Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
9
Pólverji
í Gallerí
Suðurgötu 7
Það er ekki á hverjum degi,
sem við fáum Pólverja í heim-
sókn með listaverk sín. En nú
yfir jólatíðina er einn slíkur á
ferli með myndir sínar í Suð-
urgötu 7. Hann hefur verið við
nám í Lundi, og því hefur
honum tekist að ferðast
hingað og gera nokkrar mynd-
ir hér á landi í kompaníi við
móður náttúru, samkvæmt
fregnum í blöðum okkar ef
mér skilst rétt. Það er undir-
titill á þessari sýningu, svo-
hljóðandi: „The universe is the
greatest piece of art“. Þetta er
í sjálfu sér ágæt setning, en
margir eru nú þeirrar skoðun-
ar, að náttúran sé ekki lista-
verk, fyrr en maðurinn hafi
raskað svolítið við henni og þá
fyrst verði hugtakið list til.
Ekki fer ég meira út í þá
sálma, svo að ég haldi höfði,
en missi ekki andlitið.
JACEK TYLICKI heitir
þessi Pólverji. Hann hefur
sérstæðan hátt á myndgerð
sinni, sem er unnin í samvinnu
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
við vatnsföll í að minnsta
kosti þrem löndum: Svíþjóð,
Póllandi og á íslandi. Ymis
fljót koma þarna við sögu, og
af hérlendum eru það Elliða-
árnar, sem brillera. Oft nær
listamaðurinn myndrænum
tilþrifum með lit og veðrun á
pappír, en það fer heldur ekki
millum mála, að nokkuð virð-
ast hlutirnir verða tilviljun-
arkenndir á stundum. Það er
ekki aðeins litur og vatn, sem
gerir þessar myndir, einnig er
í þessum verkum að finna eins
og steingervinga eftir ýmis-
legt, aðallega gróður og lauf.
Stráin leika einnig sinn þátt í
myndsköpun Jacek Tylicki.
Það eru nokkuð mörg verk á
þessari sýningu, en samt er
ekki um mjög auðgugan garð
að gresja. Þessi verk eru
dálítið líkt tilkomin og því
ekki fjarri að um endurtekn-
ingar sé að ræða. Aðallega á
ég þar við, að allt er þetta gert
á sama máta, enda þótt fljótin
séu í mismunandi löndum og
auðvitað gróðurinn í samræmi
við það. Þessi sýning er ekki
alveg í þeim anda, sem einna
mest hefur verið á ferðinni í
Gallerí Suðurgata 7. En hún er
gott frávik frá hugmynda-
fræði og öðru sem þar hefur
verið til sýnis.
Jólatíð á íslandi er ekki
góður tími til að sýna mynd-
list. Sú var tíðin, að engum
datt til hugar að sýna í
desember. En nú er annað.
Ekki man ég eftir jafn mörg-
um sýningum á þessum tíma
árs og einmitt nú. Er þetta til
góða eða? Þessu verður að
svara, en reynsla hefur veru-
lega fengist fyrir sýningum á
þessum árstíma.
Pólverjar hafa verið mjög
athafnasamir í myndlist að
undanförnu, og væri gaman að
fá að sjá meira af list þeirra.
Það eru ekki svo mörg ríki
fyrir austan tjald, sem akkur
er í að sjá myndlist frá, en
Pólland hefur þar sérstöðu,
hvað þessu veldur vita menn
mæta vel, og ef til vill þurfa
menn að komast úr landi til að
geta haldið sýningar sem
þessa í Suðurgötu 7.
43466
MIÐSTÖÐ FASTEIGNA-
VIÐSKIPTANNA, GÓÐ ,
ÞJÓNUSTA ER TAK-
MARK OKKAR, LEITIÐ
UPPLÝSINGA
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Aóalstræti 6 sími 25810
29277
EIGNAVAL
n
2ja herb. — Kópavogur
Til sölu falleg 2ja herb. íbúð á
neðri hæö í tvíbýlishúsi við
Löngubrekku í Kópavogi. Sér-
inngangur. Verð 17,5—18 millj.
Útborgun 13 milljónir. Allar
nánari upplýsingar um íbúð
þessa eru gefnar í dag í síma
20134
EIGNAVAL./I
Miöbæjarmarkaöurinn
Aöalstræti 9
sími: 29277 (3 línur)
Grétar Haraldsson hrt.
Biami Jónsson s. 20134.
29555
Háaleitishverfi — Fossvogur
Höfum kaupanda aö raðhúsi, sérhæö eöa einbýlishúsi í ofangreindum hverfum, fleiri
staöir koma til greina. Greiösla viö kaupsamning allt aö 25 millj. útb. á einu ári allt aö
40—42 millj.
Mosfellssveit
Höfum til sölu mjög vandaöa 3ja—4ra herb. risíbúö 80 ferm í tvíbýlishúsi, bflskúr, ný
gler í gluggum. Hagkvæm lán áhvflandi.
Höfum kaupendur aö 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúöum í Reykjavík, Kópavogi, Garöabæ
og Hafnarfiröi. Leitiö upplýsinga um eignir á söluskrá.
Eignanaust v/Stjörnubíó.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
UGI.YSINGA-
SIMINN KR:
22480
• Hægt aö tengja viö 2 aukahátalara.
• Tveir microphonar innbyggöir.
• Hægt aö tengja beint viö magnara.
• Svona er hægt aö halda áfram aö þylja upp en
sjón og heyrn er sögu ríkari.
• TVC feröatækin bíöa eftir þér. Þau eru
ófeimin. , , _________
JVC ferðaútvarps- og kassettutækin eru löngu
iandsfræg fyrir mikil gæöi, fallegt útlit og síðast
en ekki sízt mikla endingu. Meöal atriöa má nefna:
• 4—6 bylgjur, FM stereó.
• Ganga fyrir rafmagni, rafhlööum + 9—12w
fyrir bílinn.