Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 19 Haustþing Kennarasam- bands Norður- lands vestra HAUSTÞING Kennarasambands Norðurlands vestra (K.S.N.V.) sem er fræðslu- og kynningar- þing kennara á Norðurl. vestra og i Strandasýslu, var haldið i Varmahlíð i Skagafirði 13. og 14. sept. s.l. Þingið sóttu á annað hundrað manns. Gestir þingsins voru námstjórar hinna ýmsu greina Grunnskólans og aðrir leiðbeinendur. Unnið var með leiðbeinendum i vinnuhópum báða dagana og kynntu þeir námsgögn og kennsluaðferðir. Þingið hófst árdegis fimmtu- daginn 13. sept. með sameigin- legum fundi þar sem formaður K.S.N.V., Pétur Garðarsson, ræddi hlutverk og starfsvettvang Kennarasambandsins og nauðsyn þess að kennarar séu i einu stéttarfélagi. Kynnti hann lög sambandsins og þakkaði fráfar- andi formanni Höskuldi Goða Karlssyni giftudrjúg störf i þágu þess. Næstur tók til máls Sveinn Kjartansson fræðslustjóri Norð- urlands vestra og ræddi i upphafi máls síns um Ráðgjafar- og sál- fræðiþjónustu beggja fræðslu- umdæmanna á Norðurlandi sem aðsetur hefur á Akureyri. Tveir sálfræðingar hafa verið ráðnir þar til starfa og binda kennarar miklar vonir við störf þeirra, segir i frétt frá Kennarasam- bandinu. í erindi sinu kom Sveinn víða við, drap á endurskoðun Grunnskólalaganna sem er mikið mál, ný lög um Námsgagnastofn- un, reglugerð um sérkennslu og útskýrði nýja gerð vinnuskýrslna kennara og i þvi sambandi ræddi hann um fyrirmæli stjórnvalda um yfirvinnuþak sem sett var á gagnvart kennurum. Eftir hádegi unnu leiðbeinend- ur með vinnuhópum fram undir kvöldverð. Um kvöldið var síðan kvöldvaka og að henni lokinni gafst kennurum tækifæri til að ræða áhugamál sín og er sá þáttur slikra kynningarþinga ekki hvað síst mikilvægur. Á föstudögum var framhaldið starfi í vinnuhópum en um há- degisbil var haldinn fundur þar sem bornar voru upp þrjár álykt- anir og voru þær allar samþykkt- ar. Um skólaskyldu. Þingið beinir þeim tilmælum til menntamála- ráðuneytisins að það láti gera nákvæma athugun á því hvort um 9. bekk skuli gilda fræðsluskylda eða skólaskylda. Telur þingið eðli- legra að um fræðsluskyldu sé að ræða. Um endurskoðun Grunnskóla- laga. Það er álit þingsins að ekki megi hraða um of endurskoðun svo mikilvægs máls og verði að gera hana í fullu samráði við starfandi kennara. Um Námsgagnastofnun. Þingið fagnar framkomnum lögum um Námsgagnastofnun og beinir því til viðkomandi ráðherra að nú þegar verði sett reglugerð sem tryggi fulla framkvæmd laganna og einnig að komið verði upp útibúum frá stofnunini við hinar ýmsu fræðsluskrifstofur. Að loknu matarhléi var enn tekið til við starf í vinnuhópunum fram undir þingslit. Fegursti garðurinn, Sævargörðum 6 Fegurðar- og skipu- lagsverðlaun á Seltjarnarnesi FEGRUNAR- og nátt- tjarnarness hefur veitt úruverndarnefnd Sel- viðurkenningu fyrir fegursta garðinn á Sel- tjarnarnesi og fegurstu lóðina við fjölbýlishús. Fyrir valinu urðu garðurinn í Sævargörð- um 6, eigendur hjónin Sigrún Olafsdóttir og Hilmar Guðmundsson. Fjölbýlishúsalóðin sem fyrir valinu varð er Tjarnarból númer 2—8 vegna sérlega góðs skipulags á lóð, þar sem tillit er tekið til barn- anna. Nefndin mun í vetur og næsta vor taka upp leiðbeiningaþjónustu fyrir húseigendur bæði varðandi skipulag garða og plöntuval. í nefndinni eiga sæti Finnbogi Gíslason, Björn Jónsson og Stef- án Bergmann. Bezt skipulagða lóðin við fjölbýlishús er í Tjarnarbóli 2—8 Víð oða um land eru vel búin hótel Þú getur farið í helgarferð með flugfélaginu í hópi, með fjölskyldunni, eða bara þið tvö. Hringdu og spurðu um verð á helgarferð. FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.