Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 Upphafiö að þessu öllu saman er þaö, að við Snædís dóttir mín fórum í bæinn og fengum hvergi keypt ævintýrið um Tíu litla negrastráka. Eg hafði verið að raula vísurnar fyrir hana heima og nú átti að festa kaup á bókinni, en við gripum í tómt. Mér datt þá bara í hug að gefa negrastrákana út. Afi minn var höfundur textans og teikn- ingarnar voru eftir Mugg, ömmubróður minn, þannig að þegar hugmyndin var fengin, voru hæg heimatökin varðandi höfundarréttinn. Ég fékk svo Hafstein Guðmundsson í Þjóð- sögu í lið með mér og það var ákveðið, að gróðinn af fyrirtæk- inu skyldi fara í veizluhald fyrir eigendur höfundarréttar og af- komendur þeirra. Og það var í þessari veizlu, sem Helga föður- systir mín, kona Rögnvalds Sig- urjónssonar, færði það í tal við mig, að ég skrifaði sögu Rögn- valds því hann væri hættur að spila. Satt að segja leizt mér afleitlega á hugmyndina. En þetta var ágætis veizla og ég gat ómögulega fari að eyðileggja hana með þveru neii. Það leiddi svo hvað af öðru, að íslenzk æska fékk sína negrastráka, Rögn- valdur fór aftur að spila og ég er orðin alvörurithöfundur, eða að minnsta kosti tveggja bóka manneskja. Sjálf verð ég þó að þakka þetta fleirum en negrastrákunum. Líka Indriða G. Þorsteinssyni. Þegar ég var blaðamaður á Tímanum var Indriði upp á sitt bezta sem ritstjóri, alltaf upp- fullur af hugmyndum. Honum óx í augum það pláss, sem minn- ingargreinarnar tóku, og einn góðan veðurdag kom hann með hugmyndina um íslendingaþætt- ina. Brotthvarf minningargrein- anna úr Tímanum þýddi svo það, að þar opnaðist heilmikið pláss á hverjum degi. Og þá voru menn sendir í viðtöl út og suður. Ég var slökust í fréttunum. Það var haft til marks úm frétta- mennsku mína, að ég hefði spurt um það hvernig útgerðin á Hellu gengi. Ég fékk því viðtölin á mína könnu og satt að segja var ekki með neinu móti hægt að neita honum Indriða, þegar hann kom og sagði: Bjargaðu mér, gamla hross. Ég sit uppi með tómar innsíður. Maður bráðnaði eins og smjör og viðtöl urðu mín kvöl og mín ástríða. Þess vegna hafa persónuviðtöl alltaf átt ítök í mér. Ég hugsa, að það hafi haft einhver áhrif á það, að ég gat ekki neitað henni Helgu> þótt ég hafi verið hætt blaðamennsk- unni, þá fannst mér alltaf erfitt að detta alveg út úr henni. Ég gekk lengi með þessa hugmynd og velti henni fyrir mér. Ég stúderaði hin og þessi ævisagna- rit og fyrir rest komst ég að því, að ég gæti með blaðamennsk- unni ef til vill gert ýmsa skemmtilega hluti með Rögn- valdi. Svona samtalsbækur eru að vissu leyti sköpun. Það er ekki bar að skrifa niður eitthvað sem menn segja. Það þarf að toga ýmislegt út með töngum, annað verður að sækja með sálfræði- legum brögðum. Og umfram allt verður maður að skynja þann, sem rætt er við. Upplifa persónu hans. Það er eitt sem ég tamdi mér fljótlega í mínum blaðaviðtölum, og það er að halda sjálfri mér utan við samtalið. Gjörsamlega. Ég er ekki að segja, að það sé eina rétta aðferðin, en fyrir mig hentar hún bezt. Mér finnst ég persónulega ekki koma þessu við, nema þá sem miðill fyrir þann, sem hefur orðið. Ég á mjög erfitt með að skrifa frá eigin brjósti. Hann Björn Vignir á Helgarpóstinum var til dæmis að biðja mig að gerast blaða- maður í einn dag. Ég settist niður og ætlaði að skrifa Spjallað við Guðrúnu Egilson í tilefni af tveimur samtalsbókum við Rögnvald Sigurjónsson saman skemmtilega grein um jólastúss- ið á heimilinu. Það bara gekk ekki.Ég þvældist bara fyrir sjálfri mér. Svo valdi ég annað viðfangsefni og þá var ég óstöðv- andi. Blaðamennska og bókmenntir eru auðvitað náskyld fyrirbæri enda þótt stundum sé talað með upphafningu um annað en fyrir- litningu um hitt. Munurinn er fyrst og fremst sá, að blaða- maðurinn skrifar undir tíma- pressu, en rithöfundur getur gælt við viðfangsefnið og snur- fusað það á alla kanta, áður en hann lætur það frá sér. Samtals- bækur hafa að miklu leyti þróast upp úr blaðamennskunni, og það er ekki laust við að þær gjaldi þess, því að það er ekki talað um þær af sömu virðingu og skáldskap, sem að sjálfsögðu byggir alltaf á einhverjum raun- veruleika í bland. En ég held að það sé ekkert auðveldara að skrifa samtalsbók en skáldverk. Kannski er það að sumu leyti erfiðara. Það sker manni auðvit- að dálítið þröngan stakk, þegar maður er bara að fjalla um eina persónu, sem þar að auki er bráðlifandi. Það er ekki hægt að endasenda henni út um allar trissur eftir eigin geðþótta til þess að gera bókina skemmti- legri. En þetta er eins og önnur bókmenntaiðja að þvi leyti, að það verður að skapa heild. Verkið verður að hafa sitt ris og hnig, upphaf og endi. Það lýtur nákvæmlega sömu lögmálum og önnur bókmenntaverk. En driffjöðrin er sögumaður- inn sjálfur. Rögnvaldur er makalaust hispurslaus maður og hefur gríðarlegan húmor. Hann getur gert botnlaust grín að sjálfum sér og hlegið sig í hel. En hann fer ekki illa með aðra í sínum húmor. Það er ef til vill sérstakur eiginleiki hjá Islend- ingi. Rögnvaldur er sannkall- Rögnvaldi. Ég finn vafalaust aðra persónu, sem mér líkar. Þannig verður það að vera. Ég get ekki hugsað mér að vaða beint á bláókunnugt fólk, sem ég næ svo engu sambandi við. Stundum lenti ég í slíku í blaðamennskunni. Það var hræðilegt. Það er með þetta eins og Rögnvaldur segir einhvers staðar. Hann segist ekki spila verk, sem ekki höfði til hans. Þau verða að falla honum í geð. Annað getur hann ekki túlkað. Það er ekki hægt að skapa neitt úr því, sem ekki höfðar til manns. Slíkar tilraunir eru dæmdar til að missa marks. En ég trúi því staðfastlega, að það mannlega í okkur eigi erindi til annarra, ef það er vel gert. Mér er illa við þessa trú á sérhæfingu, sem er að ryðjast yfir allt og alla. Þessi trú kemur meðal annars fram í menning- arfordómum; menningarfordild og ménningarfyrirlitningu. Fólk útilokar sig frá vissum hlutum og hættir að tala saman. Mér finnst það satt að segja stórhættulegt. Það eiga allir að geta talað saman, hvort sem um er að ræða útróðrakall á Hellu eða píanista í Reykjavík. - fj- Það eiga allirað geta talað aður lífskúnstner. Annað er ekki hægt að kalla mann, sem hefur jafn gaman af tilverunni, þrátt fyrir öll þau skakkaföll, sem hann hefur orðið fyrir. Þessar bækur eru fyrst og fremst per- sónusaga hans. Ég heyrði þá gagnrýni á fyrri bókina, að mönnum þætti hún ekki nógu fagleg. Sumir virtust óttast það að þetta væri einhver sérstök tónlistarbók, en tónlistarfólk sagði hana vera of litla fagbók fyrir þess smekk. Auðvitað er tónlistarferillinn hreyfiaflið í lífi Rögnvalds, en þessar bækur eru fyrst og fremst persónusaga hans. Og Rögnvaldur er að mínu viti fágætlega skemmtileg per- sóna. Sjálf er ég ekki tónlistar- manneskja fyrir tíu aura. Ég hef verið beðin um að taka að mér aðra persónu og skila henni á bók. En ég ætla að hinkra við. Það er svo mikil reynsla að eiga svona við eina persónu í tvær bækur, að ég verð að hvíla mig. Þetta er einhvers konar andlegt fyllerí. Maður fær timburmenn á eftir. Ég er þó ekki svo alvarlega haldin, að ég sé orðin kvenútgáfa af Rögnvaldi. Reyndar stend ég mig stundum að því að herma eftir honum. Og það var oft, þegar við höfðum spjallað saman og ég var byrjuð að skrifa, að það vantaði eitt og annað inn í. Ég samdi það þá bara upp úr þeim staðreyndum, sem ég vissi. Og Rögnvaldur fullyrti eftir á, að einmitt svona hefði hann sagt mér frá þessu. Þá hló ég oft með sjálfri mér. Það var gaman að þessu. En ég get vel hugsað mér að halda þessu áfram, þegar ég hef tekið út mína timburmenn af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.