Morgunblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980 Yfirlæknaskipti á Landakotsspítala: Á gamlársdaK fóru fram yfirlæknaskipti á Landakotspítala og lét dr. Bjarni Jónsson yfirlæknir þá af störfum eftir yfir 20 ára starf og við tók ólafur Örn Arnarson. Við athöfn í spítalanum að morgni gamlársdags sögðu nokkur orð þeir Óttarr Möller formaður yfirstjórnar spítalans, Logi Guðbrandsson framkvæmdastjóri, Ólafur Órn hélt ræðu og að lokum mælti dr. Bjarni nokkur orð. Logi Guðbrandsson sagði að Landakotspítalinn hefði margoft átt við ýmsa rekstrarörðugleika að stríða og hefðu St. Jósefs-systurnar m.a. jafnan leitað ráða hjá dr. Bjarna. Þakkaði Logi dr. Bjarna fyrir gott samstarf og flutti kveðjur frá systrunum. Óttarr Möller sagði m.a., að dr. Bjarna væri ekki vel við hólið en hann mætti þó segja að honum hefði verið lagið að stjórna fólki og að laða fólk að sér. Færði óttarr Bjarna að gjöf silfurdisk með mynd af Landakotspítala og voru á hann einnig rituð nöfn yfirstjórnarmanna og framkvæmdanefndar spitalans. Hér fer á eftir ræða Ólafs Arnar Arnarsonar: Djúp og óafmáanleg spor í sögu spítalans I gildandi reglugerð fyrir læknaráð Landakotsspítala segir, að starfandi sérfræðingar spítal- ans verði sjálfkrafa doctores eme- riti, þegar þeir ná sjötugs aldri. Dr. Bjarni Jónsson varð 70 ára 21. maí sl. Því er í dag upprunnin kveðjustund. Fyrir röskum tveim árum kom- um við saman hér í þessum sal og minntumst 75 ára afmælis spítal- ans. Jafnframt kvöddum við St. Jósefssystur, sem með þrotlausri elju og dugnaði byggðu og ráku þennan spítala fram undir það. Við vissum að Landakotsspítali yrði ekki samur eftir að þær hættu rekstri hans. Við vitum að Landakotsspítali verður annar eftir að Bjarni Jónsson lætur af störfum. Því nefni ég þessa aðila hér í sama orðinu, að báðir hafa mark- að djúp og óafmáanleg spor í sögu þessarar stofnunar, hvor á sinn hátt. Samstarf St. Jósefssystra og Bjarna Jónssonar í röska fjóra tugi ára, er einstakt, eins og glöggt kom fram í hátíðarræðu dr. Bjarna hér fyrir tveim árum. Bjarni Jónsson lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1929. Embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Islands 1935. Hann var aðstoðarlæknir á Kleppsspítala til ársloka það ár, en var aðstoðarlæknir hér á St. Jósefsspítala í ársbyrjun 1936. Það haust fór hann til framhaldsnáms, fyrst í Þýzkalandi og síðar í Danmörku og kom heim í lok ársins 1940. 1941 fékk hann viður- kenningu sem sérfræðingur í bæklunarsjúkdómum og frá þeim tíma hefst samfelldur starfsferill við Landakotsspítála, sem varað hefur fram til þessa dags. Tvisvar á þessu tímabili fer dr. Bjarni í langar námsvistir, fyrst til 1 'k árs dvalar í Bandaríkjunum 1947 til 1948, aðallega við New York Orthopedic Hospital og síðan um haustið 1956 til Kaupmannahafn- ar til ársdvalar á taugahandlækn- isdeild Rigshospitalet, til að kynna sér meðferð heilaslysa. Doctorsritgerð um aðgerðir við hryggskekkju varði dr. Bjarni við Háskóla Islands 1954, en auk þess hefur hann skrifað allmargar greinar um fræði sín í innlend og erlend fræðirit. Yfirlæknir við Landakotsspítala varð dr. Bjarni í febrúar 1959, er Halldór Hansen lét af þeim störf- um. Þegar læknaráð var stofnað 1967 varð hann jafnframt formað- ur þess og hefur verið síðan. Þessi grófa upptalning á starfs- ferli dr. Bjarna segir ekki nema hálfa sögu. Læknar spítalanna hér í Reykjavík gátu ekki lifað af spítalavinnu eingöngu, til þess voru launin alltof lág. Allt fram á miðjan 7. áratug urðu þeir að sjá sér farborða með heimilislækn- isstörfum og á því sviði veit ég að dr. Bjarni var engin liðleskja. Gefur því auga leið að á þessum tíma var starfsdagurinn oft lang- ur og erillinn mikill. Það hefur oft verið mér mikil ráðgáta, þegar dr. Bjarni tekur sig upp á miðjum fimmtugsaldri og fer til Kaup- mannahafnar að kynna sér heila- slys. Árangurinn varð sá, að næstu 15 árin var hann eini maðurinn hér á landi, sem annað- ist þessi slys, og var þessvegna á stöðugri bakvakt öll þessi ár. í slíkum erli er nauðsyn að hafa gott heimili til að styðjast við og njóta fárra frístunda. Ég þykist vita að frú Þóra Árnadóttir hafi verið ómetanleg stoð og traustur og góður félagi. Þegar ljóst varð, að St. Jósefs- systur vildu hætta rekstri spítal- ans, fór ekki hjá því, að mörgum hrysi hugur við að spítalinn yrði lagður niður eða rynni í ríkisspít- alakerfið, eins og mörgum mun þó hafa þótt eðlilegt. Þessi mál voru á döfinni í nær tvö ár. Lausnin er öllum, sem hér eru í dag, kunn. Ég leyfi mér að fullyrða að sú lausn hefði aldrei fengist, ef Bjarni Jónsson hefði ekki haft forystu af hálfu okkar heimamanna við þær málaleitanir. Þá varð okkur, sem með honum stóðu ljóst, hve mikils álits hann og spítalinn nutu meðal ýmissa áhrifamikilla aðila í þjóð- félaginu. Ein helsta röksemdin, sem notuð var, var sú, að hér hefði tekist langt og gæfuríkt samstarf milli eigenda og stjórnenda, þ.e. St. Jósefssystra annars vegar og lækna og annars starfsliðs hins- vegar. Það var mjög stutt leið milli stjórnenda og starfsliðs, þannig að fullur skilningur ríkti um hverjar þarfir væru og hver getan til að uppfylla þær. Smám saman hafði myndast hópur starfsfólks, sem lærði dyggðir hagsýni og sparsemi af systrun- um. Utkoman varð sú, að hér var rekin stofnun, sem var til fyrir- myndar um hagkvæman rekstur. Bent var á að slíkur rekstur væri nauðsynlegur til samanburð- ar rekstri opinberra spítala og þeim nauðsynlegt aðhald. E.t.v. er sá óbeini sparnaður, sem af þessu hlýst, meiri heldur en flesta grun- ar. Um læknisþjónustu hér og á öðrum spítölum þarf vart að fjölyrða í þessum hópi. Megin munurinn er e.t.v. fólginn í beinna persónulegra sambandi sjúklings og læknis hér, en annars gerist. Að okkar mati gerir þetta meiri kröfur til læknisins, en ánægjuna af starfinu þeim mun meiri. Við höfum alltaf haldið því fram, að ágæta læknisfræði væri hægt að stunda í hvoru kerfi sem er. Það hefur verið sannað bæði austan hafs og vestan. Því skyldu ekki þessi tvö kerfi geta þróast hlið við hlið, þau hafa gert það í hálfa öld. Því skyldu einstakir læknar ekki geta valið sér starfsform, sem þeim hentar, ef gæði eru ekki minni og kostnaður ekki í meiri í einu kerfinu en öðru? Bent var á söguleg rök. St. Jósefsspítala, elsta starfandi sjúkrahús borgarinnar, með sínum séreinkennum, væri ekki síður ástæða til að varðveita en gömul líflaus hús. öttarr Möller afhendir dr. Bjarna Jónssyni silfurdisk fyrir störf hans i þágu Landakotsspitalans. Ljósm. Kristján. Spítalinn ekki samur eftir að dr. Bjarni hættir störfum — sagði Ólafur Örn Arnarson Dr. Bjarni Jónsson: Að leiðarlokum DR. BJARNI Jónsson fyrrum yfirlæknir á Landakotsspítala lét af því starfi nú um áramót- in. Við árlega athöfn þar sem allir læknar spítalans koma saman í jólabyrjun mælti dr. Bjarni til þeirra nokkur kveðju- orð og fara þau hér á eftir: Ég vonast til þess, að ég eigi eftir að koma hér aftur næstu jól — og kannske mörg — en þá verð ég gestur, því nú eftir hálfan fimmta tug ára í þessu húsi er minni læknisævi að ljúka. Ég vil nota tækifærið til þess að þakka ykkur öllum gott samstarf. Þeir eru til, sem hafa verið mér samtímis öll þessi ár, en hinir eru miklu fleiri,sem skemur ha'a verið. En öllum kann ég ykkur þakkir fyrir góð kynni, og ungum mönnum hér fyrir að hafa lagst á þá sveif að gera spítalann að þeirri stofnun, sem ég hefi óskað. Að leiðarlokum langar mig til þess að koma á framfæri hugs- unum aldraðs manns. Á gamla bók var skrifað: „Það sem þér viljið að aðrir geri yður skuluð þér og þeim gera.“ Nú á tímum eru læknisverk og spítalavinna æ meir að færast í horf iðnaðar- og werksmiðju- starfa. Sjúkdómurinn situr í fyrirrúmi, sjúklingurinn gleym- ist. Ekki er hægt að skilja að líkama og sál. Hver sem fær líkamlegt áfall skaddast líka á sálinni, mismikið að vísu og oft án þess að gera sér það Ijóst. Læknirinn þarf að hafa auga á hvoru tveggja. Það er ekki nóg að fjarlægja skjaldkirtil eða að skera í burtu magasár, jafnvel ekki að spengja brotið bein. Það þarf líka að gefa sjúklingnum von og trú og traust. Það þarf að hjálpa hon- um til að berjast. Dante letraði yfir hlið vítis: Sá sem gengur hér inn, skilur von- ina eftir. Þegar vonin er farin, tekur ekkert við nema inferno. Það má aldrei loka síðustu dyrunum. Þess vegna held ég, að spítali megi aldrei verða verk- smiðja, læknir aldrei iðnaðar- maður, þó hann þurfi stundym haga hönd. Á þessari stofnun höfum við ætíð kappkostað að halda við tengslum sjúklings og læknis, við höfum reynt að fylgja anda læknisins, sem var á Kos fyrir 24 öldum. Læknisfræði er orðin svo yfir- gripsmikil, að enginn maður ræður við nema hluta af henni. Verkaskifting er nauðsyn og þá um leið samvinna, stundum margra lækna. Þegar allar fáan- legar staðreyndir liggja fyrir, þarf læknirinn að taka ákvörðun upp á sitt eindæmi, og leggja ábyrgðina á eigin herðar. Þar á ekki við nefndarálit eða fundar- samþykktir. Þar stendur læknir- inn einn. Milli sjúklings og læknis þarf að vera trúnaðarsamband og það er auðfengið ef sjúklingur finn- ur, að læknirinn leggur sig allan fram. Mér finnst læknisnafnið vera virðingarheiti. Nú um sinn hefur mér fundist að læknum færi fækkandi og læknisfræðingum fjölgaði. Við skulum vera þess minnug ætíð, að sjúklingarnir eru ekki til fyrir okkur, heldur erum við til fyrir sjúklingana. Fyrir nokkrum árum var ég á læknaþingi í Tel Aviv og lauk því í Jerusalem. Hópur lækna hittist í anddyri gistihússins og beið eftir farartækjum til bæjarins. Á leiðinni í bæinn minntist einn læknirinn á kollega í hópnum, sem farinn var á undan og átti vart orð til að lýsa hversu einstakur maður hann væri. Aldrei gerði hann aðgerð á neinum sjúkling nema þess væri þörf þó hann fengi borgað vel fyrir. Ég hefi ekki gleymt þessu síðan. Þegar læknir hugsar fyrst um það, hvað hann fær fyrir vinnu sína, að ég ekki nefni það að vinna læknisverk að óþörfu, þá er hann hættur að vera læknir. I þessum spítala hefir sú regla gilt, að menn fái greitt fyrir það, sem þeir inna af hendi, en ekki fyrir hitt, sem þeir láta ógert. Ég held að sú regla sé góð, en þá getur sú freistni verið í sjónmáli að gera annað eða meira en nauðsyn krefur. Enn hefi ég ekki orðið þess var, að sú freisting hafi orðið læknum þessa spítala að fótakefli og með því liði sem hér er, á ég þess ekki von að svo fari. En læknar eru bara menn. Það er rétt. Siðferðilegur staðall fólks er mishár. Ég tel, að læknastéttin sé þar efst á blaði, þó svartir sauðir finnist. Ég trúi að það sé gott og vonast til að svo fari fram; þá geta læknar notið virðingar meðbræðra sinna. Ég álít að læknisstörf séu þau verk, sem hæst eigi að meta til fjár. Allar götur frá því að nafni minn Pálsson settist að á Sel- tjarnarnesinu litlu og lágu hefur læknisþjónusta verið Iágt metin, en almenningur hefur ætíð gert meiri kröfur til lækna en ann- arra manna. Ég er samþykkur því að gera háar kröfur, en ég held að þar á móti eigi að koma góð umbun. Það gerir enginn sitt besta, sem hefir daglegar áhyggjur af afkomu sinni. Og þó virðing sé góð, þá mettar hún ekki börnin eða klæðir fjölskyld- una og skæðir. Og þó skatt- heimtan geti komið saman háum tölum, þegar hún segir frá tekj- um lækna, þá er það á allra vitorði, sem vita vilja, að ráð- stöfunartekjur þeirra eru langt- um lægri en margra þeirra stétta, sem þjóðfélaginu er miklu minna gagn að. Þegar læknir þarf að borga þjónustuaðila margfalt fyrir heimsókn við það, sem hann fær sjálfur fyrir vitjun, þegar hann greiðir 60 aura til almennings- þarfa af hverri krónu, sem hann vinnur sér inn, en sér allt í kringum sig fjölda manns, sem lifir svo kostnaðarsömu lífi, að hann getur aldrei látið sig dreyma um slíkt, en greiðir lítið eða ekkert í sameiginlegan sjóð, er þá ekki von að hann spyrji: Af hverju ég? Það þarf sterk bein til þess að láta strauminn belja um herðar sér og standa á móti, en þegar læknar missa fótanna og láta sig berast með straumnum niður á það siðferðisstig, sem mikill ■hluti þjóðarinar er kominn á og þá fyrst og fremst þeir, sem kjörnir eru til þess að vera í forystu, þá er vá fyrir dyrum. Eitt sinn sagði við mig ungur læknir: „I am just a damned healer", og átti við, að hann hefði ekki velt vísindalegum hlössum. Ég hefi ætíð metið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.