Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 32
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 Demantur m æðstur eðalsteina - <áuil 8c é>ilfttr Laugavegi 35 r Fikniefnavandamálið verður sífellt alvarlegra á Islandi: Ungmenni láta lífið vegna fíkniefnaneyzlu Þetta eru fíknieíni, sem gerð hafa verið upptæk á undan- förnum misserum og eytt var að Keldum í nóvember- mánuði s.l. undir eftirliti yfirvaida. Söluverðmæti þeirra á ólöglegum markaði hér innanlands mun vera tæpar 100 milljónir króna. Ljósm. Fiknlefnadeild lögreglunnar. Heróín komið á markaðinn — 4000 ungmenni hafa komið við sögu í fíkniefnamálum YFIRVÖLDUM i fikniefnamálum er kunnugt um nokkur dauðsföll íslenzkra ungmenna á siðustu misserum, sem beinlínis má rekja til fíkniefnaneyzlu. Þetta kemur fram í samtali, sem Morgunblaðið hefur átt við Guðmund Gígju lögreglufulltrúa við fikniefnadeild lögreglunnar í Reykjavik. Guðmundur segir að fikniefnavandamálið verði sífellt alvar- legra hér á landi og að það þurfi að gera stórátak í þessum málum ef ekki eigi illa að fara. Það kemur fram í samtalinu við Guðmund að á þessu ári hafa um 500 íslenzk ungmenni verið til yfir- heyrslu hjá fíkniefnadeildinni og frá upphafi hafa um 4000 ungmenni Hleraði símtöl blokk r 1 RANNSÓKNARLÖGREGLA rikisins framkvæmdi i vikunni húsleit hjá ungum manni vegna rannsóknar á málum, sem hann er talinn viðriðinn. Á heimili mannsins fannst harla óvenjulegt símtól og var maðurinn krafinn skýringa á tilvist þess. Viðurkenndi maðurinn þá að hann hefði tengt símtólið við símatöflu fjölbýlishúss, sem hann býr í og á þann hátt getað hlerað símtöl annarra íbúa hússins. Jafnframt viðurkenndi hann að hafa tengt símtólið við símadós í vegg íbúðar sinnar, en þar var enginn sími og á þann hátt getað hringt út í bæ og jafnvel út á land og það á kostnað annars íbúa í húsinu, en hans sími var tengdur í sömu dós. Rannsókn á þessu óvenjulega máli og öðrum málum manns- ins er ekki lokið og hefur hann verið úrskurðaður í gæzluvarð- hald til 17. desember. komið við sögu hjá deildinni. Sá yngsti var 15 ára. Margir koma við sögu aftur og aftur. Dæmi eru um að fólk hafi atvinnu af dreifingu fíkniefna. Kannabisefnin eru sem fyrr yfir- gnæfandi á markaðnum en á þessu ári hefur í fyrsta skipti verið staðfestur innflutningur og neyzla á heróíni, sem er stórhættulegt efni er verður hundruðum Norðurlandabúa að bana á hverju ári. — Við erum hættír að hrökkva við þótt við heyrum heróín nefnt og það segir talsverða sögu, segir Guðmundur. Og hvernig verður ástandið á næstu árum að mati Guðmundar, ef ekki verður spyrnt við fótum? — Það mun berast sífellt meira af efnum inn í landið og sífellt fleiri ungmenni munu ánetjast fíkniefn- um. Sterku efnin verða meira áber- andi á markaðnum, t.d. heróín, og æ fleiri íslenzk ungmenni verða her- óínsjúklingar. Til að byrja með kynnast þeir heróíni erlendis og byrja að neyta þess, og þeir koma svo hingað sem sjúklingar. Síðan mun notkun á heróíni hefjast hér innanlands. Afbrotum tengdum fíkniefnaneyzlu mun fjölga og síðast en ekki síst munu æ fleiri íslenzk ungmenni deyja vegna notkunar fíkníefna, nú þegar vitum við um nokkur dauðsföll íslenzkra ung- menna, sem beinlínis má rekja til fíkniefnaneyzlu. Þetta er að gerast allt í kringum okkur, t.d. á Norður- löndunum, þar sem hundruð ung- menna deyja árlega vegna sterku fíkniefnanna. Ég get ómögulega séð hvers vegna þetta ætti að verða öðru vísi hjá okkur, því miður. Sjá: „Fiknielnavandamálið verður sifellt alvarlegra á Íslandi." á bls. 17. Stjórn Alþingis kjörin í gær: Samstaða vinstri anna reyndist öll flokk- í molum „IIAFI þessar kosningar einhver áhrif til hins verra á stjórnar- myndunarviðræðurnar, þá hafa þær verið vonlaust verk frá upp- hafi“, sagði Steingrímur Her- mannsson formaður Framsóknar- flokksins, er Mbl. spurði hann í gærkvöldi, hvort hann teldi að ósamkomulag vinstri flokkanna um forsetakjör á Alþingi í gær og sameiginlegt framboð Framsóknar og Alþýðubandalags til efri deiidar, gæti haft neikvæð áhrif á gang vinstri viðræðnanna. Þetta kosningabandalag Alþýðu- bandalags og Framsðknar kom al- þýðuflokksmönnum mjög á óvart, þar sem Steingrímur fíermannsson hafði lýst því yfir í fjölmiðlum, að framsóknarmenn væru ekki reiðu- búnir til samstarfs við annan við- ræðuflokk sinn á móti hinum. „Við gerðum ítrekaðar tilraunir til þess að koma á samstöðu allra flokka um forsetakjörið, en því miður tókst það ekki,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokks- ins. „Við vildum ekki mynda blokk með einum né neinum öðrum flokki til að fá fram að okkar mati óeðlilegar niðurstöður." Sighvatur Björgvinsson sagði, er hann var spurður að því, hvort þetta bandalag framsóknarmanna og alþýðubanda- lagsmanna í þinginu myndi hafa neikvæð áhrif á vinstri viðræðurnar: Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins: Legg áherzlu á að menn stilli saman krafta sína — Fyrsta sporið stigið tii sátta við Eggert Haukdal ÓLAFUR G. Einarsson var í gær kjörinn formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins með öllum greiddum atkvæðum, nema fjórum, sem voru auð. Á þingflokksfundi i dag klukkan 15 verður síðan kjörinn varaformaður þingflokksins, en í gær vannst ekki timi til þess að ganga frá kjöri hans, þar sem þingflokkurinn ákvað deildaskiptingu þingmanna sinna og afstöðu til forsetakjörs. Morgunblaðið ræddi í gær við Ólaf G. Einarsson. Hann sagði: „Ég er ánægður með að mér hefur verið sýnt þetta traust og ég hlakka til að glíma við þetta starf. Mér er ljóst að það er viðamikið og að ég fylli ekki að öllu leyti út í þann ramma, sem menn kannski vilja hafa um mann, sem gegnir þessu starfi. Ég er ákveðinn í því að gera mitt bezta og leggja alla þá vinnu af mörkum, sem mér er mögulegt til þess að standa í starfinu eins og sæmir. Ég mun leggja höfuðáherzlu á að menn nái saman í þessum flokki, að menn stilli saman krafta sína, það veltur á því, og tel ég það eitt af mínum höfuð- verkefnum." Ólafur vildi ekki staðfesta þær atkvæðatölur, sem í upphafi þessarar fréttar greinir, en hann kvað varaformann kjörinn í dag, svo og ritara. Hins vegar sagði Ólafur að fyrsta skrefið til sátta við Eggert Haukdal hefði verið stigið í gær. „Það var með því að gera við hann kosningabandalag um kosningu í deildir og því fylgir auðvitað ákveðið sam- komulag um að við tryggjum honum sæti í nefndum. Er þetta fyrsta skrefið í sáttaátt, sem menn eru almennt sammála um að stíga þarf til fulls. Þó þarf áður að fullnægja ýmsum forms- atriðum." Morgunblaðið spurði Ólaf, hvort innan Suðurlandskjör- dæmis hefði eitthvað það gerzt, sem styddi það, að nú drægi að samkomulagi milli sjálfstæð- ismanna og Eggerts. Ólafur kvað ólaíur G. Einarsson sér ekki kunnugt um það, að öðru leyti en að þingmenn Sunnlendinga í þingflokki sjálf- stæðismanna hefðu átt viðræður við Eggert, „og hafa þeir á sinn hátt lýst yfir vilja sínum til samkomulags, þótt menn greini kannski á um hraða málsins." „Ég á ekkert fremur von á því.“ Hins vegar taldi annar þingmaður Al- þýðuflokksins, að þetta myndi ekki auðvelda erfiða stjórnarmyndun flokkanna þriggja. Ragnar Arnalds formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins kvað af- stöðu alþýðuflokksmannanna koma alþýðubandalagsmönnum mjög á óvart og hann sæi ekki betur en takmark þeirra væri það helzt, að gera veg Alþýðubandalagsins sem minnstan, þar sem kratar gætu hvorki unnt þeim að fá forseta sameinaðs þings né formann fjár- veitinganefndar, en báðar stöðurnar hefðu þeir haft í fyrri vinstri stjórn. Hann kvað þó þessi mál ekki þurfa að hafa sérstök áhrif á stjórnar- myndunarviðræðurnar, en kvað þó afstöðu Alþýðuflokks ekki lofa góðu. Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins kvað afstöðu Alþýðuflokksins í forseta- kjörinu í gær hafa verið eðlilega að sínu mati. Alþýðuflokksmenn hafi haldið fast við síðustu tillögu sína, sem hafi verið eðlileg afstaða af þeirra hálfu. Ljóst hafi verið, að alþýðuflokksmenn gætu ekki farið út í kosningabandalag með Sjálfstæðis- flokki, þar sem þeir væru þátt- takendur í vinstri viðræðum. Um þá staðreynd, að kosningabandalag Framsóknar og Alþýðubandalags hafi komið í veg fyrir viðreisnar- mynstur sagði Ólafur, að hafi hann hvorki orðið var við viðreisnaráhuga í Sjálfstæðisflokki né Alþýðuflokki eins og málum hafi verið háttað. Slíkt stjórnarmynstur hafi því ekki verið á dagskrá. Vegna rúmleysis í Morgunblaðinu í dag verða ítarlegri viðbrögð forystumanna flokkanna að bíða birtingar til morguns. Sjá nánar um forsetakjör á Al- þingi á miðsíðu blaðsins í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.