Morgunblaðið - 14.12.1979, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
+
Hjartkær móöir okkar, tengdamóðir, systir og amma,
ÁGÚSTA ÞÓROARDÓTTIR,
Sólheimum 23, Reykjavík,
andaöist í Landspítalanum 13. þ.m.
Vora Áagrímsdóttir, Guðmundur Guömundsson,
Ásdía Helgadóttir, Einar H. Ásgrímsson
Magnea Þóróardóttir, og barnabórn
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar
ÞÓRDURJÓHANNSSON,
úrsmiöur,
Hafnarstræti 4, ísafiröi,
lést í fjórðungssjúkrahúsinu á ísafiröi 13. desember.
Kristín Magnúsdóttír
og börn.
Eiginmaður minn + RAGNAR JÓN GUÐNASON
andaöist aö heimili sínu Mávabraut 9, Keflavík, þriöjudaginn 11.
desember. Jenný Jóramsdóttír.
María Jónsdóttir
Kerff - Minning
Fædd 26. október 1903.
Dáin 7. desember 1979.
Ein af elztu vinkonum okkar
hjónanna er látin, María Jónsdótt-
ir Kerff, 76 ára að aldri. Á
fimmtudaginn í siðustu viku sat
hún hjá okkur fram eftir kvöldi,
hress í bragði, eins og hún var vön.
Ekki datt okkur þá í hug, er hún
kvaddi okkur, að þetta væri í
síðasta sinn, að við sæjum hana í
lifanda lífi, og að hún væri örend
innan sólarhrings. Þegar við frétt-
um þetta snemma á föstudags-
kvöld, urðu við agndofa og horfð-
um á stólinn, sem hún hafði setið í
kvöldinu áður. Nú myndi hún ekki
sitja þar framar. En enginn má
sköpum renna. Enn einn af lífstíð-
arvinum okkar var horfinn af
þessum heimi.
Þær María og kona mín bjuggu í
nágrenni hvor við aðra í bernsku
sinni og æsku og höfðu því þekkst
frá barnæsku og voru þá strax
miklar vinkonur. Entist sú vinátta
þeim æ síðan, þó að sambandið
rofnaði um sinn þau ár, sem María
bjó í Kaupmannahöfn. En þráður-
inn var tekinn upp að nýju, þegar
hún fluttist heim.
María var alla tíð mannblendin,
kát og fjörug og skemmtileg í
viðræðum. Hún var mjög fróð-
leiksfús og ættfróð, stálminnug og
sjór af fróðleik, einkum um gamla
Reykvíkinga, enda var móðurætt
hennar búsett í Reykjavík í marga
ættliði.
María var velviljuð og umtals-
fróm, hjartahrein og hjálpsöm.
Hún var ákaflega gestrisin og
hafði mikið yndi af að halda
vinkonum sínum veislur með hin-
um ágætustu veisluföngum. Hvar
sem hún kom, var hún að jafnaði
hrókur alls fagnaðar, enda var
hún ákaflega vinmörg og vinsæl,
bæði hjá sínum fjölmörgu ætt-
ingjum, sem voru henni mjög
ræktarsamir, sem og sínum öðrum
mörgu vandalausu vinum. Hennar
verður því sárt saknað af mörgum.
Okkur hjónum reyndist hún
velviljuð og trygglynd alla ævi,
alltaf var upplífgandi að fá hana í
+
Faðir okkar
ANDRÉS GUÐBJÖRN MAGNUSSON,
fró Drangsnesi,
Vallargötu 8,
Sandgeröi,
andaöist í Landspítalanum 12. desember.
F.h. systkinanna,
Efenía Andrésdóttir.
+
Eiginmaöur minn
HALLDÓR SIGURBJÖRNSSON,
Borgarnesi,
veröur jarösunginn frá Borgarneskirkju, laugardaginn 15. desem-
ber kl. 14.
Fyrir hönd vandamanna,
Anna Jónsdóttír.
Faöir okkar +
GUÐJÓN TÓMASSON Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
fyrrv. skipstjóri fré Geröi, Vestm. móöur okkar
til heimilis aö Smáragötu 12, Vestm. BRYNHILDAR SVEINSDÓTTUR
veröur jarösunginn laugardaginn 15. des. kl. 2 e.h. frá fré Hellissandi.
Landakirkju. _. _ ... ..... Btrna Guöjónsdóttir Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Sólveig Guöjónsdóttir Tómas Guöjónsson Pétur Gíslason.
Eiginmaöur minn
TRYGGVI EDVARDSSON,
Munaðarhóli 21, Hellissandi,
veröur jarösunginn frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 15. des-
ember.
Athöfnin hefst meö bæn aö heimili hins látna kl. 2. Bílferö verður
frá B.S.l. kl. 8 sama dag.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna,
Gunnleif Báröardóttir.
+
Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúð viö andlát og jarðarför
GUÐRÍÐAR ÓLAFÍU ÞORLEIFSDÓTTUR,
frá Hokinsdal.
Sérstaklega viljum viö þakka læknum á lyfjadeild Landspítalans,
hjúkrunarfólki og starfsfólkl ööru fyrir góöa hjúkrun og umönnun.
Meö innilegu þakklætl.
Börn hinnar látnu.
Siemens-eldavélin
erfrábrugóin...
Hún sameinar gæði og smekklegt útlit,
sem grundvallast á áratuga tækniþróun
og sérhæfðri framleiðslu SIEMENS-
verksmiðjanna.
SIEMENS-eldavélar hafa verið á markaði
hérlendis frá 1930.
Á þeim tíma hafa þær fengið orð fyrir
framúrskarandi gæði og endingu.
SIEMENS-eldavélin er sú eina, sem hefur
bökunarvagn og steikingarsjálfstýringu,
sem aðlagar hitann þunga og ástandi
kjötsins.
Leitið upplýsinga um SIEMENS-eldavélar
og sannfærist um kosti þeirra.
SIEMENS
-eldavélarsem endast
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4, Reykjavík
Sími 28300
heimsókn, og sárt munum við
sakna hennar.
Fyrir alla hennar velvild og
vináttu þökkum við af hrærðu
hjarta og biðjum Guð að varðveita
hana á nýjum vegum.
Dóttur hennar, tengdasyni og
börnum þeirra vottum við okkar
dýpstu samúð.
Einar Magnússon
María Matthildur Jónsdóttir
Kerff var fædd 26. október 1903 í
Borgarnesi. Foreldrar hennar
voru Jón Þorsteinsson, er þar var
þá verzlunarstjóri hjá Bryde, og
kona hans Guðrún Heilmann.
Jón var sonur þeirra Þorsteins
Jónssonar læknis í Vestmannaeyj-
um og konu hans Matthildar.
Guðrún Heilmann var dóttir Jó-
hanns Wilhelms Heilmann, kaup-
manns og konu hans Doretheu
Maríu Rasmusdóttur Lynge. Er
þau fluttu suður til Reykjavíkur,
Jón og Guðrún, byggði Jón stórt
hús við Bjargarstíg og síðar húsið
Óðinsgata 9, en þar átti María
bernsku- og æskuár sín.
Jón, faðir Maríu, var bróðir
þeirra systkina Guðrúnar í Val-
höll í Vestmannaeyjum og séra
Magnúsar, prests á Mosfelli í
Mosfellssveit. María hafði mjög
mikið samband við fjölskyldu sína
og frændfólk, bæði í föður- og
móðurætt.
Guðrún, móðir Maríu, var
fyrsta búðardaman í Reykjavík.
Var hún stálminnug allt til þess
síðasta. María erfði þennan eigin-
leika móður sinnar, var ákaflega
minnug og sýnt um að hafa allt í
reglu. María var sérstaklega
hreinleg og myndarleg í allri
matargerð. Jón, faðir Maríu, var
góður verkmaður, hafði sérlega
fallega rithönd og var léttur í
lund. Þann eiginleika erfði María í
ríkum mæli.
Hinn 3. febrúar 1923 giftist
María dönskum manni, Fredrik
Anton Kerff, bakarameistara, f.
16.4 1893, d. 4.4. 1969. Kerff rak
Kynning full-
orðinsfræðslu
í Hveragerði
FRAMHALDSDSDEILD- öldunga-
deild- verður starfrækt við Gagn-
fræðaskólann í Hveragerði tíma-
bilið janúar til maí 1980, ef næg
þátttaka fæst. Mun deildin starfa í
náinni samvinnu við Menntaskól-
ann við Hamrahlíð (M.H.) og verð-
ur skipulögð, hvað varðar náms-
efni, kennslufyrirkomulag og
námslok (próf), í samræmi við
Námsvísa (áfangalýsingar) M.H.
og fjölbrautaskólanna. Kennt verð-
ur á kvöldin í húsakynnum Gagn-
fræðaskólans. Nemendur fá ákveð-
inn einingafjölda fyrir hvern
námsáfanga og verður miðað við
einingakerfi M.H.
Námsáfangar þeir, sem kenndir
verða, ráðast af fjölda þátttakenda
en fyrirhugað er að kenna flesta
áfanga sem í boði eru á 1. önn í
M.H. og eru sameiginlegir öllum
námssviðum. Þeir eru grundvöllur
alls frekara náms bæði í M.H. og
fjölbrautaskólunum en námsefni er
samræmt milli skólanna.
Áfangar í þessum námsgreinum
koma til greina:
í íslensku, dönsku, ensku, þýsku,
stærðfræði, íslandssögu og/eða
mannkynssögu, líffræði, jarðfræði,
félagsfræði, eðlisfræði, efnafræði
og vélritun. Hver áfangi er kennd-
ur í 2 — 4 kennslustundir á viku en
kennsluna annast háskólamennt-
aðir kennarar.
Kynningarfundur verður haldinn
sunnudaginn 16. desember nk. kl.
14 í Gagnfræðaskólanum í Hvera-
gerði, og er allt áhugafólk hvatt til
að mæta. Þar munu kennararnir
kynna námsefni hvers áfanga, en
kennsla hefst mánud. 7. jan. 1980
kl. 19.00.
Nánari upplýsingar gefur Val-
garð Runólfsson, skólastjóri, í síma
4288 eða 4232.
(Fréttatilk. frá
Gagnfræðaskólanum)