Morgunblaðið - 19.12.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
5
Steingrímur Hermannsson:
Yerðbólgan 1980 verði
37 til 38% og kaupmátt-
arskerðingin 5 til 6%
„í ÁRSLOK 1980 ætti verðbólgan
að vera komin niður í 37—38% á
ársgrundvelli samkvæmt tillög-
um framsóknarmanna, en ekki
40 til 45 eins og skýrt var frá í
Morgunblaðinu,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson formaður
Framsóknarflokksins i ræðu á
Alþingi í gær.
Sagði Steingrímur, að þetta
þýddi að hraði verðbólgunnar yrði
kominn mun neðar, eða í um 30 til
33%, og í lok ársins 1981 yrði hún
komin niður í 20% á ársgrund-
velli. Þá sagði Steingrímur, að
kaupmáttarskerðingin á árinu
1980 yrði samkvæmt útreikning-
um Þjóðhagsstofnunar 5—6%, og
3% árið 1981, en ef tillögur
framsóknarmanna næðu fram að
ganga yrði hún 4,5% 1980 en
óskert 1981.
Skutu að konu
með loftriffli
Á MÁNUDAGSKVÖLD varð sá
atburður, að tveir 15 ára piltar
skutu af loftriffli að konu, sem
var á gangi fyrir framan fjölbýl-
ishúsið Ljósheimar 8. Lenti riff-
ilkúla í hálsi konunnar rétt fyrir
neðan annað eyrað og blæddi
mjög úr sárinu. Konan var flutt á
slysadeild Borgarspitalans, þar
sem kúlan var fjarlægð og gert
að meiðslum konunnar.
Piltarnir tveir náðust, en þeir
höfðu staðið á svölum á þriðju
hæð fjölbýiishússins er þeir skutu
að konunni. Það hefur gerst áður
að unglingar hafi leikið þann
stórhættulega leik að skjóta að
fólki með loftrifflum.
Hljómplata
frá „Sumar-
tónleikum“
KOMIN er út ný hljómplata með
Manuelu Wiesler flautuleikara
og Helgu Ingólfsdóttur sembal-
leikara. Platan var tekin upp í
Skálholtskirkju i nóvember sl. og
ber nafnið Sumartónleikar í
Skálholtskirkju.
Þær Manuela Wiesler og Helga
Ingólfsdóttir hafa undanfarin 5
sumur staðið fyrir reglulegu tón-
leikahaldi í kirkjunni. Eru á
plötunni sónötur eftir Johann
Sebastian Bach og Georg Fried-
rich Hándel og tvö ný íslensk verk
samin fyrir Manuelu og Helgu til
flutnings á Sumartónleikunum.
Eru það verkin Stúlkan og vindur-
inn eftir Pál P. Pálsson og Sumar-
mál eftir Leif Þórarinsson. Tón-
listarkonurnar standa sjálfar að
útgáfu plötunnar, en Fálkinn hf.
sér um dreifingu hennar.
Launakröfur BHM:
Krefjast samn-
inganna í gildi
BANDALAG háskólamanna hef-
ur lagt fram kröfur, sem fela í
sér að samningarnir frá 1. nóv-
ember 1977 taki gildi i áföngum.
Launakröfur bandalagsins eru
um að laun hækki um 9% frá 1.
nóvember 1979, um 5% frá 1. maí
1980 og 5% frá 1. nóvember 1980.
Samtals er því launakrafan rúm-
lega 20%. í fréttatilkynningu frá
BHM, þar sem frá þessari kröfu-
gerð er skýrt segir:
„Hinn 1. ágúst s.l. sagði launa-
málaráð Bandalags háskólamanna
Svefneyjar
nú óbyggðar
Miðhúsum, A-Barð.,
18. desember.
FYRIR skömmu flutti Nikulás
Jensson oddviti Flateyjar-
hrepps og allt hans fólk til
Svíþjóðar og ætla þau að gerast
innflytjendur. Samkvæmt
manntali 1. desember 1978
taldi Svefneyjaheimilið 12
manns og þá voru búsettir í
Flateyjarhreppi aðeins 42. Við
oddvitastörfum tók Hafsteinn
Guðmundsson bóndi í Flatey.
Svefneyjar eru þá úr byggð, en
hins vegar er búið allt árið í
Flatey, Skáleyjum og Látrum.
— Sveinn
upp kjarasamningi sínum við fjár-
málaráðherra, í samræmi við
ákvæði laga um kjarasamninga
opinberra starfsmanna, og lagði
fram kröfugerð um nýjan aðal-
kjarasamning. Ekki voru þó lagð-
ar fram launakröfur, en áskilinn
réttur til að leggja þær fram síðar.
Á fundi sínum 14. desember s.l.
samþykkti launamálaráð BHM að
leggja fram eftirfarandi launa-
kröfur:
„Föst laun hækki um 9% frá 1.
nóvember 1979, 5% frá 1. maí 1980
og 5% frá 1. nóvember 1980.“
Kröfur þessar fela í sér að
samningarnir frá 1. nóvember
1977 taki gildi í áföngum. Verð-
bótavísitalan hefur sem kunnugt
er verið skert verulega á samn-
ingstímabilinu, vegna félagsmála-
pakka, viðskiptakjararýrnunar,
niðurfellingar verðbótaviðauka og
olíustyrks og nemur þessi skerð-
ing samtals 16,6% og þurfa laun
því að hækka um 20,1% til að
bæta hana.
Hér er því ekki um að ræða
neina kröfu um hækkun frá
síðustu samningum, heldur ein-
ungis krafa um að þeir taki gildi
og er þessi krafa sett fram í
trausti þess að verðbætur verði
ekki skertar umfram það sem
gildandi lög gera ráða fyrir.
TorgíÖ efst á blaöi,
þegar fariö er í bæinn til fatakaupa!
Herraföt frá kr. 75.300
Mokkajakki kr. 126.000
Lúffur kr. 5.800
Mokkahúfa kr. 8.900
Náttsloppur kr. 28.800
Háirduffys skór, loðfóðraóir
frá kr. 28.700
Lágir Duffys skór, loðfóðraðir
frá kr. 19.950
Austurstræti 10
sími: 27211