Morgunblaðið - 06.06.1979, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979
Þessi mynd er tekin í síðustu sumaríerð Vöku. Þá var farið til Breiðafjarðareyja.
Vaka í sumarferð
á bjarndýraslóðir
VAKA, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hyjfífst efna til árlegr-
ar sumarferðar dagana 7. —10
júní n.k. Er fyrirhugað að
halda til Hesteyrar í Ilesteyrar-
firði í Jökulfjörðum. Segir í
fréttatilkynningu frá Vöku, að
þó að enn sé fannfergi mikið á
þeim slóðum og heyrst hafi til
bjarndýra þar muni félags-
menn ekki láta slíkt aftra sér,
enda sumarkomu að vænta um
þetta leyti.
Ætlunin er að leggja upp
síðdegis fimmtudaginn 7. júní.
Mun flogið vestur á ísafjörð.
Þaðan verður siglt sem leið
liggur um hálfa landhelgisfjar-
lægð yfir Djúpið. Gist verður á
gistiheimili Hesteyrar.
Heim
verður haldið með kvöldvél frá
Isafirði á sunnudeginum.
Undanþágur skilyrtar því að
ekki megi selja unna G-mjóIk
V egaskemmdir
í vatnavöxtum
SÁTTAFUNDUR hóíst í
gærkveldi klukkan 21 í
deilu mjólkuríræðinga og
mjólkurbúanna. Fátt
markvert haíði gerzt á
fundinum, er Morgunblað-
ið hafði síðast af honum
spurnir. í gær og í dag er
ráð gert fyrir takmark-
aðri mjólkurframleiðslu
hjá Mjólkursamsölunni,
K innig að búast má við því
að mjólk verði til sölu á
Reykjavíkursvæðinu í dag
og væntanlega einnig á
VERKSTJÓRAFÉLAG Reykja-
víkur hélt sinn 59. aðalfund,
sunnudaginn 6. maí sl., í húsa-
kynnum félagsins að Skipholti 3,
Rvk. A fundinum fór fram, auk
venjulegra aðalfundarstarfa, kjör
þingfulltrúa á 18. þing Verkstjóra-
félags Islands sem haldið verður á
Laugarvatni 22.-24. júní nk.
Stjórn V.F.R. skipa Haukur
Guðjónsson formaður, Sigurður
Teitsson varaformaður, Einar K.
Gílsason ritari, Rútur Eggertsson
gjaldkeri og Jörgen M. Berndsen
varagjaldkeri.
Auglýst dóm-
araembætti
við Hæstarétt
DÓMARAEMBÆTTI við
Ila'starétt íslands hefur verið
auglýst laust til Umsóknar með
umsóknarfresti til 29. júní n.k.
Fjölga á dómurum í Hæstarétti
úr 6 í 7 í samræmi við Jög, sem
samþykkt voru á Alþingi í vetur.
morgun, en síðan er óvíst
um framhaldið.
Oddur Helgason, sölustjóri M.S.
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að undanþágan, sem í gildi
væri, væri bundin við mjólk,
rjóma, súrmjólk og skyr, en
óheimilt væri að framleiða jógúrt
og aðrar mjólkurafurðir. Þá er
undanþágan á nýmjólk skilyrt því
að ekki sé dreift svokallaðri
G-vöru, en talsverðar birgðir
munu vera til á Selfossi af full-
unninni og pakkaðri G-mjólk, sem
hefur geymsluþol um langan tíma.
Oddur kvað þær undanþágur, sem
nú væri verið að vinna samkvæmt,
koma í veg fyrir að bændur þurfi
Félagið varð 60 ára á árinu og
var þess minnst með hófi og
útgáfu afmælisrits.
„ÉG HEF trú á því að það verði
rætt af fullri alvöru í ríkisstjórn-
inni núna,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, dómsmálarað-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins í gær, er Morgunblaðið
spurði hann hvort bráöabirgða-
lög um vandamál vinnumarkað-
arins færu að sjá dagsins ljós. í
gærmorgun féll niður reglulegur
ríkisstjórnarfundur vegna heim-
sóknar varaforsætisráðherra Al-
þýðulýðveldisins Kína og er fund-
urinn ráðgerður í dag.
Morgunblaðið spurði Steingrím,
hvort vænta mætti ákvörðunar af
nú að hella niður mjólk. Þó kvað
hann allt óvíst á næstu dögum og
ef ekki yrði um frekari undanþág-
ur að ræða, kvað hann bændur
þurfa að hella niður mjólk um
næstu helgi.
I greinargerð frá Mjólkurfræð-
ingafélagi Islands, sem Morgun-
blaðinu hefur borizt segir um
niðurhellingu á mjólk: „Varðandi
fyrirætlanir forráðamanna mjólk-
ursamlaganna um að hætta að
taka á móti mjólk um miðja
vikuna og snúa sér að niðurhell-
ingu, viljum við taka fram, að
vinnslugeta og geymslurými
mjólkurbúanna á 1. verðlagssvæði
eru nægjanleg til að fullvinna alla
þá mjólk, sem til fellur á svæðinu.
Og að mjólkurfræðingar eru
reiðubúnir til að vinna úr mjó lk
eins og verið hefur. Ef af þessum
lokunar- og niðurhellingaráform-
um verður, lýsum við allri ábyrgð
af því á hendur forráðamönnum
mjólkursamlaganna."
ríkisstjórnarfundinum í dag.
Hann svaraði: „Ég held að því
verði ekki lengi frestað, en hins
vegar skilst mér að línurnar í
farmannadeilunni hafi eitthvað
skýrzt, en hvort þaö getur orðið til
þess að hún leysist á annan máta,
veit ég ekki, það væri vonandi. Ég
held þó að þessum málum verði
ekki lengur frestað, þvi að þótt
kannski sé rétt að ekki sé neyðar-
ástand, vegna undanþága, þá er
ljóst að neyðarástand verður, ef
viðnám gegn verðbólgu fer út um
þúfur. Með olíuhækkun ofan á allt
annað, held ég að menn verði að
MIKLIR vatnavextir eru víða
norðanlands og í leysingunum
síðustu daga hefur orðið tjón á
vegum og bæir eru nánast ein-
angraðir vegna flóðanna. Verst
er ástandið í Þingeyjarsýslum,
þar sem illfært er um vegi.
Vegurinn frá Akureyri til Húsa-
víkur var fær í gær, en víða orðinn
erfiður yfirferðar. Við Húsabakka
í Köldukinn var vegurinn illa
farinn, en þó tókst að halda
honum opnum að mestu. Utan við
Laxamýri var plast sett yfir veg-
inn svo hann græfist ekki eins í
sundur.
Léttari bifreiðum var fært yfir
Fljótsheiði niður í Aðaldal, en
færð var orðin mjög varasöm á
háheiðinni síðdegis í gær. Um
tíma þurfti að loka veginum við
Ingjaldsstaði, er ræsi bilaði í
veginum. í Aðaldal er Staðarskæl-
an einn flói, þannig að fólk af
Staðarbæjunum þarf að fara út
Hvamma til að komast í vegasam-
band.
Ráðherrar
uppteknir
og bændur
töpuðu10
milljónum
RÍKISSTJÓRNIN kom ekki
saman til fundar í gær til þess
að ræða hækkun á land-
búnaðarafurðum eins og
áformað var vegna þess að
ráðherrar voru uppteknir í
viðræðum við varaforsætis-
ráðherra Kína, Geng Biao, að
því er Agnar Guðnason blaða-
fulltrúi bænda tjáði Mbl. Blað-
fulltrúinn sagði í gær að þessi
fundhöld hefðu kostað bænd-
ur 10 milljónir króna, því það
væri sú upphæð sem land-
búnaðurinn tapaði dag hvern
sem drægist að hið nýja land-
búnaðarverð tæki gildi.
Ártölin
brengluðust
Prentvillupúkinn hrærði veru-
lega í ártölum í grein um Vestur-
farana íslenzku í hvítasunnu-
blaðinu. Þar var að sjálfsögðu
verið að tala um útflytjendur á
síðari hluta 19. aldar. Þeir fóru til
Brasilíu 1859 en ekki 1959 og voru
farnir að halda til Kanada og
Ameríku um 1870 en ekki 1970
o.s.frv. Stóri hópurinn kom vestur
til Nýja íslands svo sem sjá má af
textanum 1876 en ekki 96, og
settust um 200 þeirra að í
Winnipeg.
horfast í augu við þá staðreynd, að
grunnkaupshækkanir verða ekki
meiri en 3%, það er útilokað mál.“
En er hægt að fá farmenn til
þess að hefja vinnu eftir svo langt
verkfall fyrir aðeins 3%? — var
spurning, sem blaðamaður Morg-
unblaðsins bar upp við ráðherra:
„Það getur orðið erfitt, en að vísu
skilst mér að þeir hafi margir
verið í vinnu og haft tekjur, en það
er sama, ég er sammála því að
þetta er slæmt ef það dregst
eitthvað."
Norðausturvegur var lokaður í
gær við Breiðuvík og Máná á
Tjörnesi vegna flóða, en verður
væntanlega opnaður í dag. Vegur-
inn rofnaði við Ferjubakka í Öxar-
firði í gær og erfiðleikar voru í
Skógum vegna mikilla vatnavaxta
í Skógarkílnum. Það sem veldur
þessum miklu flóðum er að snjór,
sem féll seinni hluta vetrar og í
vor, hefur bráðnað mjög hratt í
góðviðrinu síðustu daga.
Gef a 500 þús. í
sundlaugasjóð
AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar á'
Suðurnesjum var haldinn 4. mars sl.
A fundinum var samþykkt að gefa
kr. 500.000 í sundlaugarsjóð Sjálfs-
bjargar, kr. 100.000 í ferðasjóð
vistmanna í Hátúni 12 og kr. 150.000
til kaupa á húsgögnum í íbúðir sem
ætlaðar eru Sjálfsbjargarfélögum
utan af landi, sem þurfa að dvelja í
Reykjavík. Þessar íbúðir eru í
Hátúni 12. Einnig var samþykkt að
styrkja unglinga sem ætla til
Noregs með hóp fatlaða í júní nk.
Stjórn Sjálfsbjargar skipa
Friðrik Ársæll Magnússon for-
maður, Guðmunda M. Friðriksdóttir
ritari, Jón Stígsson gjaldkeri,
Kristjana Ólafsdóttir varaformaður
og Valgerður Guðjónsdóttir með-
stjórnandi.
Hjálmar Jóns-
son formaður
Málarafé-
lags Rvíkur
AÐALFUNDUR Málarafélags
Reykjavíkur var haldinn 21. apríl
sl. í hinu nýja húsnæði að
Lágmúla 5, þar sem öll starfsemi
félagsins er nú til húsa. í stjórn
voru kosnir Hjálmar Jónsson for-
maður, Sæmundur Bæringsson
varáformaður, Leifur Örn Dawson
gjaldkeri, Kristján Guðbjartsson
ritari og Sigurður Pétursson ritari
stjórnar. Varamenn voru kosnir
þeir Ragnar Eggertsson og
Guðmundur Stefánsson.
Heykílóið
á 100 kr.
TÖLUVERÐ eftirspurn hefur
síðustu vikur verið eftir heyi
en framboð á því er sáralítið.
Nokkuð er þó um að bændur
hafi miðlað heyi innan sveitar
og stöku menn hafa selt hey
milli landshluta. Algengast er
að hey hafi fram eftir vetri
verið selt á 35 til 40 krónur
kílóið en síðustu vikur hefur
verðið farið hækkandi og eru
dæmi um að hey hafi verið selt
á 80 krónur kílóið. Er þá gert
ráð fyrir að 50 krónur komi í
hlut bóndans en 30 krónur sé
kostnaður við að binda heyið.
Hæsta verð, sem heyrst hefur
að hey hafi verið selt á nú í vor
er 100 krónur kílóið, en þess
má geta að verð á hverju kílói
af fóðurbæti er nú á milli 90 og
100 krónur.
Aukafundur
LÍÚ í dag
AUKAFUNDUR LÍÚ verður hald-
inn í Kristalsal Hótels Loftleiða
klukkan 14 í dag. Til þessa fundar
er boðað vegna þess að ekkert
hefur miðað með ákvörðun fisk-
verðsins og engar tillögur komið
fram til þess að leysa vanda
útgerðarinnar.
Haukur Guðjónsson
formaður V.F.R.
Steingrímur Hermannsson:
Bráðabirgðalög rædd af fullri
alvöru á ríkisstjórnarfundi