Morgunblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980 3 Enn framið póstrán í Sandgerði: Barði póstmeistarann í höfuðið og hafði á brott með sér 400 þús. Líðan Unnar póstmeistara eft- ir atvikum góð í gærkvöldi RÁN VAR FRAMIÐ í pósthúsinu í Sandgerði snemma í gærmorgun og er þetta i annað skiptið á tæpu ári sem það gerist. í gær hafði ræninginn upp úr krafsinu tæplega 400 þúsund krónur en í fyrra var fengur ræningjans 488 þúsund krónur. Unnur Þorsteinsdóttir póstmeistari í Sandgerði hefur orðið fyrir þeirri sérstæðu lífsreynslu að verða á vegi ræningjans eða ræningjanna í bæði skiptin. Þessi mynd var tekin eftir ránið 31. janúar í fyrra í gegnum afgreiðsiulúgu pósthússins. Talið frá vinstri: Unnur Þorsteins- dóttir póstmeistari, Anna Sveinbjörnsdóttir starfsstúlka í póst- húsinu og Jakob Tryggvason fulltrúi hjá Pósti og síma. í fyrra ógnaði ræninginn henni og neyddi hana til þess að opna peningaskáp pósthússins en hann hvarf síðan út í myrkrið með feng sinn. Það er öllu óljósara hvað gerðist í gærmorgun, þar sem Unnur hefur aðeins að litlu leyti getað gert sér grein fyrir því sem gerðist. Þó virðist líklegast að ræninginn hafi leynzt í myrkrinu fyrir utan pósthúsið þegar Unnur kom til vinnu klukkan laust fyrir 8.30. Virtist sem hann hafi ráðist að Unni um leið og hún var búin að opna útidyrnar. Unnur veitti mót- spyrnu og við það brotnuðu gler- augu hennar en ræninginn greip þá til þess ráðs að veita Unni þungt höfuðhögg svo að hún missti meðvitund. Tók ræninginn þvínæst lyklana af Unni, opnaði peninga- skáp pósthússins og tók þar pen- ingabauk, sem innihélt allmikið af seðlum og hafði þá á brott með sér. Meira var af peningum í skápnum, svo og ávísanir, en það skildi ræninginn eftir. Við höfuðhöggið hlaut Unnur heilahristing en hún rankaði brátt við sér og með aðstoð samstarfs- stúlku sinnar, sem komin var á vettvang, gat hún komið boðum til lögreglunnar í Keflavík. Eftir skoðun á sjúkrahúsinu í Keflavík var henni leyft að fara heim. Unnur Þorsteinsdóttir býr í Garði ásamt manni sínum Kristni ísaksen. Morgunblaðið hafði í gær- kvöldi samband við Kristin til þess að spyrjast fyrir um líðan Unnar. Kvað Kristinn líðan hennar góða eftir atvikum en hún væri skiljan- lega enn mjög miður sín eftir að hafa orðið fyrir þessari áras. Lýsing á ráninu í fyrra Það var 31. janúar 1979 að fyrra ránið var framið. Unnur Þorsteins- dóttir lýsti því á eftirfarandi hátt í samtali við blm. Morgunblaðsins: „Eg kom í vinnuna klukkan hálfníu eins og ég geri venjulega, því að mér finnst gott að ganga frá ýmsu áður en símstöðin opnar klukkan níu. Ég hafði að sjálf- sögðu læst, en þegar ég var nýkom- in inn var bankað. Það kom mér ekki á óvart í sjálfu sér, því að það er ekki óalgengt að fólk fái að bíða eftir rútunni hérna inni, sérstak- lega ef kalt er í veðri eins og var í dag. Ég var því alveg grunlaus þegar ég opnaði dyrnar en þá ruddist maðurinn inn, hrinti mér aftur á bak og lýsti með vasaljósi framan í mig um leið og hann slökkti loftljósið. Hótaði að skjóta Unni „Ég skýt þig ef þú lætur mig ekki hafa alla peningana," kallaði maðurinn um leið og hann rak eitthvað hart í bakið á mér og skipaði mér að fara inn á skrifstof- una. Eg vissi aldrei hvort það var byssa eða eitthvað annað, sem maðurinn hafði í hendinni, því að ég þorði ekki að snúa mér við vegna ógnana mannsins. Þegar við komum inn í skrifstofuna skipaði maðurinn mér að opna peninga- skápinn og síðan sagði hann mér að taka út ákveðinn kassa, þar sem peningarnir voru geymdir. Hann virtist eitthvað vera kunnugur þarna, því að hann benti ákveðið á kassann. Hann skipaði mér síðan að opna kassann og svo tók hann sjálfur alla þúsund og fimm þús- und króna seðla úr kassanum, en þeir voru í búntum. Við öðrum peningum leit hann ekki og hann vildi ekki sjá ávísanir. Maðurinn passaði sig mjög vel, hann snerti aldrei á neinu og gætti þess mjög vel að ég sæi aldrei framan í hann. Ég gat heldur ekki mikið gert með þennan harða hlut í bakinu allan tímann. Þegar maðurinn var búinn að ná peningunum snerist hann á hæli, opnaði hurðina og hljóp burtu. Angaði af Old-spice Ég játa það alveg hreinskilnis- lega að ég var svo dauðskelkuð að ég hafði ekki rænu á því að elta manninn út eða fylgjast með honum út um gluggann, það fyrsta sem kom upp í huga minn var að hringja í lögregluna. Ég gat aðeins gert mér grein fyrir því að maður- inn var í meðallagi hár og klæddur í bláleita úlpu með loðfóðri, úlpu af algengustu gerð. Hann hafði hett- una á höfðinu og hún var reyrð þétt upp að höfðinu svo hæpið var að ég hefði getað séð vel framan í manninn hvort sem er. Um aldur mannsins er erfitt að segja en líklega hefur hann verið ungur. Það var áberandi rakspíralykt af honum, lykt af Old-spice rakspíra. Átti að fram- kvæma ránið daginn áður? Ég varð ekki vör við það að maðurinn færi í bíl, líklega hefur hann verið gangandi. Vafalaust hefur hann vitað um það að ég kæmi oftast í vinnuna hálftíma áður en opnað var og síðan hefur hann beðið færis. Þegar ég kom í vinnuna á þriðjudagsmorguninn hafði ég það á tilfinningunni að einhver væri í felum bak við hús en aðgætti það ekki nánar. Þennan morgun var kona samferða mér inn í húsið og tel ég víst að maðurinn hafi þarna verið í felum en ekki lagt í að framkvæma ránið vegna konunnar, hann hafi svo látið til skarar skríða daginn eftir þegar ég var ein.“ Dreymdi fyrir ráninu Því er við að bæta að Unni dreymdi fyrir ráninu í fyrra, eins og þá kom fram í samtali við hana hér í blaðinu. Dreymdi hana svarta veru, sem ágirntist það sem var í peningaskápnum og þessi vera sagði hvað eftir annað: „Ég vil fá allt nema ávísanir." Sagði Unnur að eftir að hana dreymdi þennan draum hafi hún allt eins átt von á því að pósthúsið yrði rænt. Hannes Arnórsson, fyrrverandi póst- og símstjóri í Sandgerði, hafði svipaða sögu að segja. Hann dreymdi draum, sem hann síðar setti í samband við ránið. Engar spurnir hefur Morgun- blaðið haft af því nú hvort ein- hvern dreymdi fyrir þessu síðara ráni né mun það liggja fyrir hvort ræninginn angaði af Old-spice rakspíra eins og í fyrra ráninu og lýst er hér að framan. Starfsmenn Pósts og síma eru þarna að koma fyrir gögnum 1 peningaskáp pósthússins, sem ræninginn opnaði eftir að hafa tekið lyklana af Unni póstmeistara. Norræna málaárið: Tungumál Norð- urlandaþjóðanna í brennideplinum NORRÆNA málaárið hefst nú frá áramótum, en norrænu félögin ákváðu fyrir tveimur árum að gangast fyrir norrænu málaári árið 1980. Árið er hugsað sem tilefni og upphafsár þess að vekja athygli Norðurlandaþjóðanna á tungumáli hverrar annarrar, en segja má að burðarásinn í nor- rænu samstarfi sé gagnkvæmur skilningur á máli og menningu hvers annars. Upphafið að undirbúningi ársins var það, að í hverju Norðurland- anna fyrir sig voru skipaðar mála- ársnefndir og var hlutverk þeirra að bera fram hugmyndir og tillög- ur um það hvað gera mætti í tilefni ársins. íslenzka nefndin kallaði saman blaðamannafund í gær til kynningar á starfi hennar, en nefndina skipa Aðalsteinn Davíðs- NORRÆNA MÁLAÁRIÐ Merki ársins. Hnötturinn og ímynd átta tungumála. þeirra sem töluð eru á Norðurlönd- um. Merkið er hannað af Svíanum Michel Östlund. Hjálmar ólafsson, formaður norræna félagsins, Aðalsteinn Daviðsson, formaður islenzku málanefndarinn- ar, Hjörtur Pálsson og Haraldur ólafsson. Á myndina vantar Guðrúnu Egilson og Stefán Karlsson sem jafnframt eiga sæti i nefndinni. son, Guðrún Egilson, Haraldur Ólafsson, Hjörtur Pálsson, og Stef- án Karlsson. Á fundinum kcrtn fram að eðlilegt og sjálfsagt þyki að hefjast handa við að sýna fram á skyldleika tungna Norðurlanda- þjóðanna þar sem honum sé til að dreifa eða að minnsta kosti að vekja athygli á og virðingu fyrir þeirri menningu sem málin hafa að geyma. Tillögur nefndarinnar í þá átt eru m.a. þær, að samnorræn fréttamiðlun verði efld og bóksala, bækur og önnur norræn menning- artæki fái frekari kynningu í fjölmiðlum, að staðið verði fyrir frekari kynningum og sýningum á norrænu efni og er norræn bóka- sýning þegar fyrirhuguð í Nor- ræna húsinu í marsmánuði n.k. Má segja að hér sé áróðursmál á ferðinni, þar sem hvetja á fólk á sem flestum sviðum til þess að hugleiða hversu ríkur þáttur tungumálin eru í menningararf- leifð þjóðanna. Benda má á þá furðulegu tregðu sem oft gætir hjá Dönum, Svíum og Norðmönnum á því að lesa mál hvers annars og tregðu íslendinga við að lesa t.d. færeyskar bækur. Þá má nefna einangraðri mál eins og samísku og grænlenzku sem menn þekkja lítið til. í skólum verður ársins minnst veturinn 1980—1981 þar sem alm- anaksárið og skólaárið fara ekki saman. Er það von þeirra manna sem að undirbúningi þessa árs hafa staðið, að það verði kveikja að varanlegum áhuga fólks á Norður- landamálum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.