Morgunblaðið - 27.07.1979, Síða 32
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁ ERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINII
\l \
SIMIVN KK:
22480
EFÞAÐER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINL'
\l U.\ s|\(. \
SlMINN KK:
22480
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979
íslenzkur fíknief nahringur í S víþ jóð afh júpaður:
Átta íslendingar í
fangelsi í Gautaborg
Aðalstöðvar lögregl-
unnar í Gautaborg,
þar sem íslending-
arnir átta eru í haldi
og yfirheyrslur í
fíkniefnamálinu
fara fram.
Símamynd Göteborgs Posten.
ÁTTA íslcndinxar sitja nú í fangelsi í Gautaborg í Svíþjóð ok sá níundi er í gæziuvarðhaldi í Reykjavík og eru
þeir Krunaðir um umfanKsmikla fíkniefnasöiu í GautaborK á árinu 1978 ok það sem af er þessu ári, ok
ennfremur eru þeir Krunaðir um hasssmyKÍ til íslands. Rannsókn málsins er í höndum fíkniefnadeildar
iöKreKÍunnar í GautaborK en upp komst um málið við yfirheyrslur yfir manninum, sem situr í varðhaldi hér á
landi. Sænsk dómsyfirvöld hafa krafizt þess, að hann verði framseldur til Svíþjóðar vegna málsins ok í K*r kvað
sakadómur Reykjavíkur upp þann úrskurð, að fyrir hendi séu skilyrði til framsals, en löKmaður mannsins
áfrýjaði úrskurðinum til Hæstaréttar. í fórum íslendinKanna hafa fundizt 5‘/2 kK af hassi otr eitthvað af kókaíni.
Markaðsverð á hassi mun nú vera um 10 þúsund krónur Krammið hér á íslandi ok er söluverðmæti fíkniefnanna,
sem fundust hjá íslendinKunum 50—60 milljónir fslenzkra króna. Hinir handteknu, sem allir eru karlmenn, eru
21—42 ára Kamlir ok hafa flestir þeirra búið í GautaborK um nokkurt skeið.
Samkvæmt þeim upplýsinKum,
sem MorKunblaðið hefur aflað sér
um þetta mál, var maður einn
handtekinn á Keflavíkurflugvelli í
•júní sl. er hann var að koma hingað
til lands frá Gautaborg. Maðurinn
var handtekinn vegna fíkniefna-
máls, sem var til rannsóknar í
vetur. Við yfirheyrslur yfir mannin-
um komu fram ýmsar upplýsingar
um starfsemi íslendinganna í
Gautaborg og á miðvikudag í fyrri
viku fór Bjarnþór Aðalsteinsson
rannsóknarlögreglumaður við fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykjavík
til Gautaborgar með þær upplýsing-
ar, sem þá lágu fyrir. Tveir lög-
reglumenn við fíkniefnadeildina í
Gautaborg hófu þegar rannsókn
málsins og strax á fimmtudags-
morguninn voru fyrstu íslending-
arnir handteknir, þeir yfirheyrðir
og húsleit framkvæmd hjá þeim.
Hinir Islendingarnir voru svo hand-
teknir hver af öðrum og þeir síðustu
í þessari viku. I fórum eins þeirra
fundust 4 kg af hassi en hjá öðrum
fannst 1 '/2 kg af hassi og eitthvað af
Lækkandi olíu-
verð í Rotterdam
OLÍUVERÐ á markaðnum í Rott-
erdam hefur farið lækkandi að
undanförnu, samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem Örn Guðmundsson
skrifstofustjóri veitti Mbl í gær.
Hefur gasolíuverðið lækkað um
9.1% frá því sem var í byrjun júlí og
benzínverð hefur lækkað um 8,4%
frá sama tíma.
verðið lækkaði enn meira. Nýlega
kom til landsins 16 þúsud tonna
gasolíufarmur frá Rússlandi, sem
lestaður var í byrjun júlí og því
keyptur á hæsta verði, eða 385
dollarar hvert tonn.
kókaíni. Einn þeirra íslendinga, sem
tengjast málinu, sat í fangelsi í
Helsingborg, þar sem hann afplán-
aði 9 mánaða fangelsisdóm fyrir
fíkniefnasmygl og var hann fluttur
til Gautaborgar.
Rannsókn málsins er á byrjun-
arstigi ennþá. íslendingarnir voru
allir úrskurðaðir í 14 daga gæzlu-
varðhald. Eru þeir í haldi í fangelsi
Aðallögreglustöðvarinnar í Gauta-
borg, þar sem yfirheyrslur fara
fram. Beinast þær að því að upplýsa
umfang málsins og hve margir
aðilar tengjast því. Einhverjir munu
þegar hafa viðurkennt þátt sinn í
málinu og fram hefur komið að hluti
af hassinu fór til íslands og var
dreift þar. Hinir handteknu hafa
flestir komið við sögu fíkniefnamála
á íslandi áður.
Á það má minna, að í marz sl.
voru allmargir íslendingar hand-
teknir í Kaupmannahöfn grunaðir
um umfangsmikla dreifingu á fíkni-
efnum, aðallega kókaíni.
Sjá „skilyrði til framsals fyrir
hendi“ á bls. 2.
Skattskrá Vestmannaeyja lögð fram í
dag:
Gjöld einstaklinga hækka um
54.7% en félaga um 77.3%
— eignaskattur á einstaklinga hækkar um 123.8% en á félög um 116.4%
Skráð verð á gasolíu var 20. júlí
s.l. 350 dollarar hvert tonn en 2. júlí
s.l. var skráð verð 385 dollarar.
Skráð verð á benzíni var 355 dollarar
hvert tonn 20. júlí en var 387,50
dollarar tonnið 2. júlí.
Um mánaðamótin maí og júní
verðið hæst en þá var skráð verð á
gasolíu 395 dollarar tonnið og skráð
verð á benzíni 412,50 dollarar tonnið.
Nemur lækkunin á gasolíunni frá
þeim tíma 11,4%, sem samsvarar
12,9% hækkun, og lækkunin á benz-
íninu nemur 13,9%, en það samsvar-
ar 16,2% hækkun.
Örn Guðmundsson sagði að ógern-
ingur væri að spá um þróun mála á
Rotterdammarkaðnum á næstunni
en allir vonuðu að a íkinn olíusparn-
aður og þar með minni eftirspurn
myndi hafa það í för með sér að
SKATTAKRÁ Vestmannaeyja
verður lögð fram í dag. Gjöld á
2.244 einstaklinga nema 2 millj-
örðum 24 milljónum en voru á
2.242 einstaklinga í fyrra 1 millj-
arður 308 milljónir og er hækk-
unin því 54.7%. Gjöld á 134 félög
í Vestmannaeyjum nema í ár 607
milljónum 377 þúsundum en voru
á 146 félög í fyrra 342 milljónir
623 þúsund krónur. Hækkunin er
77.3% en félögum í Vestmanna-
eyjum hefur fækkað um 12 á
undanförnu ári og sé hækkunin
reiknuð á hvert fyrirtæki er hún
96.1% að sögn Inga T. Björnsson-
ar skattstjóra í Vestmannaeyjum.
Heildarálagningin í Vest-
mannaeyjum er samtals 2 millj-
arðar 631 milljón 478 þúsund í ár,
en var 1 milljarður 650 milljónir
830 þúsund í fyrra og er hækkunin
59.4%.
Þess má geta að tekjuskattur á
einstaklinga hækkaði um 68.2%
milli ára en hækkunin á félög nam
38.6%. Eignaskattur á einstakl-
inga hækkar um 123.8% og á félög
um 166.4%. Útsvör hækka síðan
um 56.2%.
Sjá: „Hæstu gjaldendur í Eyjum“
bls. 5.
Arnar ÁR 55 siglir á fullri ferð til bjargar feðgunum af Val KÓ 3, Ljósm. Mbl.: Rax,
Feðgar björguðust
úr bátskaða í nótt
FEÐGAR frá Þorlákshöfn björg-
uðust í gúmmíbát þegar 6 tonna
bátur þeirra. Valur KO 3, sökk um
11 sjómílur suður frá Hafnarnesi
um kl. 21.40 í gærkvöldi. Þegar
blaðamenn Morgunblaðins flugu
yfir KÚmmíbjörgunarbátinn á ell-
efta timanum f gærkvöldi voru
feðgarnir í honum heilir á húfi og
fylgdist flugvél LandhclKÍsgæzl-
unnar með björgunarhátnum. Hún
hafði leyst af hólmi Vængjavél sem
hafði fundið gúmmíbjörgunarbát-
inn kl. 22.30, eða um 50 mínútum
eftir að neyðarkall kom frá Vali og
tilkynning um að skipverjar væru
að fara um borð í gúmmíbjörgun-
arbátinn þar sem Valur væri að
sökkva.
Slysavarnafélagið gerði þegar
ráðstafanir til þess að flugvél færi á
slysstað og að bátur frá Þorláks-
höfn færi eftir skipbrotsmönnun-
um, en sjór var sléttur sem á
heiðartjörn. Um kl. 23.30 var Arnar
kominn að gúmmíbátnum og bjarg-
aði hann feðgunum, Hafsteini Sig-
mundssyni skipstjóra og Kára syni
hans, 13 ára, um borð heilum á húfi.
Skipstjóri á Arnari ÁR 55 er Einar
Sigurðsson, en skipherra á gæzlu-
vélinni var Gunnar Ólafsson og á
Vængjavélinni var Þórólfur Magn-
ússon flugstjóri.
Þegar Morgunblaðsmenn flugu
yfir gúmmíbátnum átti Arnar eftir
um það bil hálftíma siglingu að
bátnum, en von var á Arnari til
Þorlákshafnar um kl. 1 í nótt. Þeir
feðgar eru búsettir í Þorlákshöfn
ásamt fjölskyldu sinni, en Haf-
steinn hefur róið frá Þorlákshöfn
síðan í apríl og Kári hafði farið
nokkra róðra með honum.
Ekki lá ljóst fyrir í gærkvöldi
hver var ástæðan fyrir því að Valur
sökk svo skyndilega.