Morgunblaðið - 27.07.1979, Side 18

Morgunblaðið - 27.07.1979, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JULI1979 18 Anna Amalia Stein- dórsdóttir—Minning Fædd 2. apríl 1921. Dáin 19. júlí 1979. Þann 19. júlí andaðist á Land- spítalanum frú Anna Amalia Steindórsdóttir, prentsmiðju- stjóra Gunnarssonar hér í borg, Björnssonar frá Fitjamýri undir Eyjafjöllum. Gunnar Björnsson afi Onnu kvæntist Þorbjörgu Pétursdóttur frá Guðfuskálum í Leiru Jónssonar meðhjálpara, f. í Ivarshúsum í Garði. Gunnar og Þorbjörg eignuðust 12 börn og setti sá fríði hópur svip á bæinn sakir framtaks og dugnaðar. í dag er aðeins einn á lífi þeirra systkina, Jón Jóhann, f. 1895, fyrrv. skrifstofustjóri H.F. Hamars. Móðir Önnu var (Stella) Jóhanna Petra, dóttir Nicolai kaupmanns Bjarnarsonar Péturs- sonar Bjarnasen, versl.stjóra í Vestmannaeyjum og konu hans Önnu Thorsteinsson kaupmanns og útgerðarmanns á Isafirði. Nicolai og Anna eignuðust 4 börn, er öll settu svip á bæinn á sinni tíð, en af þeim eru nú tveir eftirlifandi: Hjálmar, bankaritari, f. 1900, og Gunnar, fyrrv. skóla- stjóri Vélskólans, f. 1901. Mikið hefur Suðurgatan breytt um svip frá því að ég sá systurnar í Suðurgötu 8B, fyrir um 40 árum, en þar stóð heimili þeirra Steindórs og Stellu. Foreldrar Stellu bjuggu þá að Suðurgötu 5. Anna fæddist 2. apríl 1921 og ólst upp í glöðum hópi systkina sinna, Höskulds, sem var elstur (nú látinn), Ingibjargar og Þorbjargar, sem eru yngri. Eftir nám i Kvennaskólanum vann Anna um tíma í prentsmiðju föður síns, þar til hún giftist Hauki Friðfinnssyni, prentara og leikara Guðjónssonar. Haukur var sérlega geðugur og mikið snyrtimenni í umgengni og starfi. Eftir stutta sambúð veiktist Haukur af ólækn- andi sjúkdómi og andaðist á Vífilsstöðum. Það var Önnu mikill söknuður, sem hún bar þó sérlega vel. Þeim varð ekki barna auðið. Árið 1950 giftist Anna Hirti Fjeldsted kaupmanni. Hjörtur var mikið snyrti- og prúðmenni. Hann stofnaði og rak Hjartarbúð af frábærum dugnaði og hugsaði alveg sérlega vel um heimili sitt. Þau áttu saman 3 börn: Gunnar vélvirki, kvæntur Hafdísi Einarsdóttur, og eiga þau 2 börn. Jóhanna sjúkraliði, er á 1 son, og Hjörtur Björgvin, unnasta hans er Marta Haraldsdóttir. Margar eru þær minningar sem koma upp í hugann frá liðinni tíð, sem ekki verða raktar hér. Þau Anna og Hjörtur áttu fallegt heimili að Safamýri 79 og var mjög ánægju- legt að koma til þeirra. En aftur sótti sorgin Önnu heim, því Hjörtur eiginmaður hennar andaðist 1969 á besta aldri eða rétt 50 ára. Eftir það bjó Anna með börnum sínum, nú síðast að Safamýri 50. Fráfall Hjartar var Önnu mikið áfall og hefi ég oftlega dáðst að þeim kjarki og þreki er Anna sýndi þá, en segja má að frá þeimm tíma hafi hún ekki gengið til heil skógar eins og það er orðað. Anna var nettvaxin kona, en stór er á reyndi og stærst er mest reyndi á eins og hún átti ættir til. Börnum hennar, systrum, Gunnari W. hálfbróður hennar og öðrum ættingjum flyt ég innilegar samúðarkveðjur. Hálfdán Steingrímsson. Boxnar aldrei brotnar í bylnum stóra seinast. St.G.St. Kær skólasystir Anna Stein- dórsdóttir Fjeldsted hefur kvatt þennan heim. Löng og góð kynni eru rifjuð upp en fátt eitt sett á blað. Fyrstu kynni okkar hófust í Miðbæjarbarnaskólanum fyrir um það bil hálfri öld. Anna ólst upp hjá ástríkum foreldrum og í glöð- um systkinahópi. Hennar æsku- heimili var við Suðurgötu í hjarta borgarinnar, spölkorn frá einum fegursta stað hennar, Tjörninni í Reykjavík, þar sem allt iðaði af lífi og fjöri, sumar sem vetur. Minningar frá þessum leikvangi æskunnar eru ógleymanlegar. Kríugarg, svanasöngur og horn- sílaveiðar setja svip á sumartíð en á frostköldum vetrardögum var hlaupið að skautum ásamt hundr- uðum Reykvíkinga á öllum aldri. Oft bar það við að farið var í kapphlaup við hestana, sem þeystu um ísilagða Tjörnina með sleða í eftirdragi, já og jafnvel stolist til þess að fá sér bunu á sleðunum. Ökumönnum var ekkert um þessa leiki æskunnar. Þeir sáu hættuna, sem gat fylgt í kjölfarið, auk þess voru þeir að sækja ísblokkir í íshúsin og höfðu ekki tíma til ærsla. Árin liðu og oft var brosað og hlegið af litlu tilefni. Þegar skólahurð Miðbæjarskól- ans lokaðist á hæla okkur opnuð- ust dyr Kvennaskólans í Reykja- vík. Báðir þessir skólar standa við Tjörnina og sama fegurð blasti við. Aðalbreytingin og ef til vill sú erfiðasta var sú, að nú þurfti að þéra kennarana. Það er broslegt að minnast þess að á þessum árum héldum við að allar áhyggjur væru að baki, þegar prófum lyki og skruddum skellt, en enginn veit sína æfina fyrr en öll er. Eftir skólaveruna lá leið skóla- systrana til allra átta. Sumar settust að á erlendri grund, aðrar úti á landsbyggðinni, en flestar urðu eftir í höfuðborginni. I skólanum bundust bekkjar- systurnar sterkum vináttubönd- um sem haldast enn. Ákveðið var að hittast reglulega og við það hefur verið staðið. Með þessu móti höfum við fylgst hver með annarri gegnum árin og tekið þátt í sorg- um og gleði sem lífið rétti að. Örlögin fara misjafnlega mildum höndum um mannanna börn. Oft voru þau harðleikin við þessa kjarkmiklu elskulegu konu, sem virtist eflast við hverja raun. Hún eignaðist tvo ágæta eiginmenn, þótt hún þyrfti að sjá á bak þeim báðum. Þrjú elskuleg börn átti hún og nú á síðustu árum elskuleg barnabörn. Fjölskyldan stóð þétt saman og frændgarður var góður. En sorgin barði snemma að dyrum og ýmsir aðrir vágestir fylgdu fast á eftir. Þar á meðal sá sjúkdómur sem varð henni að lokum að aldurtila. Baráttan var hörð, en ójöfn, en Anna stóð meðan stætt var, eins og grenitréð hans Stephans G. Við skólasysturnar þökkum Önnu fyrir hennar góðu samfylgd og börnum hennar og öðrum ást- vinum sendum við innilegar sam- úðarkveðjur og biðjum þeim bless- unar guðs. Áslaug Friðriksdóttir. Halldór Jónsson Akranesi—Minning Hann andaðist að Hrafnistu í Reykjavík þann 21. júlí s.l. Fædd- ur þann 20. nóv. 1891 og hefði því orðir 88 ára gamall á þessu ári. Foreldrar hans voru Jón Bene- diktsson og Valgerður Eyjólfs- dóttir á Aðalbóli hér á Akranesi, og var Halldór oftast kenndur við þann stað. Hann bjó einnig þar lengst af með konu sinni, Bjarn- fríði Ásmundsdóttur frá Háteigi á • Akranesi. Þau ólu upp eina dóttur (kjördóttur), Hellenu Halldrórs- dóttur, sem nú býr í Reykjavík og vinnur við Aðstoðarstofnun aldr- aðra hjá Reykjavíkurborg. Hall- dór var reyndar undir hennar verndarhendi, eftir að hann flutti héðan af Akranesi á Hrafnistu. Halldór byrjaði ungur að árum að stunda sjómennsku og fisk- vinnslustörf, með það að mark- miði, að eignast sinn eigin fiski- bát. Árið 1910 kaupir hann lítinn vélbát, „Hafrenning", ásamt hálf- bróður sínum Lofti Loftssyni og mági Þórði Ásmundssyni. Halldór var skipstjóri á bátnum fyrstu árin. Árið 1912 láta þeir smíða hér vélbátinn „Eldingu", sem var ann- ar af fyrstu þilfarsvélbátunum, sem hér voru smíðaðir. Árið 1916 láta þeir félagar smíða v/b. Kjart- an Ólafsson í Skagen á Jótlandi. Halldór fylgdist með þeirri ný- smíði úti í Danmörku, og samdi á sama tíma um kaup á öðrum vélbát. Það var „Valborg", sem síðar fékk nafnið „Hrefna". Eig- endur hans voru þeir Halldór, Davíð á Arnbjargarlæk, bróðir hans Þorsteinn sýslumaður í Döl- um og Brynjólfur lögfræðingur frá Reykjavík. Halldór og Davíð urðu uppfrá þessu miklir vinir, sem fóru oft að hitta hvorn annan. Til þess að hagnýta afla bát- anna, tók Halldór land á leigu á Götuhúsakampi, byggði þar fisk- verkunarhús og aðstöðu til salt- fiskþurrkunar, reiti til sólþurrk- unar. Þarna verkaði hann bæði sinn eigin fisk og annarra, þegar svo bar undir. Hann var einnig þátttakandi í síldveiðum og verk- un, á meðan hún var og hét, bæði á Siglufirði, Ingólfsfirði og víðar. Þótt útgerðarumsvif hans væru aðallega á fyrri hluta aldarinnar, var hann hluthafi og starfandi í útgerðarfyrirtækjum alla tíð. Til dæmis Víðisfélaginu, sem sjálf- stæðismenn á Akranesi stofnuðu og keyptu togarann Sindra, en rekstur hans var á Halldórs hendi, Síldar & fiskimjölsverksmiðjunni hf. o.fl. Það reyndi oft á þrek og hörku Halldórs í sjóróðrum og sigling- um. Til dæmis þegar hann stýrði Faöir okkar EIRÍKUR ÞORSTEINSSON bóndi Löngumýri Skaiöum er látinn. Börnin. t Alúöarþakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö viö andlát og jaröarför SIGURBJARGAR JÓNÍNU EINARSDÓTTUR Stigahlíö 20, R og sýndu henni vinsemd og viröingu. Sigríöur Siguröardóttir Þórarinn Alexandersson Hanna Þórarinsdöttir Marta Elíasdóttir Holt Ingimar Kristinn Sveinbjörnsson Einar Grétar Sveinbjörnsson og fjölskyldur þeirra. v/b. Eldingu heillri í höfn í Reykjavík í mannskaðaveðrinu árið 1922, þegar v/b. Hera og v/b. Njáll fórust með allri áhöfn út af Sandgerði. Eldingin var einnig talin af, en Halldór hélt henni uppí ofsann. sem hrakti hana þannig afturábak, frá Garðskaga til Reykjavíkur. Hann sigldi einn- ig v/b. Valborgu heim til íslands frá Danmörku á fyrri heimstyrj- aldarárinu 1918. Þá var bæði skortur á olíu og matvælum, svo oft varð að bregða upp seglum á leiðinni, til þss að spara orkuna. Ferðin var löng og erfið í gegnum tundurduflabelti, brim og boða. Þess má geta að Jón Árnason f.v. bankastjóri var farþegi þar um borð, en hann var að koma heim frá námi. Halldór afþakkaði far- gjaldið, vegna þess hvað ferðin var erfið og fæðið af skornun skammti. Það er staðreynd að Halldór Jónsson var einn af þeim ungu mönnum, sem Ólafur B. Björnsson ritstjóri, skrifaði um í Sögu Akra- ness: „Ekkert áttu þessir ungu menn til, nema hugrekki sitt, trúna á framtíðina og þeir væru á réttri leið að vinna sjálfum sér, þorpi sínu og þjóð nokkurt gagn.“ Halldór var í mörg ár af- greiðslumaður v/b. Laxfoss fyrir HF Skallagrím hér á Akranesi, og muna hann efalaust margir frá þeim árum. Það var oft erfitt starf, en þar naut hann samstarfs- manns síns og vinar Sigurjóns Sigurðssonar frá Teig, sem nú er einnig horfinn héðan. Halldór hafði til að bera harða og öra höfðingslund, en var innra með sér bljúgur og barngóður tilfinningamaður. Við Akurnes- ingar kveðjum í dag frá Akranes- kirkju, góðan dreng, sem allir sakna er samferða honum voru, og þökkum honum öll störf hans og persónulega viðkynningu, sem ekki gleymist. Júlíur Þórðarson. Semballeikur í Skálholtskirkju Helga Ingólfsdóttir leikur ein- leiksverk fyrir sembal á sumar- tónleikum í Skálholti kl. 15 á laugardag og sunnudag. SUMARTÓNLEIKAR eru nú um hverja helgi í Skálholts- kirkju. Hefjast þeir ávallt kl. 15:00 laugardaga og sunnu- daga. Tónleikar þessir eru fremur stuttir og án hlés og ætlaðir ferðamönnum er koma að Skálholti og dvelja vilja um stund á staðnum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Messað er í Skál- holtskirkju kl. 17:00 hvern sunnudag. Um næstu helgi mun Helga Ingólfsdóttir leika einleiks- verk fyrir sembal á sumartón- leikunum. Á efnisskrá hennar eru verk eftir tvö tónskáld barokktímabilsins: „Andlát og útför Jakobs" eftir J. Kuhnau en það eru tónmyndir eftir fáeinum sögum úr Heilagri ritningu og Ouverture, partita í frönskum stíl eftir J.S. Bach. Tónleikar og þjóð- dansar í MH í kvöld í KVÖLD, föstudag, leikur Sinfón- íuhljómsveit unglinga frá Örn- skjaldarvík í Svíþjóð í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Hljómsveitina skipa 50 manns og er hún hér á vinabæjarmóti í Hveragerði en einnig hefur hún tekið þátt í norrænu æskulýðs- móti, sem nú stendur yfir í Reykjavík á vegum Æskulýðs- sambands íslands og Norræna félagsins. Hljómsveitin leikur létt klassiska tónlist. Þá kemur einnig fram á hljómleikunum þjóðdansa- hópur. Aðgangur að sýningun.ii í kvöld er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.