Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1979 23 Á bátasýningu SNARFARA Sportbátaáhugi eykst á Akureyri „Það var ekkert líí í þessari íþróttagrein á Akureyri íyrr en 1976, en þá vaknaði áhugi manna nyrðra og hefur félag skemmti- bátaeigenda nýlega verið stofnað. Segja má að Pollurinn og fjörður- inn séu ákjósanlegir fyrir sjó- sport, en það háir mönnum að aðstaða fyrir bátana á Akureyri er ekki nægjanleg, einkum að- staða til sjósetningar, en nú er buið að setja smábátaaðstöðu inn á skipulag og eru menn því bjartsýnir. „Þannig mælti Sig- urður Baldursson fulltrúi Bald- urs Halldórssonar skipasmiðs á Akureyri í spjalli við Mbl. á Bátasýningu Snarfara, en auk þess að smíða báta flytur fyrir- tæki Baldurs inn enska skemmti- báta og ýmsan þann búnað sem sjóíþróttum tilheyra. Flytur fyrirtækið inn enska hraðbáta af Microplus gerð, en þeir eru af fjórum stærðum. Bát- urinn sem fyrirtækið er með á sýningunni er næst minnsta stærðin, svonefndur Microplus 502 og kostar báturinn fullbúinn 1,8 milljónir með söluskatti. í verðinu er innifalið m.a. innrétting í stafnklefa með bólstruðum bekkj- um, teppum á gólfum úti og inni, hlífðarrúðu og stýrisvél. Hægt er að fá ýmsa aukahluti til að auka á íburðinn. Sigurður sagði að Microplus bátarnir væru m.a. hentugir til veiða þar sem borðstokkurinn væri m.a. hannaður með það í huga. Hann sagði að bátarnir væru allir með flothólfum og gætu því ekki sokkið. Nokkrir bátar af þessari gerð væru þegar komnir til landsins og reynslan af þeim ágæt. Sigurður sagði að fyrirtækið flytti einnig inn fiskiskipaskrokka með ósamsettri yfirbyggingu og kláraði þá síðan á Akureyri. Væru þetta frá 6—33 feta skrokkar, eða upp í 10 tonna bátar. Fyrirtækið flytur einnig inn Tempestbáta- vélar og loks sýndi Sigurður okkur vatnsheld sjóföt með innbyggðu björgunarvesti sem blásið er upp, en þessi vesti eru meðal þeirra aúkahluta sem Baldur Halldórs- son flytur inn. Sigurður Baldursson blæs upp björgunarvesti í vatnsheldum sjógalla. Hann stendur við hlið eins báts af Microplus-gerð Bátur verður til og f ull- 1 -iy2 mánuði búmná Flugfiskur heitir fyrirtæki í Vogum á Vatnsleysustriind er framleiðir hraðbáta úr trefja- plasti. en m.a. framleiddi fyrir- tækið bát þann er sigraði í sjórallinu umhverfis landið í fyrrasumar. Sá bátur var á sýn- ingunni og falur hverjum sem var og fékkst fyrir fimm milljón- ir ef borgað var út í hiind. Forstöðumenn Flugfisks eru þau Kunólfur Guðjónsson og Gréta Stefánsdóttir. en blm. tóku Grétu tali á hátasýningunni. Gréta sagði að fyrirtækið hefði hafið starfrækslu fyrir um tveim- ur árum og framleitt 20 báta. Framleiddi fyrirtækið aðeins eftir pöntunum og færi verð einstakra báta því eftir hversu mikið kaup- endur óskuðu að í þá yrði borið. Smíðatími hvers báts væri um 1—1'/2 mánuður frá því að byrjað yrði að steypa þar til að báturinn yrði tilbúinn. Kaupendur geta keypt ste.vptan skrokk og séð sjálfir um allan frágang og inn- réttingar. Þegar bátur er steyptur er fljótandi plastefni borið á trefja- mottur í þar til gerðum mótum, en verkið er frá byrjun handverk, og til þess notaðar sérstakar hand- pressur og penslar. Fór Runólfur á sínum tíma til útlanda og nam þá list að ste.vpa bátana. Gréta sagði að dæmigerður bát- ur frá Flugfiski væri 18 feta sportbátur sem var á bás fyrir- tækisins, en bátar frá því voru þó víðs vegar á -sýningarsvæðinu. Sá bátur var með 100 hestafla utan- borðsmótor, en Gréta sagði að notast mætti með góðum árangri við 40 hestafla vél á slíkum báti. Hafrót, en það er báturinn sem sigraði í sjórallinu í fyrra, er 22 fet og um þrjú tonn að þyngd. Einnig framleiðir Flugfiskur sérstaka fiskibáta, en þeir eru meira frambyggðir en sportbátar. Þá hefur fyrirtækið umboð fyrir enska fiskibáta er nefnast Aqua-star, en þeir eru allt að 10 tonn og kosta á bilinu 30—40 milljónir. Bátar þessir eru frá Guernsey. Loks selur fyrirtækið svokölluð Enfield-drif, sem menn geta sett á báta sína vilji þeir nota gömlu bíl- eða traktorsvélina í bátinn. i VALL I WilR ti Ilafrót. einn þeirra bóta sem Flugfiskur hefur framleitt Seglbátarnir í fordyrinu. Lengst til hægri er Laserinn, þá Wayfarer, og á bak við súluna grillir í Eldhnött og Mirror. Vinsældir segl- báta aukast ÞEGAR komið var inn á sýningarsvæðið á bátasýningu Snarfara blöstu nokkrar ris- miklar seglskútur við á hægri hönd, en sumar þeirra voru mjög hraðskreiðar keppnisskútur, svo sem Eldhnötturinn (Fireball). Vinsældir seglbáta fara ört vax- andi hér á landi. að sögn kunnugra. Ari Bergmann Einarsson hjá Ó. V. Jóhannsson & Co, er inn- flytjandi svonefndra Wayfarer seglbáta, en það var stærsta skút- an af þeim skútum sem voru í fordyrinu. Ari sagði að slík skúta fullbúin, en án vagns og hjálpar- mótors ef menn vildu slíkan hafa, kostaði um 1,7—1,8 milljónir. Báturinn væri fjölskyldubátur og ferðabátur, en hann er brezkur og hefur hlotið góðar viðtökur víða um heim og er einnig góður kappsiglari. Ari sagði að árið 1964 hefði Bretinn Frank Dye, sem væri frægur siglingakappi, siglt við annan mann á Wayfarer frá Skot- landi til íslands án viðkomu í Færeyjum. íslenzkir siglingamenn ráðlegðu þó fólki að leggja ekki upp í siglingu af því tagi á tæplega fimm metra löngum opnum báti. Æskulýðsráð Reykjavíkur notar Wayfarer-bát til kennslu og æsku- lýðsstarfa í Nauthólsvík. Stórir flottankar að aftan og framan koma í veg fyrir að báturinn sökkvi þótt honum hvolfi. Bátur- inn ber allt að sex manns og er þægilegur og auðveldur í meðförum fyrir tvo til þrjá. Þótt bátnum hvolfi er auðvelt fyrir tvo menn að rétta hann við án utanað- komandi aðstoðar. Wayfarer báturinn hefur náð nokkurri útbreiðslu hér á landi. Hann er úr trefjaplasti, en mastur og bóma eru úr tré eða áli. Kjölur og stýri er unnið úr krossvið, en stög og fittings úr ryðfríu stáli. Stórsegl og fokkur eru saumaðar úr terylene, en belgsegl úr næloni. Stofnað hefur verið samband Wayfarer-eigenda á íslandi og efnir það m.a. til útilegusiglinga á Kjalarnes og Hvalfjörð, en í ár sem undanfarin ár verður farin hópsigling út í Hörsey á Mýrum. Wayfarerinn er 4,82 m að lengd, 1,85 að breidd, djúprista þegar kjölur er niðri er 1,17 m og þyngd er 167 kg. Kolla skvetta viðbraKÖssnöKK Kolla skvetta hét seglbátur af Laser gerð sem var meðal seglbát- anna í anddyrinu. Bátur sá er góður kappsiglari, að sögn kunnugra, en aðeins er ætlast til að einn maður stjórni bátnum. Er þessi tegund ein útbreiddasta tegund eins manns seglbáta, en báturinn varð fyrst til í Kanada 1972. Um það bil 60.000 Laser-bát- ar eru í notkun í heiminum í dag, en þeim er það sameiginlegt að vera allir nákvæmlega eins vegna sérstæðrar hönnunar. Laserinn er einkar viðbragðs- snöggur bátur og hægt er að ná á honum mikilli ferð þótt vindur sé lítill. Vegna hönnunarinnar og þar sem báturinn er aðeins 59 kg að þyngd brýtur hann Arkimedesar-lögmalið og „planar" sig upp á sjónum, líkt og hraðbát- ur, þegar vindar blása. Báturinn er úr trefjaplasti, hann kemst á hvaða toppgrind sem er og fljót- legt er að sjósetja hann. Hann afhendist tilbúinn til sjósetningar frá söluumboði, en það er ístækni hf. í Reykjavík, og kostar um 600 þúsund. Báturinn er rétt rúmir fjórir metrar að lengd. Annar seglbátur var þarna er einkum er ætlaður til kappsigl- inga, en það er Eldhnötturinn. Eiginleikar þess báts eru svipaðir og Lasersins. Eldhnötturinn er þó viðarbátur og kemur ósamsettur til landsins, en hver og einn getur svo sett hann saman. Ósamsettur bátur með öllu tilheyrandi kostar um 900 þúsund krónur. Allir Kcta smíöað Mirror Loks var meðal seglbátanna bátur af Mirror-gerð, en sá bátur kemur. einnig ósamsettur til landsins. Kostar hann með öllu tæpar 280 þúsund krónur, en örlítið stærri gerð þess báts kost- ar um 450 þúsund krónur. Að sögn kunnugra getur hver og einn sett bát af þessu tagi saman og þarf ekki annan tækjakost en skrúf- járn, þvingu og hamar. Báturinn kemur í tilbúnum hlutum og er ekkert eftir nema að líma hann og skrúfa saman, en báturinn er úr krossviði. Mirror-inn er lítill og léttur og hægt að hafa hann á toppgrind. Einn maður getur fært hann á land og stjórnað bátnum sem lætur vel að stjórn undir seglum sem mótor. Báturinn er sagður öruggur fyrir byrjendur, en jafn- framt góður keppnisbátur. Hann er búinn þéttum öryggishólfum og getur ekki sokkið, og hið sama á við um Eldhnöttinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.