Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 17 JHiarfitinlíIaSlítlr Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. Greiðslukreppan og vinnubrögð ríkisvaldsins Um þessar mundir eru miklir frreiðsluerfiðleikar í atvinnulífinu. Atvinnufyrirtæki eiga erfitt með að standa skil á Rreiðslum og Rreiðslukreppan, sem tvímæla- laust er skollin á, hefur keðjuverkandi áhrif í efnahagslíf- inu. Það er auðvitaö óðaverðbólfían, sem veldur greiðslu- kreppunni. Aukinn kostnaður krefst aukins fjármagns, sem ekki er til. Þetta ástand hefur auðvitað mjög neikvæð áhrif á athafnalífið í landinu og vari það lengi er hættan sú, að þeir, sem bera ábyrgð á atvinnurekstri, gefist upp, dragi saman seglin, segi upp starfsfólki eða fækki því. Ríkisvaldið hefur á ýmsan hátt ýtt undir greiðsluerfiðleika í atvinnulíf- inu. Ríkisstjórnir hafa gjarnan litið svo á, að það væri þeim til framdráttar að standa gegn og fresta verðbreytingum. Raunar virðast sumir ráðherrar líta svo á, að ein áhrifaríkasta leiðin til þess að draga úr verðbólgu sé að standa gegn verðbreytingum eða tefja þær. Þetta er auðvitað mikill misskilningur. Fyrr eða síðar koma þessar verðbreytingar fram í því óðaverðbólguástandi, sem hér ríkir. Allar tafir á því að afgreiða eðlilegar verðhækkanir verða hins vegar til að auka á greiðsluerfiðleika í atvinnulífinu og veikja atvinnufyrirtækin svo mjög að þær geta að lokum leitt til fækkunar starfsfólks eða fyrirtækin eiga ekki aðra vörn en þá að standa gegn nýjum ráðningum, sem oft eru nauðsynlegar en ekki er sinnt. Það hefur aftur neikvæð áhrif á atvinnuástandið í landinu. Þess vegna eru stöðugar tafir á afgreiðslu verðhækkana, frestir eða þá að fundir eru ekki haldnir, ósiður, sem stjórnvöld eiga að venja sig af. Þetta er ekki það eina, sem ríkisvaldið gerir til þess að ýta undir greiðslukreppuna. Það vakti almenna kátínu í október og nóvember, þegar núverandi fjármálaráðherra lét í það skína, að honum hefði á örfáum vikum tekizt að bæta mjög stöðu ríkissjóðs. Gamanið gránar hins vegar, þegar þetta mál er skoðað nánar og í ljós kemur, að hagstæðar tölur eru m.a. fengnar með því að draga greiðslur, sem aftur hefur veruleg áhrif á greiðslustöðuna í atvinnulífinu. Árni Árnason, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir nokkru, að mörg einkafyrir- tæki ættu og hefðu lengi átt útistandandi stórar fjárhæðir hjá ýmsum ríkisstofnunum, þar sem greiðsla reikninga hefði ekki verið í samræmi við það, sem um hefði verið samið. Taldi Árni Árnason um síðustu mánaðamót, aö þessar greiðslur næmu milljörðum króna. Framkvæmda- stjóri Verzlunarráðsins sagði, að fyrirtækin gerðu samninga og ættu viðskipti við ríkisfyrirtæki í góðri trú um, að reikningar yrðu greiddir með eðlilegum greiðsluskilmálum, þ.e. mánuði eftir úttekt eða eftir því, sem um er samið hverju sinni. Ríkisfyrirtæki eða stofnanir fara síðan út fyrir greiðsluheimildir sínar og reikningar þeirra eru stöðvaðir hjá rikisféhirði. Þetta veldur fyrirtækjunum að sjálfsögðu miklum erfiðleikum. Til þess er ætlazt, að þau standi við skuldbindingar sínar. Til viðbótar kemur svo, að jafnvel þótt einkafyrirtæki teldu eðlilegt að hefja innheimtuaðgerðir gagnvart ríkisaðil- um halda þau að sér höndum af ótta við það að missa viðskiptin eða verða fyrir öðrum neikvæðum aðgerðum af ríkisins hálfu. Þaö er auðvitað augljóst, að með því að fresta beiðnum um verðhækkanir, eða tefja þær um einhvern tíma ti! þess að koma í veg fyrir áhrif þeirra á vísitölu um tiltekin mánaðamót og með því að draga greiðslu á reikningum til atvinnufyrirtækja í því skyni að sýna betri stöðu ríkissjóðs hjá Seðlabanka um mánaðamót er ríkisvaldið að auka á greiðsluerfiðleikana, sem leiða af óðaverðbólgunni, og með þeim hætti að veikja atvinnufyrirtækin og stuðla að greiðslukreppu í landinu. Það væri gagnlegt skref af hálfu stjórnmálamanna í baráttu gegn verðbólgunni að hætta þessum ósið því að þessar aðferðir duga ekkert í verðbólguslagnum. Tillögur vinstri flokkanna í stjórnarmyndunarviðræðunum TILLÖGUR vinstri flokk- anna í þeim stjórnarmynd- unarviðræðum, sem átt hafa sér stað undanfarnar vikur, eru æði misjafnar að vöxtum. Morgunblaðið birtir hér tillögur Fram- sóknarflokks, Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks. Tillögur Framsóknarflokks voru fyrst lagðar fram 10. desember síðastliðinn og síðan tillögur Alþýðu- bandalags daginn eftir. Sama dag og Framsóknar- flokkurinn lagði sínar til- lögur fram var óskað út- reiknings Þjóðhagsstofn- unar á þeim og nú í vikunni bauðst Steingrímur Her- mannsson til þess að láta reikna út tillögur Alþýðu- bandalags. Því var hafnað af höfundum plaggsins. Að kvöldi 19. desember voru tillögur Alþýðubandalags síðan lagðar fram og eru þær nú til útreiknings í Þjóðhagsstofnun. Framsóknarflokkur: Tveggja ára starfsáætlun í efnahagsmálum 1. Almennt Markvisst verði að því unnið að koma efnahagsmálum á traustan grundvöll, tryggja efnahagslegt sjálf- stæði þjóðarinnar, bæta lífskjörin og auka jöfnuð. Forsenda þess að þetta megi takast er að jafnt og þétt verði dregið úr verðbólgunni með því að halda heild- arumsvifum í þjóðarbúskapnum inn- an hæfilegra marka og dregið úr víxlhækkunum verðlags og launa um leið og atvinnuvegir þjóðarinnar eru efldir og verðmætasköpun aukin. Jafnframt verði unnið að hagræð- ingu í ríkisrekstri og á sviði atvinnu- vega með sparnaði og hagkvæmri ráðstöfun fjármagns. Um þessi mál öll verði haft náið samráð við launþega og aðra aðila vinnumarkaðarins. 2. markmið Gerð verði tveggja ára starfsáætlun í efnahagsmálum. Meginmarkmiðin verði: 2.1 Atvinnuöryggi. 2.2 Áfangahjöðnun verðbólgu, þannig að verðbólga á ársgrundvelli verði undir 30% 1980 og 18% 1981. (Athugist nánar). 2.3 Kjör þeirra lægstlaunuðu verði bætt þannig, að réttlátari tekju- skipting verði í landinu. 2.4 Kaupmáttur ráðstöfunartekna al- mennings verði á árinu 1980 svip- aður og á síðustu mánuðum ársins 1979, en stefnt að því að kaup- máttur aukist 1981. 2.5 Jafnvægi verði í viðskiptum við útlönd. 2.6 Erlendar lántökur verði miðaðar við erlenda kostnaðarþætti brýn- ustu orkuframkvæmda og þau mörk, sem greiðslubyrði erlendra skulda setur. 2.7 Rekstrargrundvöllur undirstöðu- greina atvinnulífsins verði tryggð- ur og stefnt að nokkurri fram- leiðsluaukningu 1980 og 1981. 3. Leiðir Til þess að ná settum markmiðum verði beitt samræmdum aðgerðum í ríkisfjármálum, fjárfestingarmálum, peningamálum, verðlagsmálum og kjaramálum, sem lýst verði í Þjóð- hagsáætlun. Meginatriðin verði þessi: 3.1 Ríki.sfjármá! 1) Tekjuhlið fjárlaga 1980 og 1981 verði innan við 29% af þjóðartekj- um. Skattheimta verði því ekki aukin frá því sem nú er, en endurskoðuð og einfölduð. Tekið verði upp staðgreiðslukerfi skatta. 2) Ríkissjóður verði rekinn án greiðsluhalla. Með sparnaði og samdrætti á ákveðnum sviðum verði skapað svigrúm til félags- legra umbóta og jöfnuðar (t.d. í upphitun). 3) Fjárlaga- og hagsýsludeild verði gert kleift að sinna hlutverki sínu samkvæmt 13. gr. laga um efna- hagsmál o.fl. frá 7. apríl 1979. 3.2 Fjárfestingarmál 1) Heildarfjárfestingu á árunum 1980 og 1981 verði haldið innan þeirra marka, sem ákvarðast af eftirspurn- arstigi, viðskiptajöfnuði og atvinnu- öryggi, eða um 25—26% af þjóðar- framleiðslu. 2) Framkvæmdir á sviði orkumála hafi forgang. Fé lífeyrissjóða og fjárfestingarsjóða verði beint til framkvæmda í fiskiðnaði og öðrum iðnaði. Dregið verði úr fjárfestingu í verzlun, innflutningi fiskiskipa og landbúnaði. 3) Með samkomulagi eða eftir öðrum leiðum verði tryggt að útlán allra lánastofnana, þar með taldir lífeyrissjóðir, verði í samræmi við samþykkta fjárfestingaráætlun og stefnuna í lánamálum. 4) Fjárfestingar ríkisstofnana með sjálfstæðan fjárhag, þ.m.t. ríkis- bankar, verði því aðeins heimilað- ar, að þær séu innan ramma fjárfestingaráætiunar. 5) Leitað verði eftir samkomulagi við sveitarfélögin um að fjárfesting þeirra rúmist innan ramma fjár- festingaráætlunar. 3.3 Peninga- og lánamál 1) Aukning peningamagns í um- ferð fylgi markmiðum í efna- hagsmálum. 2) Vaxta- og verðbótakostnaður fari lækkandi á árunum 1980 og 1981 í samræmi við hjöðnun verðbólgu. Lánum verði skilyrðislaust breytt í verðtryggð lán með lágum vöxtum og þau lengd bæði hjá bönkum og fjárfestingarsjóðum. Dregið verði úr greiðslubyrði atvinnuveganna. 3) Gengisbreytingum verði haldið innan þeirra marka, sem sett verða í verðlags- og launamálum. 3.4 Verðlagsmál 1) Hækkunum á verðlagi vöru og þjónustu verði sett eftirgreind efri mörk ársfjórðungslega: Til 1. marz 1980 8% Til 1. júní 1980 7% Til 1. sept. 1980 6% Til 1. des. 1980 5% Á árinu 1981 verði miðað við áframhaldandi lækkun ársfjórð- ungslegra breytinga, þannig að verðbólga á árinu 1981 verði undir 18%. 2) Óafgreiddar umsóknir um hækkan- ir, sem nú liggja fyrir, verði takmarkaðar við 8% hækkun sem hámark, annað en búvöruverð, fiskverð og e.t.v. útseld vinna. 3) Verðlagsnefnd verði heimilað að ákveða hækkanir innan ofan- greindra marka án samþykkis ríkisstjórnar. 4) Erlend verðhækkunartilefni verði skoðuð sérstaklega. Ef þau eru talin leiða til hækkana umfram umrædd mörk, skal slíkt háð sam- þykki ríkisstjórnar. 5) Hækkun á opinberri þjónustu verði skilyrðislaust haldið innan um- ræddra marka. Án tafar verði gerð úttekt á stöðu og rekstri opinberra stofnana með tilliti til þessa ramma og sparnaðar. Uppsöfnuð- um skuldum, sem ekki verða greiddar úr rekstri, verði breytt í lengri lán. 3.5 Kjaramál Leitað verði eftir samkomulagi við launþega um eftirgreind atriði: 1) Engar grunnkaupshækkanir á ár- inu 1980. 2) Ársfjórðungslegum vísitölubótum á laun verði sett þau sömu mörk og greinir í kafla um verðlagsmál. 3) Hækki verðbótavísitala umfram umrædd mörk, verði allt að 2% stig í vísitölu bætt með félagslegum umbótum og öðrum aðgerðum hins opinbera á heildarlaun allt að kr. 400 þús. 4) Vísitölubætur á laun fari stig- lækkandi, þannig að launþegar beri úr býtum u.þ.b. sömu krónutölu, þegar beinir skattar eru greiddir. 5) Kaupmáttur lægri launa verði var- inn m.a. með því að þau 2%, sem draga átti af launum 1. des., haldist. 6) Meðal þeirra umbóta, sem að framan eru taldar, verði lagfær- ingar gerðar m.a. á húsnæðismál- um, eftirlaunum aldraðra og lífeyr- ismálum. 7) Viðleitni hálaunahópa til að brjót- ast út úr umsömdum ramma verði skilyrðislaust stöðvuð. 8) Haldið verði áfram endurskoðun á vísitölu. 9) Með markvissri fjárfestingu til framleiðniaukningar verði stefnt að aukningu kaupmáttar á árinu 1981. Tekið verði tillit til viðskipta- kjara. Alþýðubandalagið: Aukin samneyzla — hjöðnun verö- bólgu í upphafi viðræðna um hugsanlega myndun ríkisstjórnar Framsóknar- flokks, Alþýðubandaiags og Alþýðu- flokks vill Alþýðubandalagið kynna eftirfarandi áhersluatriði, en mun innan tíðar gera ítarlega grein fyrir hugmyndum flokksins um helstu efn- isatriði væntanlegs stjórnarsáttmála. 1. Gerð verði þriggja ára áætlun um hjöðnun verðbólgu, jöfnun lífskjara og eflingu íslenskra atvinnuvega. 2. Stefnan í efnahags- og kjaramálum verði við það miðuð a) að sérstök áhersla verði lögð á að auka kaupmátt lægstu launa b) að elli-og örorkulífeyrir hækki c) að almenn laun séu verðtryggð d) að stuðlað verði að jöfnun rétt- inda launafólks, m.a. í lífeyris- málum, húsnæðismálum og á sviði vinnuverndar og vinnuað- búnaðar. 3. Alþýðubandalagið gerir þá ófrá- víkjanlegu kröfu, að full atvinna verði tryggð um land allt og varar alvarlega við hugmyndum um sam- drátt félagslegra framkvæmda, sem m.a. gæti leitt til atvinnuleys- is. 4. Ráðist verði gegn verðbólgu sam- kvæmt ofangreindri þriggja ára áætlun með samræmdum aðgerð- um í verðlagsmálum, skattamálum, ríkisfjármálum og peningamálum og þannig stuðlað að sem stöðug- ustu gengi íslensku krónunnar. 5. Alþýðubandalagið ieggur áherslu á, að í baráttunni við verðbólguna verði ekki beitt kreppu- og sam- dráttarráðstöfunum, en þess í stað gert sérstakt stórátak til aukinnar verðmætasköpunr með hagræðingu í atvinnulífi, skipulegri fjárfest- ingarstjórn og niðurskurði milli- liðaeyðslu í samræmi við fyrri tillögur Alþýðubandalagsins. 6. Alþýðubandalagið telur, að varð- veisla efnahagslegs og stjórnar- farslegs sjálfstæðis eigi að vera grundvallaratriði stjórnarstefn- unnar. í samræmi við þá afstöðu gerir Alþýðubandalagið kröfu til þess, að bandaríski herinn verði á brott úr landinu og vísar á bug hvers konar áformum um frekari stóriðjurekstur í eigu erlendra auð- félaga. Flokkurinn hafnar þátttöku Bandaríkjamanna í byggingu nýrr- ar flugstöðvar og telur afar brýnt, að á Suðurnesjum verði gert sér- stakt átak til að byggja upp fjölþætta atvinnustarfsemi, svo að allir Suðurnesjabúar eigi kost á tryggri atvinnu við innlenda at- vinnuvegi. 7. Alþýðubandalagið leggur áherslu á aukna samneyslu og jöfnun lífs- kjara og lýðréttinda, m.a. með greiðari aðgangi allra landsmanna að stjórnsýslu og samfélagslegri þjónustu og með endurskoðun á kosningalögum og kjördæmaskip- an. 8. Alþýðubandalagið leggur áherslu á félagslega eign helstu auðlinda þjóðarinnar og verndun og skipu- lega hagnýtingu þeirra til að styrkja efnahagslegt sjálfstæði landsmanna. I því sambandi verði m.a. gert átak til að hagnýta orkulindir landsins til að efla innlenda atvinnuvegi og gera landsmenn sem fyrst óháða inn- fluttri orku og tryggja jöfnuð varðandi orkuverð. Alþýðuflokkur: Sveitarfélög fái ákvörö- unarvald í skattamálum I. Inngangur Nauðsynlegt er með gjörbreyttri stefnu og breyttum vinnubrögðum að ná tökum á þeim efnahagsvanda — verðbólgu — sem ógnað hefur íslensku efnahagslífi á síðasta áratug, grafið undan öryggi heimilanna, rýrt afkomu og lífskjör þjóðarbúsins, ógnað at- vinnuöryggi og haft í för með sér ýmiss konar spillingu og órétt. Til þess að fá unnið bug á þessari höfuðmeinsemd í íslensku efna- hagslífi þarf ríkisstjórnin að setja sér ákveðin og afmörkuð markmið og ná samkomulagi um skýrar og afdráttar- lausar leiðir að þeim markmiðum. Með samhæfðum og markvissum að- gerðum þarf að stefna að umtalsverð- um og augljósum árangri á nægilega skömmum tíma til þess að afdráttar- laust komi í ljós að aðgerðir ríkis- stjórnarinnar skili raunhæfum ár- angri. Þau markmið sem ríkisstjórnin þarf að setja sér í þessu sambandi eru fyrst og fremst þessi: 1. að í árslok 1980 verði verðbólga innan við 30% og í árslok 1981 innan við 15%. 2. að þessu markmiði verði náð án þess að ógnað verði atvinnuöryggi og þannig að ríkisstjórnin tryggi lífskjör þeirra fjölskyldna sem lægstar hafa tekjur. 3. Jafnvægi verði tryggt í ríkisbú- skapnum og atvinnumálum með því: a) að jafnvægi verði látið ríkja í viðskiptum við útlönd b) að erlendar lántökur auki ekki skuldabyrði þjóðarinnar c) að ríkissjóður verði rekinn halla- laus, og komið verði eftir mætti í veg fyrir árstíðabundnar sveiflur í ríkisfjármálum d) að í atvinnumálum verði þess sérstaklega gætt að nýting auð- linda landsins og miðanna sé innan eðlilegra marka e) að tryggður verði stöðugleiki og jafnvægi í afkomumálum helstu atvinnuvega þjóðarinnar. II. Leiðir Þessum markmiðum verði m.a. náð með eftirtöldum aðferðum: 1. Ríkisfjármál: a) heildarumsvifum ríkisins verði stillt í hóf, og skattbyrði ekki aukin frá því sem nú er. Arið 1980 verði jafnframt við það miðað að heil- dartekjur ríkissjóðs fari ekki fram úr 28,5% af vergri þjóðarframl- eiðslu miðað við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 1980. b) jafnvægi verði tryggt í rekstri ríkissjóðs meðal annars með því að í fjárlögum verði áætlaður mjög verulegur greiðsluafgangur sem m.a. sé hægt að verja til ófyrir- séðra útgjalda síðar á árinu. c) gerð verði ströng greiðsluáætlun um innborganir og útborganir úr ríkissjóði, þar sem mjög ákveðið verði framfylgt þeirri stefnu að vinna gegn árstíðabundnum sveifl- um í ríkisfjármálum með því m.a. að fresta öllum frestanlegum greiðslum þegar séð þykir að út- gjöld ríkissjóðs stefni verulega fram úr áætlun. Framkvæmdum verði jafnað yfir lengra tímabil eftir því sem frekast eru tök á og óviðráðanlegum tímabundnum ha- lla á rekstri ríkissjóðs m.a. mætt með aukinni fjármögnun viðskipt- abanka í stað yfirdráttar á hiaup- areikningum ríkissjóðs í Seðlab- anka. d) við gerð fjárlaga verði ákvörðun um útgjöld tekin í kjölfar bindandi ákvarðana um tekjur þær sem ríkisstjórnin hyggst afla innan marka þeirra umsvifa ríkisins sem ákveðin hafa verið. e) sjálfvirkni í útgjöldum ríkissjóðs verði afnumin en þess í stað gerð áætlun til tveggja til fjögurra ára um framlög ríkisins til fjárfest- ingalánasjóða og annarra þarfa í samræmi við atvinnuástand og allar aðrar aðstæður. f) stofnunum og fyrirtækjum ríkisins verði gert að starfa sem mest með sjálfstæðan fjárhag og á eigin ábyrgð innan marka ákvarðaðra tekna og lánsfjáröflunar. Framlag á fjárlögum til einstakra verkefna verði miðað við fastar fjárupphæð- ir en ekki verkáfanga. g) sú kerfisbreyting verði jafnframt gerð við afgreiðslu fjárlaga að lánsfé verði ekki eyrnamarkað til einstakra þarfa, framkvæmda- framlögum einstakra stofnana og Viðræðunefndir vinstri flokkanna á fundi i Þórshamri. ríkisfyrirtækja verði ekki skipt niður á smæstu verk og verkáfanga og framlögum til fjárfestingarlán- asjóða verði ekki endanlega skipt við fjárlagaafgreiðslu. 2. Skattamál: a) um áramótin 1980—1981 leysi virðisaukaskattur sðluskatt af hólmi og leggist á allar vörur og þjónustu. Tekjuskattur verði af- numinn á næstu þremur árum af almennum launatekjum einstakl- inga (meðaltekjur kvæntra sjó- manna, verkamanna og iðnaðar- manna verði skattlausar) en stig- hækkandi tekjuskatti verði haldið á hærri tekjum einstaklinga og á fyrirtækjum. b) frá og með áramótum 1980 og 1981 verði tekin upp staðgreiðsla beinna skatta. c) áhrif breytinga á óbeinum sköttum og niðurgreiðslum verði tekin út úr vísitölu frá og með áramótum 1980-1981. d) frá og með sama tíma verði rofin tengsl útsvars og tekjuskatts og sveitarfélögum jafnframt fenginn aukinn réttur til þess að ákveða sjálf skattheimtu sína innan tiltek- inna marka — þar á meðal um álagningu útsvars. e) sérstökum skattadómstól verði fal- in dómsmeðferð skattbrotamála og skattsvikamál meðhöndluð eins og önnur brotamál. 3. Peningamál: a) heildaraukningu peningamagns í umferð verði ákveðin takmörk sett þannig að aukning peningamagns verði innan þess er svarar til verðlagsbreytinga á næstu 2 árum. Á árinu 1980 farr aukning pen- ingamagns í umferð ekki fram úr 27%. b) innan þessara marka verði jafn- framt sett ákveðin ársfjórðungs- mörk um aukningu peningamagns í umferð og samrýmist þau ársfjórð- ungsmörk markmiðum um hjöðn- un verðbólgu í áföngum. c) Seðlabankinn ákveði bindiskyldu á fé innlánsstofnana í samræmi við þessi mörk. 4. Lánamál: a) Verðtryggingu sparifjár og útlána verði komið á í áföngum eins og lög segja fyrir um. b) jafnframt verði lánstími lengdur og greiðslubyrði jöfnuð, þannig að verðtrygging fjárskuldbindinga hafi ekki í för með sér óeðlilega greiðslubyrði. c) Stuðlað verði að eðlilegri lánsvið- skiptum með breytingu á reglum skattalaga um meðferð vaxtatekna og vaxtagjalda með þeim hætti að skattlagning vaxta- og verðbóta- tekna verði endurskoðuð þannig að verðbætur t.d. af fasteignaskulda- bréfum verði ekki skattlagðar sem tekjur eins og nú á sér stað og frádraftarbærum vaxtagjöldum verði takmörk sett. d) Lánveitingar Byggingarsjóðs ríkis- ins og lífeyrissjóða til húsbygginga verði samræmd og húsnæðislán aukin í áföngum í 80% af bygg- ingarkostnaði í samræmi við hús- næðismálafrumvarp félagsmála- ráðherra. 5. Fjárfestingamál: a) tryggt verði að fjárfesting beinist í arðbærar framkvæmdir með því að taka upp verðtryggingu fjár- skuldbindinga og raunvexti. b) heildarhlutfall fjárfestingar á ár- inu 1980 og 1981 fari ekki fram úr 25% af vergri þjóðarframleiðslu. c) áhersla verði lögð á að dreifa fjárfestingarframkvæmdum jafnar yfir framkvæmdatímabil og at- vinnusvæði. d) með verðtryggingu fjárskuldbind- inga verði sérstök áhersla lögð á innlenda fjármögnun og erlendar lántökur verði við það miðaðar að erlend lán fari ekki fram úr erlendum kostnaði við arðbærar framkvæmdir og að afborganir og vextir á næstu tveimur árum af erlendum lánum fari ekki fram úr 14% af heildargjaldeyristekjum þjóðarbúsins. e) við val á fjárfestingarverkefnum verði sérstök áhersla lögð á orku- framkvæmdir, fiskvinnslu, sam- göngur og iðnað — bæði sam- keppnisiðnað og útflutningsiðnað, en dregið verði úr fjárfestingu í landbúnaði, í opinberum bygg- ingarframkvæmdum og í fiskiskip- um. 6. Atvinnumál: 1. Með breytingu á lögum um afnám sjálfvirkra framlaga úr ríkissjóði og öðrum ráðstöfunum leitist ríkis- stjórnin við að tryggja að þarfir atvinnuvega í fjárfestingarmálum og rekstrarlánamálum verði metn- ar á jafnréttisgrundvelli. Sérstök áhersla verði lögð á atvinnugreinar sem: a) skila auknum atvinnutækifær- um og bjóða upp á góðar atvinnutekjur. b) stuðla að aukinni framleiðslu, auk- inni framleiðni og aukinni þjón- ustu við þær atvinnugreinar sem fyrir eru í landinu. c) nýta innlendar orkulindir samfara því að hagnýta sér erlenda þekkingu og erlent áhættufé þar sem eðlilegrar varúðar sé gætt og jafnframt tryggt að slíkur atvinnur'ekstur lúti ávallt íslenskum lögum og íslenskum hagsmunum í hvívetna. 2. Landbúnaðarframleiðslan verði að- löguð markaðsþörfum innanlands og miðuð við eðlilega nýtingu landgæða og eðliiegar þarfir ein- stakra markaðssvæða. Áhersla verði lögð á að horfið verði frá núverandi offramieiðslustefnu en þess í stað lögð meiri rækt við að bændur geti sótt sér auknar tekjur með aukinni hagræðingu í bú- rekstri og aukinni hagnýtingu hlið- ar- og aukabúgreina. Sjálfvirk verðábyrgð á útfluttum landbúnað- arafurðum verði afnumin í áföng- um og eftirleiðis verði verðábyrgð aðeins veitt að því marki sem svarar til eðlilegra framleiðslu- sveiflna innan afmarkaðra bú- greina. Verðákvörðunarkerfi land- búnaðarafurða verði breytt þannig, að eðlileg skil verði milli framleið- enda annars vegar og vinnslu- og dreifingaraðila hins vegar. 3. Fiskveiðar: Með markvissri stjórn fiskveiða verði byggður upp hrygn- ingarstofn þorsks og jafnvægi haldið í nýtingu allra fiskistofna. Aflajöfnunargjald verði tekið upp til verðjöfnunar milli fisktegunda. I samráði við hagsmunaaðila í sjáv- arútvegi verði leitað nýrra leiða til fiskveiðistjórnunar sem m.a. miðist við að dregið verði úr kostnaði við fiskveiðar. 4. Orkumál: Lokið verði við hring- tengingu veitusvæða og breytt um vinnuaðferðir við val virkjana og virkjanastaða, þannig að áður en ákvörðun verði tekin um næstu virkjanir liggi fyrir arðsemisathug- anir og kostnaðarútreikningar á æskilegum virkjunarkostum svo og markaðsþörf aðliggjandi orku- markaða og möguleg orkusala. Tryggt verði öruggt orkuframboð á öllum orkusvæðum og sambærilegt heildsöluverð á raforku um landið allt. Ráðstafanir verði gerðar til þess að draga tafarlaust úr mun á hitunarkostnaði. Haldið verði áfram uppbyggingu á orkufrekum iðnaði, sem boðið geti há laun og markaðsöryggi. í því sambandi verði leitað eftir hvoru tveggja í senn: alþjóðlegri tækni- þekkingu og erlendu áhættu- fjármagni, en þó þannig að viðkom- andi fyrirtæki lúti ávallt íslenskum lögum. 5. Olíumál: Áhersla verði lögð á að afla nýrra og hagkvæmari inn- kaupasamninga á oliuaðföngum. Stofnað verði sérstakt innflutn- ingsfyrirtæki fyrir olíuvörur með aðild ríkisins og olíufélaganna og birgðarými í landinu verði stórauk- ið. Island gerist aðili Alþjóðaorku- málastofnunarinnar. 7. Iðnaðarmál: Áhersla verði lögð á uppbyggingu almenns iðnaðar sem gegni því hlutverki að taka við því aukna vinnuafli sem koma mun á vinnumarkað á næstu árum. Iðn- aður njóti eðlilegrar samkeppnis- aðstöðu, en áhersla sé lögð á að hann þróist við eðlilegar aðstæður þannig að slíkur iðnaður verði þjóðarbúinu lyftistöng. 7. Þjóðarcign náttúruauðlinda: Til þess að tryggja nýtingu íslenskra auðlinda í þágu þjóðarheildarinnar verði sett lög um að orka fallvatna ásamt djúphita í jörðu teljist al- þjóðareign. Jafnframt verði al- menningi veittur frjáls og óhindr- aður aðgangur að afréttum og óbyggðalöndum til íþrótta og úti- veru og þau afréttarlönd sem ský- laus éignarheimild einstaklinga eða félaga liggur ekki fyrir á, verði úrskurðuð almenningseign. 7. Kjaramál 1. Stefnt verði að samræmdu launa- kerfi er taki til allra samningsaðila ASÍ, BSRB og BHM. Við gerð slíks samræmds launakerfis skal lögð áhersla á að koma á fót einfaldara launakerfi þar sem glöggt megi marka raunverulega umsamin launakjör einstakra launahópa. 2. Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að kjarasamningar geti farið fram samtímis fyrir alla aðila vinnu- markaðarins og hafi sama gildis- tíma. í því sambandi auðveldi ríkisvaldið tæknilega útfærslu samningagerðar og veiti samnings- aðilum upplýsingar og hagræna aðstoð. 3. Þar sem ljóst er að víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags hafa ekki skilað launþegum öðru en aukinni verðbólgu og hafa haft þau áhrif að íslendingar hafa dregist aftur úr nágrannaþjóðum í lífskjörum verði horfið frá leið innantómra pen- ingalaunahækkana og leitað nýrra úrræða til að tryggja raunveru- legan kaupmátt launa. 4. Vegna ríkjandi aðstæðna í þjóðar- búskapnum er einsýnt að ekki er svigrúm til almennra grunnkaups- hækkana. Ríkisstjórnin marki þá stefnu að ganga ekki til neinna slíkra samninga sem aðeins hefðu í för með sér skammvinnar pen- ingalaunahækkanir en þeim mun langvinnari verðbólguáhrif og ógn- un við almennt atvinnuöryggi. Þótt Ijóst sé, að kjör þjóðarinnar muni fyrirsjáanlega skerðast á næstu mánuðum telur ríkisstjórnin óhjákvæmilegt að verja hagsmuni þeirra heimila sem lægstar tekjur bera úr býtum og mun gera það með eftirtöldum ráðstöfunum: a) með hækkun skattfrelsismarka tekjuskatts, þannig að heildar- skattbyrðin hjá einstaklingum lækki frá því sem hún var á árinu 1979 og sú lækkun komi fyrst og fremst fram hjá lág- tekjufólki og þeim sem hafa lágar meðaltekjur. b) með auknum stighækkandi fjöl- skyldubótum eftir fjölskyldu- stærð. c) með hækkun á ellilífeyri, tekju- tryggingu og þeim bótagreiðsl- um almannatrygginga, sem sér- staklega eru sniðnar við þarfir þeirra tekjulægstu. d) með ákvörðunum um almenna Iágmarkstekjutryggingu og beinum greiðslum úr ríkissjóði til að brúa bil milli rauntekna fjölskyldna og skilgreindra lág- markstekna í þjóðfélaginu. e) með umbótum í húsnæðismál- um, Iífeyrisréttindamálum, starfsumhverfismálum, vinnu- verndarmálum, aðbúnaðarmál- um á vinnustað, í öldrunarmál- um og í réttindamálum þeirra sem búa við skerta starfsorku. f) með því að lögleiða frumvarp um eftirlaun aldraðra og samræmt lífeyrisréttindakerfi fyrir alla landsmenn. I þessu skyni verði varið a.m.k. 10 milljörðum króna, sem verði mætt með almennum aðhaldsaðgerðum og beinum tekjutilfærslum milli samfélagshópa. 8. Verðlagsmál 1. Fiskverð og búvöruverð hækki inn- an sömu marka og laun verða ákveðin. 2. Núverandi reglum um hámarks- álagningu og óbreytt verðlagseft- irlit verði haldið þar sem einokun- arverðmyndunar gætir. Upplýs- ingaþjónusta við almenning verði aukin og sérstök lög sett gegn einokun í verslunar- og þjónustu- starfsemi, 3. í samkeppnisgreinum verði verð- lagseftirliti fyrst og fremst beint að innflutningsverðlagi á sama tíma og hámarksálagning verði afnumin í tilraunaskyni t.d. til tveggja ára. Mjög ströngu eftirliti verði beitt gegn umsaminni hækk- un innflutningsverðs og umboðs- þóknunum að viðlögðum þyngstu viðurlögum. 4. Verðlagningaraðferðum við útselda vinnu verði alfarið breytt m.a. til þess að tryggja hag neytenda og skapa eðlileg skil milli meistara og sveina. Bannað verði að ákveðnar verði með einhliða samþykkt tiltek- inna félaga, að lögð séu á kaupend- ur útseldrar vinnu hverskonar kvaðir og gjöld, sem ekki eru bein afleiðing af viðskiptum verksala og verkkaupa. 5. Á næstu tveimur árum verði hækk- unum á verði á innlendum vörum og þjónustu sett ákveðin mánaðar- leg mörk sem miðist við samfellda hjöðnun verðbólgunnar. Hækkun- um á allri opinberri þjónustu verði haldið innan við þessi mörk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.