Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 vorur í glæsilegu úrvali Herrar! hér kemur jólagjöfin, handa eiginkonunni, unnustunni eöa dótturinni. Þaö er stóllinn Femina! fæst í Skeifunni, Smiöjuvegi 6, Kópavogi. VERIÐ VELKOMIN Starmix ryksugan hefur þessakosti — þægileg í vinnu — fallega hönnuð — mikinn sogkraft — stillanlegan sogkraft — ljós, sem gefur til kynna, þegar skipta þarf um poka — dregur inn í sig snúruna — geymir rörin i sér sjálfri — mismunandi eiginleikar eftir gerðum Hinar ýmsu gerðir Starmix ryksugunnar hafa flesta eða alla þessarra kosta — og jafnvel fleiri kosti. Starmix ryksugan er nefnilega til í ýmsum útgáfum við flestra hæfi. Starmix hefur reynst frábærlega vel hérlendis, enda er hún ein vinsælasta ryksugan á íslandi. Fullkomin viðhalds- og varahlutapjónusta. VERSUUNIN PFAFF Skólavöróustig 1-3 Bergstaóastræti 7 Simi 26788 Frystikista og isskápur FRYSTIKISTA og ísskápur nota um 30% af raforku heimilisins og jafnvel enn meira ef ekki er gætt hagsýni í notkun þeirra. Hér á eftir fara nokkur húsráð um hagkvæma notkun þessara tveggja heimilistækja. 1. Hæfilegt hitastig í frystikistu er -18°C. Við hverja gráðu sem hitinn er lækkaður um- fram þetta eykst orkunotkun- in verulega. Við -25°C er hún 40% meiri en við -18°C. 2. Hæfilegt hitastig í ísskáp er +5°c. Lægra hitastig leiðir til aukinnar rafmagnsnotkunar. Kaupið hitamæli og fylgist með hitastiginu í ísskápnum og frystikistunni. 3. Hafið frystikistuna í eins köldu herbergi og mögulegt er. Við hverja gráðu sem herberg- ishitastigið er lækkað minnk- ar orkunotkunin um allt að 5%. 4. Komið frystikistu og ísskáp þannig fyrir að loft eigi greið- an aðgang að bakhliðum þeirra. Ef ísskápur er inn- byggður í innréttingu verður að gera sérstakar ráðstafanir til að tryggja eðlilega loft- ræstingu. 5. Hreinsið ló, kusk og önnur óhreinindi sem safnast fyrir á varmaskiptibúnaðinum á bak- hlið tækjanna ekki sjaidnar en tvisvar á ári. 6. Gætið þess að hurðir séu vel þéttar og haldið þeim ekki opnum lengur en brýn nauð- syn krefur. 7. Hrímmyndun í frystikistu og frystihólfi ísskápsins eykur orkunotkunina verulega. Nauðsynlegt er því að þíða hrímið reglulega og fylgja leiðbeiningum framleiðanda þar um. ísskápinn ætti að afhríma ekki sjaldnar en hálfsmánaðarlega. 8. Látið fryst matvæli þiðna í ísskápnum. Við það sparast orka, auk þess sem matvaran verður betri. 8. Meðalstór frystikista notar um 750 kWh af rafmagni á ári, hvort sem hún er full eða tóm. Ef ekki er gætt hagkvæmni í rekstri eykst orkunotkunin verulega. 10. Gætið þess að frystikista og ísskápur séu jarðtengd. Almenn öryggisatriði 1. Gerið aldrei við vartappa. Það stofnar lífi og eignum í hættu. 2. Lélegar eða gallaðar raf- magnssnúrur geta valdið raf- losti og brunatjóni. Látið end- urnýja þær. 3. Lausataugar (snúrur) eiga að liggja lausar. Þær má ekki festa með spennum eða nöglum. 4. Takið ávallt í klóna, en ekki í snúruna, þegar hún er tekin úr sambandi. 5. Óheimilt er að nota fjöltengla af þeirri gerð sem sitja í tenglinum. Færanlegir fjöl- tenglar, þ.p. snúrur með 2—4 tengium (tenglabretti) fást í raftækjaverslunum. 6. Stærri tæki, t.d. rafmagnsofna, ætti ekki að tengja í fjöltengil, heldur beint við veggtengil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.