Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 K Margrét María SÍKurðardóttir íþróttamaður Kópavogs 1979. íþróttamaður Kópavogs HSÍ greiðir ekki vinnutapið SNEMMA í janúar heldur ís- lenska landsliðið í handknattleik i hina svokölluðu Baltic-keppni í handknattleik, en þar eru jaínan meðal keppenda ýmsar af fremstu handknattleiksþjóðum veraldar. Ekki er alveg víst að allir geri sér grein fyrir þeim fórnum sem landsliðsmennirnir færa fyrir landsliðið endurgjalds- iaust, en siðustu árin hefur HSÍ reynt að hlaupa undir bagga og létta á vinnutapinu. Nú er hins vegar ljóst, að HSÍ mun draga til baka alla fjárhags- aðstoð til handa leikmönnum sem fara á þessa keppni og þykir mörgum það vera skref aftur á bak. Júlíus Hafstein, formaður HSI, sagði um þetta mál, að það væri fyrst og fremst vegna fjár- skorts sem HSÍ myndi ekki greiða vinnutap að þessu sinni. Sagði Júlíus enn fremur: „Hér áður fyrr voru leikmenn íslenska landsliðs- ins kannski erlendis í 5—8 vikur á ári. Þá var ekki annað fært en að reyna að létta undir. En Baltic- keppnin er eina utanlandsferðin sem karlalandsliðið fer í á þessu ári og því höfum við tekið þann kost að greiða ekki bætur vegna vinnutaps. En þetta er þó engan veginn ákvörðun sem ekki verður haggað í framtíðinni." - gg HSI sækir um B-keppnina! Handknattleikssamband íslands hefur sótt um að halda B-keppnina í handknattleik árið 1981. Mbl. hafði áður sagt frá því, að HSÍ hefði sýnt mikinn áhuga á því að halda þessa keppni, en nú hefur sem sagt verið formlega sótt um það. Það kom fram á blaðamanna- fundi HSÍ í gær, að stjórnin er mjög vongóð um að umsókn Islands verði ofan á, sem margt bendir til. M.a. vegna þess, að enn hefur ekkert annað land sótt um að halda keppnina. Reyndar sóttu Portúgalir um, en þeim var hafn- að. Stjórnarmaður frá IHF hefur átt viðræður við formann HSÍ og skýrði Júlíus Hafstein formaður HSÍ frá því, að stjórn IHF væri mjög jákvæð gagnvart íslending- um og hefði hvatt HSÍ til þess að sækja um. HSÍ hefur augastað á 7 íþrótta- húsum á Suðurlandi, Laugar- dalshöll og íþróttahúsunum á Akranesi, í Keflavík, á Selfossi, í Hafnarfirði, að Varmá og í Vest- mannaeyjum, en öll hafa þessi hús löglega keppnisvelli. Taldi Júlíus að lauslega áætlað væri hér um 180 milljóna kr. fyrirtæki að ræða. B-keppnin verður firnasterk að þessu sinni, þar eru fyrir þjóðir eins og Tékkóslóvakía, Ungverja- land og Svíþjóð, auk þess sem fjórar bestu þjóðirnar úr C-keppn- inni mæta til leiks og tvær neðstu þjóðirnar frá Ólympíuleikunum í Moskvu, en þar eru riðlarnir svo sterkir að til greina koma jafnvel lönd eins og Pólland eða Austur- Þýskaland. Hér yrði því um meiri háttar íþróttaviðburð að ræða og varla vafi að þessu yrði vel tekið, ekki hvað síst úti á landi þar sem leikir færu væntanlega fram. Á næsta ári verður úr því skorið hvort að Island verður vettvangur næstu B-keppni í handknattleik. gg. RÓTARYKLÚBBUR Kópavogs útnefndi í gærdag í 6. sinn íþróttamann ársins í Kópavogi. Að þessu sinni varð fyrir valinu Margrét María Sigurðardóttir, sundkona úr Breiðabliki. Margrét er fædd 2. okt. 1964 og er því nýorðin 15 ára. Hún hóf æfingar hjá sunddeild Breiðabliks þegar hún var 12 ára að aldri og hefur æft vel og dyggilega síðan og uppskorið í samræmi við það. Á þessu ári sem nú er að líða varð Margrét tvöfaldur unglingameist- ari, þ.e. í 100 m skriðsundi og 100 m flugsundi. Þá varð hún 5 faldur íslandsmeistari á árinu. Sigraði hún í tveimur greinum á innan- hússmótinu, þ.e. í 100 m flugsundi og 100 m skriðsundi, en þar synti hún á 1.03.9 mín. sem var besta afrek í kvennaflokki á því móti, en þann tíma bætti hún síðan í 1.03.5 mín. í Kárlottkeppninni í Noregi. Á utanhússmótinu sigraði hún í 3 greinum, þ.e. í 100 m baksundi, 100 m flugsundi og 100 m bringusundi. Þá má geta þess að þótt hún hafi byrjað seint að æfa undir keppni þá á hún enn telpnametið í 50 m flugsundi. Margrét var í landsliði okkar í sundi þetta ár. Skal þess til gamans getið að hún keppti á þessu ári í alls 8 löndum. M.a. keppti hún í Karlottkeppninni í Noregi, átta landa keppninni í Mols í Belgíu, fjögurra landa keppninni í Dublin á írlandi og skoska meistaramótinu í Glasgow. Þá tók hún einnig þátt í alþjóðlegu unglingamóti í Luxemborg og náði þar 4. sæti í 100 m skriðsundi, en um 100 þátttakendur tóku þar þátt í hverri keppnisgrein. — hr. „Nú er rétt að yngja upp“ BIRTUR hefur verið landsliðs- hópurinn í handknattleik fyrir hina komandi landsleiki gegn Bandaríkjunum og Póllandi síðar í þessum mánuði. Listinn hefur þegar verið birtur í Mbl., en hann vakti fyrir margra hluta sakir nokkra athygli. Einkum þó fyrir þær gífurlegu breytingar, sem Jóhann Ingi Gunnarsson hefur gert á landsliðinu. Hann hefur yngt það svo mikið upp, að mörgum finnst einum of geyst i málin farið. Eigi færri en 8 leikmenn úr hinu sigursæla ungl- ingaliði sem lék í Danmörku fyrr í vetur eru í hópnum, en gamlir kappar eins og Olafur H. Jónsson o.fl. o.fl. eru látnir víkja. Um mál þetta sagði Jóhann Ingi: „Ég tel að nú sé rétti tíminn til að yngja liðið upp, þar sem tiltölulega langt er í næstu stór- verkefni, en ég hef sett stefnuna á HM 1981. Það má svo alltaf deila um hvernig farið er að hlutunum, en ég veit að ég er að gera rétt og stend og fell með þessu liði." Jóhann hélt áfram: „Við förum nú á Baltic-keppnina og ég tel að allt fyrir ofan áttunda sætið þar sé viðunandi árangur. En Baltic er bara eins og hver önnur æfingá- keppni í mínum augum og það verður ekki heimsendir þó að ekki gangi þar allt í haginn. Þetta er mjög ungt lið eins og kunnugt er og leikreynslan sem þessir strákar þurfa að hafa árið 1981 kemur í keppnum sem þessum." Alltaf er deilt um einstaka leikmenn sem valdir eru, senni- lega hefur þó mest verið deilt um Ólaf H. Jónsson að þessu sinni, en það er ekki á hverjum degi sem landsliðsfyrirliðar eru settir út í kuldann. Jóhann var spurður um þetta: „Ef Ólafur væri í toppþjálf- un, myndi hann styrkja liðið, en í landsleikjunum gegn Tékkum kom í ljós að hann var ekki í nógu góðri þjálfun. Ég tjáði honum að ég ætlaðist til þess að hann legði meira að sér ef hann ætlaði að vera með, en að mínum dómi hefur hann ekki bætt nægilega við sig til þess að geta leikið landsleiki á þessu stigi,“ svaraði Jóhann Ingi. Valdir hafa verið 24 unglingar til æfinga fyrir heimsmeistara- keppni unglingalandsliða í hand- knattleik sem fram fer í Portúgal árið 1981. Þessi hópur mun fljót- lega hefja æfingar undir stjórn Péturs Jóhannessonar og síðar einnig Jóhanns Inga Unglingarnir fá að spreyta sig í tveimur leikjum gegn bandaríska landsliðinu sem kemur hingað til lands á næstunni. Verður fyrri leikurinn óopinber, en sá síðari hins vegar opinber. Jóhann Ingi fer með liðinu ásamt Pétri til Hollands og Finnlands og fylgist þar með leikmönnum liðsins, þ.e. a.s. hvort einhverjir þeirra verða tilbúnir til að stíga stóra skrefið í A-landsliðið. — gg. 6 voru með 11 rétta í 17. leikviku komu fram 6 raðir með 11 réttum og var vinningur á hverja röð kr. 432.500.-. Með 10 rétta voru 265 raðir og vinningur fyrir hverja kr. 4.200.-. Lægðin, sem gekk yfir Bret- land um helgina setti strik í reikninginn varðandi fram- kvæmd knattspyrnuleikja og völlurinn í Nottingham var eins og sundlaug eftir úrhellið. Varð að aflýsa leiknum þar gegn Middlesboro. Siðasti getraunaseðill ársins er með leikjum, sem fram fara um jólin en skilafrestur er sá sami og venjulega og eru félög í Reykjavík og nágrenni minnt á að gera skil á sama tíma og venjulega. Gimilegur ostabakki gerir ávallt lukku. Við óvænt innlit vina, sem ábætir í jólaboðinu eða sér- réttur síðkvöldsins. OSTABAKKIGÓÐ TILBREYTING Láttu hugmyndaflugið ráða ferð- inni, ásamt því sem þú átt af ostum og ávöxtum. Sannaðu til, árangurinn kemur á óvart. OG SÚKKULAÐINU Getrauna- spá M.B.L. 2 <5 2 3 e 3 ex tm o 5 Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the world Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Tottenham X X 1 1 X X 2 4 Bolton — Everton 2 X 2 2 X 2 0 ? 4 Brighton — Cr. Palace 1 2 2 X 2 2 1 l 4 Derby — Coventry 2 X 1 X X X 1 4 1 Liverpool — Man. Udt. X 1 1 1 X 1 4 2 0 Man. City — Stokc 1 1 1 1 1 1 fi 0 0 Middlesbr. — Leeds 1 X 1 2 1 X 3 2 1 Norwich — Ipswich 2 X X 1 X X 1 1 1 Nott. Forest — Aston Villa X 1 1 1 X 1 4 2 0 VBA — Bristol City 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Wolves — Southampton 1 1 1 1 1 X 5 1 0 Chelsea — Leicester 1 1 1 X I 1 5 1 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.