Morgunblaðið - 19.12.1979, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
Ragnar Arnalds, formaður þingílokks Alþýðubandalagsins:
Tilraun til myndunar vinstri
stjómar dæmd til að mistakast
STEINGRÍMUR Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins sagði í gær, að hann stefndi að því að halda
viðræðufund vinstri flokkanna eftir þingstörf í dag. Þá
kvað hann menn hafa kólnað niður og í ljós komið,
hvort samkomulag gæti tekizt milli flokkanna þriggja
um kjör nefndarformanna. Steingrímur kvað flokkana
hafa í meginatriðum hafa farið yfir efnahagsástandið
og kvað hann það ljóst orðið í „ytri köntunum“ eins og
hann komst að orði. Steingrímur gat þess í gær fyrsta
sinni eftir að hann tók við umboði til stjórnarmyndun-
ar, að hann væri ekki bjartsýnn á að tilraun hans
tækist.
Vinstri flokkarnir voru í
gær að freista þess að ná
samkomulagi sín í milli um
kjör formanna þingnefnda.
Alþýðuflokkurinn lýsti sig
reiðubúinn til samkomulags
við Framsóknarflokk og Al-
þýðubandalag um samstarf,
sem m.a. byggðist á því, að
Jóhanna Sigurðardóttir yrði
formaður heilbrigðis- og
trygginganefndar neðri deild-
ar, að Framsóknarflokkurinn
og Alþýðubandalag fengju
formenn fjárhags- og við-
skiptanefnda beggja deilda, en
fundir í þessum nefndum eru
boðaðir í dag. Alþýðubanda-
lagsmenn fengust ekki til að
lýsa því yfir, að opinbert
samkomulag væri með þeim
og hinum flokkunum, heldur
myndu þeir sjá til, hvort þeir
gætu greitt fulltrúum Alþýðu-
flokksins atkvæði í hverju
tilviki fyrir sig. Þessi afstaða
byggðist á því að Alþýðu-
bandalagsmönnum svall móð-
ur vegna þess að Alþýðuflokk-
urinn studdi Geir Hallgríms-
son sem formann utanríkis-
málanefndar og tryggðu fjóra
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
fjárveitinganefnd, sem þýddi
að annar fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins féll. Fundi í fjár-
veitinganefnd var frestað í
gær til klukkan 13 í dag, en þá
á að kjósa formann nefndar-
innar og er búizt við því að
hann verði Eiður Guðnason.
Það kom fram í viðtali
Morgunblaðsins við Steingrím
Hermannsson í gær, að hann
hafi boðið Alþýðubandalaginu
að láta Þjóðhagsstofnun
reikna út efnahagsmálatillög-
ur Alþýðubandalagsmanna,
sem lagðar voru fram á við-
ræðufundum flokkanna fyrir
skömmu. Kvaðst Steingrímur
gera það, svo að raunverulega
kæmi í ljós, hvað í milli bæri,
en útreikningar á tillögum
Framsóknar liggja fyrir.
Þessu boði höfnuðu Alþýðu-
bandalagsmenn. Morgunblað-
ið spurði Ragnar Arnalds,
formann þingflokks Alþýðu-
bandalagsins um ástæður
fyrir þessari synjun. Hann
sagði, að hugmynd Steingríms
væri í hæsta máta óraunhæf,
þar sem tillögur Alþýðu-
bandalagsins væru ekki settar
fram til þess að þær yrðu
settar í reiknitölvur. I tillög-
um Framsóknar væri aftur á
móti um kjaraskerðingu að
ræða til lækkunar verðbólgu,
sem væri auðvelt reiknings-
dæmi. í tillögum Alþýðu-
bandalagsins kvað Ragnar
mikið um matsatriði á hag-
fræðilegum afleiðingum.
Nefndi hann sem dæmi tillögu
um að dregið yrði úr milliliða-
kostnaði. Tillögur Alþýðu-
bandalagsins væru víðtækari
en Framsóknar. Þar væri ekki
verið að tala um laun ein,
heldur milliliðakostnað, hag-
ræðingu í atvinnuvegum,
vaxtalækkun o.fl., sem erfitt
væri að meta.
Morgunblaðið spurði Ragn-
ar um samkomulag milli
vinstri flokkanna um forseta-
kjör í nefndir. Hann sagði:
„Það er ekkert samkomulag.
Búið er að kjósa formenn 2ja
nefnda og báðir eru sjálfstæð-
ismenn og á döfinni er að krati
verði formaður fjárveitinga-
nefndar með atkvæðastyrk
Sjálfstæðisflokksins. Fjárveit-
inganefnd og utanríkismála-
nefnd eru 2 mikilvægustu
nefndir þingsins og bersýni-
lega ekkert samkomulag um
kosningu annarra formanna.
Hins vegar munum við reyna
að stuðla að því við for-
mannskjör í nefndum, að
sjálfstæðismenn verði ekki
kjörnir formenn í fleiri nefnd-
um. Munum við eiga samráð
við Framsóknarflokkinn um
það, hvernig þeir hyggjast
stilla upp.“
Ragnar Arnalds kvað það
nú vera ljóst, að tilraun til
myndunar vinstri stjórnar
myndi mistakast. Stjórnar-
kreppan, sem nú væri fyrir-
sjáanleg, sagði hann vera á
ábyrgð Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks og stafaði hún
fyrst og fremst af því að
Alþýðuflokkur hafi átt erfitt
með að gera upp hug sinn,
hvort hann vildi hægri eða
vinstri stjórn. „Þeir hikuðu
lengi eftir kosningarnar 1978,
en lentu þó að lokum í vinstri
stjórn, sem þeir svo sprengdu
eftir 13 mánuði. Þá var gert
bandalag Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks um nýja
ríkisstjórn og kosningar, og
atburðir síðustu daga hér í
þinginu, sýna, að þetta banda-
lag stendur enn. Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkur bera
ábyrgð á því stjórnleysis-
ástandi, sem virðist ætla að
verða ríkjandi hér næstu mán-
uði.“
Rauði kross fslands:
Vantar lækna og hjúkrun-
arlið til starfa í Thailandi
„EINS og kunnugt er scndum
við lið til Thailands fyrr í
þessum mánuði og af því hafa
engar fréttir borist nema góð-
ar. Síðan heíur komið beiðni
um það að við höfum til taks
hér á íslandi þrjá hópa lækna
og hjúkrunarliðs, einn sem gæti
farið með 6 daga fyrirvara,
annar sem gæti farið með 12
daga fyrirvara og hinn þriðja
sem gæti farið með 18 daga
fyrirvara,“ sagði Eggert As-
geirsson framkvæmdastjóri
Rauða kross íslands í samtali
við Mbl.
„Sú er breytingin, frá því sem
áður var, að það er ekki hægt að
ákveða neinn vissan brottfar-
artíma, fólkið þarf að vera til
reiðu og auk þess gæti svo farið,
ef aðstæður breyttust, að það
yrði í Thailandi skemur en þrjá
mánuði.
Þannig stendur á þessu að
vopnaviðskipti á landamærum
Thailands og Kampútseu hafa
dregið mjög úr ferðum fólks til
Thailands en hins vegar er mjög
mikill mannssafnaður Kampút-
seumegin við landamærin og það
er búist við því þá og þegar að
sókn stjórnarhersins í Pnomh
Penn hefjist og þá gæti svo farið
að mjög mikill mannfjöldi kæmi
yfir landamærin. Tölurnar sem
nefndar hafa verið eru allt frá
600 þúsundum upp í eina milljón
en þetta er allt í svo mikilli
óvissu að ekki er hægt að vera
með mikið læknalið þarna.
Við erum með tvo fararstjóra
og níu hjúkrunarkonur en ekki
nema einn lækni. En við þurfum
að hafa fjórar hjúkrunarkonur
og einn fararstjóra í hverjum
hópi. Því þurfum við að ná
sambandi við fólk í þessum
stéttum sem getur komið starfi
sínu þannig fyrir að það sé
tilbúið að fara og vera óvissan
tíma í burtu, eða allt að þremur
mánuðum.
Þeir sem það gætu eru beðnir
að hafa samband við Rauða
kross íslands. Fólkið þarf að
hafa góða starfsreynslu og má
hvorki vera of ungt né of gam-
alt.“
— Hvernig verður þessi hópur
valinn?
„Við veljum þennan hóp ekki.
Við tilkynnum til aðalstöðva
Rauða krossins í Genf nöfn og
starfsreynslu þeirra sem bjóða
sig fram. Þar fer valið fram
meðal annars með það í huga að
hægt sé að fá það fólk sem
vantar og að reynslan sé sem
víðtækust í hverjum hópi.“
— Hvenær má búast við því
að fyrsti hópurinn fari?
„Við reiknum með að það verði
fljótlega upp úr áramótunum,"
sagði Eggert Ásgeirsson að lok-
um.
bessir flóttamenn frá Kampútseu eru hér komnir yfir landamærin til Thailands. Að sögn Eggerts
Ásgeirssonar framkvæmdastjóra Rauða krossins hefur mjög dregið úr ferðum fólks yfir landamærin
en búist er við breytingum á því þá og þegar.
Brynjólfur Bjarnason
Brynjólfur Bjarna-
son endurkjörinn
formaður félags við-
skiptafræðinga og
hagfræðinga
BRYNJÓLFUR Bjarnason var
endurkjörinn formaður Félags
viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga á aðalfundi félagsins 29.
nóvember sl. Aðrir í stjórn eru:
Tryggvi Pálsson varaformaður,
ólafur Karlsson gjaldkeri, Páll
Bragi Kristjónsson ritari, Björn
Björnsson form. fræðslunefndar,
Þórður Friðjónsson form. kjara-
nefndar og Geir Haarde með-
stjórnandi.
I skýrslu formanns um starf-
semina undanfarið ár kom fram
að alls voru haldnir sex félags-
fundir á síðasta starfsári um ýmis
mál. Þá er unnið að löggildingu
starfsheitanna viðskiptafræðing-
ur og hagfræðingur og liggja fyrir
drög að lögum þar að lútandi. Á
árinu var framkvæmd launakönn-
un hjá félagsmönnum og er fyrir-
huguð að önnur könnun verði gerð
á næsta ári. í félaginu eru nú 672
meðlimir.
Þingmenn
Sjálístæðisílokks:
Grasköggla-
verksmiðjur
á Norðurlandi
PÁLMI Jónsson, Lárus
Jónsson, Eyjólfur Konráð
Jónsson og Halldór Blönd-
al, þingmenn Sjálfstæðis-
flokks, hafa lagt fram til-
lögu til þingsályktunar
um graskögglaverksmiðj-
ur. Gerir tillagan ráð fyrir
því að hraðað verði upp-
byggingu graskögglaverk-
smiðja í Hólminum í
Skagafirði og Saltvík í
S-Þingeyjasýslu, þann veg,
að þær geti tekið til starfa
1981 og 1982. Fjár til
framkvæmda verði aflað
með framlögum úr heima-
héruðum, framlagi á fjár-
lögum og lánsfé.
Flutningsmenn benda á að stór-
efling fóðuriðnaðar sé rökrétt við-
bragð við afleiðingum harðinda,
sem gengið hafa yfir landið, eink-
um norðanvert. Hér sé og stefnt
að eflingu innlendrar atvinnu-
starfsemi, jafnhliða því að dregið
verði úr gjaldeyriseyðslu vegna
fóðurvörukaupa. Tillögunni fylgir
löng og ítarleg greinargerð.
Opnunartími
skíðalyftanna
SKÍÐALYFTUR Bláfjallanefnd-
ar og lyftan í Hveradölum verða
opnar frá klukkan 11—22 í dag, en
á morgun, laugardag, og sunnudag
frá 11—18. Ferðir verða klukkan
10 frá Umferðarmiðstöðinni og
taka bílarnir farþega á venju-
legum stöðum. Nánari upplýs-
ingar um skíðalyfturnar og færi er
að fá í síma 25582.