STJÓRN Landsvirkjunar hefur að undanfiirnu fjallað um niður- stiiður athugana á tilhoðum sem opnuð voru f byrjun marz á meginhluta bvggingarvinnu Ilrauneyjarfossvirkjunar. Eru það jarðstíflur og aðveituskurðir. gröftur íyrir inntaki og flóðgátt- um. steypuframleiðsla og bygg- ing stöðvarhúss. Akveðið hefur verið að taka tilboði Ellerts Skúlasonar hf., Svavars Skúlasonar hf. og Ýtu- tækni hf. í gröft fyrir inntaki og flóðgáttum, en það var að fjárhæð kr. 117.275.000 og var lægst. Samningurinn var undirritaður í fyrradag, föstudag. Lægstu samanlögðu tilboðin í steypuframleiðslu og byggingu stöðvarhúss voru frá Fossvirki, sameign þriggja innlendra fyrir- tækja, Istaks hf., Loftorku hf. og Miðfells hf., eins dansks, E. Phil og Sön AS, og eins sænsks, AF Skánska Cementgjuteriet. Tilboð þessi reyndust hærri en áætlanir ráðunauta Landsvirkjunar og af þeim ástæðum þótti stjórn Lands- virkjunar ekki fært að taka tilboð- um Fossvirkis í umrædda verk- hluta í heild, en hefur samið við Fossvirki um að það taki að sér framkvæmdirnar við þá í ár. Var hlutaðeigandi verksamningur undirritaður á föstudag og nemur hann kr. 1378 milljónum. Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig staðið verður að byggingu stöðvar- hússins en til greina kemur að bjóða verkið út að nýju. Framundan er að bjóða út nokk- ur verk sem vinna á í sumar, m.a. 14 km vegarkafla, grjótmulning og byggingu íbúðarhúsa. Þá er í sumar ráðgert að bjóða út vinnu á næsta ári við inntaksmannvirki o. fl. Olufsen ekki bara draumur. Landsvirkjun: Samið um verk við Hr auney j arf oss- virkjun fyrir 1,5 milljarða króna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.