Morgunblaðið - 14.12.1979, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
Hitaveita fyrir Eyrar-
bakka og Stokkseyri
Fær heitt vatn frá Selfossi
Eyrarbakka. 13. des.
í DAG var undirritaður
samningur milli Selfoss-
bæjar annars vegar og
Eyrarbakka- og Stokks-
eyrarhreppa hins vegar
Laugavegi lok-
að á morgun
Á MORGUN, laugardag, verður
Laugavegur lokaður fyrir bílaum-
ferð fyrir neðan Snorrabraut á
timabilinu kl. 13—19, en verzlanir
verða sem kunnugt er opnar til kl.
22 á morgun. Sami háttur verður
hafður á næsta laugardag, 22.
desember.
Lögreglan hefur beðið Mbl. að
koma því á framfæri við þá, sem
ætla að gera jólainnkaup um helg-
ina að leita sér að heppilegum
bílastæðum fyrir utan mestu um-
ferðarsvæðin og ganga síðan milli
verzlana í stað þess að fara á
bílunum inn á þær götur, þar sem
mestur umferðarþunginn er. Vill
lögreglan í þessu sambandi benda á
bílastæði á Skólavörðuholti, við
Snorrabraut og við Gömlu loft-
skeytastöðina.
Þess skal getið að stærætisvögn-
um verður heimilt að aka Lauga-
veginn á morgun, þótt vegurinn
verði almennt lokaður fyrir
bílaumferð.
Stærsta skip
íslenzka flot-
ans afhent
ÍSSKIP HF hefur fest kaup á
flutningaskipi f Englandi og
verður skipið afhent i Hollandi
einhvern næstu daga.
Nýja skipið er 5700 tonn og
verður því burðarmesta vöru-
flutningaskip íslenzka flotans.
Áformað er að skipið verði í
flutningum með hráefni til
Járnblendiverksmiðjunnar á,
Grundartanga.
Áhöfn skipsins er farin utan
til þess að sækja það. Skipstjóri
verður Gunnnar Magnússon.
Fjórar góðar
ísfisksölur
ÞRJÚ fiskiskip seldu í Englandi
og Þýzkalandi í gær. Otur seldi
132 lestir í Hull fyrir 75 milljónir,
meðalverð 567 krónur. Búrfell
seldi 54 lestir í Fleetwood fyrir
32.5 milljónir, meðalverð 605
krónur. Stígandi seldi 41 lest í
Cuxhaven fyrir 19 milljónir, með-
alverð 465 krónur. Þá landaði
Vestri í Grimsby á miðvikudag, 61
milljón fékkst fyrir 110 lestir,
meðalverð 542 krónur.
um vatnsöflun til fyrir-
hugaðrar Hitaveitu Eyra.
Með samningnum er stefnt að
því að hitaveita Selfoss geti fyrir
árslok 1981 selt Hitaveitu Eyra
vatn til upphitunar á Eyrarbakka
og Stokkseyri. Um helgina verður
svo væntanlega undirritaður
samningur milli hreppanna um
stofnun Hitaveitu Eyra, en ætlun-
in er að hún annist sölu á heitu
vatni í báðum þorpunum.
Langflest hús á Eyrarbakka og
Stokkseyri eru nú kynt með olíu.
Aðveituæð frá Selfossi niður til
kauptúnanna tveggja verður um
13 kílómetra löng. — óskar.
'O
INNLENT
Hjónin Hrafnhildur Jónsdóttir og Emil Þ. Guðbjartsson ásamt börnum sinum tveimur, en þau hjónin
duttu heldur betur i lukkupottinn i vikunni þegar þau unnu 45 milijónir i Happdrætti Háskólans, en
það er stærsti vinningur sem komið hefur á einn miða hérlendis. Þau standa i húsbyggingu og koma
peningarnir þvi að góðum notum. Hjónin eru þarna fyrir framan hús sitt í Stykkishólmi.
Ljósm. Mbl. Árnl Helgason.
Vinstri viðræðurnar aftur í gang í dag:
Framsókn telur ekki svig-
rúm til grunnkaupshækkana
„ÉG legg áherzlu á að koma
málum nú i undirnefndir“, sagði
Steingrimur Hermannsson for-
maður Framsóknarflokksins, er
Mbl. spurði hann um stjórnar-
myndunarviðræður vinstri flokk-
anna, en þær lágu niðri i gær og
fyrradag vegna þingsetningar og
forsetakjörs. Fundur verður
klukkan 11 í dag og kvaðst
Steingrímur ætla að halda við-
ræðum gangandi yfir helgina til
þess að koma málum áfram.
Alþýðuflokkurinn hefur nú fjölg-
að i viðræðunefnd sinni upp í sex,
eins og hinir flokkarnir tveir, og
hafa þeir Magnús H. Magnússon
og Karl Steinar Guðnason bætzt i
hópinn. Mbl. spurði Steingrim
hvort hann hefði sömu trú á
vinstri viðræðunum nú og fyrst
og sagðist hann ekki sjá ástæðu
til annars, þótt hinu væri ekki að
lcyna að ýms ummæli Ólafs
Ragnars Grimssonar, formanns
framkvæmdastjórnar Aiþýðu-
bandalagsins, væru sizt til þess
fallin að stuðla að samstöðu.
Mbl. spurði Steingrím, hverjum
augum framsóknarmenn litu það
stefnumál Alþýðubandalagsins að
auka kaupmátt lægstu launa með
grunnkaupshækkun. „Við vildum
auðvitað gjarnan að svo gæti
orðið, en teljum hins vegar því
miður ekki svigrúm til slíks
strax", svaraði Steingrímur. „Við
framsóknarmenn erum með í okk-
ar tillögum 8% mark á verðbóta-
vísitöluna 1. marz og samkvæmt
nýjustu útreikningum á það að
geta staðizt. Við sláum þó þann
varnagla, að fari vísitalan eitt-
hvað hærra, þá erum við reiðu-
búnir til að bæta hag hinna
lægstlaunuðu um sem nemur allt
að tveimur prósentustigum með
fjölskyldubótum eða einhverjum
öðrum hætti. Ég vil taka það
sérstaklega fram, að við teljum
sjálfsagt, að þeir lægstlaunuðu
haldi þeim 2%, sem þeir fengu
með bráðabirgðalögunum“.
Mbl. spurði Steingrím ennfrem-
ur um þá kröfu Alþýðubandalags-
ins að herinn fari úr landinu. „Það
er ljóst, að Alþýðuflokkurinn er á
móti því“, svaraði Steingrímur.
Mbl. spurði þá um afstöðu Fram-
sóknarflokksins og sagði
Steingrímur að þetta mál hefði
ekki verið sérstaklega rætt í
stjórnarmyndunarviðræðunefnd-
inni. Mbl. spurði þá hvort sú
yfirlýsing hans fyrir kosningar að
hann væri sammála Ólafi Jóhann-
essyni um það að aðstæður væru
ekki til þess að herinn færi á þessu
kjörtímabili stæði óbreytt eða
ekki og svaraði Steingrímur því til
að hún stæði óbreytt. „Ég tel
persónulega ekki að þær aðstæður
séu fyrir hendi, en hins vegar
þýðir það ekki, að við framsókn-
armenn viljum óbreytt ástand um
alla eilífð. Ég vil gjarnan reyna að
finna einhvern jákvæðan flöt á
þessu máli, til dæmis í þá átt, að
við tökum sjálfir virkari þátt í
okkar vörnum".
Steingrímur kvaðst ekki vilja
fara frekar út í efnisatriði stjórn-
armyndunarviðræðnanna, en
svaraði þó spurningu Mbl. um
gengismál á þann veg, að Þjóð-
hagsstofnun hefði reiknað út að
5% gengisbreyting ætti að duga
fyrir fyrsta tímabil næsta árs.
„Við framsóknarmenn teljum að
slík gengisbreyting sé hófleg",
sagði Steingrímur Hermannsson.
Nýtt fjárlagafrumvarp lagt fram:
Lúðvík starfs-
maður þingflokks
Alþýðubandalags
LÚÐVÍK Jósepsson hefur
verið ráðinn starfsmaður
þingflokks Alþýðubanda-
lagsins, að þvi er Morgun-
blaðinu var tjáð i gær.
Lúðvik Jósepsson er eins og
kunnugt er ekki lengur
þingmaður flokksins, þar
sem hann gaf ekki kost á sér
við siðustu alþingiskosn-
ingar. Hann er enn formað-
ur Alþýðubandalagsins.
Mildi að næturævin-
týri ungra Eskfirð-
inga fór ekki verr
Eskifirði, 13. desember.
SNEMMA í morgun var björgun-
arsveit Slysavarnafélagsins,
Brimrún, á Eskifirði, kvödd út til
leitar að ungum manni í fjallinu
á milli Eskifjarðar og Norðfjarð-
ar. Fannst pilturinn um tveimur
tímum eftir að sveitin lagði af
stað og var hann meiddur á fæti,
en ekki alvarlega slasaður.
Dregið úr framlögum ríkissjóðs
til framkvæmda og stofnana
RIKISSTJÓRNIN lagði í gær fram á Alþingi nýtt frumvarp til
fjárlaga og eru niðurstöðutölur þess 323,1 milljarður króna. Gert er
ráð fyrir 8,5 milljarða króna tekjuafgangi. Greiðsluafgangur
frumvarpsins er 267 milljónir króna. Til samanburðar voru
niðurstöðutölur fjárlagafrumvarps vinstri stjórnarinnar 330,3 millj-
arðar króna og tekjuafgangur rétt tæplega 9 milljarðar króna.
Greiðsluafgangur var þá 275 milljónir króna.
í athugasemdum við fjárlaga- lögin geti orðið tæki til viðnáms
frumvarpið segir, að það sé
veigamiklum atriðum frábrugðið
fjárlagafrumvarpinu, sem lagt var
fyrir Alþingi í októbermánuði, en
frumvarpið leitist við að stýra
ríkisfjármálunum þannig, að fjár-
gegn verðbólgu. Þetta segir, að sé
gert með þrennum hætti:
í fyrsta lagi með því, að setja
opinberum umsvifum ákveðin tak-
mörk, þar sem dregið sé úr
framkvæmdum og beitt auknu
aðhaldi í ríkisrekstrinum. Mark-
visst sé dregið úr framlögum
ríkissjóðs til framkvæmda og til
reksturs stofnana og ennfremur
lagt til að dregið verði úr erlend-
um lántökum til að hamla gegn
skuldasöfnun erlendis.
í öðru lagi með því að lækka
allverulega tekjuskatt einstakl-
inga og ætti sú aðgerð að vinna
gegn kjaraskerðingaráhrifum
óviðráðanlegra utanaðkomandi
aðstæðna, svo sem vegna olíu-
verðshækkunar. Lagt er til að
tekjuskattur einstaklinga verði
lækkaður um 19,3% frá fyrri
hugmyndum og ráðstöfunartekjur
heimila auknar að sama skapi.
Segir í athugasemdum að þetta
ætti að auðvelda samkomulag um
hóflegar launabreytingar, sem er
nauðsynlegur þáttur í jafnvæg-
isstefnu efnahagsmála.
í þriðja lagi segir að frumvarpið
leggi til að tryggður verði traustur
ríkisfjárhagur á næsta ári, sem er
óhjákvæmilegt framiag ríkisins í
baráttu við verðbólguna.
Tildrög voru þau, að tveir ungir
menn ætluðu til Neskaupstaðar í
nótt á litlum fólksbíl. Veður var
mjög vont í fjallinu, hvasst og
hríð. Þegar þeir voru komnir upp
að Högnastaðaá misstu þeir bílinn
út af veginum í snjónum og
hugðust þá ganga til baka til
Eskifjarðar, en urðu viðskila í
óveðrinu.
Það var svo milli 6 og 7 í
morgun að annar þeirra komst
niður á Eskifjörð og gat sagt frá
atburðum. Björgunarsveitin
Brimrún hóf þegar leit og fannst
fljótlega slóð mannsins, sem lá frá
bílnum niður fjallið og fram af
klettum hjá Högnastaðaá. Fannst
maðurinn síðan nokkru neðar í
fjallinu og hafði hann lent fram af
klettunum, en snjórinn trúlega
bjargað honum. Hann var kaldur
og hrakinn, mikið marinn á fæti
og hnéskel trúlega brotin.
Niður á Eskifjörð komu björg-
unarsveitarmenn tveimur tímum
eftir að þeir lögðu af stað. Læknir-
inn á Eskifirði skoðaði piltinn, en
sendi síðan með snjóbíl yfir
Oddsskarð í sjúkrahúsið á Nes-
kaupstað til frekari rannsóknar
vegna meiðslanna á fætinum.
Segja má, að vel hafi til tekizt að
finna drenginn svona fljótt í slíku
veðri sem þarna var og mildi að
ekki fór verr. — Ævar