Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 Árni Helgason: Hlýðum kalli Heil- brigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna „Það er enginn efi að þeim mun auðveldara sem er að ná í áfengi því meira er drukkið." Þannig mælti reyndur maður við mig um daginn en hann hafði því miður ungur lent í klóm Bakkusar og það kostaði hann mikið erfiði að losna þaðan aftur. Ef maður réttir skrattanum litla fingurinn er hætta á að höndin fylgi á eftir, segir máltæk- ið gamla. Það er reynsla aldanna. Oft hefi ég spurt þeirrar spurn- ingar hvers vegna menn þurfi að eitra líf með vímuefnum? Hvað kemur sumum til að velja þann kostinn sem alltaf ýtir niður á við? Ég hefi áður minnst á barnaár og Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna. Viðvörun hennar. Þeir sem þar eru á verði hafa samband við allar þjóðir heims og vita um ástand mála í hverju landi. Þeir sjá þá vá sem af vímuefnum leiðir og þeir senda út neyðarkall; biðja fólk og stjórnendur að beygja inn á brautir heilbrigðra lífshátta. En þá kemur brennivínspúkinn og auðvaldið á bak við hann með lokkandi liti og þá víkur oft heilbrigð skynsemi. Hvílíkt og annað eins! Og jafnvel þeir sem eru í sukkinu tala um unglinga- vandamál en dettur ekki í hug að gefa fordæmi sem leiði til betri hátta. Við flettum varla svo blaði að ekki blasi þar við hörmulegar fréttir af alls kyns spillingu, volæði, hermdarverkum og eyði- leggingu. Á bak við þetta allt er Bakkus og leiguþý hans. Heimili sundrast, hjónabönd bresta, góð áform glatast. Og leiðtogar lands vors sjá ekkert til úrræða annað en meira „frelsi", fleiri vímuveitur. Og svo til að þvo hendur sínar eru gerðar samþykktir um að veita fjárstyrki til að draga fólk upp úr pyttinum. Þannig er þetta ár eftir ár og þeim sem af heilum hug vilja berjast á móti soranum í þjóðfélaginu er gert æ erfiðara um vik. Skuggaöfl- in í þjóðfélaginu keppast við að koma upp sjoppum og vínsölu- stöðum, græða, græða. Það skiptir þá litlu hvað fer í súginn, hvort það heitir manngildi eða annað. Á Selfossi fór fram atkvæða- greiðsla um hvort leyfa skyldi sölu vímuefnis á staðnum. Meirihlut- inn, mikill meirihluti, sá að þarna var vafasamur gróði á ferðinni fyrir bæjarfélagið og hafnaði áfengisáveitu yfir byggðina. Þetta ágæta fordæmi Selfossbúa, sem fara þarna eftir leiðsögn Samein- uðu þjóðanna, ætti að vera leið- arvísir fleiri kaupstaða. Ýmist ber að sporna við opnun eða hætta rekstri þessara eitur- efnabúða. Árni Helgason, Stykkishólmi. ________þátttakendurnir eru fremstir á myndinni. Frá vinstri: Svanlaug Arnadóttir formaður Hjúkrunarfélags tslands, Ása St. Atladóttir varaformaður félagsins, Helga Bjarnadóttir hjúkrunarnemi, Ingibjörg R. Magnúsdóttir deildarstjóri i heiibrigðisráðuneytinu, Steinunn Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri Sjúkrahúss Akraness, Ástriður Karlsdóttir Tynes heilsuverndarhjúkrunarfræðingur, Anna Maria Andrésdóttir hjúkrunar- fræðingur, Jón Karlsson hjúkrunarnemi og Ingibjörg Árnadóttir ritstjóri timaritsins Hjúkrunar. Fyrir aftan, við næstu tvö borð sitja sænsku þátttakendurnir og siðan þeir dönsku. Gagnstætt til vinstri sátu Finnar og siðan Norðmenn. Samvinna norrænna hjúkrunarfræðinga: Efla ber heilbrigði fremur en að meðhöndla sjúkdóma Fulltrúafundur Samvinnu norrænna hjúkrunarfræðinga var haldinn nýlega á Hotel Munke- bjerg við Vejle í Danmörku. Aðalumræðuefni fundarins var: Forgangsverkefni innan heil- brigðisþjónustunnar. Frá sjónarhóli SSN hefur það úrslitaþýðingu, að hjúkrunar- fræðingar taki þátt i áætlanagerð og ákvarðanatöku, svo að þvi stefnumarki innan heilbrigðis- mála verði náð — að efla heil- brigði fremur en að meðhöndla sjúkdóma. Fundinn sátu 69 þátttakendur frá öllum aðildarfélögunum, en SSN hefur um 170 þúsund hjúkr- unarfræðinga innan sinna vé- banda. Á Norðurlöndum hefur notkun fjármagns á sviði heilbrigðismála á síðustu áratugum farið ört vax- andi. Þessi aukna notkun fjár- magns, þar með talin þörf fyrir fleira starfsfólk, hefur einkum orðið á starfsemi sjúkrahúsanna. Tveir beztu Sólóplöturnar meö Björgvln og Vllhjálml hafa báöar selst í yfir 10.000 eintökum og þaö sannar aö hér eru 2 frábærar plötur á feröinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.