Morgunblaðið - 03.01.1980, Page 12

Morgunblaðið - 03.01.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980 Deilur um krónur, sem þjóðin á ekki til, verður að setja niður Áramótaávarp Benedikts Gröndal forsætisráðherra Góðir íslendingar Það fer vart á milli mála, að tuttugasta öldin — öldin okkar — verður talin ein hin stór- brotnasta í gervallri sögu mannsins. Um þessi áramót líta margir um öxl og íhuga áttunda áratug aldarinnar, og sýnist sitt hverj- um. Ef til vill líta einhverjir fram um veg til þeirra tveggja áratuga, sem eftir eru. Það er ekki ástæðulaust, því yfirgnæf- andi meirihluti núlifandi Islend- inga á fyrir höndum að lifa árið 2000. En lítum sjálfum okkur nær. Við nútíma aðstæður er sjald- an réttmætt að fullyrða, að eitt ár hafi verið með öllu gott eða með öllu illt. Tæknin og fjöl- breytni mannlífsins sjá fyrir því, sem Sveinbjörn Egilsson hafði einfaldari og sannari orð um í einu ljóða sinna: Guð það hentast heimi fann það hið blíða hlanda stríðu. Alit er f?ott, sem gjörði hann. Til hins blíða á líðandi ári tel ég fyrst, að hér á landi var næg atvinna á sama tima sem millj- ónir gengu atvinnulausar í grannlöndum okkar. Sjávarafli var mjög mikill, enda þótt veiðar væru takmarkaðar til að hlífa viðkvæmum fiskistofnum. Af- urðaverð hélst gott og með mikilli framleiðslu á flestum sviðum hefur þjóðin án efa haft meira að bíta og brenna þetta ár en nokkru sinni fyrr. En það hið blíða var blandað stríðu. Hafís settist að landi og harðindi voru í víðlendum hér- uðum. Úti í heimi gerðust óvænt tíðindi, sem á nýjan leik stór- hækkuðu olíuverð, svo að þjóðin beið mikinn skaða af. Þegar á allt er litið, hefði afkoma þjóðarbúsins átt að vera þolanlega góð þetta ár, ef ekki hefði geisað óðaverðbólga, sem stofnaði öllu hinu í alvarlega hættu og olli ómældum erfiðleik- um. íslendingar hafa lengi háð harða Iífsbaráttu og oft átt við hrikaleg náttúruöfl að etja. Enn erum við peð á taflborði örlag- anna, en jafnvel peð hafa áhrif á skákina. Við ryðjum nýja vegi um harðindasvæði; við ráðunist gegn glóandi hrauni með vatnsslöngum; jarðýtur ryðja snjóskriðum burt — ogþjálfaðar sveitir fara hvert sem er til björgunar, ef mannslíf eru í hættu. En því rifja ég upp lífsþrótt þjóðarinnar í baráttu gegn næst- um ósigrandi náttúruöflum, að skáldið sagði í sama kvæði: Ilægt i logni hreyfir six sú hin kalda undiralda. ver þvi ætið var um þig. Sú undiralda, sem ég á við, er hið innra ósamkomulag þjóðar- innar og þær félagslegu og sálrænu hættur, sem hún hefur áskapað sér að mestu leyti sjálf. Óeining og deilur settu mjög svip sinn á landsstjórnina árið 1979. Samstarf í ríkisstjórn rofnaði á haustdögum, og kallað var til kosninga í byrjun vetrar í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar. Bráðabirgðaríkisstjórn hefur setið að völdum og reynt að sigla framhjá boðum. Eftir kosningar hófust fljót- lega tilraunir til myndunar ríkisstjórnar, sem enn hafa ekki borið árangur. Allir góðviljaðir menn óska lýðveldinu sem fyrst nýrrar og varanlegrar stjórnar, svo að upp verði tekin glíman við þá stríðu, sem okkur verður sjálfum um kennt, og styrkur okkar verði óskertur í baráttu við þau öfl, sem við fáum ekki við ráðið. Við lifum nú áramót stjórn- árkreppu í landinu. Það er ekki í fyrsta sinn, og hefur ræst úr slíku áður fyrr. Ég treysti því, að svo verði enn að þessu sinni. Meðan við bíðum næstu ríkis- stjórnar er ekki úr vegi að líta nokkru nánar á þær æðstu stofnanir þjóðfélagsins, sem nú reynir hvað mest á. Fyrsta grein stjórnarskrár okkar hljóðar svo: „ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn." Önnur grein er á þessa leið: „Alþingi og forseti Islands fara saman með löggjafavaldið. For- seti og önnur stjórnvöld sam- kvæmt stjórnarskrá þessari og öðrum landslögum fara með framkvæmdavaldið. Dómendur fara með dómsvaldið. Þessi grein mælir fyrir um þrískiptingu valds innan lýð- veldisins, svo að ekki verður um villst. Hefur hugmyndin um þrískiptingu valdsins verð rót- gróin hér á landi, eins og víða um heim, en hún er í raun réttri arfur frá síðustu öld, sem bíður vandlegrar endurskoðunar, eins og margt annað í hinni fornfá- legu stjórnarskrá okkar. Hugmyndin um þrískipt vald er eignuð franska aðalsmannin- um Montesquieu, sem uppi var á 18. öld. Hann fékk þessa hug- mynd í Bretlandi og hún hefur hlotið mikla útbreiðslu af sögu- legum ástæðum. En hún hefur líka hlotið gagnrýni, og haldið er fram, að Montesquieu hafi ger- samlega misskilið breska pólitík, einmitt þegar þingræði var að festa þar rætur. Dómsvaldið verður að sjálf- sögðu að vera algerlega óháð, en um hitt tvennt, löggjafavald og framkvæmdavald, ríkir mikill vafi í framkvæmd. Viðkvæmustu stundir hvers stjórnskipulags eru, þegar skipt er um valdhafa. Slík skipti standa nú yfir hér á landi, og ekki fer á milli mála, að allt veltur á því Alþingi, sem þjóðin kaus í upphafi þessa mánaðar. Og þingið hefur ekkert veiga- Annáll Skagafjarðar 1979 Tíðarfar Heildaryfirlit um tíðarfar árs- ins 1979 er sagt: Að sumar hafi ekki komið fyrr en' í október er sæmilega tíð gerði þafum tíma. Janúar var einn harðasti sem komið hefir síðan 1918, aðeins þrjá daga mánaðarins var frost- laust en ekki var þó mikil fönn svo að jörð fraus mikið. Febrúar skilaði éljaveðrum miklum og oft um 10 gráðu frosti; snjóa gerði þó ekki mikla, en það má aftur segja um marz að hálfan mánuðinn voru hríðar og stundum illviðri enda var þá ís nálægt landi, enda rak hanri upp að landi í apríl og fyllti suma firði, og þá sérstaklega á Norðausturlandi og gerði þar og víða annars staðar mikil vand- ræði, sérstaklga við sjávarsíðu. Ekki batnaði þó liði að vori því að maí er talinn einn hinn harð- asti síðan um aldamót, alla daga mánaðarins nema tvisvar var frost um nætur og oft um hádag- inn, 17. og 22. þess mánaðar var stórhríð. í júní komu fáir dagar hlýir og þrisvar snjóaðijjá í fjöll og jafnvel niður að sjó. A sumum bæjum í útsveitum og dölum komu tún svört undan snjónum og sú jörð náði sér ekki til að spretta það sumar. Fjórum sinnum snjóaði í fjöll í júlí, en þeir fáu sem gátu byrjað slátt síðast í mánuðinum náðu þó nokkrum heyjum með góðri nýt- ingu. I lok þessa mánaðar var það til merkilegra tíðinda sagt að fiskifluga og marglitta í sjó höfðu ekki sést. Hálfan mánuð af ágúst voru þokur og kuldi a.m.k. í útsveitum, en ekki miklar rign- ingar svo að einstaka bændur sem höfðu góð tæki og súgþurrkun gátu svælt inn heyjum, og lítið batnaði í september því að hann var talinn einn kaldasti og erfið- asti í manna minnum, marga daga snjóaði þá í fjöll en rigndi á láglendi, og jafnvel fennti fé í fjöllum og dalabotnum. Á þessum tíma var víða orðið vandræða- ástand með heyskap, en október bætti mikið úr, því þá má segja að sumarið kæmi fyrst og náðist þá inn mjög mikið af heyjum þó ekki væri það allt vel verkað. Nóvem- ber var einnig sæmilegur, sér- staklega á innsveitum, en í úthér- aði tóku sumir þá seinustu hey sín blönduð snjó. Þegar þetta er skrifað, um jólaleytið, hefir verið óstillt tíðarfar en snjólaust á láglendi og því ekki erfiðleikar á vegum nema af rokbyljum sem komið hafa og gert vegfarendum erfitt fyrir. Búskapur Tíðarfar og fleiri vandræði hafa orðið bændum þungt í skauti svo að þetta ár telst eitt hið erfiðasta sem núlifandi bændur hafa lifað. Vegna veðurfars og slæmrar sprettu byrjaði heyskapur síðast í júlí og frani eftir ágúst. Þeir sem fyrst gátu hafið slátt náðu nokkru af góðum heyjum, en margir bændur sem síðar byrjuðu lentu í vandræðum og fengu aðeins lítil og léleg hey seint að hausti. I mars kom upp nokkur óhreysti í kúm, og vegna vorharðinda og heyskorts urðu margir bændur fyrir verulegu tjóni. Um páska- leytið var talið að um l'A til 2 metra klaki væri í jörðu, og klaki fannst sumsstaðar í jörðu allt sumarið. Kýr voru víða látnar út á lítið gras um 20. júní en um mánuði fyrr 1978. Spretta var rýr, sérstaklega þar sem klaki var í jörðu; þó var þetta mjög misjafnt eftir legu túnanna. Bændur urðu fyrir nokkrum vanhöldum á fénaði þar sem töluvert fannnst af dauðu fé í fjöllum, og hafði dýrbítur einnig orðið aðgangsharður, því að — eftir Björn í Bæ Björn Jónsson í.Bæ greinilega hafði tófa lagt á ólík- legum stöðum og komist þar út með afkvæmi sín. Farið var að gefa og hýsa kýr snemma í september en geldneyti voru látin ganga langt fram í október J>ví að þá batnaði veðurfarið. Ovénju mörgu var slátrað, bæði af sauðfé, kúm og hrossum. Meðalvigt dilka reyndist um 2 kg. minni en 1978. Ásetningur er til muna minni en áður; veldur þar aðallega miklu minni heyforði og lélegri en áður. Efnaleg afkoma bænda er talin tii muna verri en áður og rekstr- arhorfur slæmar á næsta ári. Framkvæmdir Þó erfitt árferði sé þá er töluvert unnið og framkvæmt því að viðhald er þó nauðsyn og framkvæmdahugur er alltaf hjá mönnum. Byrjað var á fyrirtæki um fiskigöngu og uppeldi við Höfða- vatn og í undirbúningi fiskeldis- stöð á Hólum, byrjað á hesthús- byggingu þar og víða í héraðinu byggt og framkvæmt eftir því sem tök leyfðu og efnahagur. I vega- gerð var mikið unnið og eru Skagfirðingar a.m.k. flestir ánægðir með viðhald og fram- kvæmdir. Gerð var brú á Grafará og vegur lagður að henni beint af Siglufjarðarvegi frá Hofsárbrú, Hofsós fór því að nokkru úr beinu vegasambandi við aðalveg. Nýr vegur var opnaður um norðanvert Hegranes frá Siglufjarðarvegi að vestari Héraðsvatnabrú. Víðar í héraðinu var unnið að lagfæringu vega. Félagsmál og skemmtanir Mikið var um fundarhöld sem einkenndust nokkuð af stjórn- mála- og atvinnumálaumræðum, og vantaði ekki umræður um almenn vandræði sem að steðja og voru þar ekki allir sammála frek- ar en gengur. Mikið var um söngstarfsemi eins og alltaf er í Skagafirði; störfuðu þar tveir söngskólar með allt að 300 riemdur alls. Söngfélög lögðu mikið starf að baki og héldu söngskemmtanir. Þorrablót voru haldin næstum í hverjum hreppi. Árshátíðir og sæluvika Skagfirð- inga voru sem áður haldnar með miklum glæsibrag. Sjósókn og aflabrögð Togararnir 3 setja mestan svip á sjósókn hér við fjörðinn enda gefa þeir að mestu vinnandi fólki við sjávarsíðu þá vinnu og lífsbjörg sem fólkið þarf, og telja allir þar vel að verið. Er talið að því fyrirtæki sé vel stjórnað og frystihúsin hafi gefið góða at- vinnu. Smærri bátar sem gerðir eru út við Skagafjörð hafa átt í nokkrum erfiðleikum, a.m.k. ann- að slagið og er sagt að þeir berjist nokkuð í bökkum. Þó hafa nýir bátar bæst við þann flota sem fyrir var svo að hugur virðist töluverður hjá sjómönnum að láta ekki deigan síga í útgerð Skagfirð- inga. Grásleppuveiði var minni en áður enda hamlaði ís nokkuð veiðum. Dauðsföll og slysfarir Það hefir orðið óhuggulega mik- il aukning á slysum og þá sér- staklega á vegum, það er eins og bættir vegir verði á stundum slysavaldar, því að þá er eins og vegfarendur hafi ekki eins mikla aðgát. Árið byrjaði með því að 6. janúar varð alvarlegt bílslys utan við Varmahlíð þar sem 7 manns lentu í bílaárekstri og illt er frá því að segja að það er vart hægt upp að telja þau slys sem orðið hafa þó segja megi að dauðsföll af þeirra völdum hafa orðið færri en efni stóðu til í mörgum tilfellum, en ókannaðir eru þeir fjármunir sem af slysum þessum verða. Á hverju ári hverfa margir úr tölu hinna lifenda, og þó margt af því fólki sé mér minnisstætt þá vil ég hér aðeins nefna merkiskonuna Sigrúnu Pálmadóttur frá Reyni- stað sem var jörðuð 27. janúar. Var hún héraðskunn höfðings kona, ekkja Jóns Sigurðssonar. alþingismanns Skagfirðinga. Ýmislegt Eins og árið áður hafa stjórn- mál, atvinnumál og ýmsir alvar- legir atburðir meðal þjóðarinnar átt mest ítök í hugum okkar og allir virðast hafa nóg um sín málefni að hugsa. Mjög mikið rak af timbri á fjörur 22. og 23. apríl og varð það mörgu búi drjúg tekjulind. ís tók af Höfðavatni 7. júní en síðastliðið ár 10. maí. Samþykkt var að sameina lestr- arfélög í Hofsós- og Fellshreppi en framkvæmd á því er ekki ennþá hafin. Árið einkegndist hér eins og annars staðar af verðbólgu- vanda og óvissu um alvarlega framvindu í atvinnu- og efna- hagsmálum. Björn Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.