Morgunblaðið - 19.12.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
15
Stjórnarkreppu
af stýr t í N oregi
Ósló, 18. dcsember.
Frá fréttar. Mbl. Jan Erik Laurie.
ODDVAR Nordli getur haldið
jólin hátiðleg sem forsætisráð-
herra, ríkisstjórnarkreppu þar
er afstýrt að minnsta kosti um
sinn, þótt lengi vel liti út fyrir að
stjórnin félli. Lagafrumvarpið
um launapólitikina fékk ekki
meirihluta gegn sér við atkvæða-
12 létust á Bali
Jakarta 18. des. Reuter — AP.
AÐ MINNSTA kosti tólf manns
létu lífið og næstum eitt hundrað
slösuðust, margir lífshættulega
þegar tveggja minútna sterkur
jarðskjálfti skók hina frægu
ferðamannaeyju Bali i Indónesiu
i dag. Þetta gerðist klukkan 4 að
indónesiskum tima sl. nótt og
þusti fólk í skelfingu út úr
híbýlum sinum. Margir börðu
trébumbur til að vekja nágranna
sina.
Skjálftinn er sá þriðji sem ríður
yfir indónesisku eyjarnar á þessu
ári og verulegu tjóni hefur valdið.
Hann mældist um 6,1 stig á
Richterkvarða.
Aðaleyðileggingin á Bali virðist
vera á norðausturhluta eyjarinn-
ar, en ferðamenn eru einkum á
suður og vesturströndinni. í Den-
pasar, aðalbæ Bali urðu ekki
teljandi skemmdir, en í ýmsum
þorpum á norðausturhluta eyj-
unnar hrundu hús og skólar.
greiðslu i morgun og er því hægt
að senda það til staðfestingar hjá
konungi.
Tillaga borgaraflokkanna um að
koma inn í frumvarpið tryggingu
þess efnis að ekki skuli gerður
skilmunur á félagsbundnu og ófél-
agsbundnu verkafólki hlaut ekki
stuðning Sósíaliska vinstriflokks-
ins. Tillaga frá SV um að vísa
frumvarpinu frá hlaut ekki stuðn
ing borgaraflokkanna. Ef borgara-
flokkarnir og SV hefðu greitt
atkvæði eins hefði ríkisstjórn-
arkreppa þar með verið veruleiki.
í lokaatkvæðagreiðslunni
greiddu borgaraflokkarnir at-
kvæði með lagafrumvarpi ríkis-
Öddvar Nordli
stjórnarinnar vegna þess að full-
trúar þeirra töldu betra að fá
slæm lög en alls engin lög. Full-
trúar SV sögðu að val milli
þessara tveggja kosta væri eins og
að kjósa milli pestar og kóleru.
„Við viljum hvorugt," sagði full-
trúi SV. Lögin eiga að koma í veg
fyrir að launaþróun í Noregi fari
of geyst fram til ársins 1982.
Trúðar
við
nr. 10
London, 18. des. AP.
TRÚÐAR söfnuðust saman
við heimili Margaretar
Thatcher, forsætisráðherra
Breta, við Downing-stræti
númer 10 í dag og voru þeir í
skrautlegum skrúða. Þeir
kváðust efna til þessa fundar
í þeirri trú, að þeim tækist að
sannfæra stjórnina um að
nauðsynlegt væri að halda
opnum þjálfunarskóla trúða í
London, en fjárveiting til
skólans hefur nú verið skorin
svo niður að skólanum verður
að loka innan mánaðar ef
ekki tekst að afla til reksturs
hans u.þ.b. 8.500 sterlings-
punda.
Njósnari í „regnhlíf-
armálunum44 dæmdur
Þetta gerðist
Parls, 18. desember. AP.
FRANSKUR dómstóll
dæmdi í dag búlgarskan
gagnnjósnara í þriggja ára
fangelsi í máli sem tengist
hinum frægu regnhlífa-
morðum í London og París
á búlgörskum útlögum.
Veður
víða um heim
Akureyri -2 snjókoma
Amsterdam 6 rigning
Aþena 16 bjart
Berlín 6 rigning
BrUssel 5 skýjað
Chicago -7 skýjaó
Denpasar, B. 32 rigning
Frankfurt 9 rigning
Genf 11 bjart
Helsinki 4 rigning
Hong Kong 20 skýjaó
Jerúsalem 12 skýjaó
Jóhannesarborg 29 bjart
KaupmannahÖfn 4 rigning
Lissabon 17 bjart
London 7 skýjaó
Los Angeies 28 bjart
Madríd 16 bjart
Miami 24 skýjaö
Montreal -8 bjart
Moskva 0 skýjaó
Nýja Delhi 22 bjart
New York -4 bjart
Ósló +6 bjart
París 11 skýjað
Reykjavík -1 úrk. í grd.
Rio de Janeiro 31 skýjaó
Rómaborg 15 skýjað
San Francisco 15 skýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Sydney 24 bjart
Tel Aviv 17 skýjað
Tókýó 12 bjart
Vancouver 10 rigning
Vínarborg 6 rigning
Maður þessi, Dino Dinev,
hefur franskan ríkisborg-
ararétt. Honum var gefið
að sök að hafa haldið uppi
njósnum um búlgarska
andófsmenn í Frakklandi
og beina vísvitandi frönsk-
um gagnnjósnurum inn á
rangar brautir í rannsókn-
um sínum.
Á s.l. ári var Georgi
Markov, þekktur búlgarsk-
ur útlagi í London stunginn
til bana með eitraðri
regnhlíf og annar Búlgari,
Vladimir Kostov, lifði af
ámóta atlögu í París
nokkru síðar.
1977 — PLO hafnar friðartillög-
um ísraelsmanna.
1972 — Mannaferðum Banda-
ríkjamanna til tunglsins lýkur
með lendingu Apollo 17 á Kyrra-
hafi.
1971 — Yahya Khan segir af sér
eftir ósigur Pakistana í stríðinu
við Indverja.
1970 — Thalidomide-réttarhöld-
unum lýkur í Þýzkaiandi.
1965 — De Gaulle endurkosinn
forseti Frakka.
1961 — Goa og tveir aðrir
portúgalskir landskikar á Ind-
landi falla í hendur indverskum
innrásarmönnum.
1957 — Flugsamgöngur milli
London og Moskvu hefjast.
1946 — Stríð brýzt út í Indókína
með árásum hersveita Ho Chi
Minh á Frakka.
1942 — Sókn Breta og Indverja í
Burma hefst.
1941 — Bretar hörfa frá Pen-
ang, Malya = Hitler tekur við
yfirstjórn þýzka hersins í kjölfar
ósigra.
1934 — Japanir fordæma Wash-
ington-samningana frá 1922 &
1930.
1915 — Brottflutningur Breta
frá Sulva og Anzac á Gallipoli
hefst.
1909 — Juan Gomez hrifsar
völdin í Venezúela = Borgara-
stríð hefst í Honduras.
1902 — Þjóðverjar, Bretar og
ítalir setja hafnbann á Vene-
zúela.
1885 — Deila Þjóðverja og
Spánverja um Karólínueyjar
leyst Spánverjum í vil.
1842 — Bandaríkin viðurkenna
sjálfstæði Hawaii.
1795 — Austurríkismenn semja
vopnahlé við Frakka.
1668 — Innreið Vilhjálms af
Óraníu í London.
1562 — Orrustan við Dreaux.
Almæli. Carl Wilhelm von
Scheele, sænskur efnafræðingur
(1742-1786) = Leonid I. Brez-
hnev, sovézkur kommúnistaleið-
togi (1906-).
Andlát. Vitus Bering, landkönn-
uður, 1741 = Emily Bronté, rit-
höfundur, 1848 = Joseph Turner,
listmálari, 1848.
Innlent. Alþingi samþykkir að-
ild að EFTA 1969 = Eldgos i
Eyjafjallajökli 1822 = d. Björn
Halldórsson prófastur 1882 =
Tólf hús brenna á Akureyri 1901
= Sáiarrannsóknafélag íslands
stofnað 1918 = Magnús Guð-
mundsson fv. ráðherra sýknaður
í Hæstarétti 1932 = Víðtæk
kjaradeila leyst 1952 = Snjóflóð á
Siglufirði 1973 = Dómur i Geir-
finnsmálinu 1977 = f. Þórarinn
Björnsson skólameistari 1905 =
Kjartan Jóhannsson ráðherra
1939.
Orð dagsins. Það hefur aldrei
valdið mér meltingartruflunum
að éta ofan í mig það sem ég hef
sagt — Winston Churchill,
brezkur stjórnmálaleiðtogi
(1874-1965).
SAFN ENDURMINNINGA
MANASILFUR
GILS GUÐMUNDSSON VALDI
i
Hér er aö finna fjölbreytilegt sýnishorn minninga eftir fólk úr
öllum stéttum, konur og karla, allt frá séra Jóni Steingrímssyni til
núlifandi manna. Hér eru öðru fremur valdar frásagnir„þar sem lýst
er meö eftirminnilegum hætti sálar- og tilfinningalífi sögumanns-
ins sjálfs eöa hvernig hann skynjar tiltekin fyrirbæri tilverunnar, sé
hann þess umkominn aö veita lesandanum hlutdeild í lífsreynslu
sinni,“ segir Gils Guðmundsson í formála.
MÁNASILFUR — skuggsjá islensks mannlifs.
Bræöraborgarstíg 16 Sími 12923-19156
Eftirtaldir tuttugu og sex
Anna Thorlacius
Ágúst Vigfússon
Árni Óla
Bernharð Stefánsson
Bjartmar Guðmundsson
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Elínborg Lárusdóttir
Gísli Jónsson
Guðmundur Björnson
höfundar eiga efni i bókinni:
Guðmundur Jónsson
Guðný Jónsdóttir
Guðný Jónsdóttir Borgfjörð
Hermann Jónasson, Þingeyrum
Indriði Einarsson
Ingólfur Gíslason
Jón Steingrímsson
Jónas Sveinsson
Magnús Á. Árnason
Magnús Pálsson
Ólína Jónasdóttir
Sigurður Breiðfjörð
Sveinn Björnsson
Sveinn Gunnarsson
Tryggvi Gunnarsson
Þorsteinn Jónsson
Þórbergur Þórðarson
H'
ll M
AUGLYSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Aðnlstraiti 6 simi 25810