Morgunblaðið - 19.12.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
31
r
Erlendur Hermannsson átti sinn besta leik með Víkingi í vetur, skoraði 6 mörk, og
Víkingur virðist kominn með titilinn í hús.
Varnarleikur Víkings
gerði út um leikinn
ERU úrslit íslandsmótsins í
handknattleik ráðin? Það hlýtur
að vera áleitin spurning, eftir að
Víkingur sigraði FH í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi með 22
mörkum gegn 18, eftir að FH
hafði haft yfirhöndina í hálfleik,
en þá stóð 11—9 fyrir FH. Þá
hafa FH-ingar tapað 3 stigum að
6 umferðum loknum, en Víkingar
hafa á hinn bóginn fullt hús
stiga, 3ja stiga forystu í deild-
inni. Hefði það óneitanlega verið
gott fyrir íslandsmótið ef FH
hefði tekist að sigra i leiknum, en
nú blasir við spennulaust mót
þegar aðeins sex umferðum er
lokið, nema Víkingar taki upp á
því að fara að tapa stigum. En
fáir sjá fram á slíkt og miðað við
það, sem liðin hafa sýnt i vetur,
virtist sem FH væri liða líklegast
til að geta klekkt á Víkingum.
Reyndar eiga Víkingar eftir að
leika bæði gegn FH og Haukum
suður frá og gæti þar brugðið til
beggja vona. Mótsins vegna verð-
ur að vona það, án þess að verið
sé að vega að Víkingum, sem eiga
fyllilega skilið að tróna á toppin-
um.
Það taldist til tíðinda, að fram-
an af leiknum var Geir tekinn úr
umferð. Enda gengu sóknir FH-
inga þá upp, þó að Geir skoraði
lítið sjálfur, hann stjórnaði þess í
stað, lét þá yngri hlaupa. FH
komst fljótlega í 3—1, þegar 20
mínútur voru liðnar af leiknum
var staðan orðin 9—5 fyrir FH.
Um þessar mundir varði Sverrir í
marki FH eins og berserkur flest
sem á markið kom, Jens varði
einnig vel og oft sáust frábærar
markvörslusyrpur, er þeir félagar
í KVÖLD fer fram síðasti
leikurinn í íslandsmótinu
í 1. deild karla áður en
iólahátíðin gengur í garð.
IR og Fram leika í Laug-
ardalshöllinni og hefst
leikurinn kl. 21.00.
ÍR-ingar komu mjög á
-FHgur 22:18
skiptust á um að verja úr hraða-
upphlaupum.
Erlendur Hermannsson skoraði
síðan sjötta mark Víkings og þá
gripu Víkingar til þess ráðs að
taka Geir úr umferð. Skipti þá
engum togum, að allur leikur FH
riðlaðist og staðan breyttist í
10—9 fyrir FH, sem átti lokaorðið
og hafði því tvö mörk yfir í
hálfleik.
Víkingarnir skoruðu þrjú fyrstu
mörkin í síðari hálfleik, Sigurður
Gunnarsson með þrumuskoti, Páll
úr hraðaupphlaupi og Árni af línu,
staðan 12—11 fyrir Víking. FH
jafnaði og síðan var allt í járnum
upp í 15—15. Gífurleg barátta var
um þessar mundir og stórgóður
varnarleikur, einkum af hálfu
Víkinga, en þess má geta, að í
síðari hálfleik var aðeins eitt
marka FH skorað á annan hátt en
úr víti. Þegar staðan var 15—15,
var dæmd töf á FH og Páll skoraði
sextánda mark Víkings úr víti.
Síðan fylgdu þrjú ný Víkingsmörk
á svipstundu og þar með voru
úrslitin heldur betur ráðin, staðan
19—15 og aðeins 5 mínútur til
leiksloka. Lokastaðan varð síðan
22—18 eins og áður sagði.
Víkingarnir fengu sinn erfið-
asta leik á vetrinum að þessu sinni
og þeir voru lengi að berja á bak
aftur öfluga mótspyrnu FH-inga,
sem gerðu sér auðsjáanlega grein
fyrir mikilvægi leiksins. Víking-
arnir reyndust sterkari áður en
óvart um daginn er liðið
sigraði Val, og nú er að sjá
hvort þeim tekst að bæta
fleiri stigum í safnið.
Handknaltlelkur ]
V.. ......../
yfir lauk og sýndu svo að ekki var
um að villast, að þeir hafa á að
skipa langbesta liðinu á íslandi í
dag. Varnarleikurinn sem liðið
sýndi í síðari hálfleik var með
ólíkindum og ólíklegt er að annað
eins sjáist í bráð. Sem fyrr segir
tókst FH-ingum aðeinS einu sinni
að skora utan af velli í síðari
hálfleik og það mark skoraði
Pétur Ingólfsson með skoti úr
glötuðu færi þegar 7 sekúndur
voru til leiksloka! Víkingur vann
þennan leik á hinni sterku liðs-
heild, en að öðrum ólöstuðum
skoruðu þeir Jens Einarsson og
Erlendur Hermannsson fram úr.
En allt Víkingsliðið á hrós skilið
fyrir að gera leik þennan að einum
hinum besta í háa herrans tíð.
Sóknarleikurinn varð FH að
falli, reyndar fleira, en fyrst og
fremst hinn einhæfi sóknarleikur
sem gerði Víkingum kleift að
stöðva sóknarloturnar í fæðingu.
Sverrir varði meistaralega fyrir
FH í fyrri hálfleik, en varla bolta í
þeim síðari og skipti það að
sjálfsögðu einnig miklu. Enginn
skaraði fram úr í liði FH, en þeir
Pétur Ingólfsson, Valgarður Val-
garðsson, Geir og fleiri áttu allir
sín góðu augnablik. En það var
ekki nóg og nú virðist fátt geta
stöðvað Víkinga við að hrifsa til
sín íslandsmeistaratitilinn. Leið-
inlegt að sú staða skuli vera komin
upp þegar aðeins sex umferðum er
lokið.
Leikinn dæmdu þeir Gunnar
Kjartansson og Karl Jóhannsson.
Þeir dæmdu í heildina vel, en voru
sparir á spjöldin þegar Víkingar
áttu í hlut.-
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið í handknattleik 1.
deild Víkingur — FH: 22—18
(9-11).
MÖRK Víkings: Erlendur 6, Sig-
urður Gunnarsson 5, Páll 4, Árni
3, Þorbergur 2 og Steinar 1 mark.
MÖRK FH: Kristján Arason 9 (8),
Pétur, Valgarður og Sæmundur 2
hver, Magnús og Guðmundur Árni
eitt mark.
VÍTI í vaskinn: Sigurður Gunn-
arsson skaut í þverslá.
BROTTREKSTRAR: Guðmundur
Magnússon, Sæmundur Stefáns-
son og Árni Indriðason í 2 mínút-
ur hver, Guðmundur Árni útilok-
aður. gg
Sigrar ÍR Fram?
Þrír leikmenn ÍA
til V-Þýzkalands
ÞRÍR leikmenn úr meistara-
flokki ÍA í knattspyrnu, þeir
Kristján Olgeirsson, Sigurður
Páll Harðarson og Bjarni Sig-
urðsson markvörður, munu halda
utan til Vestur-Þýskalands 27.
desember og dveljast ytra við
æfingar í þrjár vikur. Það er
Klaus Hilbert, þjálfari ÍA, sem
greitt hefur götu þeirra í þessu
sambandi. Munu leikmennirnir
dveljast við skóla þann er Hilbert
kennir við í Köln. Sendiherra
íslands í Vestur-Þýskalandi, Pét-
ur Eggerts, vinnur nú að þvi að
fá leyfi fyrir Hilbert frá skólan-
um frá og með 1. febrúar, en þá
hefur hann fullan hug á að koma
til íslands og hefja æfingar með
knattspyrnuliði ÍA. Vill Hilbert
byrja tímanlega i ár til þess að
liðið verði sem best undir átök
sumarsins búið. Ráðgert er að
tvisvar í viku muni leikmenn ÍA
hætta að vinna um f jögur og snúa
sér þá að æfingum. — þr.
Youri fer heim
til Rússlands
KNATTSPYRNUSAMBANDI ís-
lands hefur borist bréf frá sendi-
herra Rússlands á íslandi þess
efnis að íþróttaráð Rússlands
hafi tekið þá ákvörðun að Youri
Ilitchev eigi að koma heim og
starfi því ekki lengur sem knatt-
spyrnuþjálfari á Islandi. Hvorki
hjá KSÍ né Vikingi. í sama bréfi
var KSÍ boðinn annar þjálfari
frá Rússlandi en KSÍ afþakkaði
boðið.
Ellert B. Schram. formaður
KSÍ, sagði að sambandið myndi
leita fyrir sér meðal íslenskra
þjálfara. Þannig að ljóst mun
vera að landsliðsþjálfari KSÍ á
næsta keppnistimabili verður
islenskur. Mbl. hefur fregnað, að
Guðni Kjartansson muni þar
sterklega vera inni í myndinni en
ekkert hefur enn verið ákveðið í
þeim efnum af hálfu KSÍ.
—þr.
V-Þjóðverjar töpuðu
MJÖG sterk landskeppni i hand-
knattleik fer fram þessa dagana i
Dortmund í Vestur-Þýskalandi
og fyrstu leikirnir voru leiknir í
gærkvöldi.
Sovétríkin sigruðu Júgóslavíu
19—16, eftir að staðan i hálfleik
hafði verið 10—7 fyrir Rússa og
Rúmenar sigruðu Vestur-Þjóð-
verja með 16 mörkum gegn 15,
eftir að staðan i hálfleik hafði
verið jöfn, 8—8.
Þá má geta þess, að Danir og
Norðmenn léku landsleik í Dan-
mörku um helgina og sigruðu
Danir eins og við var að búast, en
yfirburðirnir voru með ólíkindum,
29—Í4. _
Bikarkeppni HSÍ
Ármann
til Eyja
EINN leikur fer fram í kvöld í
bikarkeppni HSÍ. Ármann leikur
við Tý í iþróttahúsinu í Vest-
mannaeyjum. Má búast við
hörkuleik þar sem Vestmannaey-
ingar eru jafnan erfiðir heim að
sækja. Leikurinn hefst kl. 20.00.
Unglingalandslið KSI
á leið til Frakklands
DAGANA 29.—31. desember n.k.
tekur drengjalandsliðið þátt i
alþjóðlegu móti í Nice i Frakk-
landi.
Þátttakendur auk okkar, verða
drengjalandslið Frakklands,
ítaliu, Luxemborgar, Grikklands
og Sviss, en 16 þjóðir óskuðu eftir
að fá að senda sin drengjalands-
lið, en aðeins 6 voru valin. Þetta
verður í 11. skiptið sem mótið,
sem nefnist Saint Sylvestre, fer
fram.
Lárus Loftsson, drengjalands-
liðsþjálfari, hefur valið eftirtalda
drengi til fararinnar:
Baldvin Guðmundsson KR,
Davíð Egilsson KR, Einar
Björnsson Fram, Gísla Hjálm-
týsson Fylki, Guðmund Alberts-
son KR, Guðmund Erlingsson
Þrótti, Guðna Sigurjónsson UBK,
Heimi Guðmundsson ÍA, Helga
Einarsson ÍBV, Hlyn Stefánsson
ÍBV, Ingvar Guðmundsson ÍBK,
Kjartan Brodda Bragason Þrótti,
fyrirliði, Kristján Jónsson Þrótti,
Sverri Pétursson Þrótti, Valdimar
Stefánsson Fram og Þorstein
Þorsteinsson Fram.
Liðið hefur æft vel að undan-
förnu og leikið nokkra æfingaleiki.
Liðið heldur utan 27. desember og
kemur heim 2. ianúar.
Ulfarnir komust áfram
ÚLFARNIR sigruðu Grimsby
loks I þriðju tilraun, er liðin
áttust við í 8-liða úrslitum ensku
deildarbikarkeppninnar i gær-
kvöldi. Liðin höfðu áður skilið
tvívegis jöfn. 2—0 urðu lokatölur
leiksins i gærkvöldi og mæta
Úlfarnir þvi Liverpool i undan-
úrslitunum.
Úlfarnir skoruðu ekki fyrr en
langt var liðið á leikinn og það var
úr afar umdeildri vítaspyrnu. Ken
Hibbitt skoraði. Miðvörður
Grimsby, Clive Wiggington, sá
sami og fékk á sig vítið, skoraði
síðan hálfgert sjálfsmark er hann
stýrði skoti John Richards fram
hjá markverðiiium, 2—0.
Þá léku Chelsea og QPR í 2.
deild, jafntefli varð, 2—2. Clive
Allen skoraði jöfnunarmark QPR
á 92. mínútu leiksins.