Morgunblaðið - 06.06.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979
Birgir Ísleiíur veitir viðtöku undirskriftum í fjarveru meirihlutans.
Breiðholt III
3—4000 manns
hvetja til bygg-
ingar sundlaugar
Fulltrúar meirihlutans láta ekki sjá sig við
afhendingu undirskrifta
FULLTRÚUM borKarstjórnar var í gær afhentur undirskriftalisti með nöfnum
3—4000 íbúa í Breiðholti III, þar sem mótmælt er seinagangi og frcstun framkvæmda
við byggingu útisundlaugar við Fjöibrautarskólann í Breiðholti III. Jafnframt er
skorað á borgaryfirvöld að gera umrædda sundlaug nothæfa fyrir haustið 1979. Þeir
scm stóðu að þessari undirskriftasöfnun voru Framfarafélag Breiðholts III.
íþróttafélagið Leiknir, Kvenfélagið Fjallkonur, JC Breiðholt, Skátafélagið Hafernir og
Nemendafélag Fjölbrautaskólans.
Innilaug var tekin í notkun á þessum stað árið 1977 og var gert ráð fyrir því að
útisundlaugin yrði nothæf haustið 1978. Nú bregður svo við að framkvæmdum við
bygginguna hefur verið frestað til ársins 1982 og fullfrágengin skal hún vera 1982.
Forráðamenn þessarar undirskriftasöfnunar bentu á það vandræðaástand sem ríkir í
þessu barnmarga hverfi þegar öll aðstaða til sundiðkana og sundkennslu er í lágmarki.
Núverandi ástand leiðir til þess að börn þurfa að leita út fyrir hverfið til að geta lært
sundtökin. Auk þess stafar mikil hætta af grunni sundlaugarinnar í því ástandi sem hún
er nú í. Enginn fulltrúi af hálfu meirihluta borgarstjórnar var viðstaddur afhendingu
undirskriftalistans, en fulltrúar minnihlutans, Birgir Isleifur Gunnarsson, Ólafur Thors
og Magnús L. Sveinsson tóku að sér að koma listunum til fulltrúa meirihlutans.
Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar létu í Ijósi þá von að hún mætti verða til þess
að borgaryfirvöld sýndu nauðsyn málsins fullan skilning og endurskoðuðu afstöðu sína.
Fjöldi leik-
fanga á
sýningu
FÓSTRUFÉLAG íslands stendur um þessar
mundir fyrir sýningu á leikföngum fyrir börn á
aldrinum 0 — 7 ára. Sýningin er opnuð í
Hagaskóla mánudaginn 4. júní og stendur til
sunnudagskvöldsins 10. júní og er hún opin
almenningi daglega frá kl. þrjú til tíu. Leik-
fangasýning þessi er haldin í tilefni barnaárs,
en aðgangur að henni er ókeypis.
Þessi sýning er fjórða sýningin sem félagið
stendur fyrir, en er tvímælalaust sú stæsta og
viðamesta. Vilja fóstrur með sýningunni leyfa
fólki að sjá og kynnast heppilegum leikföngum
fyrir börn, því mikið er af miður æskilegum
leikföngum á markaðnum, að þeirra áliti.
Hinsvegar ætti öllum að vera ljóst að góð
leikföng hafa mikið gildi fyrir þroska barna.
Fóstrurnar telja að leikföng ættu að vera þannig úr garði gerð að þau hvetji
börnin til að reyna hæfni sína, en við það eykst getan smátt og smátt og þroskinn
jafnframt. Einkunnarorð þessarar sýningar eru: Leikur er líf, leikur er starf,
leikur er vinna barnsins.
í ráði er. aö þessari sýningu lokinni, að fara með sýninguna til Akureyrar og
Egilsstaða. Efnt hefur verið til leikfangahappdrættis á sýningunni en leikfanga-
verslanir hafa gefið vinningana. Fjórtán aðilar hafa lánað ieikföng á sýninguna,
en þar er mikið úrval leikfanga af ýmsum stærðum og gerðum og sýningin hin
athyglisverðasta fyrir foreldra og aðra þá sem áhuga hafa á þessum málum.
Þessi glæsilegi bangsi upplýsir
sýingargesti um einkunnarorð
sýningarinnar.
Urval leikfanga á sýningunni er fjölbreytt og vakti óskita athygli yngstu
sýningargestanna, ekki síður en hinna eldri. LjóHm. Kri«tinn.
SALA
LAUGAVEGUR
44
v
'
X verdlækkun
mt*