Morgunblaðið - 06.05.1979, Side 32
AK.LYSINÍ.ASÍMIW KK:
22480
ALGLÝSINíiASÍMIW ER:
22480
Jfiorflunblníiiti
SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1979
Fimm sinuútköll
á tveimur tímum
MIKLAR annir voru hjá
Slökkviliðinu í Reykjavík
í jíærmorgun 0jí á aðeins
tveimur klukkustundum
var liðið fimm sinnum
kallaö út vegna sinu-
bruna. Ekkert tjón varð í
þessi skipti, en litlu mátti
muna og tókst naumlega
að stöðva brunana áður
en hann náði húsum.
Stranglega er bannað að
brenna sinu eftir að kem-
ur fram í maí og ættu
foreldrar að vara börn og
unglinga við þessum stór-
hættulega leik. Sinueldar
geta verið mjög erfiðir
viðfangs og sérstaklega
eftir þurrviðrið, sem ríkt
hefur að undanförnu.
Stal í Ólafsvík,
tekinn í Reykjavik
í VIKUNNI var stoliö 170 þúsund
krónum úr verbúð í Ólafsvík.
Grunur beinist að unj?um manni,
en hann hafði þá yfirgefið staðinn
og haldið til Reykjavíkur. Rann-
sóknarlögreglu ríkisins var gert
viðvart og hafði hún fljótlega uppi
á pilti og viðurkenndi hann brot
eyðslan er 15 lítrar og 35.393
krónur ef eyðslan er 25 lítrar.
Flugfar frá Reykjavík til Akur-
eyrar kostar nú 12.000 krónur.
Vegalengdin þangað er 453
kílómetrar og miðað við 10 lítra
eyðsla kostar 11.597 krónur að aka
þangað, 17.396 krónur ef eyðslan er
15 lítrar og 28.993 krónur ef
eyðslan er 25 lítrar.
Flugfar frá Reykjavík til Egils-
staða aðra leiðina kostar 16.050
krónur.
Vegalengdin þangað er 730 kíló-
metrar og miðað við 10 lítra eyðslu
kostar 18.688 krónur að aka
þangað, 28.032 krónur ef eyðslan er
15 lítrar og 46.720 krónur ef
eyðslan er 25 lítrar.
Ef menn aka hringveginn og
bregða ekki útaf honum þurfa þeir
að greiða um 36 þúsund krónur
fyrir benzínið, ef eyðslan er 10
lítrar, um 54 þúsund krónur ef
eyðslan er 15 lítrar en rúmlega 90
þúsund krónur ef eyðslan er 25
lítrar.
Ef höfuðborgarbúar fara í
vinsælar sunnudagsferðir, t.d. til
Hveragerðis og til baka, kostar
benzínið 2.304 krónur ef eyðslan er
10 lítrar en 5.760 krónur ef eyðslan
er 25 lítrar. Þingvallaferð kostar
bíleigandann 2.600 krónur ef
eyðslan er 10 lítrar en 6.500 krónur
ef eyðslan er 25 lítrar.
0
Abyrgðartryggingar bifreiða:
EFTIR nýjustu benzfnhækkun-
ina er dýrara fyrir mann frá
Reykjavík að aka til ísafjarðar
og Egilsstaða, svo dæmi séu
tekin, en fljúga sömu leið, ef
miðað er við það að eyðsla
bifreiðarinnar sé 10 lítrar á
hverja 100 kílómetra, eins og
algengt er. Ef eyðslan er meiri
eykst bilið milli flugs og híl-
ferðar og ef eyðslan er orðin 25
lítrar er þrefalt dýrara að aka en
fljúga.
Flugfar frá Reykjavík til Isa-
fjarðar aðra leiðina kostar nú
11.150 krónur. Vegalengdin þangað
er 553 kílómetrar og miðað við 10
lítra eyðslu kostar 14.157 krónur
að aka þangað, 21.235 krónur ef
LióHm. RAX.
Getur tekið verkamann
tæpan mánuð að vinna
fyrir iðgjaldinu i ár
ÞAÐ getur tekið verkamann tæp-
an mánuð að vinna fyrir ársið-
gjaldi ábyrgðartryggingar bif-
reiðar, vinni hann aðeins vcnju-
lega dagvinnu. 40 tíma á viku.
Iðgjald ábyrgðartryggingar á
stórum bíl í Reykjavík er 161.280
krónur án bónuss en með sölu-
skatti. Tímakaup Dagsbrúnar-
verkamanns með fjögurra ára
starfsreynslu er .032 krónur og
það tæki verkamanninn rúma 156
tíma eða tæpan mánuð að vinna
fyrir ábyrgðartryggingunni. Víða
úti á landsbyggðinni eru ábyrgð-
artryggingar mun ódýrari, eins og
kom fram í Mbl. í gær og t.d. tæki
það verkamann á Sauðárkróki
með sömu laun t.d. tæpar 80
klukkustundir að vinna fyrir ið-
gjaldinu, sem er 81.966 krónur.
Iðgjald ábyrgðartryggingar á
millibíl, t.d. Cortinu, er 139.080
krónur í Reykjavík, sé söluskattur
reiknaður með. Verkamaður, sem
slíkan bíl ætti, er um 135 tíma að
vinna fyrir iðgjaldinu. Verkamað-
ur á Sauðárkróki, svo dæmi sé
tekið, er rúma 66 tíma að vinna
fyrir því gjaldi sem honum ber að
greiða, sem er 68.640 krónur.
Loks skal tekið dæmi um bíl af
minnstu tegund, t.d. Volkswagen
og Austin mini. Verkamaður í
Reykjavík er 113 klukkustundir að
vinna fyrir iðgjaldinu eða tæpar
þrjár vikur, en iðgjaldið er án
bónuss en með söluskatti 116.640
krónur. Verkamaður á áhættu-
svæði 3, t.d. á Sauðárkróki,
Blönduósi eða Borgarnesi, er hins
vegar 56 tíma að vinna fyrir
iðgjaldinu eða um eina og hálfa
viku, en það er 57.840 krónur.
Bíll og benzfn
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins:
Geir Hallgrímsson
endurkjöriim formaður
— Hlaut 594 atkvæði en Albert
Guðmundsson 208 atkvæði
70,5%, Albert Guðmundsson
fékk 24,7%, aðrir 2% og auðir og
ógildir 2,7%.
Þegar Morgunblaðið fór í
prentun síðdegis á laugardag var
kjör varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins að hefjast og þess
vegna ekki unnt að skýra frá
niðurstöðum þeirra kosningar
svo og miðstjórnar kosningar,
sem hófust kl. 18 síðdegis.
Nýjasta benzínhækkunin:
Ódýrara að
fljúgaenaka
GEIR HallgnTnsson var endur-
kjörinn formaður Sjálfstæðis-
flokksins á landsfundi flokks-
ins síðdcgis í gær. Ilann hlaut
594 atkvæði. Albert Guðmunds-
son fékk 208 atkvæði, aðrir 17
og auðir og ógildir scðlar voru
23.
Hlutfall Geirs Hallgrímssonar
af fjölda greiddra atkvæða er
Þjóðverji einn á ferð í þrjár vikur á hálendinu:
„Miklir og stöðugir stormar
gerðu mér hvað ernðast fyrir”
„bað má segja að þetta hafi
verið stöðugir erfiðleikar frá
upphafi til cnda,“ sagði
Þjóðverjinn Linner í samtali
við Morgunblaðið, en hann
hefur undanfarnar þrjár vikur
verið einn sfns liðs á göngu inni
á Mývatnsöræfum eins og skýrt
var frá í Mbl. í gær. „Eg lagði
upp frá Mývatni 16. apríl s.l. og
setti stefnuna á Öskju, en ég
var varla lagður af stað þegar
gffurlegur stormur var
skollinn á. Mér sóttist ferðin
því mjög seint og ekki bætti það
úr skák, að það tók að snjóa
töluvert," sagði Þjóðverjinn.
„Þegar ég loks náði í skálann í
Drekagili við Öskju var ég
orðinn mjög illa haldinn af
snjóblindu svo að ég lét þar
fyrirberast í rúma þrjá sólar-
hringa, áður en ég lagði af stað í
Herðbreiðarlindir. Þangað var
ég rúma tvo daga og svaf auðvit-
að í tjaldi eins og reyndar mest
alla ferðina, en það gerði mér
nokkuð erfitt fyrir þessar tvær
nætur, að frost var öllu meira en
venjulega, þannig að ég svaf
bæði í svefnpoka og bakpoka
inni í tjaldinu.
í Herðubreiðarlindum dvaldi
ég svo nokkurn tíma. Þá var ég
orðinn töluvert illa haldinn á
fótum bæði vegna hælsæra og
kulda. Ég ákvað því að skilja
allan ónauðsynlegan búnað þar
eftir til að létta mér gönguna til
Grímsstaða. Ég skildi t.d. eftir
skíðin, því að skíðafæri var orðið
afleitt á þessum slóðum.
Síðasti hluti ferðarinnar gekk
svo eins og þeir fyrri, stöðugir
erfiðleikar, sérstaklega vegna
mikilla storma. Það kom mér
sérstaklega á óvart hversu
stormar geta verið hér miklir og
hversu lengi þeir standa yfir, því
að á ferðum mínum t.d. í Lappa-
héruðum Finnlands að vetri til
hef ég ekki kynnst neinu slíku.
Niður til Grímsstaða kom ég
svo á fimmtudaginn hálfhrak-
inn, en heimilisfólkið var fljótt
að koma í mig lífi á ný,“ sagði
Þjóðverjinn ennfremur.
Aðspurður sagðist hann hafa
verið mjög vel búinn til farar-
innar og t.d. hefði hann haft
matarforða til 10 daga í viðbót,
svo að hann hefði alls ekki verið
hætt kominn vegna útbúnaðar-
leysis.
sitt.