Morgunblaðið - 06.06.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979
3
Flugumferðarstjóraveikindin:
Bréfid féll úr
gildi fy rir sly sni
F jármálaráðherra vill ekki setja
það í gildi aftur
„ÞVÍ miður sér fjármálaráðuneytið sér ekki fært að
setja þetta bréf í gildi aftur, eins og ég gerði tillögur
um, þannig að ég er ekki bjartsýnn á að neinar
breytingar verði,“ sagði Agnar Kofoed Hansen flug-
málastjóri, er Mbl. spurði hann hvort í sjónmáíi væri
lausn á málum flugumferðarstjóra.
„Þetta bréf var þess efnis að
þeir, sem höfðu 10 ára starfsferil
og tilskilin próf og gripu inn sem
vaktstjórar í forföllum, fengu
VantarlOO
skeggjaða
menn
NÝJASTA vandamálið í
smiðju Paradísarheimtar er
skortur á karlmönnum f auka-
hlutverk og vantar hvorki
meira né minna en um 100
karlmenn á öllum aldri, en
allir þurfa þeir að vera með
skegg til þess að vera liðtækir.
Þetta skeggjaða lið vantar
m.a. í kvikmyndun á Þingvöll-
um við Kóngstjaldið, á Lamba-
fjalli og við Hestagjá og einnig
í kirkjumyndatökunni. Þeir
skeggjuðu menn em kunna að
vilja ljá málinu lið eru beðnir
að mæta í myndatöku í smiðju
Paradísarheimtar í Ármúla 7 í
þessari viku til myndatöku
milli kl. 4 og 5 á daginn.
einum launaflokki hærra þess
vegna. Þetta bréf féll svo úr gildi
aftur til þess að reyna að liðka
málin,“ sagði flugmálastjóri.
„Samgönguráðherra var tillögum
mínum meðmæltur, en fjármála-
ráðherra sá sér því miður ekki
fært að fara eftir þeim.“
Flugmálastjóri kvaðst óska þess
að það kæmi fram, að engin dæmi
væru um að flugumferðastjórar
hefðu gert sér upp veikindi, heldur
væri eingöngu um það að ræða að
þeir vildu ekki bæta á sig auka-
vinnu, eins og málum væri háttað.
Ólafur Steinar Valdimarsson
skrifstofustjóri hjá samgöngu-
ráðuneytinu sagði að málefni flug-
umferðastjóra hefðu verið þar til
umræðu að undanförnu og væri
stutt í samkomulag við þá. Þeir
hefðu ákveðnar hugmyndir tii
athugunar um þessar mundir og
væri viðbragða þeirra að vænta í
dag.
Þá sagði Ólafur að í gær hefði
verið gengið frá samkomulagi við
þá um sumarafleysingar, svo sem
gert hefði verið undanfarin ár í
byrjun sumars.
Ljósm. - kk-
Fyrstu stangveiðiárnar opnuðu 1. júní og voru það
Norðurá í Borgarfirði og Laxá á Ásum. Meðfylgj-
andi mynd er tekin fyrir neðan Laxfoss í Norðurá
fyrsta morguninn en svo bar við að ekki einn einasti
lax var þá dreginn. Vorkuldum er að sjálfsögðu um
kennt. Norðurá var bæði vatnsmikil og skoluð. en
það á ekki endilega að þurfa að koma að sök, vatnið
er einfaldlega kalt og minna af fiski gengið en ella.
Þó að stjórnarmenn SVFR, sem opnuðu ána, teldu
að enginn fiskur væri mættur, sá undirritaður einn
velta sér á Brotinu, svo að ekki er ördeyðan alger.
Friðrik teflir
á Filipseyjum
„ÞESSI Filippscyjarferð mín er
nú fyrst og fremst kynnisferð, en
með því að taka þátt í skákmóti
um leið má segja að ég gangi
fram fyrir skjöldu til að koma í
verk hluta af stefnuskrá minni,
en þar kvaðst ég vilja beita mér
fyrir því að stórmeistarar ferðuð-
ust um og tækju þátt í mótum.
Aukafjárveiting skapar
um 100 nemum sumarvinnu
Dugir ekki til, segir Birgir ísleifur Gunnarsson
Á FUNDI Borgarráðs í gær
var samþykkt að veita 118
milljónum króna aukafjár-
veitingu til sérstakra verk-
efna til að auka möguleika
skólafólks á sumaratvinnu.
Einkum verður fénu varið
til gróðursetningu og
gangstéttagerðar.
Að sögn Birgis ísleifs
Gunnarssonar borgarráðs-
fulltrúa er þessi fjárveiting
hvergi nóg til að leysa vanda
þann, sem nú er við að glíma
varðandi sumaratvinnu
skólafólks. Þessi fjárveiting
skapar 100 unglingum til
viðbótar sumaratvinnu, en
311 skólanemar 16 ára og
eldri eru á atvinnuleysisskrá
og 150 nemar, sem verða 16
ára á þessu ári, að sögn
Birgis ísleifs.
scm veita skákmönnum mögu-
leika á stigum og titlum“, sagði
Friðrik ólafsson forseti Fide í
samtali við Mbl. í gær, en hann
tekur þátt í skákmóti, sem hefst á
Filippseyjum 15. júní n.k.
Fjórtán keppendur verða á móti
þessu, auk Friðriks stórmeistar-
arnir Eugene Torre, Filippseyjum,
Averbach og Dirfman frá Sovét-
ríkjunum og Raymond Keene
Englandi, fjórir alþjóðlegir meist-
arar, tveir frá Filippseyjum og
tveir frá Indónesíu og svo fimm
titillausir keppendur, en á slíkum
mótum mega ekki vera fleiri en
þrír keppendur án alþjóðlegra
skákstiga.
Friðrik sagði að nú væri verið
að leggja síðustu hönd á ýmis þau
mál, sem borin verða upp á
Fide-þinginu í ágúst, þar á meðal
tillögur að reglum varðandi
keppnisskákmenn, sem hann hefði
samið, en eitt af þeim málum, sem
Friðrik setti fram í stefnuskrá
sinni varðandi forsetakjör í Fide
var að hann myndi beita sér fyrir
því að slíkar reglur yrðu settar.
Troðið í
hvem kima
í geymsl-
um hrað-
frystihúsa
VÍÐA er nú orðið mjög
þröngt í frystigeymslum
úti um land og má ætla að
um 24 — 25 þúsund tonn af
fiski liggi nú í geymslum
og bíði útflutnings. Þegar
allt er eðlilegt er algengt
að 16 —17 þúsund tonn séu
í frystigeymslum hrað-
frystihúsanna.
Með því að troða í hvern kima
hefur víðast tekizt að koma í veg
fyrir lokun húsanna, en þó hefur
frystingu verið hætt á Hellissandi
og á Patreksfirði. Rögnvaldur
Ólafsson á Hellissandi tjáði Morg-
unblaðinu í gær að um miðja
síðustu viku hefði frysting verið
stöðvuð, en allar geymslur voru þá
orðnar sneisafullar. I gær voru
lestaðir 1600 kassar á Hellissandi
fyrir Bretland og við það rýmkar
eitthvað í geymslunum.
— Síðustu þrjár vikurnar höf-
um við saltað allan þann fisk, sem
við höfum getað og hefðum stöðv-
ast enn fyrr ef við hefðum ekki
gripið til þess, sagði Rögnvaldur.
— Þá höfum við einnig þurft að
vísa aðkomubátum frá síðustu
dagana, sagði hann.
Gott
veður
áfram
ÚTLIT er fyrir að áfram verði
hlýtt um allt land og stillt
veður a.m.k. í dag, en trúleg-
ast heldur svalara. Á Kirkju-
bæjarklaustri var um hádegi í
gær 15 stiga hiti, 13 stig á
Nautabúi í Skagafirði, en í
Reykjavík var 7 stiga hiti á
hádegi. Á Norðausturhorninu
hefur verið gott veður undan-
farið og einna hlýjast á land-
inu og finnst fbúum þar sjálf-
sagt að þeir eigi svolitla veð-
urblíðu inni.
taktu .símann
pantaóu strax
Sólarlandaferóirnar eru óóum aó fyllast - nú er um aó gera aó
panta strax
Spánn Júgóslavía Jamaica
8. júní - örfásæti laus 24. júní - nokkursæti laus júní - uppselt
22. júní - laus sæti 1. júlí - laus sæti ágúst - uppselt
29. júní - laus sæti 8. júlí - laussæti september - örfá sæti laus
6. júlí - laus sæti 13. júlí - uppselt / biölisti 15. júlí - uppselt / biðlisti
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 - símar 27077 og 28899 A