Morgunblaðið - 14.12.1979, Síða 18

Morgunblaðið - 14.12.1979, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 Elsta húsið í Stykkishólmi, Norska húsið. Það var byggt árið 1828 en nú stendur yfir viðgerð á þvi undir stjórn Harðar Ágústssonar. Ljósm. Kristinn. Húsakönnun í gamla bæjarhlutanum í Stykkishólmi: HÖRÐUR Ágústsson arkitekt vann s.l. sumar að húsakönnun á gamla bæjarhlutanum í Stykkishólmi i samvinnu við Stykkishólmshrepp og skipu- lagsstjóra rikisins ásamt hús- friðunarnefnd. Nú hafa þessir aðilar gefið út niðurstöður könnunarinnar i sérstöku riti. Fyrir 10 árum vann Hörður m.a. að könnun á húsum í gamla bænum í Reykjavík. Síðan hefur húsafriðunarnefnd gengist fyrir svipaðri úttekt í fleiri kaup- stöðum landsins. Stykkishólmur er gamall verslunarstaður og var á 19. öld einn af merkilegri menningar- stöðum landsins. Þar má sjá minjar húsa frá því á 17. öld en elsta húsið í Stykkishólmi, Norska húsið, er byggt 1828. Stendur nú yfir viðgerð á því húsi. í könnun sinni byrjar Hörður á því að rekja sögu staðarins fram til 1930. Þá er þar að finna töflu yfir íbúa Stykkishólms Friða ber flest gömlu húsin Þessi, auk Norska hússins, myndu mynda aðra hvirfingu sem tengdist þeirri þriðju en það eru húsin nr. 9 og 11 við Hafnargötu og Prófastsshús og Kúldshús. Síðan bendir Hörður á að vert væri að athuga vel hverfið sem teygir sig upp af kvosinni til vesturs og er aðallega við Skóla- stíg, Bókhlöðustíg, fremst við Höfðagötu og Silfurgötu. „Mjög varfærnislega ætti líka að fara um höfðann þar sem spítalinn er nú. Húsin nr. 5, 7 og 9 við Austurveg mynda þar skemmti- lega götumynd og ramma fyrir spítalann," segir að lokum í tillögum Harðar. Á blaðamannafundi þar sem þessar tillögur voru kynntar sagði Sturla Böðvarsson sveit- arsjtóri í Stykkishólmi að við endurskipulagningu bæjarins yrði tekið fullt tillit til tillagna Harðar. Kvað hann núverandi aðalskipulag bæjarins hafa verið samþykkt 1973 en nú væri lögum samkvæmt komið að endurskipulagningu. Þeir hefðu því staðið frammi fyrir því vandamáli hvað við gömlu húsin ætti að gera og hefði það vanda- mál m.a. verið kveikjan að þess- ari húsakönnun í Stykkishólmi. - „Tekið verður fullt tillit til friðunartiUagn- anna við endurskipulagningu bæjarins,“ segir Sturla Böðvarsson sveitarstjóri fram til 1940. Því næst aldurs- greinir hann byggingarefnis- greinir og lýsir tæknilegu ástandi húsanna. Einnig fjallar hann um byggingarlistar- og menningarsögulega greiningu þeirra. 1 könnuninni leitast Hörður líka við að skýra frá húsagerðar- sögu þéttbýlis 1760—1930 í sem stystu máli og skýrir og birtir myndir af hinum ýmsu gerðum húsa. Að lokum fjallar Hörður um hverfasvip og götumyndir frá Stykkishólmi og lýsir breyting- um á útliti einstakra húsa, bæði í myndum og máli. Loks birtir hann tillögur sínar um varð- veislu og friðun húsa í Stykkis- hólmi. í ritinu eru margar ljósmynd- ir, flestar í eigu Jóhanns Rafns- sonar og hafa aldrei birst al- menningi fyrr. Þá er þar að finna áður óþekkta teikningu eftir Sæmund Hólm af húsi konungsverslunarinnar í Stykk- ishólmi. Ætla má að hún sé gerð á árabilinu 1789 til 1819. Þrjár hvirfingar friðaðra húsa Friðunartillögur Harðar fela í sér að halda eigi í sem flest eldri húsin í elsta hverfi bæjarins og meta þau sem fasta viðmiðun í deiliskipulagi þar. Friða þurfi kirkjuna, Narfeyri, Egilsenshús og verslunarhús Sigurðar Ágústssonar. Þessi hús mynda hvirfingu samkvæmt tillögunni. Þá telur Hörður að vernda þurfi apótekið, kaupfélagshúsið, Clausenshús og Hjaltalínshús. Hörður Ágústsson arkitekt, Sturla Böðvarsson sveitarstjóri, Þór Magnússon þjóðminjavörður og Ellert Kristjánsson oddviti kynna blaðamönnum niðurstöður húsakönnunar i Stykkishólmi. Frá uppsetningu bóka- og listaverkamarkaðarins i Bernhöftstorfu- hÚSUnum. Ljósm. Mbl. RAX. Ég gmt að morgm UHian Roth ÉG GRÆT að wiorgni Bókin sem vekur okkur til umhugsun- ar. Bókin sem segir að hœgt sé að kaupa sér heilsuleysi fyrir stórfé. Bókin sem bendir okkur á leiðir i seilingarfjarlægð til betra lífs. Bókin sem er talin bezt skrifaða ævisaga alkóhólista á bessari öld. Bókaútgáfan HHdur Skemmuvegi 36 Kópavogi Sími 76700 SÖGUFÉLAGIÐ og Galleri lang- brók opna á hádegi i dag, föstu- dag, bóka- og listaverkamarkað í Knudtsonshúsi, einu af húsunum á Bernhöfstorfunni. Á markaði Gallerísins verða til sölu grafíkmyndir, tauþrykk og ýmsir fleiri munir, en Sögufélagið er með útgáfubækur og rit sín á boðstólum. Þar er m.a. hægt að fá nýjustu bækur félagsins um Jón Sigurðsson og Snorra Sturluson. Allar bækurnar á markaðinum eru seldar á svökölluðu félags- verði, sem mun vera 10—15% lægra en gerist í bókaverzlunum. Markaður þessi stendur yfir fram að jólahátíðinni og verður opinn eins og verzlanir, nema hvað hann opnar dag hvern á hádegi. Það eru Torfusamtökin | sem leigt hafa Bernhöftstorfuhús- ið út fyrir markaöina í framhaldi af nýlegu samkomulagi við menntamálaráðuneytið. o INNLENT Bóka- og listaverka- markaður í Bernhöfts- torfuhúsunum í tilefni barnaársins hefur verið sett upp í einum sal Listasafnsins sýning á listaverkum eftir íslenzk börn. Verk þessi fékk Listasafnið að gjöf 1957 frá Myndlistarskólan- um í Reykjavík. I sama sal gefst börnum, sem í safnið koma, kostur á að teikna og mála sjálf. Liggja þar frammi alls konar litir og Jólatrésmarkaður í Hveragerði Junior Chamber Hveragerði opnar jólatrésmarkað fyrir framan hús Rafmagnsverk- stæðis Suðurlands í dag, föstu- daginn 14. desember kl. 14. Markaðurinn verður opinn til kl. 18 á föstudaginn en á laugardag verður honum framhaldið kl. 10—12. Eftir hádegið þann sama dag sjá jólasveinar um að koma jóla- trjánum heim til kaupenda. Jólatónleikar Jólatónleikar Tónlistarskóla Rangæinga verða 15. og 16. des- ember n.k. Fyrri daginn verða tónleikarnir í Kálfholtskirkju kl. 14 en seinni daginn í Stóra- Dalskirkju, einnig kl. 14. Flutt verður margvísleg tónlist af einleikurum, lúðrasveit, kamm- ersveit og barnakór skólans. Að- gangur er ókeypis og öllum heim- ill. pappír sem börnin geta notað að vild og fest síðan verk sín upp til sýningar. Sýningunni lýkur um miðjan janúar. • J|L . »■ Meðan á sýningu listaverka barnanna stendur gefst börnum kostur á að koma í Listasafnið og teikna og mála sjálf og hengja myndir sínar upp til sýningar. Sýning á listaverk- um eftir íslenzk börn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.