Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 Einu sinni var - stóra ævintýra- bókin komin EINU SINNI VAR — stóra ævin- týrabókin er komin út hjá Leiftri. Hefur bókin að geyma ýmis þekkt ævintýri og má þar nefna Ferða- kistuna fljúgandi, Aladdín og töfralampann, Stígvélaða köttinn, Jóa og baunagrasið og fjöldamörg önnur sígild ævintýri. Bókin er prýdd mörgum teikningum. Niðjatal Gunn- laugs Björns- sonar komið út NIÐJATAL Gunnlaugs Björns- sonar, bónda á óspaksstöðum i Hrútafirði, og eiginkvenna hans, er komið út hjá Leiftri. Friðrik Theodór Ingþórsson tók niðjatalið saman. Gunnlaugur var fæddur að Hæli á Ásum, A-Húna- vatnssýslu, árið 1812. Hann bjó lengst af á Óspaksstöðum í Hrúta- firði en síðustu árin í Óskapsseli og lézt þar. Fyrri kona hans var Sigríður Bjarnadóttir frá Hrafna- dal í Strandasýslu og seinni kona Guðrún Jónsdóttir frá Fossi í Hrútafirði. Tamarindfræið eftir Evelyn Anthony komin út KOMIN er út hjá Leiftri skáld- sagan Tamarindfræið eftir Eve- lyn Anthony. Þar segir frá stúlku sem starfar í aðalskrifstofu S.Þ. í leyfi á Barbados hittir hún einkar alúð- legan mann, og hana grunar ekki að hann sé tengdur njósnakerfi Rússa. ein eftir danskan listamann en 10 eftir íslenska listamenn. Auk þess er vitað að til eru þrjár myndir af Snorra til viðbótar og eru þær allar eftir norska listamenn. Bókin um Snorra er 186 bls., prentuð í Prentsmiðjunni Hólum. Gunnar Karlsson og Helgi Þor- láksson hafa búið bókina til prent- unar. Matthías Ástþórsson teikn- aði stafi á titilsíðu eftir hendi þeirri á Reykholtsmáldaga sem eignuð er Snorra. „Snorri, átta alda minning", er fimmta bókin sem Sögufélagið gefur út á þessu ári. Hinar fjórar eru Söguslóðir, afmælisrit gefið út til heiðurs prófessor Ólafi Hans- syni; Árnessýsla, sýslu- og sókna- lýsingar; Saga, tímarit Sögufé- lagsins, og Jón Sigurðsson forseti 1811-1879. Höfundar greinanna um Snorra og verk hans sem birt- ast í „Snorri. átta alda minning“ Talið frá vinstri: Óskar Hall- dórsson, Gunnar Karlsson, Halldór Laxness, ólafur Hall- dórsson, Helgi Þorláksson og Bjarni Guðnason. Ljósm. Kristján. Forseti íslands, hr. Kristján Eldjárn, heiðursformaður Snorranefndar, tekur við fyrsta eintaki af bókinni „Snorri, átta alda minning“ úr hendi Einars Laxness, for- seta Sögufélags. Snorri og verk hans Sögufélagið gefur út bók með greinum eftir 6 höf- unda um Snorra Sturluson SÖGUFÉLAGIÐ hefur gefið út bókina „Snorri, átta alda minn- ing“. Er hún gefin út til að minnast þess, að á þessu ári munu vera liðin 800 ár frá fæðingu Snorra Sturlusonar. Stofn bókarinnar er erindi sem hafa verið samin i tilefni af afmælinu og flutt á árinu við ýmis tækifæri. Fyrst er ræða Halldórs Laxness sem hann flutti á Snorrahátíð í hátíðarsal Há- skóians 22. júní með nokkurri viðbót. Þá eru í bókinni fjórar greinar um Snorra og verk hans, unnar upp úr hádegiserindum sem voru flutt í útvarp í janúar- mánuði. Þar fjallar Gunnar Karlsson lektor um stjórnmála- manninn Snorra, óskar Hall- dórsson dósent um Snorra-Eddu, ólafur Halldórsson handrita- fræðingur um sagnaritun Snorra og Bjarni Guðnason prófessor um frásagnarlist hans. Þá eru tvær greinar eftir Helga Þorláksson sagnfræðing. önnur er að stofni til fyrirlestur fluttur á aðalfundi Sögufélagsins og birtir nýjar niðurstöður um verslunar- og utanlandspólitik Snorra og Oddaverja. Hin er hugleiðingar um hvernig Snorri leit út. í bókinni eru margar myndir og tengjast margar þeirra greininni sem fjallar um útlit Snorra. 18 myndir eru af Snorra sjálfum þar af eru 7 eftir norska listamenn. Olafur Jóhann Sigurðsson Einstakt ritsafn á kynningarverði til áramóta Olafur Jóhann Sigurðsson hefur fyrir löngu skipað sér á bekk með okkar fremstu rithöf- undum. í mörg ár hafa bókaunnendur beðið eftir heildarútgáíu á verkum hans og nú er átta binda ritsafn komið í bókabúðir. Margar af bestu bókum Ólafs Jóhanns hafa verið ófáanlegar um langt skeið. Nú hafa þær verið endurprentaðar og í þessu glæsilega rit- safni eru eftirtaldar bækur: Fjallið og draumurinn Vorköld jörð Þriar sögur Otá þjóðveginn (sögur 1935 - 1940) I gestanauð (sögur 1940 -1945) Margs að gæta (sögur 1945 - 1962) Gangvirkið Seiður og hélog Verð til áramóta aðeins kr. 65.000. Eftir þann tíma verður safnið selt á kr. 94.400. jrfp 1 * 5 | & ■ VORKÖLD JORÖ ÓbfiifJ *SÍ*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.