Morgunblaðið - 30.09.1979, Side 31

Morgunblaðið - 30.09.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 31 Aðalfundur Dýralæknafélagsins: Aá^- TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR Laugavegi 66 Sími frá skiptiborði 85055. vh.i.ysim; \ SÍMINN KR: 22480 Happdrætti Fóstrufélagsins: Vinningar ósóttir ENN ERU allmargir vinningar ósóttir í leikfangahappdrætti Fóstrufélags íslands, en dregið var í því 13. júlí s.l. Vinninga er hægt að vitja á skrifstofu félagsins, sem er opin á þriðjudögum og miðvikudögum frá 9—12 og síminn er 27610. Númer hinna ósóttu vinninga eru: 3957, - 3956, - 3588, - 1170, - 3589, - 402, - 1822, - 3831, - 1221, - 3999, - 560, - 1721. Það er kominn snjó r I Esjuna.. og kuldajakkarnir eru loksins komnir Mótmælir frumvarpi um að eingöngu lyfjabúð- ir geti selt dýralyf AÐALFUNDUR Dýralækninga- félags íslands var haldinn fyrir nokkru i Stykkishólmi og stóð fundurinn yfir i tvo daga. Á fundinum komu meðal annars fram mótmæli við frumvarpi til laga um lyfsölu, þar sem gert er ráð fyrir að lyfjahúðir geti einar selt dýralyf. Töldu fundarmenn þetta óframkvæmanlegt þar sem bændum viða yrði mjög erfitt að nálgast nauðsynleg lyf og því yrði lyfjasala enn sem fyrr best komin í höndum dýralækna, sem hafa alla þekkingu til að með- höndla þessi lyf. Fyrri dag fundarins var fjallað um fagleg mál og flutti dr. Kjell Jonsgard dýralæknir frá Dýra- læknahaskólanum í Ósló fyrirlest- ur um mikilvægi þess að dýra- læknar færi skýrslur um daglegar lækningar og kynnti nýtt kerfi þar sem hvert dýr hefur sitt spjald, sem á er ritað heilsufar og lækn- ingar. Einnig flutti hann fyrirlest- ur um doða í kúm og svaraði fyrirspurnum þar að lútandi. Seinni dag fundarins var tekið til við aðalfundarstörf, flutt skýrsla stjórnar og dýralæknarnir Gunnar Már Gunnarsson og Ragnar Ragnarsson fluttu erindi. í lok fundarins voru gerðar ýmsar samþykktir. Gagnrýndi fundurinn lyfjaheildsölur fyrir að ávallt virtist verða tímabundinn skortur á ýmsum nauðsynlegum lyfjum og þá aðallega um háannatímann á vorin. Einnig var á fundinum rætt um nauðsyn þess að ferðakostnað- ur dýralækna í vitjunum yrði jafnaður svo allir bændur hefðu svipaða aðstöðu til að njóta þjón- ustu dýralæknanna an tillits til búsetu dýralæknisins. v Samþykkt var áskorun til bú- fjáreigenda á ósýktum býlum, þar sem þeir eru varaðir við hey- og fjárkaupum frá bæjum þar sem riðuveiki hefur verið staðfest og garnaveiki orðið vart síðustu árin, og er þetta mikilvægt nú, þar sem búast má við talsverðum heyflutn- ingum í haust og vetur. Ný stjórn Dýralæknafélagsins var kosin í lok fundarins og skipa hana Jón Guðbrandsson formað- ur, héraðsdýralæknir á Selfossi, Halldór Runólfsson, héraðslæknir á Kirkjubæjarklaustri, ritari, og Sigurður Örn Hansson, dýralækn- ir, Reykjavík, gjaldkeri. Ur stjórn gengu Jón Pétursson, Egilsstöð- um, Birnir Bjarnason, Höfn og Rögnvaldur Ingólfsson, Búðardal. Voru þeim þökkuð drjúg störf á liðnum árum í þágu dýralækna- stéttarinnar. Hveragerði: Nýr kafli varanlegs slitlags lagður Hveragerði, 28. september. Á HVERJU ári bætist við varanlega gatnagerð í Hveragerði. í gær var lokið við að leggja malbik á stóran og langþráðan kafla, þ.e. Heiðmörkina, en hún liggur þvert í gegnum þorpið frá Náttúrulækningahælinu og vestur í nýjasta hverfið. Er þetta hin mesta sam- göngubót. í Hveragerði hafa eingöngu verið byggð einbýl- ishús þar til nú síðustu árin nokkur par- og raðhús. Gatnakerfið er því mjög langt og mikill höfuðverkur að halda því í horfinu. íbú- arnir fagna því hverjum áfanga sem vinnst í varan- legri gatnagerð. Sigrún. Nýr fréttaritari í Hveragerði NYR fréttaritari Morgunblaðs- ins í Hveragerði hefur störf nú 1. október. Er það Sigrún Sigfús- dóttir og er sími hennar 4333. Eru íbúar staðarins beðnir að hafa samband við Sigrúnu, ef þeir vilja koma fréttum eða fréttamyndum á framfæri við blaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.