Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 Með 6 ára börnum á litlu jólunum í Hólabrekkuskóla: LANGÞRÁÐ jólaieyfi eru að hefj- ast þessa dagana í skólum höfuð- borgarinnar sem annars staðar á landinu. Sá siður hefur verið við- hafður innan skólanna að börnin minnast jólahátíðarinnar á svo- kölluðum „litlu jólum“ í skólunum áður en jólaleyfið hefst. í Hólabrekkuskóla í Breiðholti var mikið um dýrðir hjá yngstu börnum skólans í gær. Upp úr hádegi streymdu 6 ára börn í skólann, búin sinu bezta skarti til að taka þátt í litlu jólunum í „alvöru-skólanum" í fyrsta sinn, eins og eitt barnið orðaði það. Samkoman hófst á hátíðlegan hátt með því að 12 ára börn sýndu helgileik, byggðan á jólaguðspjall- inu. Komu þar fram Jósep og María með Jesúbarnið, hirðingjar, englar og vitringarnir þrír. Var leikurinn tæknilega vel upp færður og auðséð að áhorfendur, þó ungir væru að árum, lifðu sig inn í atburðinn. Þá sungu nokkrar 9 ára stúlkur jólalög en megnið af skemmtiatrið- unum sáu börnin sjálf um. Stigu þar áreiðanlega mörg þeirra sín fyrstu spor á leiksviði. Einn, tveir, þrír — og allt upp í tíu litlir .Göngum við i kringum“ sungu allir aí hjartans list. jafnt kennarar sem nemcndur. Ljóem. mm. Knstján. vesti, tók sig út úr röðinni og settist hjá okkur. Hann sagðist ætla að hætta að ganga í hringi í bili og ástæðan: „Það stíga allir á tærnar á manni.“ Við spurðum hann, hvort hann hiakkaði ekki til jólanna og kvað hann já við því. „Hvað ég hlakka mest til. Auðvitað að fá gjafirnar. Það eru bara 6 dagar til jóla.“ Dagmar gaf sér tíma frá jóla- trénu til að rabba við okkur. Hún var með fallega jólasveinahúfu á höfði og sagði ástæðuna þá, að hún passaði svo vel við kjólinn sinn, sem var hárrétt hjá henni. Við spurðum hana, hvort hún vissi af hverju við héldum jólin hátíðleg. „Jesúbarnið á afmæli. Ég hlakka mest til að fá gjafirnar. Ég yeit um eina — þessa frá mömmu. Ég á að fá alvöruúr." — Og kanntu þá á klukku? „Já, — ja, svona hérum- bil.“ „Jólasveinar einn og átta ofan koma af fjöllunum," sungu nú krakkarnir kröftuglega og viti menn. Þarna birtust tveir jóla- sveinar, þeir Kertasníkir og Hurða- skellir. Þeim bar nú ekki alveg saman um það náungunum, hvor var hvor, en það leystist fljótiega úr því. Þeir sögðust hafa verið allan daginn að leita að þessum Hóla- krakkaskóla. Krakkarnir leiðréttu „I fyrsta sinn í „alvöru-skóla“ dvergar var efni eins atriðisins og sungu börnin öll með af hjartans innlifun. Jólasveinninn í skógar- kofanum, hérinn og veiðimaðurinn Lárus var mjrtg herralegur eins og sjá má, með slaufu og í vesti. voru aðalpersónurnar í öðru. Út- færsla barnanna á laginu „Ég sá mömmu kyssa jólasvein" var mjög skemmtileg. Reyndar kyssti jóla- „Af þvi að Jesúbarnið á af- mæli,“ sagði Dagmar en við spurðum hana um tilefni jóla- hátiðarhaldanna. sveinninn mömmuna rösklega hvað eftir annað, en mamman ekki jólasveininn, — en hver gerir rellu út af slíku. Þá var gengið í kringum jólatréð og tóku allir eða velflestir þátt í því. Lárus, sem var mjög herra- legur með slaufu og í fullorðins- „Ég sá mömmu kyssa jólasvein“ og jólasveinninn rak mömmunni rembingskoss og barnið hljóp i kringum þau með Stínu-dúkku i höndunum. þá samstundis og sögðu skólann heita Hólabrekkuskóla. Eitthvað skolaðist það ti! og annar þeirra sagði: „Já, Hólahrekkuskóla." Krökkunum tókst loks að kenna þeim rétta nafnið. Jólasveinarnir sögðu krökkunum siðan nokkrar smellnar sögur og léku ýmsar kúnstir við frábærar undirtektir. I lok skemmtunarinnar var síðan aftur gengið í kringum jólatréð og í lokin fóru börnin til kennslustof- anna sinna þar sem kennararnir ræddu við þau og óskuðu þeim gleðilegra jóla. Vanalega er þessi stund notuð til að gæða sér á eplum, en í ár voru engin epli í Hólabrekkuskóla sem og í mörgum öðrum skólum landsins. Börnin ákváðu sjálf að gefa andvirði jóla- eplanna sinna sem jólagjöf til hungraðra barna í Kambódíu. Áreiðanlega koma fáar jólagjafir um þessi jól í eins góðar þarfir. 6 ára börnin í Hólabrekkuskóla héldu síðan hvert til síns heima í spennu jólaundirbúningsins. Fljót- lega eftir að þau yfirgáfu skólann komu 7 ára börnin og skemmtunin hófst á ný. EXCELENT sængurfatnaður 100% straufrí bómull mörg falleg mynstur. Fást í GARDÍNUHÚSINU, sími 22235. Sendum gegn póstkröfu um land allt. FATABÚÐIN - DÓMUS - TORGIÐ - VERSL. KRISTÍN - HÖFN - AMAEGO, Akureyri. Falleg og nytsöm jólagjöf. Heildverslun Friörik Bertelsen — Lágmúla 7, sími 86266. Miðhús A-Barð: Síminn í lamasessi þegar rafmagnið fer Miðhúsum, A-Barð., 18. desember. HÉR ERU rafmagnsbilanir mjög tíðar og þegar rafmagnið fer verður simasambandslaust við Búðardal og þar með við aðra staði utan héraðs. Það verður að teljast ótrúleg fagmennska að haga svo tenging- um á símanum, að ekki sé hægt að ná út úr héraði nema rafmagn sé á. Hér eru öll símatæki gömul og úrelt og er ástandið óviðunandi og sérstaklega þegar það er haft í huga, að heilbrigðisþjónusta okk- ar er í Búðardal. Hér hafa eigin- lega engar breytingar orðið til bóta á símamálum síðan kerfið var lagt fyrir fjölda ára, nema hvað símtækjum hefur fjölgað á línum. — Sveinn Akranes: Þorskur og ýsa vænni en áður Akranesi, 18. desember. í SÍÐUSTU viku lönduðu eftirtaldir togarar afla hér á Akranesi: Haraldur Böðvarsson AK 150 lestum, sem var mest megnis þorskur, Krossavík AK 105 lestum af blönduðum fiski, og Óskar Magnússon AK 120 lestum, einnig af blönd- uðum fiski. Afli línubáta hefur verið betri nú í haust en undan- farin ár. í gær fengu þeir 6—8 lestir. Þorskur og ýsa virðast vera vænni en áður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.