Morgunblaðið - 06.05.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 6. MAÍ1979 3 1
Séð yfir hluta þátttakenda á ráðstefnu BygginKaþjónu.stunnar um þök.
Ráðstefna
um þök
Byggingaþjónustan gekkst fyrir
ráðstefnu um þök og lauk henni í
HLJmsjór^
„Umsjón”,
nýttblaðlítur
dagsins ljós
Umsjónarfélag einhverfra
barna hefur hafið útgáfu blaðs
um málefni einhverfra barna og
til fjáröflunar byggingar með-
ferðarheimilis. Fyrsta tölublaðið
er nýkomið út. en blaðinu hefur
verið gcfið nafnið Umsjón.
Meðal efnis er frásögn tveggja
nemenda Þroskaþjálfaskóla Is-
lands af heimsókn þeirra á skóla
fyrir einhverf börn í London. Rætt
er við Dagbjörtu Eiríksdóttur
fóstru, deildarstjóra á Geðdeild
Barnaspítala Hringsins og Helga
Aðalsteinsdóttir skrifar greinina
„Að eiga einhverft barn“.
Páll Ásgeirsson yfirlæknir
skrifar um vanrækt börn og Guð-
mundur Tómas Magnússon barna-
geðlæknir um tíðni geðveiki hjá
börnum auk ýmislegs annars efnis
sem í blaðinu er.
Bræla á Húsa-
vík í vikutíma
Ilúsavík 5. maí.
NorÖanáhlaupinu hafa fylgt
ýmsir erfiðleikar bæði til sjós og
lands. í viku hefur húsvíski báta-
flotinn legið bundinn í höfn vegna
brælu, en síðast var róið síðastlið-
inn laugardag og var þá allgóður
afli á línu og útlit frekar gott.
Hvað sem verður þegar veðrinu
slotar. í dag hefur verið norðan-
kaldi, en heldur hægari en undan-
farið, snjókoma öðru hverju og
kalt- — Fréttaritari.
Tófuskinnið
í f jórða sinn á
þriðjudag
ÍSLENZKI dansflokkurinn sýnir
Tófuskinnið f Þjóðleikhúsinu
næstkomandi þriðjudag klukkan
20. Verður þetta fjórða sýning á
verkinu og er mánuður liðinn
síðan Tófuskinnið var síðast
sýnt. Sýningin er byggð á sögu
Guðmundar G. Hagalfns og les
Baldvin Ilalldórsson leikari úr-
drátt úr sögunni fyrir sýningu.
gær. Gunnlaugur Halldórsson
arkitekt. formaður stjórnar
Byggingaþjónustunnar, setti
ráðstefnuna s.l. fimmtudag með
stuttu ávarpi. Síðan flutti
Guðmundur Kr. Guðmundsson
arkitekt erindi um þök frá fagur-
fræðilegu sjónarmiði og notagildi
þeirra. Jafnframt sýndi hann
litmyndir af húsum með
mismunandi þakgerðum.
Guðmundur Pálmi Kristinsson,
verkfræðingur hjá Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins,
flutti erindi um kostnað hinna
mismunandi þaka. Umræður og
fundarstjórn var í höndum Bene-
dikts Davíðssonar, formanns
Sambands byggingarmanna.
Ráðstefnan hélt síðan áfram á
föstudag og þá flutti Leifur
Blumenstein byggingarfræðingur
erindi um flöt þök og Gunnar S.
Björnsson byggingameistari flutti
erindi um þakefni.
í gær hófst ráðstefnan kl. 13.00
með ávarpi Magnúsar H. Magnús-
sonar félagsmálaráðherra. Síðan
flutti Guðmundur Haildórsson
verkfræðingur erindi um
einangrun, rakavörn og loftræst-
ingu þaka og Leifur Benediktsson
verkfræðingur ræddi um algengar
orsakir þakleka og úrbætur á
þeim. Að loknum erindunum voru
umræður og fyrirspurnum var
svarað.
Á annað hundrað manns sóttu
ráðstefnuna fyrsta dag hennar s.l.
fimmtudag og urðu margir frá að
hverfa.
Manuela Miesler
Flauta/Flute
Julian Dawson Lvell
Píanó/Piano
DivertimentO: Jean Francaix.
Intermezzo úr Dimmalimm: Atli Heimir Sveinsson.
Chant de Linos: André Jolivet. Sonatine: Pierre Boulez.
CalaiS: Thorkell Sigurbjömsson.BW***^^^^^^
I
I
l>að hefur verið iangþráður draumur að gefa úr íslenska
nútímaklassik leikna af íslcnsku tóniistarfólki. Nú er sá
draumur að rætast.
Hijómplata Manuelu Wiesler flautuleikara og hljómplata
þeirra (iísla Magnússonar og Halldórs Ilaraldssonar
pianóleikara eru tva'r þa'r fyrstu af stórri útgáfuröð
klassiskra nútímaverka eftir íslensk og erlend tónskáld
flutt af íslensku tónlistarfólki.
Með þessari plötu leggur Manuela fram enn eitt sönnunar-
gagnið fyrir því að hún sé snillingur. Það er að bera í
hakkafullan lækinn að hrósa Manuelu. Sjaldan hefur okkur
íslendingum fallið til öllu sta'rri músikalskur hvalreki en
þegar hún batt trúss sitt við ungan klarinettleikara og
fluttist með honum til íslands.
Eyjólfur Melstoð
Dagblaðið 2 5 79
ISLENSK TÓNSKALD OG TONLISTAFOLK
DREIFING itíinðt