Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
• Flosi Sigurðsson.
Flosi vekur athygli
FRÁ ÞVÍ er skyrt í bandaríska
dagblaðinu Seattle Times, að svo
virðist sem annar íslendingur
muni leika með liði University oí
Washington á þessu keppnis-
timabili, en sem kunnugt er
hefur Pétur Guðmundsson leikið
með liðinu siðustu keppnistíma-
bilin. Hér er um Flosa Sigurðsson
að ræða og segir i blaðinu, að
Marwin Harshman, þjálfari UW
sé með Flosa í felum og ætli að
tefla honum fram óvænt á næst-
unni.
Harshman segir hins vegar í
umræddri blaðagrein, að hann
hafi alls ekki verið með Flosa í
felum, heldur hafi tíminn verið
notaður til þess að byggja hann
upp, þannig er Flosi nú um 15
kílógrömmum þyngri heldur en
hann var þegar hann fór út,
þannig að pundin eru þá orðin
eitthvað um 200. Er einnig haft
eftir Harshman, að hann efist
ekki um að Flosi verði brátt nógu
góður til þess að leika
háskójakörfuknattleik og yrðu þá
tveir íslendingar í liði University
of Washington. í umræddri
blaðagrein er einnig minnst á að
Einar Bollason hafi verið þarna á
ferðalagi fyrir skömmu, „var
íslenski landsliðsþjálfarinn að
afla sér ýmis konar þjálfunar-
punkta hjá Harshman," segir í
blaðagrein Seattle Times.
bjóöum viö okkar vinsæla „kabarett-bakka
Bráö Ijúfengur forréttur
t>rír gómsætir kjötréttir
Desert „du la klass"
Sérsiakleya á lækk-
uáv verdi bjódurn viö
hálfar brauösneióar,
blandaö áleyg 6—8
teyundir á kr. 990-
• Hávörn UMFL stöðvar fallegan skell Gunnars Árnasonar í leik
Þrottar og UMFL í gærkvöldi. Var þetta ekki i eina skiptið sem kom
til kasta UMFL-varnarinnar, en hún var þétt fyrir. Ljósm. Emilia
Laugdælir eru
að stinga af
- unnu Þrótt örugglega í gærkvöldi
SPENNAN i 1. deild karla i blaki
minnkaði töluvert og Laugdælir
treystu stöðu sina á toppnum með
þvi að sigra Þrótt furðu auðveld-
lega i Hagaskólanum i gær-
kvöldi. Leikurinn gekk greiðlega
fyrir sig, Þróttarar voru aldrei á
þeim brókunum að vinna hrinu,
leikurinn endaði 3—0 fyrir Laug-
dæli.
Þróttarar áttu sínar rósóttu
stundir á fyrstu mínútum leiksins.
Taugaspenna var töluverð í byrjun
og Þróttarar voru heldur fljótari
að hafa hemil á henni. Þeir
komust í 3—0. En um leið og
leikmenn UMFL höfðu róað sínar
taugar, kom í ljós að þeir voru
greinilega sterkari aðilinn á vell-
inum og staðan breyttist á
skömmum tíma í 8—3 fyrir
UMFL. Úr því var ekki aftur
snúið, ekki' bara í þeirri hrinu
heldur í leiknum öllum, UMFL
vann fyrstu hrinuna 15—12 og
komst síðan í 7—2 í næstu hrinu.
Þróttararnir tóku sig heldur á um
miðbik hrinunar, en urðu samt að
sætta sig við tap, 9—15.
Yfirburðir UMFL voru síðan
aldrei meiri heldur en í sjálfri
úrslitahrinunni, en þá komst liðið
í 13—3 og úrslitin virtust ráðin.
Þá hljóp hins vegar allt í baklás
um tíma, Þróttur vann boltann
hvað eftir annað og dró á UMFL,
staðan breyttist í 13—7, en þá
small allt í liðinn aftur og síðustu
tvö stigin komu hlaupandi, 15—7
fyrir UMFL.
Oft brá fyrir spennandi köflum í
leik þessum, en baráttan bar þó
gæðin oft ofurliði. Var hart barist,
menn runnu fram og til baka á
maganum og gólfið og boltinn var
kýldur í allar áttir, þ.á m. í
rafmagnsklukkuna, en ekki hlaust
tjón af. Svitapollar voru um allt
gólf og stórhættulegir. En UMFL
vann öruggan sigur og ef liðið
verður Islandsmeistari á ný, eins
og margt bendir til, geta leikmenn
liðsins þakkað áhangendum sínum
fyrir veturinn, en ætla hefði mátt
að leikurinn í gær hefði farið fram
austur á Laugarvatni, slíkur var
hávaðinn í Laugdælum, sem börðu
trommur, blésu í lúðra og flautur
og sungu jólasálma með frum-
sömdum textum. önnur eins
stemmning er ekki í kring um
önnur lið í deildinni og ber hún
liðið langa leið.
Eftir þennan leik hafa Laugdæl-
ir hlotið 14 stig eftir 8 leiki, en
Þróttur aðeins 8 stig eftir 6 leiki,
þannig að Þróttur mátti varla við
því að tapa þessum leik. En það
kemur dagur eftir þennan.
gg.
Njarðvíkurljón
gefa UMFN
LIONSKLÚBBUR Njarðvíkur heíur ákveðið að færa UMFN höfðing-
lega gjöf, það er myndtöku- og myndsýningartæki að verðmæti 2.2
milljónir króna. Þetta eru hlutir, sem aila iþróttaforystumenn
dreymir um, en Njarðvikingar fá sinn draum uppfylltan um áramótin.
róttir bls. 63.