Morgunblaðið - 14.12.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
25
Anna Einarsdótt-
ir — Minningarorö
Fædd 20. desember 1913.
Dáin 4. desember 1979.
í dag minnist ég Önnu Einars-
dóttur tengdamóður minnar og
vinkonu. Anna var fædd og uppal-
in í Vestmannaeyjum, dóttir hjón-
anna Sigríðar Einarsdóttur og
Einars Símonarsonar, sem kennd
voru við London í Vestmannaeyj-
um.
Þau hjónin, Sigríður og Einar,
eignuðust þrjár glæsilegar dætur,
þær Þuríði, Önnu og Sesselju. Fas
og glæsibragur hefur alltaf verið
þeirra aðall. Vestmannaeyjar og
Eyjafjöllin með sína endalausu
fegurð, hafa fætt af sér kjarkmik-
ið og göfugt fólk. Úr þessu um-
hverfi er tengdamóðir mín sprott-
in.
Hinn 29. september árið 1934,
giftist Anna eftirlifandi manni
sínum Kristni Friðrikssyni, at-
orkumanni til orðs og æðis, þá
eins og nú kjarkmenni til allra
framkvæmda. Þau hjónin eignuð-
ust þrjú börn, Ernu, gifta Guð-
laugi Helgasyni, Einar Friðrik,
kvæntan Ólöfu Októsdóttur og
Sigríði, gifta Hilmari Ragnars-
syni.
Anna var ávallt mikill Vest-
mannaeyingur í sér og hélt órofa
tryggð við sína gömlu heima-
byggð. Svo lifandi var lýsing
hennar á mönnum og málefnum
Vestmannaeyja, að ég, alls ókunn-
ur mannlífi í Eyjum, var óafvit-
andi farinn að kynnast fólki, sem
ég hafði aldrei séð og atburðum,
sem ég hafði aldrei upplifað. Anna
var óþreytandi við að fræða mig
og aðra um sínar æskustöðvar, og
þar kom að ég rótgróinn Akureyr-
ingur, eignaðist mína aðra heima-
slóð, þar sem eru Vestmannaeyj-
ar. Seinna átti ég þess kost, þegar
dóttir mín Anna bjó um sinn í
Eyjum að koma þangað út og
njóta þess fróðleiks í raun, sem
mér hafði verið kenndur.
Það fer ekki hjá því að sú
fegurð, sem allsstaðar blasir við í
Vestmannaeyjum, setur ævarandi
merki í sálir þeirra, sem alast upp
í svo stórbrotinni náttúru. Útsýn-
ið, hvert sem litið er eins og
listaverk, fegurra en víðast ann-
arsstaðar og mannlíf, sem óvíða er
tengdara náttúru landsins. Það
má því með sanni segja að ein-
staklingur, sem sprottinn er úr
slíku umhverfi komist varla hjá
því að verða fyrir sterkum list-
rænum áhrifum, og af þeim hefur
Anna fengið ríkulegan skerf.
Það er að vísu ekki fyrr en
síðustu árin að Anna tekur upp
pensil og fer að mála, þá komin
undir sextugt, en náttúruarfleiðin
frá Vestmannaeyjum var svo
sannarlega við völd, því strax með
sínu fyrsta málverki skapaði hún
listaverk. Hafið og brimið voru
henni hugleikin, þó svo að blóm og
allur jarðargróður hafi umfram
allt átt hug hennar, enda naut
næmleiki hennar fyrir fegurð,
litaskrúði og hlýju sín hvað best
er hún var í snertingu við blómin.
Árið 1960 keyptum við hjónin
ásamt tengdaforeldrum mínum
húsið að Eikjuvogi 1. Það hefur oft
verið sagt að tengdafólk ætti ekki
að búa í of miklu nábýli, en þeirri
fullyrðingu gef ég með öryggi
vísað frá. Ég hefi notið þess að fá
að búa í vináttu og kærleika við
mitt tengdafólk með Önnu í garð-
inum. Hún átti öðrum fremur þær
hugmyndir sem okkur þóttu spegl-
ast og gleðja hvað mest þegar
sumarylurinn hafði nært og fært
vorgræðlingana í fullan skrúða.
Hún hlúði að allri fegurð, hvort
sem það var úti í garði eða innan
heimilisins. Manni sínum Kristni
bjó hún yndislegt heimili með
sinni smekkvísi og nákvæmni og
fjölskyldan var henni allt.
Hún laðaði að sér fólk og hafði
sérstaka hæfileika til að láta
öllum líða vel í návist sinni, hvort
sem voru fullorðnir eða börn. Til
hennar sótti fjölskyldan í gleði og
í sorg og hennar munum við
minnast með þakklæti og kær-
leika.
Barnabörnin þráðu að komast
til afa og ömmu uppi á Eikjuvogi
1. Þeirra blessun og þeirra bæn
gaf þeim fullvissu og öryggi, og
afa bæn verður áfram þeirra
styrkur, stoð og lífsvegarnesti.
Ég bið Kristni tengdaföður
mínum og öllum ættingjum Önnu
allrar guðsblessunar, fullviss þess
að minningin verður okkur styrk-
ur um ókomin ár.
GuAlaugur Helgason.
WANG
Wang tölvur eru ekki einungis hentugar viö kosningaspár, heldur
einnig í fyrirtækjum og stofnunum stórum og smáum.
Helstu kostir eru hraðvirk vinnsla og einföld stjórnun tækjanna, sem
gerir sérstaka tölvustjórnendur ónauösynlega. Notendur setja af staö þá
vinnslu sem óskaö er eftir, meö því aö svara á lykilborði er líkist ritvél,
einföldum spurningum sem birtast á skerminum.
Eigum fyrirliggjandi ýmsar geröir forrita t.d. fyrir: Fjárhagsbókhald,
viðskiptamannabókhald, birgöabókhald, launabókhald, verkfræöistofur,
sveitarfélög.
Hringið og viö veitum allar upplýsingar um Wang rafreikna eöa komið
í heimsókn í tölvudeild okkar og sjáiö Wang aö störfum.
Tölvudeild — Sætúni 8 — 24000
Nelson
flotaforinginn mikli
Sjötta bindið í bókaflokknum Frömuðir sögunnar eftir
Roy Hattersley. Jón Á. Gissurarson þýddi. Umsjónarmaður
bókaflokksins er Örnólfur Thorlacius. Nelson flotaforingi
var einn mesti sægarpur allra tíma og haföi mikii áhrif á
gang veraldarsögunnar. Bókin er mikiö myndskreytt eins
og allar fyrri bækur flokksins.
Frömuöir sögunnar:
• • • •
ORN&ORLYCUR VESTURCÖTU 42, SÍMI25722