Morgunblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 1. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Samsæri gegn Kurt Waldheim Teheran, 2. janúar. AP. SAMSÆRI um að myrða Kurt Waldheim, framkvæmdastjóra SI>, var brotið á bak aftur í dag að sögn irönsku fréttastofunnar. Samsærið varð til þess að Wald- heim hætti við að ræða við fórnar- lömb ríkisstjórnar fyrrverandi íranskeisara og hér eftir verður ekki tilkynnt fyrirfram um ferðir Waldheims. Fréttastofan sagði að Waldheim hefði átt að ræða við fulltrúa byltingarráðsins, en dagskrá heim- sóknarinnar hefði verið breytt vegna samsærisins. Sadegh Ghotbzadeh utanríkisráð- herra var að því spurður hvort Waldheim mundi hitta bandarísku gíslana og sagði: „Engin ákvörðun hefur enn verið tekin. Khomeini verður að taka allar ákvarðanir í því sambandi." Ghotbzadeh lagði áherzlu á að heimsókn Waldheims mundi ekki leiða til þess að gíslarnir yrðu látnir lausir. Forseti Islands, herra Kristján Eldjárn: Jafnframt hefur Babrak Karmal. sem Rússar komu til valda eftir innrásina. skýrt frá stefnu sinni í sjónvarpi og sagt að hún grundvallist á kenningum Islams. Karmal sagði að hann þyrfti ef til vill að fara til Kúbu, Víetnams, Eþíópiu og Angola og ræða við Palestínumenn ef erlendri árás á landið yrði haldið áfram. tíma í embætti, þá er það anzi mikið að taka á sig nýtt kjör- tímabil og að okkar hyggju ekki hægt að breyta því, sem fyrir nokkru er fastákveðið fyrir svona sem er þó þrátt fyrir allt aðeins stundarblástur." „Ég hef nú kannski ekki svo sem á nein önnur mið að leita,“ sagði forsetinn, er Mbl. spurði hann, hvort kjör hans sem for- manns Hins íslenzka fornleifa- félags skömmu fyrir jól, benti til þess að hann hygðist sækja á sín gömlu fræðasvið, þegar hann hefði látið af forsetaembætti. „Og þessu félagi hef ég verið tengdur svo óskaplega lengi. En það er enn ekki að því komið að ég sé fyrrverandi forseti, þannig að í raun finnst mér ég nú hafa engu við það að bæta, sem ég hef þegar sagt um þetta mál.“ Sjá nýársdagsávarp forsetans á bls. 10 og 11. Þrjú kjörtímabil eru hæf ilegur tími i embætti „ÉG VIL nú ekki gera of mikið úr þeim verkefnum, sem ég hyggst taka mér fyrir hendur í framtíðinni. Þau eru ekkert aðalatriði þessa máls, heldur hitt, að tólf ár eru langur tími og að minni hyggju hæfilegt að menn sitji ekki lengur en þrjú kjörtímabil í embætti forseta íslands,14 sagði forseti íslands herra Kristján Eldjárn, i sam- tali við Mbl. í gær um þá ákvörðun hans að gefa ekki kost á sér í forsetaembættið að þessu þriðja kjörtímabili hans loknu á þessu ári. „Þetta er nokkuð gömul ákvörðun og við hjónin teljum það eðlilegt að hún standi óhögguð," sagði forsetinn. „Ég tel alls ekki að hún hafi nein áhrif á þær stjórnarmyndunart- ilraunir, sem í gangi'eru. Og þótt ég hefði viljað, að sitthvað í þjóðlífinu væri í fastari skorð- um, þegar ég tilkynni þessa ákvörðun, eftir þó þetta langan Forseti íslands herra Kristján Eldjárn. Kabul, 2. janúar. AP. SOVÉZKT herlið beitir skriðdrekum og þyrlum gegn afghönskum uppreisnarmönnum í hörðum bardögum norðvestur af Kabul að sögn vestrænna diplómata í dag. Vestrænir diplómatar telja að Rússar mæti harðri mótspyrnu í Bamian, hrjóstrugu héraði norður af Kabul og virki Hazarah- ættflokks stríðsmanna. Sovézkt herlið er einnig í borginni Herat í vesturhluta landsins og í Jalala- bad nálægt Khyber-skarði á pak- istönsku landamærunum. Mann- fall er sagt mikið á báða bóga. Karmal ítrekaði að sovézkt herlið færi úr landi þegar „ríkis- fjandsamleg öfl hefðu verið þurrk- uð út og sjálfstæði Afghanistans tryggt". Karmal sagði að verið væri að sleppa úr haldi pólitískum föngum sem voru fangelsaðir á Methækkun London, 2. janúar. AP. GÍFURLEG hækkun varð á verði gulls og silfurs í dag og ný met voru slegin. Enginn þorir að spá um hvenær verðhækkununum muni linna. Gullverðið hækkaði um 37,50 doll- ara í dag en silfurverðið um 8 dollara og þetta eru mestu hækkan- ir sem hafa orðið á einum degi. Innrás Rússa í Afghanistan og ástandið í íran munu hafa valdið kaupæðinu. Gullið seldist á 562 dollara únsan á hádegi, en við lokun seldist það á 542,50. Silfur hækkaði í 40 dollara miðað við 32 í gær. Kopar, tin, blý og zink hækkuðu líka mikið. dögum Hafizullah Amin forseta, sem Karmal kallaði útsendara CIA og njósnara. Blöð komu út í Kabul í dag í fyrsta sinn síðan byltingin var gerð og birta ræðu sem Karmal flutti í sjónvarpinu í gær, en þá kom hann í fyrsta sinn fram opinberlega. Diplómatar telja víst að Karmal hafi ekki komið til Afghanistans fyrr en um helgina. í ræðu sinni hét Karmal að koma á mannréttindum, sleppa pólitísk- um föngum og virða Islam. Hann fagnaði byltingunni í Iran. Kyrrt hefur verið í Kabul síðan skotbardagi geisaði í einn og hálfan tíma á sunnudag nálægt útvarpsstöðinni. Rússar láta æ minna á sér bera. Færri bílalestir fara um borgina, afghanskir lög- reglumenn stjórna umferðinni og ungir, óvopnaðir afghanskir her- menn manna vegatálma nálægt flugvellinum. Tveimur sovézkum skiðdrekum hefur verið lagt fyrir framan útvarpsstöðina. Sovézkir hermenn standa vörð við pósthúsið, inn- anríkisráðuneytið og aðrar mik- ilvægar byggingar. Blaðið „Jang“ í Karachi hermdi í dag að afghanski gjaldmiðillinn hefði verið lagður niður í dag og rússneskar rúblur teknar upp í staðinn. Sovézkir skriðdrekar RÚSSAR Á FERÐ - Bryn- varinn sovézkur vagn tekur sér stöðu á flugvellinum í Kabul, höfuðborg Afghanist- ans. Aftan við hann sjást sovézkir vöruflutningabílar og skriðdreki. Rússar hafa komið sér upp miklum búðum á flugvallarlóðinni. Carter undirbvr gagnráðstafanir Washington, 2. janúar. AP. TILKYNNT var í kvöld í Washing- ton að Carter forseti mundi kalla heim bandariska sendiherrann í Moskvu á morgun til að sýna vanþóknun Bandaríkjamanna á íhlutun Rússa i Afghanistan. Ráð stöfunin er sögð táknræn, en einnig er sagt að Thomas Watson sendi herra geti hjálpað Carter-stjórn- inni að vega og meta stefnuna gagnvart Rússum. Jody Powell blaðafulltrúi sagði að Carter hefði ákveðið nokkrar ráðstafanir vegna „hinna alvarlegu ógnunar við heimsfriðinn“ sem inn- rásin væri. Sumar yrðu einhliða og aðrar i samvinnu við önnur ríki. Ákvaðanir forsetans yrðu kynntar þegar viðeigandi ráðfæringar hefðu farið fram. Ein ráðstöfunin sem um er rætt er að NATO-löndin hætti við þátt- töku i Ólympiuleikunum i Moskvu 1980. New York Times hefur eftir hátt- settum embættismanni að Bandarík- in og bandamenn þeirra muni senni- lega fara fram á fund bráðlega hjá SÞ til að fordæma Rússa og krefjast brottflutnings herliðs þeirra. Washington Póst hefur eftir heim- ildum í Brtissel að NATO hafi rætt hugsanlegar gagnráðstafanir, þar á meðal ákvörðun um að hætta þátt- töku í Ólympíuleikunum í sumar og ákvarðanir um að hætta hveitisölu, viðskiptalánum og menningarskipt- um við Rússa. Hingað til hefur Carter alltaf lagzt gegn niðurskurði á kornútflutningi vegna hagsmuna bandarískra bænda, en um afstöðu hans til Ólympíuleikanna er ekki vitað. Warren Christopher aðstoðarut- anríkisráðherra mun gefa Carter skýrslu um ferð sína til Evrópu þar sem hann sat skyndifund NATO í gær. Meðal þeirra ráðstafana sem eru í athugun eru þessar: • Tilmæli til Ailsherjarþingsins að fordæma Rússa og krefjast brott- flutnings tugþúsunda rússneskra hermanna frá Áfghanistan. • Aflétt verði banni við útflutningi á bandarískum hergögnum til grannríkisins Pakistan sem sumir telja næsta skotmark Rússa. • Öldungadeildin fresti meðferð SALT II. • Nefnd verði send til vinveittra landa við Persaflóa til að reyna að mynda samfylkingu gegn Rússum. • Hvatt verði til þess að hætt verði við þátttöku í Ólympíuleikunum í Moskvu í sumar. • Leiðir verði fundnar til að koma hergögnum til afghanskra uppreisn- armanna sem virðast vanmáttugir gagnvart sovézkum skriðdrekum og öðrum nýtízku hergögnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.