Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 27 85 ára 5. des.: Anna Þorgrímsdóttir Víöar en í siklingssölum svanna fas er prýði glæst. Mörg í vorum djúpu dölum drottning hefir bónda fæðst. Vísan er eftir þjóðskáldið Matthías Jocumsson. Hún er þannig gölluð, að fæstir munu taka eftir því. Halldór Kiljan mundi þó ekki telja vísuna kveðna kórrétta, eins og hann orðar það. Eftir ströngustu bragfræðireglum ríma orðin glæst og fæðst tæplega nógu vel saman. En þetta gerir bara ekkert til. Ég hefi alla tíð haft mesta dálæti á vísunni. Yfir henni er eitthvað konunglegt og þó meira drottningarlegt. Frú Anna vinkona mín er borin að Borgum í Hornafirði, einni af fegurstu sveitum íslands. Og það er nú um Önnu þannig, að allt frá æskuárum og til þessa dags, hefir verið yfir henni sannkallaður drottningarlegur virðuleiki, göfug og tigin reisn, sem allir kannast við, er hana þekkja. Og Anna óx úr grasi og gerðist símamær í Keflavík. Hún tók öran og mikinn þroska með frábærum gáfum og greind andlega. Ekki einungis í Keflavík, heldur um víðlendar byggðir landsins, var það ósvikinn almannarómur, að hún væri kvenna fegurst á byggðu bóli. Læknisdóttirin í Keflavík var allra yndi og eftirlæti vegna tiginnar framgöngu í hvívetna. Og ungu mennirnir fylgdust vel með framvindu mála um allt, sem við kom þessari ungu konu. Þeir voru heillaðir hvar í stétt, sem þeir stóðu. Nei, ó nei, hana Önnu skorti ekki biðla á uppvaxtarárunum. Kornungir efnismenn bæði gáfað- ir, menntaðir, s.s. guðfræði- kandídatar, lögfræðingar, lækna- stúdentar og heimspekingar, sveimuðu og svermuðu sýknt og heilagt kringum þessa fögru konu. Hér verða kaflaskil um stund. Öll suðurströnd íslands er ein órofa auðn með eyðisöndum og hafnleysum. Þarna hafa orðið mörg hin ægilegustu sjóslys, sem um getur í allri Islandssögunni frá því að land byggðist. Eitt þeirra varð í læknistíð Þorgríms Þórðar- sonar, þegar hann bjó að Borgum í Hornafirði. Þetta var um hávetur í gaddhörku, stórhríð og blindbyl og helkulda frosti. Veðurofsinn blátt áfram fleygði þýsku skipi með rá og reiða ásamt allri áhöfninni upp á sandana eins og fiski. Þessar aðfarir sáust í gegn- um sortann úr landi, þannig að hjálparsveitir komu á vettvang ásamt Þorgrími lækni. í veður- hamnum tók það sinn tíma að flytja skipreika mennina til byggða í fárviðri og bruna frosti. Kom þá brátt í ljós, að marga hafði kalið svo að engin ráð voru fyrir hendi önnur en að taka af þeim fætur og jafnvel hendur, til þess að þeir mættu halda lífinu. Mennirnir hjörnuðu margir við og sögðu tíðindin í heimalandinu um hetjudáðir læknisins, sem efalaust voru jneð ólíkindum miðað við aðstæður. Þýska þjóðin sæmdi Þorgrím lækni æðstu verðlaunum fyrir karlmannlegar dáðir, dugnað og fórnfýsi. Þegar Anna Þorgrímsdóttir var 25 ára giftist hún Jóni Bjarnasyni frá Steinnesi, kornungum lækni og bráðefnilegum manni. Jón Bjarnason varð læknir í læknis- héraði í Borgarfirði vestra. Sam- búð þeirra hjóna varð því miður ekki löng, því að ungi læknirinn andaðist, þegar Anna var þrjátíu og þriggja ára. Þau hjónin eignuðust 6 efnileg börn, en konan gekk með sjöunda barnið, þegar hún missti manninn. Slík reynsla og þessi er alltaf átakanleg fyrir ungar konur með stóran barnahóp. En Anna Þor- grímsdóttir lét ekki bugast í hinu þunga mótlæti og sorg. Hún óx aðeins að andlegum styrk og þolgæði. Þannig bregða ávallt við vaskar konur og vitrar. Jón Bjarnason var merkur maður og læknir góður. Af þessu hefi ég örlitla reynslu þótt undar- legt sé. í Borgarfirðinum átti heima ungur maður, Stefán Jóns- son að nafni, síðar kennari, skáld og rithöfundur. Hann var síðar nemandi minn í Kennaraskólan- um og þar birtist mér undrið, og ég vil segja kraftaverkið. Stefán hafði verið að slá með orfi og ljá. En í meðferðinni með ljáinn skar hann sig alveg hroðalega í annan úlnliðinn. Þarna skárust sundur allar sinar, taugar og æðar, þann- ig að höndin varð vita afllaus. Ungi sveitalæknirinn Jón Bjarna- son gerði að þessu háskalega meiðsli með þeirri snilld, að hönd- in varð svo gersamlega hyilbrigð aftur. Má geta nærri hvílíkt ná- kvæmnisverk það hefir verið að tengja saman allar taugar, sinar og æðarnar smáar og stórar, svo að gersamlega fullur bati fengist. Örið á úlnliðnum var með afbrigð- um fallegt áferðar. í þessu spjalli hefi ég getið tveggja merkra lækna, Þorgríms föður Önnu og eiginmannsins Jóns Bjarnasonar. Margblessuð sé minning þeirra. Af stórum barnahópi var Anna eina dóttirin. Um sambandið milli móður og dóttur hefi ég hlerað það, að öll þeirra sambúð var þrungin af virðingu, ást og kær- leika. Móðir Önnu var Jóhanna Andrea Knúdsen. Hún var rómuð fyrir fagrar hannyrðir, góðar gáf- ur, gjafmildi og bráðskemmtilega kímni. Alla mestu og beztu eðliskosti foreldranna hefir A.Þ. tekið sem dýran arf frá ættunum. Þar ber fyrst að nefna tiginborna kurteisi, ástúðlegt viðmót við samferðar- mennina, höfðinglega gjafmildi og reisn, geðprýði svo að af ber, þolgæði, atorku og frábæran dugnað og drenglyndi í hvívetna. Anna Þorgrímsdóttir hefir aldrei borið tilfinningar sínar á torg fyrir verðuga né óverðuga. Hún er þvert á móti mjög orðvönd og orðvör. Því fer svo víðsfjarri, að ég hafi nokkurn tíma heyrt hana jesúsa menn eða málefni með trúarlegum orðaflaumi. Þetta fellur vel að mínum smekk. Ég hefi átt því láni að fagna að kynnast börnunum hennar Önnu, sem enn eru á lífi. Þau eru öll úrvals fólk sökum fjölbreyttra gáfna og göfugra mannkosta. Og ég þekki nánar til. Öll sambúð þessarar fjölskyldu er svo ástúð- leg í einu og öllu, að á betra verður aldrei kosið með gagnkvæma ást og virðingu. Ættir fram i einn á veg allt hiö bezta sóttir. Ellin verði yndisleg Anna Þorgrimsdóttir. Aðalsteinn Hallsson frá Kóreksstöðum Jólasöngvar í Dómkirkjunni ANNAÐ kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 22, verður Dómkórinn með jólasöngva i Dómkirkjunni. Rut Magnússon syngur einsöng og Rut Ingólfsdóttir leikur á fiðlu. Mar- teinn H. Friðriksson leikur einleik á orgelið. Núverandi Dómkór hóf störf í aðventubyrjun í fyrra, söng í fyrsta skipti við messu á 1. sunnudegi í aðventu og þá tók Marteinn H. Friðriksson einnig við starfi dóm- organista. Strax 21. desember það ár hélt kórinn sína fyrstu tónleika, s.n. jólasöngva. Þeir eru nú enn á dagskrá og eru hugsaðir sem fastur liður í framtíðarstarfi Dómkirkj- unnar. Jólasöngvarnir verða, sem fyrr segir, í Dómkirkjunni annað kvöld og hefjast kl. 22. Kórinn syngur þá þekkt jólalög í fallegum útsetning- um. Þær Rut Magnússon og Rut Ingólfsdóttir flytja aríur úr Jóla- tóríu Bachs, og dómorganistinn Marteinn H. Friðriksson leikur einleik á orgelið, m.a. Toccötu Adagio og Fúgu í C-dúr eftir J. S. Bach. Einnig les sr. Hjalti Guð- mundsson jólaguðspjallið. í allt mun þetta taka um 3 stundarfjórð- unga. Aðgangur að jólasöngvunum er ókeypis og öllum heimill. Ég vil eindregið hvetja fólk til að koma í Dómkirkjuna annað kvöld og njóta þar góðrar stundar og jólastemmn- ingar, nú rétt áður en hátíðin gengur í garð. Betur verður ekki Iokið annasömum degi. Þórir Stephensen. UTSÖLUSTAÐIR: Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsibæ — Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafirði - Eplið Akranesi - Eplið SAMBYGGT STERÍÓSETT ’H Verð sem þú trúir ekki j f Strax eftir jól trúir þú því ekki r Ulle að hafa fengió hljómtæki meó slík tODDaæöi fvrir svona lítið verð SHARP SG320 KR. 327.000.- aó hafa fengió hljómtæki meö slík toppgæöi fyrir svona lítið verö. SHARP SG330 KR. 395.000.- SG-320 SAMBYGGT STERÍÓSETT TÆKNILEGAR UPPLYSINGAR. MAGNARAR: 2X15 WÖTT R.M.S. UTVARP: 4 UTVARPSBYLGJUR, FM, FM STERIO, LW, MW, SW. PLÖTUSPILARI: HÁLFSJÁLFVIRKUR, S-ARMUR. SEGULBAND: MEÐ ZpjJM SJÁLFLEITARA HÁTALARAR: 2 STK. 40 WÖTT, R.M.S, 40 OHM. SG-330 SAMBYGGT STERIÖSETT TÆKNILEGAR UPPLYSINGAR MAGNARAR: 2 x 20 WOTT R M.S UTVARP: 4 ÚTVARPSBYLGJUR, FM, FM STERIO, LW. MW, SW PLÖTUSPILARI SJALFVIRKUR, S-ARMUR SEGULBAND: MEÐ ^ ftPfttf SJÁLFLEITARA. HÁTALARAR. 2 STK. 40 WÖTT R.M.S. 4 OHM. Bestu kaupin hvemig sem á er litið! HLJÓMDEILD lltjð KARNABÆR P Laugavegi 66, 1. hæð. Simi frá skiptiborði 85055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.