Morgunblaðið - 30.09.1979, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979
Finnsku Normalo vefstólarnir fyrirliggjandi. Námskeið í
uppsetningu hefst fljótlega.
KORFUGERÐ
Tágar 1,5—4,0 mm. Námskeið standa nú yfir. Hvert námskeið
stendur 3 kvöld, mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
LEIRKERASMIÐI
Eigum fyrirliggjandi úrval af leir; jarðleir, steinleir, postulínsleir
og glerungum á mjög hagstæðu veröi. Einnig sjálfharðnandi
jarðleir.
Tómstundavörur fyrir heimili og skóla
\ Laugavegi 168, sími 29595. /
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AIGLVSINGA-
SIMINN ER:
22480
Hulda Ingimarsdótt-
ir—Minningarorð
Fædd 30. apríl 1911.
Dáin 21. september 1979.
Á morgun, mánudaginn 1. októ-
ber, verður Hulda Ingimarsdóttir,
sem lést hinn 21. september s.l., til
moldar borin frá Akureyrar-
kirkju.
Hulda fæddist að Sunnuhvoli á
Akureyri 30. apríl 1911 og var
dóttir hjónanna Ingimars Jóns-
sonar, sem lengi starfaði sem
iðnverkamaður á Akureyri, og
Maríu Kristjánsdóttur, sem ný-
lega er látin rétt níræð að aldri.
Hulda var fyrsta barn þeirra
hjóna en alls eignuðust þau níu
börn: Jón, Adólf, Sigríði, Ólöfu,
Sigurlínu, Rut og Hermann. Eitt
barn misstu þau nýfætt. Sigríður
og Hermann eru látin.
Hulda giftist tvítug Sigurði
Jónssyni prentara árið 1931 og
lifðu þau saman í afar farsælu
hjónabandi þar til Sigurður dó
árið 1963, langt fyrir aldur fram.
Hulda og Sigurður byrjuðu
búskap sinn í svokölluðu Sig-
tryggshúsi á Akureyri en bjuggu
lengst af að Brekkugötu 19.
Síðustu ár Sigurðar áttu þau
heimili að Hrafnagilsstræti 10.
Hulda og Sigurður eignuðust tvær
dætur, Maríu, sem er gift Sigurði
Valgarð Jónssyni, og Báru, sem er
gift Sverri Benediktssyni rakara-
meistara. Báðar hafa búið í
Reykjavík um árabil ásamt fjöl-
skyldum sínum.
Hulda og Sigurður ólu einnig
upp Vilhelmínu, systurdóttur
Huldu, sem er gift Hjalta Hjalta-
syni og býr á Akureyri.
Eftir fráfall Sigurðar fluttist
Hulda til Hafnarfjarðar og þaðan
til Reykjavíkur þar sem hún m.a.
starfaði um skeið hjá sælgætis-
gerðinni Víkingi og Vegagerð
ríkisins.
Minningin um Huldu er hugljúf
minning um einstaklega góða,
konu einlæga og trausta. Hlýlegt
viðmót hennar yljaði öllum um
hjartarætur. Vinum sínum reynd-
ist hún ávallt traust hjálparhella
og á móti öllum tók hún opnum
örmum. Hvar sem Hulda fór
ávann hún sér hylli og virðingu
þeirra sem kynntust henni. Aldrei
var henni hallmælt. Það var gott
að eiga hana að.
Hulda var ástkær móðir og
amma. Eiginmanni sínum og
dætrum bjó hún yndislegt heimili
á Akureyri. Þar ríkti heiðríkja
alla tíð enda voru þau hjónin
sérlega samhent í einu og öllu. Oft
var gestkvæmt hjá þeim og gest-
risni þeirra rómuð.
Hulda var sérstaklega elskuð af
dætrum sínum; tengdasonum og
barnabörnum. I veikindum sínum
síðustu árin naut Hulda ríkulega
ástúðar þeirra. Allt vildu þau gera
til þess að hjálpa henni og gleðja.
Þeim og öllum ættingjum og
vinum Huldu sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Dr. Ingimar Jónsson
Með fáeinum orðum vil ég
kveðja ömmu mína, er lést að
Vífilsstaðaspítala föstudaginn 21.
þessa mánaðar. Amma var frá
Akureyri og bjó þar til ársins
1964. Ári áður missti hún mann
sinn Sigurð heitinn Jónsson prent-
ara. Þau láta eftir sig tvær dætur,
þær Maríu og Báru, svo og Vilhel-
mínu sem var fósturdóttir þeirra.
Amma var góð og skilningsrík
sem eiginkona og móðir. Allt
gengur yfir, voru þau orð sem
giltu á heimili þeirra er erfiðleik-
RSiS
LESTU ÞETTA
Ódýrustu 20 litasjónvörpin
— og þau eru japönsk gæðavara í kaupbæti.
VERÐIÐ ER
®SANYO
sjónvörp
sameina myndgæöi,
frábæra liti. Bilana-
tíöni í algjöru
lágmarki.
sjónvörp
búa yfir bestu kost-
um sjónvarpa.
utinai S4t>z>úióöon kf.
^ Sudurlandsbraut 16.
498.500-
Takmarkaö
magn
Sími 35200.
ar steðjuðu að. Það reyndist satt,
þetta gekk allt yfir.
Amma fluttist til Reykjavíkur
árið 1964 og starfaði þar við
ýmislegt. Alls staðar skilaði hún
starfi sínu með sóma. Hún var
dugleg, samviskusöm og heiðarleg.
Bestu tímar ömmu í Reykjavík
voru er hún bjó með dóttursonum
sínum tveim, þeim Arnari Sverris-
syni og Haraldi Sigurðssyni. Hún
reyndist þeim mjög vel og þeir
henni. Búskapur þeirra tengdi þau
saman og brúaði bil milli yngri og
eldri kynslóðarinnar. Öllum var
amma góð, ungum sem öldnum,
veikum og heilbrigðum.
í kringum 1975 hófust veikindi
hennar, sem meinuðu henni að
stunda vinnu og eyddu öllum
hennar kröftum. Er leið á ágerð-
ust þessi veikindi hennar og leiddi
til þess að hún komst lítið og var
að mestu heima við. En það
gerðiist oft að hún var það slæm
að hún var flutt á spítala, oftast á
Vífilsstaði. En amma kvartaði
ekki og reyndi ævinlega að dylja
veikindi sín.
En við vorum svipt miklu, er
amma dó svo ekki sé minnst á
dóttur hennar Báru og mann
hennar Sverri. Þau hugsuðu svo
vel um hana í veikindum hennar
að enginn hefði getað eða gerði
betur. Guð gefi þeim og öllum
aðstandendum ömmu og vinum
styrk til að komast yfir þetta
erfiða skref í tilætlunum Guðs.
Helga Dögg Sverrisdóttir.
Ráðstefna um
heilsuvernd
fjölskyldunnar
LAUGARDAGINN 22. september
1979 var haldin, á Hótel Esju,
ráðstefna á vegum Félags há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga. Bar hún heitið „Heilsu-
vernd fjölskyldunnar“. Ráðstefn-
an var ætluð almenningi svo og
þeim sem að heilbrigðismálum
starfa. Þátttaka var góð og voru
ráðstefnugestir um hundrað.
Ráðstefnan var haldin í tilefni
barnaárs. Tilgangurinn var að
vekja athygli á mikilvægi fjöl-
skyldunnar og ýmsum þáttum er
varða heilsugæslu hennar. Lögð
var áhersla á fyrirbyggjandi
starfsemi og fræðslu bæði í sam-
bandi við geðræn og líkamleg
vandamál. Fyrirlesarar voru alls
tíu talsins. Gestafyrirlesari var
Kristjana Kristiansen sem vinnur
að Dr. prófi í Public Health í
Bandaríkjunum. Fjallaði erindi
hennar um stefnur og þróun í
heilsuverndarmálum og ábyrgð
stjórnvalda hvað þau varða.