Morgunblaðið - 30.09.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979
13
Tinna í
fyrsta
stóra hlut-
verki sínu
• Tinna Gunnlaugsdóttir er
ung leikkona, sem í vetur
leikur sitt fyrsta stóra hlut-
verk í Þjóöleikhúsinu í leikriti
Nínu Bjarkar Árnadóttur,
Hvaö sögðu englarnir? Tinna
útskrifaöist frá Leiklistarskól-
anum í júlí í fyrra en í fyrra-
vetur lék hún í Glerhúsinu,
sem sýnt var í lönó.
Leikritið Hvaö sögöu enpl-
arnir? fjallar um ungan strak,
Stein, son hreingerninga-
konu, sem átt hefur erfiöa
bernsku og lendir utangarðs í
þjóðfélapinu. Hann verður
Steinn i götu annarra og
leikritið segir frá báráttu hans
við öflin í þjóöfélaginu. Stein
leikur Siguröur Sigurjónsson
en Tinna leikur kærustu
hans, Brynju. Hún er and-
stæöan viö Stein. Einkadóttir
velefnaöra foreldra en segir
skilið viö lífsgæðakaþphlaup
foreldranna. Þaö er Steinn,
sem á hug hennar allan.
„Atvinnumöguleikar ungra
leikara hafa fram aö þessu
ekki verið neitt sérlega glæsi-
legir. Þaö hefur nánast veriö
einn og einn, sem fengiö
hefur eitt og eitt hlutverk.
• Páll Hallgrímsson heldur hér á skipunarbréfinu sem undirritad hefur Kristján hinn tíundi „af guðs
néö konungur íslands og Danmerkur, Vinda og Gauta, hertogi í Slésvík, Holtsetalandi, Stórmæri,
Þéttmerski, Láenborg og Aldinborg". Ljósm. Kristján.
Eini konungsskipaði
em bœttismaðurinn á
landinu enn ístarfí
Tinna
Gunniaugsdóttir
Þetta hefur þó breyst mikiö á
síðustu tveimur árum. Bæöi
er aö stóru leikhúsin, lönó og
Þjóöleikhúsiö, hafa opnaö
meira fyrir unga leikara og
einnig hefur tilkoma Alþýðu-
leikhussins skapaö ungum
leikurum aukin atvinnutæki-
færi. Þegar þetta er sagt
veröur aö hafa í huga aö fyrir
nokkrum árum útskrifuðust
nánast engin nýir leikarar, því
starfsemi leiklistarskólanna
lá niðri um tíma,“ sagði
Tinna. Sjálf á Tinna ekki langt
aö sækja leiklistina því móöir
hennar, Herdís Þorvaldsdótt-
ir, er kunn leikkona.
Leikritiö Hvað sögöu engl-
arnir? verður frumsynt á litla
sviöi Þjóðleikhússins seinni-
hluta nóvember. Leikstjóri er
Stefán Baidursson en leik-
endur eru alls 9.
• Þó aö flestum séu gleymdir
þeir dagar er ísland var konungs-
ríki og leifar konungsríkisins aö
mestu horfnar, er þó enn maður í
embættismanna stétt á íslandi,
sem hefur konungsskipan til
starfsins. Er þaö Páll Hallgríms-
son sýslumaöur Árnessýslu á
Selfossi og mun hann vera eini
embættismaöurinn hérlendis,
sem gegnir sama starfi og hann
fékk konungsskipan til. Páll var
skipaður sýslumaöur í Árnes-
sýslu 1. janúar 1937 og tók viö
embættinu þá um haustið, þann-
ig aö í haust hefur hann setið í
embætti í 42 ár. Skipunarbréf
Páls undirritaði Kristján tíundi og
embætti en núna vantar nokkur
hundruö í 10 þúsundin.
„íslenskur sýslumaöur er ekki
vanur aö flíka mikiö ýmsum
yfirvaldstáknum, aö minnsta
kosti á seinni árum," sagöj Páll,
„og ég man ekki hvenær ég fór
síöast í einkennisbúninginn en
það eru mörg ár síöan. En þaö er
aðeins í sambandi viö útlend-
inga, sem þaö er nauösynlegt aö
eiga einkennisbúning. Þeir skilja
ekki aö þeir séu fyrir rétti eöa
frammi fyrir lögreglustjóra nema
hann sé í einkennisbúningi. Þeir
taka þaö ekki eins hátíölega og
trúa því ekki til aö byrja meö, aö
þeir séu fyrir formlegum rétti.“
nf amls nnð knmmnur Jalanöa og^lniiinn knr.
Vim'in on tbnntn,(irrlan.i i .5Uatiik,2Bollsclnlnin'ii.
§lónmrri. ).Ifllmfrnln', I’rifnborn nn -Aliiinhorn.
var þaö gert í Amalíuborg en
dómsmálaráöherra var þá Her-
mann Jónasson.
„Þetta er ekki fjölbreyttur ferill
hjá mér aö hafa verið á sama
staö allan tímann," sagöi Páll og
bætti viö, aö margt hefði breyst
frá því aö hann kom á Selfoss
1937. Hæsta bílnúmeriö þá var
90 og bílar í sýslunni um 60. Nú
eru bílnúmerin komin hátt í 5000
en aö vísu eru margar eyöur þar
inn á milli og bdbílarnir nokkru
færri. íbúar sýslunnar voru rétt
um 5 þúsund þegar Páll tók viö
Páll sagðist blessunarlega
hafa verið laus viö stór málaferli.
„Ég held aö Sunnlendingar hafi
ekki eins gaman af málavafstri
eins og kannski mætti halda um
fólk sums staðar annars staöar.
Hér reka menn ekki mál sér til
skemmtunar," sagði Páll.
„Ég er orðinn 67 ára og hef
ekki hug á því aö hanga svo lengi
sem maöur má ef allt gengur
sæmilega eöa til sjötugs. Ég á
ekki von á því aö þaö dragist
lengi hjá mér aö skila þessu,"
sagöi Páll.
Hittastímorgun-
kaffiíPfaff
• Alþingismennirnlr Albert Guð-
mundsson og Lúövík Jósepsson
hafa þaö fyrir fastan sið aö hittast
á hverjum morgni, ef þelr koma
því viö, í morgunkaffi hjá Magnúsi
Þorgeirssyni í Pfaff. Hittast þessir
þrír og nokkrir aðrir og má þar
nefna Lárus Blöndal bóksala á
hverjum morgni kl. 10 í húsnæöi
Pfaff á Bergstaðastræti 7. Flestir
eru þeir kaupsýslumenn en
Magnús í Pfaff og Lúðvík Jóseps-
son munu vera gamlir skólafélag-
ar. Segja kunnugir aö þarna séu
þjóömálin rædd á breiöum
grundvelli og er ekki aö efa, aö
þessa dagana ber væntanlegar
forsetakosningar á næsta ári þar
á góma.
Waagesysturnar
ogKúntaKinte
• Meðal gesta hins kunna diskó-
teks Studio 54 í New York eru
jafnan ýmsar kunnar persónur og
nýlega var þar leikarinn LeVar
Burton, sem viö íslendingar þekkj-
um sem Kúnta Kínte jr. úr fram-
haldsmyndaflokknum Rótum. Þetta
sama kvöld voru einnig meöal
gesta Studio 54 þær systur Kristín
og Margrét Waage og var með-
fylgjandi mynd tekin við þaö tæki-
færi. Kristín Waage sagöist hafa
heimsótt Studio 54 nokkrum sinn-
um en í sumar hefur hún starfaö
sem flugfreyja hjá Flugleiöum. Mar-
grét Waage er viö nám í Kennara-
háskóla íslands og var ó ferðalagi í
New York, þegar myndin var tekin.
• Viö hliö LeVar Burtons er Kristín og lengst til hægri er Margrót.
Stúlkuna lengst til vinstri þekkjum viö ekki.