Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. Sýndarmennska og framsóknarhógværð Sýndarmennska og ábyrgðarleysi forystusveitar vinstri flokkanna er hættulegt fordæmi og síst til eftirbreytni. Þess verður þó vart víðar en í þeim röðum, að menn telja það nóg til að leysa vandamál líðandi stundar að berja sér á brjóst og nota stór orð. Það þarf þó ekki að rifja upp mörg dæmi til að sýna, að þeim vegnar ekki alltaf best, sem hæst láta eða nota stærstu orðin. Nú er til dæmis orðið deginum ljósara, að stóryrði formanns Framsóknarflokksins um nýja vinstri stjórn hafa átt við lítil önnur rök að styðjast en hans eigin óskhyggju. Viðræðurnar, sem Steingrímur Hermannsson stjórnar, virðast ætla að bera þann eina árangur að verða viðræðuaðilunum til hneisu, og má segja, að ekki hafi þurft margar vikur til þess. Á meðan þríflokkarnir streðast við að semja langar álitsgerðir um efnahagsmál, sem þeir senda síðan til einkunnagjafar til embættismannanna í Þjóðhagsstofn- un, rífast þeir eins og hundar og kettir um mannvirðingar á Alþingi. Nefndakosningarnar á þingi sýna í hnotskurn af hvaða heilindum þríflokkarnir sitja klukkustundum saman yfir vonlausu tafli sínu. Nú síðustu daga hefur formaður Framsóknarflokksins af alkunnri framsóknarhógværð hælst um af því, að Þjóðhagsstofnun hafi bara veitt efnahagstillögum fram- sóknar góða einkunn. En stofnunin telur, að tillögurnar þýði 40—45% verðbólgu í ársbyrjun 1981, þegar hún átti að vera komin niður í að minnsta kosti 30% samkvæmt fullyrðingum mannsins, sem stendur við orð sín gagnvart kjósendum, þegar hann biðlaði til þeirra fyrir rúmum tveimur vikum. Lausn Rhódesíu-deilunnar Allir aðilar að hinni svonefndu Rhódesíu-deilu hafa komist að samkomulagi eftir rúmlega þriggja mánaða viðræður í London. Samkomulagið um fram- tíðarskipan mála í Zimbabwe-Rhódesíu er til mikils álitsauka fyrir ríkisstjórn Margaret Thatcher og það er sigur fyrir Carrington lávarð, utanríkisráðherra hennar. Samkomulagið um Rhódesíu krafðist lausnar á marg- víslegum vanda. Fyrsta krafa Breta var sú, að bundinn yrði endi á ólögmætt sjálfstæði landsins, sem varað hefur síðan 1965 og hlotið fordæmingu allra aðildarlanda Sameinuðu þjóðanna með viðskiptabanni. Þessari kröfu hefur nú verið fullnægt og breska ríkisstjórnin hefur að nýju skipað landstjóra í Rhódesíu, sem skal á næstu mánuðum leiða þjóðina til lögmæts og varanlegs sjálfstæðis. Sættir hafa tekist milli hinna stríðandi fylkingar blökkumanna í Rhódesíu og boð hefur verið látið út ganga um vopnahlé í landinu. Með nýrri stjórnarskrá hefur hvíta minnihlutanum verið skipaður sá sess sem honum ber. Samhliða því, sem menn búa sig nú undir það í Rhódesíu að ganga til kosninga og ráða eigin málum á grundvelli nýrrar stjórnarskrár, er á alþjóðavettvangi unnið að því að aflétta af landinu því viðskiptabanni, sem það hefur búið við. Vonandi verða engar tafir eða alvarlegir erfiðleikar við að koma þessum málum í varanlegt og friðsamlegt horf. Zimbabwe-Rhódesía var á mörkum þess að verða borgarastyrjöld að bráð og þau heimsyfirráðaöfl, sem þrífast best í blóðugum átökum, biðu þess með óþreyju að geta látið þar til sín taka. Kúbumenn og aðrir útsendarar Sovétmanna í Afríku hafa hlotið mikla þjálfun undanfar- in misseri í frumskógahernaði og þeim hefði ekki munað um að sækja inn í eitt landið í viðbót. Allt bendir til þess, að þessari hættu hafi nú verið bægt frá. 1 1: Vonlaust vinstra Stjórnmál á íslandi eru komin í alvar- lega sjálfheldu. Það sýnir framvinda mála á þeim vettvangi síðustu árin og alveg sérstaklega frá kosningunum í byrjun desember. Fyrir þær voru möguleikar flokkanna til samstarfs takmarkaðir á þann veg, að Sjálfstæðisflokkur og Al- þýðubandalag (áður Sósíalístaflokkur) höfðu ekki starfað saman í ríkisstjórn í 33 ár og almennt litið svo á, að samstarf milli þessara tveggja flokka væri útilok- að. Fjögurra ára stjórnarsamstarf Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks hafði þær afleiðingar, að innan beggja flokk- anna er það ríkjandi skoðun, að samstarf milli þeirra sé ekki æskilegt. Alþýðuflokk- urinn hefur að vísu ekki útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en hann hefur ekki verið tilbúinn til að taka það upp á ný eins og bezt kom í ljós sumarið 1978 þegar Alþýðuflokksmenn áttu kost á „öfugri" viðreisn, þ.e. samstarfi í ríkis- stjórn undir forsæti Alþýðuflokksins en höfðu ekki áhuga á því. Hinir svonefndu vinstri flokkar hafa tvisvar á þessum áratug gert tilraun til samstarfs í vinstri stjórn og í báðum tilvikum hefur það endað með ósköpum. Þótt flokkarnir hafi ekki útilokað nýja vinstri stjórn sýiir fengin reynsla, að andstæðurnar innan slíkra stjórna eru svo miklar, að þær ná ekki árangri í stjórnarstörfum. Eftir kosningar hefur þessi sjálfhelda, sem stjórnmálin voru komin í vaxið að mun. Alveg sérstaklega hafa yfirlýsingar Steingríms Hermannssonar orðið til þess að hleypa illu blóði í menn og eitra andrúmsloftið á milli flokka og einstakl- inga. Þær yfirlýsingar, sem um er að ræða féllu í samtali við dagblaðið Vísi á laugardag fyrir rúmri viku. í þessu samtali rekur Steingrímur Hermannsson þrjár ástæður fyrir því, að hann telji samstarf við Sjálfstæðisflokkinn útilokað. Hin fyrsta er sú, að stefna flokksins í efnahagsmálum sé orðin svo hægri sinn- uð, að samstarf komi ekki til greina á þeim grundvelli. Þetta sagði Steingrímur fyrir kosningar og er því ekkert nýtt. Önnur ástæðan sem hann tilgreinir er öllu alvarlegri. Hann segir: „Ég hef alla tíð verið efins um samstarf við Sjálfstæð- isflokkinn. Það er ef til vill arfur frá föður mínum, en hann fór aldrei í stjórn undir forystu Sjálfstæðismanna." Formaður Framsóknarflokksins vill sem sagt ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn vegna þess, að faðir hans var andsnúinn því. Þriðja ástæðan sem Steingrímur Her- mannsson tilgreinir er þessi: „Það er mjög ríkt í mörgum Framsóknarmönnum, að Framsóknarflokkurinn eigi að vera and- stæðingur Sjálfstæðisflokksins. Tryggvi heitinn Þórhallsson sagði: „Allt er betra en íhaldið" og ég tek undir það.“ Sem sagt: Forystumaður Framsóknarflokksins fyrir hálfri öld var á móti Sjálfstæðisflokknum þá og þess vegna er Steingrímur Her- mannsson það nú. Svo langt gengur þetta ofstæki í garð Sjálfstæðisflokksins, sem Steingrímur hefur tekið í arf frá föður sínum, Hermanni Jónassyni og Tryggva Þór- hallssyni, að formaður Framsóknar- flokksins segir í þessu viðtali, að samstarf við Sjálfstæðisflokkinn sé útilokað hversu slæmt sem ástandið verði í landsmálum! Menn eru auðvitað þrumu lostnir yfir þessum ummælum Steingríms Her- mannssonar. Þau sýna, að persónuleg heiftrækni ræður afstöðu formanns ann- ars stærsta stjórnmálaflokks landsins. Hann ætlar bersýnilega að nota stöðu sína til að hefna harma frá fyrri tíð. Alkunna er, að Hermann Jónasson lýsti því yfir við myndun vinstri stjórnar 1956, að nú ætti að útiloka Sjálfstæðis; flokkinn frá áhrifum á landsmál. í kjölfarið á því og vinstri stjórninni, sem hrökklaðist frá 1958 var Framsóknar- flokkurinn utan ríkisstjórnar í 13 ár. Nú hefur Steingrímur Hermannsson gefið svipaða yfirlýsingu. Afleiðingar hennar geta orðið býsna örlagaríkar fyrir Fram- sóknarflokkinn og stjórnmálaþróunina í heild sinni. Alvarlegar horfur Tilraun Steingríms Hermannssonar til að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá áhrif- um á landsstjórnina er auðvitað ábyrgð- arlaus en hún er líka mjög alvarlegt mál vegna þess hversu ískyggilegar allar horfur eru í málefnum þjóðarinnar um þessar mundir. Það er rétt, sem Jón Baldvin Hannibalsson sagði í Alþýðublað- inu á dögunum, að efnahagskerfi okkar mundi hrynja eins og spilaborg, ef það yrði fyrir svipuðum áföllum nú og það varð á árunum 1967—1969, þegar gjald- eyrisverðmæti sj ávarafurðaframleiðslu minnkaði um 45%. Þá stóðum við þau áföll af okkur og réttum úr kútnum en svo illa hafa vinstri stjórnir á þessum áratug leikið okkur, að við mundum ekki stand- ast slík áföll nú. Ríkisstjórn Geirs Hall- grímssonar hafði náð nokkrum árangri vorið 1977 við endurreisn efnahagslífsins, en sá árangur var eyðilagður síðasta stjórnarár hennar eins og kunnugt er. Atvinnuleysi hefur að vísu ekki herjað á okkur enn, þótt þeir, sem starfa í atvinnulífinu viti hve litlu má muna, að það skelli á. A slíkum tímum þarf þjóðin á öðru að halda en því, að þeir stjórnmála- foringjar, sem hún hefur valið til forystu og sýnt trúnað og traust efli þá sundrung, sem alltof lengi hefur markað þjóðlífið og það ekki bara vegna átaka líðandi stundar heldur einnig vegna atburða, sem gerðust á árabilinu 1930—1960. Þjóð okkar þarf nú á sættum að halda en ekki sundrungu. Hún þarf á forystu- mönnum að halda, sem eru tilbúnir til að taka höndum saman um lausn aðkallandi vandamála líðandi stundar, hvað sem líður öðrum ágreiningsmálum eða fyrri átökum. Áhorfendur að tilraunum til stjórnar- myndunar sumarið og haustið 1978 og aftur nú í desember hafa það stundum á tilfinningunni, að ekki sé verið að mynda ríkisstjórn á íslandi heldur takist strákar í gagnfræðaskóla á um stjórn í málfunda- félagi. Pólitíkin er komin á svo lágt plan. Þeir djúpstæðu erfiðleikar, sem við eigum við að glíma og vekja upp spurningar um það, hvort fjárhagslegt sjáifstæði okkar — og þar með stjórnarfarslegt sjálfstæði — sé í hættu, geréj kröfu til þess, að stjórnmálaforingjar 'okkar hefji sig upp yfir ómerkilegt þras og flokkadrætti Og veiti þjóðinni þá traustu, sterku en hófsömu forystu, sem hún þarf á að halda. Þessar sérstöku aðstæður kalla á sögu- legar sættir í íslenzkum stjórnmálum. Neikvæð afstaða Steingríms Her- mannssonar, sem er eins konar stríðsyfir- lýsing í garð Sjálfstæðisflokksins ætti að verða þeim þjóðfélagsöflum, sem í þrjátíu ár hafa verið ósættanleg, hvatning til þess að taka saman höndum í því skyni að treysta og tryggja fjárhagslegt og stjórnar- farslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Vinstri stjórnir eru misheppn- aðar stjórnir Eins og nú horfir eru hverfandi líkur á því, að Steingrími Hermannssyni takist að koma saman nýrri vinstri stjórn. Það er a.m.k. skoðun allra annarra en örfárra forystumanna í Framsóknarflokki og Al- þýðubandalagi, sem sjá ekkert annað en vinstri stjórn. Fari svo, gagnstætt því, sem nú er búizt við, að formanni Fram- sóknarflokksins takist að mynda nýja vinstri stjórn, verður sá tími, sem hún situr, ekkert annáð en tímaeyðsla. Þess- um flokkum tekst ekki fremur nú en á síðustu 13 mánuðum að ná tökum á þeim viðfangsefnum, sem framundan eru. Vinstri stjórnir eru misheppnaðar stjórnir. Frá lýðveldisstofnun hafa verið myndaðar þrjár vinstri stjórnir. Raunar má bæta einni vinstri stjórn við, sem telja verður þá fyrstu þ.e. samstjórn Fram- sóknarflokks og Alþýðuflokks, sem sat á árunum 1934—1939 undir forystu Her- manns Jónassonar. Ef við hins vegar höldum okkur við þessar þrjár, sem stofnað hefur verið til á síðustu 23 árum er ljóst, að þær eru misheppnuðustu ríkisstjórnir lýðveldisins. Allar hafa þær verið settar á stofn með einhvers konar blessun verkalýðssamtak- anna, hinar tvær fyrri með blessun Alþýðusambandsins, sú þriðja fékk hins vegar sinn gæðastimpil frá Verkamanna- sambandi íslands. ASÍ átti mikinn þátt í að koma þeirri fyrstu á og setti hana jafnframt af. Sú saga er kunn og óþarfi að endurtaka hana hér. Vinstri stjórnin seir sat 1971 hafði innan sinna vébanda, fyrst Hannibal Valdimarsson og síðar Björn Jónsson, báðir forsetar ASÍ, þegar þeir tóku sæti í þeirri stjórn. Endalok hennar urðu þau, að Björn Jónsson tilkynnti frá sjúkrabeði vorið 1974, að hann stæði ekki að frumvarpi um efnahagsmál, sem stjórnin ætlaði að flytja. Viðbrögð Ólafs Jóhannessonar verða lengi í minnum höfð. Hann rak forseta Alþýðusambands- ins úr stjórninni og framkvæmdi verkn- aðinn meðan Björn Jónsson lá á sjúkra- húsi. Slík urðu örlög þessara tveggja vinstri stjórna. Báðar féllu þær vegna þess, að forystumenn Alþýðusambandsins vildu ekki lengur bera ábyrgð á þeim. Þegar sú þriðja féll í byrjun október- mánaðar var svo komið málum, að Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins var byrjaður að undirbúa fall þeirrar stjórnar. Hann hafði þegar á fundum í nokkrum verka- lýðsfélögum gagnrýnt stjórnina harka- lega og stefndi að því, að á þingi Verkamannasambandsins yrðu skýrar línur dregnar í afstöðu til stjórnarinnar. Kratar urðu fyrri til. En í raun hafði þessi síðasta vinstri stjórn þegar misst traust og tiltrú verkalýðssamtakanna. Allar skildu þær við þrotabú í efna- hagsmálum. Þegar vinstri stjórn Her- manns Jónassonar fór frá í desember 1958 var öngþveiti í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar. í kjölfarið kom Viðreisn sem gjörbreytti íslenzku samfélagi og vakti nýja trú og von um bjarta framtíð. Vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar tók við 7% verðbólgu en skildi eftir sig 54% verðbólgu. Sú stjórn er mesta óþurftar- stjórn, sem setið hefur í allri sögu lýðveldisins enda ber hún ábyrgð á þeirri óðaverðbólgu, sem hér hefur ríkt síðan. Ólafur Jóhannesson ætlaði að bæta fyrir fyrri misgerðir með síðari vinstri stjórn sinni, en þegar hún féll var verðbólgu- hraðinn kominn yfir 80%. Það hefur verið sameiginlegt einkenni þessara þriggja vinstri stjórna, að þær hafa verið glundroðastjórnir. Ráðherrar í þeim hafa varið meiri tíma til innbyrðis sundrungar og togstreitu en stjórnar- starfa. í þeirri síðustu var rifrildið komið á það stig, að ekki var lengur um stjórnmál að ræða heldur leiksýningu. Þjóðin skemmti sér konunglega við að fylgjast með tiltektum flokkanna þriggja og einstakra ráðherra. Sumir þeirra urðu nokkurs konar trúðar. „Nei, þarna koma leikararnir út úr kirkjunni", sagði kona við vinkonu sína, sem stóð á Austurvelli og fylgdist með því, þegar alþingismenn gengu úr Dómkirkjunni í Alþingishúsið við þingsetninguna fyrir nokkrum dögum. Vinstri stjórnir, ekki sízt sú síðasta, eiga mestan þátt í því, að í huga þjóðarinnar eru stjórnmálamenn ekki lengur stjórn- málaménn heldur leikarar — ef ekki trúðar. Kjarni málsins er þó kannski sá, að heitið „vinstri" stjórn yfir samstjórn þessara þriggja flokka er hugsanavilla. Vinstri mönnum eru málefni launþega sérstaklega hjartfólgin, einnig félagsleg umbótamál, heilbrigðismál, tryggingamál og önnur málefni af því tagi. Framsókn- MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 17 arflokkurinn hefur aldrei haft áhuga á þessum málaflokkum. Hann hefur aldrei sýnt hagsmunamálum launþega áhuga enda lítið fylgi átt innan launþegasam- takanna. Hann hefur lagt áherzlu á tvennt: að gæta viðskiptalegra hagsmuna Sambandsins, kaupfélaganna og fjöl- margra dótturfyrirtækja þeirra. Hér er auðvitað á ferðinni auðhringur, sem lýtur stjórn fámenns hóps manna. Er það vinstri stefna að vernda hagsmuni slíks auðhrings, sem Sambandið er? Ennfrem- ur hefur Framsóknarflokkurinn lagt áherzlu á að binda bændur við þennan auðhring og það opinbera stjórnkerfi, sem þeir hafa byggt upp í kringum landbúnað- inn. Flokkur, sem hefur þessi áhugamál er ekki „vinstri flokkur". Hann er þröngsýnn íhaldsflokkur. Það ber hins vegar að játa, að það er mikið afrek hjá forystumönnum Framsóknarflokksins að hafa í hálfa öld talið Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi trú um, að Framsóknarflokkurinn væri „vinstri" flokkur og skapa sér með þeirri blekkingu lykilstöðu í íslenzkum stjórn- málum hvað eftir annað. Það er orðið afar brýnt, að Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag geri sér grein fyrir því, að þeir eru alltaf að skamma vitlaust „íhald“. Þeir hamast á Sjálfstæð- isflokknum og telja hann íhaldsflokk. Þó er Sjálfstæðisflokkurinn annar stærsti verkalýðsflokkur landsins, ef miðað er við fulltrúatölu á þingum ASÍ. Reynslan sýnir einnig, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur jafnan lagt þunga áherzlu á félags- legar umbætur þar sem hann hefur ráðið ferðinni t.d. hjá Reykjavíkurborg í hálfa öld. Þegar Sjálfstæðismenn hafa farið Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, útilokar samstarf við Sjálfstæðis- vegna þess að faðir hans var andvígur því og Tryggvi Þórhallsson sagöi aö allt væri betra en íhaldið. með heilbrigðismál, tryggingamál og fé- lagsmál í ríkisstjórnum hafa orðið miklar framfarir í þeim efnum. Sjálfstæðisflokk- ur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag eiga því meira sameiginlegt heldur en síðarnefndu flokkarnir tveir og Fram- sóknarflokkur. Það er orðið tímabært, að forystumenn Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags hætti að láta Framsóknarmenn blekkja sig eins og þeir hafa gert í 50 ár. Viðreisnar- samstarf? Ráðamenn Alþýðubandalags og Fram- sóknarflokks hafa fyrir hverjar kosningar frá 1971 verið haldnir eins konar Við- reisnarmartröð. Þeir hafa óttazt mjög, að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur mundu á ný ná þeim meirihluta á Alþingi, sem þessir flokkar töpuðu í kosningunum 1971 og mynda nýja samstjórn þessara tveggja flokka. Þessar áhyggjur eru óþarfar. Alþýðuflokkurinn hefur allan þennan áratug verið haldinn slíkum sálarflækjum og minnimáttarkennd gagnvart Sjálfstæðisflokknum að hann hefur einfaldlega ekki þorað í nýtt viðreisnarsamstarf. Þetta kom glögglega í ljós eftir kosn- ingarnar 1978. Þá var nýr Viðreisnar- meirihluti til staðar. Eftir þær kosningar var líka meira jafnræði á milli þessara tveggja flokka en verið hafði allt Viðreisn- artímabilið, þar sem Alþýðuflokkur hafði þá 14 þingmenn á móti 20 þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Ætla hefði mátt, að sjálfst.raust Alþýðuflokksins gagnvart Sjálfstæðisflokki hefði aukizt við þessi úrslit. Sjálfstæðisflokkurinn var þá um sumarið tilbúinn í nýja Viðreisnarstjórn, sem Alþýðuflokkurinn væri í forsæti fyrir og setti svipmót sitt á. Alþýðuflokksmenn þorðu það ekki. Sjálfstæðisflokkurinn var líka reiðubúinn til þess að gefa Alþýðu- flokknum, sigurvegara þeirra kosninga, tækifæri til að mynda minnihlutastjórn. Alþýðuflokkurinn þorði það ekki heldur. Eftir kosningarnar nú í desember var einnig til Viðreisnarmeirihluti á þingi. Alþýðuflokkurinn hirti ekki um það og hafði ekki einu sinni áhuga á að hafa slíkan meirihluta upp á að hlaupa með því áð eiga samstarf við Sjálfstæðisflokkinn um kjör í efri deild. Þessi afstaða Alþýðuflokks eftir kosningarnar 1978 og nú er þeim mun athyglisverðari vegna þess, að í báðum þessum kosningum fékk Alþýðuflokkur umtalsvert atkvæðamagn frá kjósendum, sem vildu stuðla að myndun nýrrar Viðreisnarstjórnar og telja hana einu raunhæfu stjórnina. Búast má við, að þeir kjósendur gefist senn upp á því að kjósa Alþýðuflokkinn í því skyni að stuðla að myndun Viðreisnar- stjórnar. Ástæðurnar fyrir minnimáttarkennd Alþýðuflokksins gagnvart Sjálfstæðis- flokki eru aðallega tvær. í fyrsta lagi hafa Alþýðuflokksmenn talið sjálfum sér trú um, að þeir hafi beðið svo mikið afhroð í þingkosningunum 1971 vegna samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er auðvitað alrangt. í þeim kosningum bauð fram nýr jafnaðarmannaflokkur, Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna, undir forystu fyrrverandi formanns Alþýðuflokksins, Hannibals Valdimarssonar. Þetta fram- boð flokks, sem byggði á mjög svipuðum grundvelli og Alþýðuflokkur og naut þar að auki forystu tveggja helztu forystu- manna verkalýðssamtakanna, þeirra Hannibals og Björns Jónssonar, átti auðvitað mestan þátt í kosningaósigri Alþýðuflokksins 1971 en ekki samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn. Hermann Jónasson og Tryggvi Þórhallsson. Afstaöa þeirra til Sjálfstæöisflokksins fyrir mörgum áratugum ræöur nú ríkjum í Framsóknarflokknum og hefur áhrif á stjórnarmyndun á islandi við upphaf 9. áratugarins. mesta kosningasigri í sögu flokks síns og töpuðu 4 þingmönnum. Ætla mætti, að þeir hefðu nokkrar áhyggjur af því að setjast að samningaborði um nýja vinstri stjórn eftir slík úrslit en því er ekki að heilsa. Auðvitað er það svo, að málefnalega eiga Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur mesta samleið. Ef „leiftursókn" Sjálf- stæðismanna og kosningastefnuskrá Al- þýðuflokksins, eins og hún var kynnt í Alþýðublaðinu eru bornar saman verður ljóst, að ekki ber mikið á milli. Líklega mundi taka stuttan tíma að leggja grundvöll að meirihlutastjórn Sjálfstæð- isflokks og Alþýðuflokks. Það fer ekki á milli mála, að Alþýðu- flokkurinn veit ekki hvað hann vill. Hann tekur þátt í vinstri viðræðum, en sýnir þeim engan sérstakan áhuga. Flokkurinn virðist ekki eiga forystumenn, sem eru tilbúnir til að segja, hvert skuli stefna. Þeir Benedikt Gröndal, Kjartan Jó- hannsson og Sighvatur Björgvinsson veita Alþýðuflokknum ekki þá forystu um þessar mundir, sem þeir eru kjörnir til. Þeir ættu að íhuga nú, hvort ekki sé þrátt fvrir allt ástæða til að huga nánar að samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og hvort það sé ekki líklegasta leiðin til að koma stefnumálum Alþýðuflokksins fram. Það samstarf getur verið með ýmsum hætti. Kjör í trúnaðarstöður á Alþingi síðustu daga getur verið spor í retta átt. stg • Á morgun birtíst grein er nefn- itt: „Sögulegar sættir“. Fjallar hún um hugsanlegt samstarf Sjálfstæðis- flokkt og Alþýöubandalagt í ríkit- stjórn. Raunar var það svo öll Viðreisnarárin, að almennir flokksmenn Sjálfstæðis- flokksins kvörtuðu undan því, að kratar réðu of miklu í Viðreisnarstjórninni og í kosningunum 1967 vann Alþýðuflokkur- inn svo mikið á en Sjálfstæðisflokkurinn tapaði að sama skapi, að forystumenn Alþýðuflokksins höfðu mestar áhyggjur af því að Sjálfstæðisflokkurinn mundi ekki vilja halda áfram samstarfinu við Alþýðuflokkinn. I öðru lagi höfðu Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur hamrað á því í 13 ár, að Alþýðuflokkur væri hækja Sjálfstæðis- flokks og hafa haldið því áfram síðan í ýmsum myndum. Alþýðuflokksmenn eru augljóslega farnir að trúa þessum áróðri sjálfir og sýnir það bezt hve lítið sjálfstraust þessa flokks er, að hann lætur andstæðingana með þessum hætti ráða afstöðu Alþýðuflokksins til samstarfs við aðra flokka. Nú bera Alþýðuflokksmenn það fyrir sig, að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum vegna þess, að Við- reisnarmeirihluti á Alþingi sé ótryggur með Albert Guðmundsson og Eggert Haukdal innan borðs. Þetta er auðvitað tilbúin ástæða. Báðir þessir þingmenn Sjálfstæðismanna hefðu vafalaust staðið heilir að samstarfi við Alþýðuflokkinn á Alþingi, ef samkomulag hefði tekizt á annað borð um málefni. Alþýðuflokks- menn bera það líka fyrir sig, að sundrung- in í Sjálfstæðisflokknum sé svo mikil, að erfitt sé að vinna með honum. Þetta er líka tilbúin ástæða. í öllum flokkum eru uppi margvísleg og mismunandi sjónar- mið eins og eðlilegt er. Þetta eru því ekki þær ástæður, sem valda því, að Alþýðu- flokksmenn eru ekki tilbúnir til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Þeir þora ekki, eins og sýnt hefur verið fram á. Hins vegar eru þeir tilbúnir til að setjast þegar að samningaborði um nýja vinstri stjórn enda þótt 13 mánaða seta í slíkri stjórn hafi leitt til þess, að þeir glutruðu niður 'm&t Benedikt Gröndal, formaður Alþýöuflokks. Kjartan Jóhannsson, varaformaður Alþýðuflokks. Sighvatur Björgvinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokks. Þessir þrír foringjar Alþýðuflokksins vita ekki hvað þeir vilja. Þeir þora ekki i stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn og tvístíga gagnvart vinstri stjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.