Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
31
K
Verður B-keppnin á íslandi?
— bind miklar vonir við það segir Jóhann Ingi
— ÉG lít á þetta sem fyrsta
undirbúning undir B-keppnina
sem fer fram árið 1981, sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson lands-
liðsþjálfari og einvaldur er
Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi
um val landsliðsins. Og Jóhann
hélt áfram. — Ég bind miklar
vonir við að B-keppnin fari
fram hér á landi, því að stjórn
HSÍ er alvarlega að hugsa um
að sækja um að fá að halda
keppnina hér á landi, og ég veit
að IHF, Alþjóðahandknattleiks-
sambandið, hefur sýnt þvi mik-
inn áhuga, að keppnin fari
fram hér. Það eru alls 12 þjóðir
sem taka þátt i keppninni og
það yrði því um stóran iþrótta-
viðburð að ræða.
— Ég mun velja landsliðshóp-
inn sem fer á Baltic-keppnina
eftir áramót úr þeim hópi sem ég
hef nú valið, sagði Jóhann. — Ég
ætla mér að kanna getu þessara
ungu manna sem ég ber fullt
traust til í erfiðri keppni eins og
þar. Ég vel ekki Ólaf H. Jónsson
þar sem mér er kunnugt um getu
hans, og jafnframt um getu
Axels Axelssonar. Þá er ég líka
að ná saman mannskap sem
hefur vilja og áhuga á að æfa
allt næsta sumar, því að við
• Jóhann Ingi
verðum að stefna markvisst að
B-keppninni. Mín skoðun er sú
að þessi hópur sé ekki of ungur
fyrir Baltic. Það verður að gefa
þessum ungu leikmönnum tæki-
færi. Helsta vandamálið er að
finna leikmann til þess að
stjórna spilinu. Páll Björg-
vinsson gefur ekki kost á sér að
þessu sinni. Þá verður erfitt að
gera upp á milli markvarðanna,
þeir eru allir svo jafnir.
— Þeir „útlendingar“ sem ég
hef einna helst augastað á eru
þeir Jón Pétur Jónsson og Gunn-
ar Einarsson, en mér skilst að
þeir komi báðir heim næsta
vetur og leiki hér heima.
Nú ferðin á Baltic verður að
dæma um getu þessara ungu
pilta, sem eru allir vaxandi
handknattleiksmenn.
Jóhann Ingi á erfitt verkefni
fyrir höndum að móta sterkt lið
fyrir B-keppnina, en hann hefur
áður sýnt hvers hann er megn-
ugur og skemmst er að minnast
góðrar frammistöðu unglingal-
andsliðsins á HM-keppninni í
Danmörku í haust, en Jóhann
hafði undirbúið liðið markvisst
fyrir þá keppni og uppskar eins
og sáð hafði verið. — þr.
/
• Guðmundur Magnússyni tekst hér að skjóta og skora, þrátt fyrir tilburði þriggja Framara til þess að
stöðva hann.
FH tapaði sínu fyrsta stigi
Það mátti ekki muna miklu að
FH-ingar töpuðu báðum stigun-
um í leik sínum á móti Fram í 1.
deild íslandsmótsins i hand-
knattleik i gærkvöldi er liðin
mættust i Laugardalshöllinni.
Þegar aðeins 4 sekúndur voru til
leiksloka rcyndi Sigurbergur
Sigsteinsson skot að marki FH.
Var hann hindraður, og um leið
og boltinn small i netinu flautaði
Karl Jóhannsson dómari og
dæmdi aukakast á FH. Skot
Framara fór i varnarvegg FH og
jafntefli 23—23 voru lokatölur
leiksins. Reyndar má segja að lið
FH hafi verið klaufskt að missa
niður nokkuð örugga forystu
sina i leiknum, en FH-ingar
leiddu leikinn allan timann og
voru mest fjórum mörkum yfir.
Spennandi lokamínútur
Þegar 10 mínútur voru til leiks-
loka, var staðan 22—20 fyrir FH,
og sýnilegt var að allt gat gerst.
Sigurbergi tekst að minnka mun-
inn niður í eitt mark, 22—21. Nú
urðu báðum liðum á mikil mistök í
sóknunum; boltinn tapaðist, sendi-
ngar fóru út af og þar fram eftir
götunum. Á 57. mínútu leiksins
jafnar Fram í fyrsta skipti, 22—
22, eftir að Birgir hafði skorað
fallega af línu. Eyjólfur Bragason
kemur FH aftur yfir þegar aðeins
1. mínúta er eftir af leiknum. En
það dugði ekki, Andrés Bridde
jafnar fyrir Fram. Andrés fram-
kvæmdi vítakast, en Sverrir varði,
boltinn hrökk út til Andrésar sem
var ekki í vandræðum með að
skora af línunni. Síðasta sókn FH
rann út í sandinn þegar Geir
Hallsteinsson reyndi skot þegar 20
sek. voru eftir af leiktíma en
Fram — FH
23—23
Guðjón varði og eins og áður sagði
munaði minnstu að Fram tækist
að skora sigurmark leiksins alveg
í lokin.
Liðin
Lið FH lék leikinn lengst af
nokkuð vel og hafði yfirhöndina
allan fyrri hálfleikinn. Staðan í
hálfleik var svo 14—11 FH í hag.
Geir Hallsteinsson sneri sig illa á
ökla á fyrstu mínútu leiksins og
lék ekkert með í fyrri hálfleiknum.
Virtist það ekki koma að sök.
Ungu mennirnir í liðinu skiluðu
hlutverki sínu vel. í síðari hálf-
leiknum gekk líka allt í haginn
framan af en síðustu 10 mínúturn-
ar riðlaðist svo leikur FH. Besti
maður FH-inga í þessum leik var
Sæmundur Stefánsson, hann varð
fyrir smá óhappi og gat ekki leikið
með um tíma í síðari hálfleiknum.
Kom það greinilega niður á leik
liðsins. Varnarleikur FH var ekki
nema rétt þokkalegur og mark-
varsla Birgis slök, en lagaðist
nokkuð er Sverrir kom inn á.
Guðmundur Magnússon átti góðan
leik og barðist vel í vörninni, aðrir
voru nokkuð frá sínu besta.
Fram krækti sér þarna í dýr-
mætt stig. Liðið virkaði ekki
sannfærandi í leiknum. Leikmenn
gerðu sig seka um margar skyssur.
Framarar eiga góða leikmenn í
sínum röðum og ætti mun meira
að koma út úr leik liðsins. Eins og
hjá FH var vörnin ekki góð og
markvarsla Guðjóns var ekkert til
að hrópa húrra fyrir. Bestu menn
liðsins voru þeir Hannes Leifsson,
Atli Hilmarsson og Andrés
Bridde. Þá var Birgir seigur á
línunni.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild, Laugardalshöll. Fram-FH
23-23 (11-14).
Mörk Fram: Andrés Bridde 5 3v,
Hannes Leifsson 4, Birgir Jóhann-
esson 3, Atli Hilmarsson 3, Theo-
dór Guðfinnsson 3, Jón Árni
Rúnarsson 2, Erlendur Davíðsson,
Egill Jóhannsson og Sigurbergur
Sigsteinsson, eitt mark hver.
Mörk FH: Sæmundur Stefáns-
son 6, Guðmundur Magnússon 4,
Eyjólfur Bragason 3, Kristján
Arason 3 (2v), Pétur Ingólfsson 2,
Valgarður Valgarðsson 2, Guð-
mundur Á Stefánsson 2, Geir
Hallsteinsson 1.
Varin víti: Birgir varði vfi á 10.
mínútu frá Andrési og Sverrir
varði víti frá Andrési á 59.
mínútu.
Brottvísanir af leikvelli: Val-
garði Valgarðssyni, Sæmundi
Stefánssyni og Eyjólfi Bragasyni,
FH, var vísað út af í 2 mín.
Misheppnuð víti: Kristján Ara-
son skaut í stöng á 10. mínútu.
Áhorfendur 480.
-þr.
íslandsmðttð 1. delld
Johann stokkar
landsliðið upp
JÓHANN Ingi Gunnarsson lands-
liðsþjálfari hefur nú valið lands-
liðshópinn er mæta mun landsliði
Bandaríkjanna hér 28. og 30. des.
n.k. Þá mun sami hópur leika
gegn Pólverjum i byrjun janúar
eða 3.-5. og 6. janúar. Jóhann
Ingi gerir margar breytingar á
landsliðshópnum frá því sem ver-
ið hefur og byggir kjarnann upp
á unglingalandsliðsmönnunum
sem stóðu sig með mikilli prýði i
Danmörku i haust. Landsliðshóp-
inn skipa eftirtaldir leikmenn:
Markverðir:
Kristján Sigmundsson, Víkingi
Jens Einarsson, Víkingi
Brynjar Kvaran, Val
Aðrir leikmenn:
Ólafur Jónsson, Víkingi
Sigurður Gunnarsson, Víkingi
Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi
Steindór Gunnarsson, Val
Bjarni Guðmundsson, Val
Þorbjörn Jensson, Val
Stefán Halldórsson, Val
Friðrik Þorbjörnsson, KR
Sigurður Sveinsson, Þrótti
Guðmundur Magnússon, FH
Andrés Kristjánsson, Haukum
Atli Hilmarsson, Fram
Viggó Sigurðsson, FC Barcelona
Éndanlegur hópur fyrir Baltic
keppnina í Vestur-Þýskalandi
verður svo valinn síðar. Það vekur
nokkra athygli þegar litið er á
valið að fyrrum fyrirliði liðsins
Ólafur H. Jónsson er ekki í
hópnum. Mbl. hafði samband við
Ólaf og sagðist hann vera tilbúinn
í slaginn ef hann yrði valinn. Það
hefði ekkert verið við sig talað að
svo stöddu. Viggó Sigurðsson er í
hópnum og mun hann leika með
liðinu fyrstu þrjá leikina í Baltic
keppninni.
Fleiri reyndir kappar en Ólafur
H. eru ekki í liðinu og greinilegt er
að Jóhann er að huga að fram-
tíðinni, spurning er aðeins hvort
breytingarnar þurfi að vera svona
miklar. Það mun væntanlega
koma í ljós hvort ungu mennirnir
sem allir eru bráðefnilegir hand-
knattleiksmenn standi sig á móti
fullhörðnuðum leikmönnum.
Mótherjar íslands eru ekki af
verri endanum, Pólverjar í janúar
og svo stórveldin í handknattleik
Vestur-Þýskaland og Austur í
Baltic keppninni. — þr.
Stjörnukvöld
í Njarðvík
STJÖRNUKVÖLD verður haldið
i íþróttahúsinu í Njarðvík á
mánudagskvöldið. Eru það sam-
tök íþróttafréttaritara sem að
þessu standa. Margt verður til
skemmtunar á stjörnukvöldinu,
m.a. þriggja liða hraðmót i körfu-
knattleik, þar sem eigast við lið
UMFN, islenska landsliðið og
Bob Starr all star, en meðal
leikmanna i þvi liði eru Danny
Shous, Marwin Jackson og Da-
carsta Webster.
Einnig mætast lið bæjarstjórn-
ar Njarðvikur og úrvalslið Óm-
ars Ragnarssonar i knattspyrnu
og fréttamenn næta körfudómur-
um i körfuknattleik.
Oslitin sigur-
ganga Fram
EKKERT lát er á velgengni
Fram-stúlknanna í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik.
Þær unnu einn sigurinn enn gegn
Haukum suður í Hafnarfirði í
fyrrakvöld. Lokatölur leiksins
urðu 16—9 fyrir Fram, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 9—7
fyrir Fram.
Eins og sjá má af hálfleikstöl-
unum, héldu Haukar vel í við
Fram í fyrri hálfleik, en aðeins tvö
mörk gegn 7 í þeim síðari voru
uppskera síðari hálfleiks og því
tapaði liðið stórt. Margrét Theo-
dórsdóttir bar af hjá Haukum að
venju og skoraði 6 af 9 mörkum
liðsins. Hjá Fram bar Guðríður
ægishjálm yfir stöllur sínar og
skoraði 10 mörk.