Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 13 NAT04öndin ávíta Iran BrUssel 13. des. Frá íréttaritara Mb!.. Birni Bjarnasyni. UTANRÍKISRÁÐHERRAFUNDUR Atlantshafsbandalagsins hófst hér i Briissel í morgun á umræðum um ástandið í íran og töku bandaríska sendiráðsfóiksins i gíslingu. Gáfu samherjar Bandaríkja- manna í bandalaginu út sérstaka yfirlýsingu um hádegið þar sem þeir lýsa stuðningi við málstað Bandaríkjanna i baráttunni við írani og leggja hart að yfirvöldum i íran að láta gislana nú þegar lausa og leyfa þeim að hverfa til síns heima. — Þetta er traustvekjandi og mikils metinn stuðningur, sem bandamenn okkar hafa veitt okk- ur, sagði háttsettur bandarískur embættismaður á fundi með blaðamönnum eftir að yfirlýsingin hafði verið gefin út. Sagði hann, að fulltrúar allra þjóðanna 14 hefðu tekið til máls um íran og allir verið fullir stuðnings við Bandaríkin. Taldi hann yfirlýsing- una mikilvægan lið í baráttu Bandaríkjastjórnar, sem nú er einkum háð fyrir Alþjóðadómstól- um í Haag og í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Lét embætt- ismaðurinn að því liggja, að eðli- legt næsta skref yrði að grípa til efnahagslegra þvingana gagnvart írönum, ef þeir breyttu ekki um stefnu. Það er skýrt tekið fram í yfirlýsingunni, að Atlantshafs- bandalagslöndin ætla sér ekki að hlutast til um innanríkismál írana og á fundinum hér mun ekki hafa verið fjallað um sérgreind atriði heldur málið rætt almennt. Með utanríkisráðherrafundin- um lýkur röð funda bandalags- þjóðanna sem hófust á mánudag. Mikilvægasti fundurinn var hald- inn á miðvikudag, þegar ákvörðun var tekin um endurnýjun eld- flaugavarnakerfis bandalagsins í Evrópu. Búizt er við að utanríkis- ráðherrarnir slíti fundi sínum um hádegið á föstudag. í setningarræðu á fundinum í morgun sagði Joseph Luns fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins m.a: „Við erum sem fyrr hlynntir framgangi slökunar- stefnunnar. Þó verðum við að viðurkenna, að okkur hefur miðað lítið á þeirri leið. Eitt helzta vandamál okkar er stöðug og hömlulaus aukning á sovézku valdi um heim allan. Hin megin- hættan sem ógnar öryggi okkar á rætur að rekja til óstöðugleika og öfga í löndum þriðja heimsins. Óhjákvæmilega eru tengsl milli þessara tveggja ógnvalda. Aldrei fyrr í sögu bandalags okkar hefur verið eins mikil þörf á samstöðu og samheldni og á því að þjóðir okkar hafi ítarlegt og hreinskilið samráð sín á rnilli." NATO-tillögur um vígbúnað Briissel. 13. desomber. AP. Reuter. SAMKVÆMT áreiðanlegum heimildum samþykktu utanríkisráðherr- ar bandalagsins á leynifundi í dag nýja „pakka" með tillögum um að draga úr vigbúnaði, en Bretar fóru að dæmi Frakka og útilokuðu að þeir mundu skera niður kjarnorkuherafla sinn. Tiliögurnar verða sennilega lagðar fram þegar ráðstefna 10 ríkja um fækkun herja hefst aftur í Vín í næstu viku eins og vonir hafa staðið til. Ráðherrarnir hlýddu á Cyrus Vance gera grein fyrir hugsan- legum afleiðingum gíslamálsins ,í Teheran. Einn ráðherrann sagði á eftir að honum skildist, að ef einhver gíslanna yrði fyrir skaða skapaðist mjög alvarlegt ástand sem leiddi til róttækra aðgerða, en ráðherrann, sem vildi ekki láta nafns síns getið, skýrði þetta ekki nánar. Austur-Evrópuríki fóru að dæmi Sovétríkjanna í dag og fordæmdu fyrirætlanir NATO um staðsetningu meðaldrægra flauga í Vestur-Evrópu og Austur-Þjóð- verjar sögðu, að þeir mundu auka herútgjöld sín. Austur-þýski Kommúnistaleið- toginn Erich Honecker sagði á miðstjórnarfundi, að Vesturveldin hefðu komið fyrir nýjum eldflaug- um „við útidyr Sovétríkjanna". Ummæli hans er fyrsta áþreifan- lega svarið frá bandamönnum Rússa við ákvörðun NATO um staðsetningu meðaldrægra flauga, en engar tölur um aukin herút- gjöld voru nefndar. En tekið var fram að Austur-Þjóðverjar væru enn reiðubúnir að bæta sambúð- ina við Vestur-Þýzkaland. Hon- ecker á von á sögulegri heimsókn Helmut Schmidts kanzlara snemma á næsta ári. Árásir Austur-Evrópuríkja höfðu ekki að geyma vísbendingar um að þau ætluðu að draga úr tengslum við vestræn ríki. Tékkn- eska blaðið Rude Pravo kvað áætlun NATO „tilraun til að eyðileggja friðinn". Svipuð gagn- rýni kom fram annars staðar í Austur-Evrópu og talsmaður Varsjárbandalagsins endurtók hótanir um ótilgreindar aðgerðir aðildarlandanna. Þá lýsti stjórn Finnlands „djúp- um áhyggjum" vegna ástandsins. UMBOÐSMENN UM ALLT LAND HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI S: 20313 GLÆSIBÆR S:82590 AUSTURVER S:36161 Skemmtileg gjöf sem á eftir aö veita ómældar ánægjustundir. Verð frá kr. 18.180 —43.920 vasamyndavélarnar eru í tösku, sem myndar handfang þegar hún opnast. Þú nærð þannig trausti taki á vélinni og hún verður stöðugri og þú tekur betri og skarpari myndir. KodakEKTRA Gjöfin gleður . .KodakEKTRA vasamyndavél með handfangi vantarþigQ VINNU $ VANTAR ÞIG (fj) FÓLK i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.