Morgunblaðið - 03.01.1980, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980
1 lok frumsýningar á Kirsuberjagarðinum eftir Anton Tsjekof s.l. laugardag hjá Leikfélagi Reykjavikur i Iðnó
var Þorsteini Ö. Stephensen sérstaklega fagnað. Hann átti nýverið 75 ára afmæli og leikur sér að þvi að leika
stórhlutverk á fjölunum i Iðnó um þessar mundir.
Vigdis Finnbogadóttir leikhússtjóri flutti honum árnaðaróskir sem siungum listamanni með sigildri leiklist, en
Þorsteinn og Kirsuberjagarðurinn eru nákvæmlega jafn gamlir, rekja báðir uppruna sinn til ársins 1904.
Uppsagnir réðust af gildandi
starfsaldurslista flugmanna
DC-8 og DC-10 véla Flugleiða
95 hús tengd Hita
veitu Ölfushrepps
KYNNINGARDEILD Flugleiða
hefur sent eftirfarandi greinar-
gerð i framhaldi af fréttum um
uppsagnir flugmanna Flugleiða:
Eins og fram hefur komið í
fréttum hafa Flugleiðir á yfirstand-
andi ári lent í verulegum rekstrar-
örðugleikum og neyðst til þess að
segja upp mörgu starfsfólki. í fyrstu
bitnaði þetta á skrifstofu- og af-
greiðslufólki en síðar á flugliði og
flugvirkjum.
Síðan frétt Flugleiða var birt s.l.
föstudag þann 28. desember hafa
fjölmiðlar flutt yfirlýsingar for-
manns Félags Loftleiðaflugmanna.
Þar sem verulegs misskilnings gæt-
ir í málflutningi hans er nauðsyn-
legt að eftirfarandi komi fram:
Þegar Ijóst varð á s.l. sumri að
draga yrði úr kostnaði við rekstur
félagsins og að samdrátturinn
myndi bitna bæði á N-Atlantshafs-
fluginu og innanlandsfluginu var
meðal annarra níu flugmönnum úr
Félagi íslenskra atvinnuflugmanna
og níu úr Félagi Loftleiðaflugmanna
sagt upp störfum frá og með 1.
október 1979. í reynd hefur þessu
þannig framundið að vegna utan-
aðkomandi verkefna hafa níu fé-
lagsmenn í Félagi Loftleiðaflug-
manna verið endurráðnir til þriggja
mánaða í senn nú síðast til 1. apríl
1980. Af þeim níu félögum í F.I.A.
sem sagt var upp störfum hafa
aðeins tveir verið endurráðnir en sjö
hafa leitað sér vinnu annarsstaðar.
Það er því alger misskilningur sem
formaður F.L.F. heldur fram að
uppsagnir Loftleiðaflugmanna hafi
komið til vegna innanlandsflugsins.
Þær voru vegna samdráttar á
N-Atlantshafsleiðinni.
Um þær frekari uppsagnir sem nú
eru á döfinni er þetta að segja:
Vegna stórfellds taps á flugi yfir
N-Atlantshaf hefur félagið ákveðið
að draga verulega úr ferðatíðni og
sætaframboði. Þetta veldur að sjálf-
sögðu að færri flugliða er þörf á
þessum flugleiðum. Þar sem enginn
sameiginlegur starfsaldurslisti
þeirra flugmanna sem starfa hjá
Flugleiðum er fyrir hendi varð ekki
hjá því komist að uppsagnir réðust
af gildandi starfsaldurslista þeirra
flugmanna sem starfrækja DC-8 og
DC-10 vélar félagsins, það er flug-
mönnum í Félagi Loftleiðaflug-
manna.
Þessar aðgerðir sem og aðrar
uppsagnir og samdráttur sem nauð-
synlegur hefur orðið á síðustu mán-
uðum harma stjórn og forráðamenn
félagsins vissulega.
Flestum mun kunnugt um þann
glundroða og ófremdarástand sem
ríkir í félagsmálum flugmanna
sjálfra. Skömmu eftir stofnun
Flugleiða klofnaði Félag íslenskra
atvinnuflugmanna. Þessi klofningur
og alls konar vandræði sem af
honum hafa leitt hefur stórskaðað
Flugleiðir og flugmenn sjálfa. Hon-
um er meðal annars um að kenna
hvernig nú er komið þeim uppsögn-
um á flugliðum, sem að ofan greinir.
Þrátt fyrir löng viðtöl við forráða-
menn þessara félaga og marga
fundi með þeim er með ólíkindum
hve forráðamenn flugmannafélag-
anna hafa oft á tíðum verið skiln-
ingslausir á þarfir Flugleiða. Á
yfirstandandi ári skiptust flug-
mannafélögin á um að torvelda
rekstur félagsins. Hér skulu aðeins
nefnd tvö dæmi. I ársbyrjun, þegar
Flugleiðir voru um það bil að taka
DC-10 þotuna í notkun hafði náðst
samkomulag við Félag íslenskra
atvinnuflugmanna um að af níu
flugstjórum á nýju þotunni yrðu
tveir úr þeirra röðum. Hinir úr
Félagi Loftleiðaflugmanna.
Þessu neituðu Loftleiðaflugmenn
algerlega og einnig því að fara í
þjálfun á þotuna. Það varð til þess
að félagið varð að ráða erlenda
flugmenn til þess að fljúga DC-10
fyrstu tvo mánuðina sem hún var
hér í flugi og allri þjálfun seinkaði.
Þegar svo stjórn Flugleiða gekkst
inn á kröfur Félags Loftleiðaflug-
manna um að allir flugstjórar yrðu
úr þeirra félagi hófu hinir, þ.e.
flugmenn hjá Flugfélagi íslands
verkfallsaðgerðir sem stóðu í þrjá
mánuði, vegna s.n. launajafnaðar-
kröfu, sem einnig stórsköðuðu félag-
ið. Svo mætti halda áfram að telja.
Þetta er því hryggilegra sem flest
allir flugmenn Flugleiða úr hvoru
félaginu sem er, eru traustir og
góðir starfsmenn sem gera sitt
besta til þess að flugið gangi vel og
eðlilega og sýna lengst af mikinn
þegnskap í störfum sínum.
Þá fullyrðingu formanns Félags
Loftleiðaflugmanna að allt sé gert
til þess að afmá nafn Loftleiða er
óþarfi að ræða. Bæði gömlu félögin
Loftleiðir og Flugfélag íslands voru
sameinuð í Flugleiðir sem er sam-
eiginlegt nafn og enda sameinað úr
nöfnum beggja félaganna.
Porlákshófn, 2. jan.
NÚ ER stór draumur Þorláks-
hafnarbúa að rætast og verða að
veruleika þar sem er Hitaveita
Ölfushrepps. Tenging húsa hér
við veituna hófst upp úr síðustu
mánaðamótum og að sögn hita-
veitustjórans, Guðlaugs Sveins-
sonar, hafa nú verið tengd 95
hús.
Hiti í borholunni sem er við
Bakka í Ölfusi er 118 gráður.
Vatnið fer þá í gegnum gufuskilju
þar á staðnum og lækkar hitastig-
ið þá niður í 100 gráður, en þá er
því hleypt á aðveituæðina. En
þegar það kemur hingað til Þor-
lákshafnar er það 80 gráðu heitt.
Svona standa málin í dag en eftir
er að einangra svonefndar þenslur
Jóhann með
6V2 vinning
JÓHANN Hjartarson, sem þessa
dagana keppir á Evrópumeist-
aramóti unglinga yngri en 20
ára í skák, vann skák sína í
tólftu umferð gegn Pólverjanum
Ratinivski í 30 leikjum.
Jóhann sagði í samtali við Mbl.
að hann hefði haft heldur betri
stöðu frá upphafi en Pólverjinn
hefði síðan leikið af sér í lokin.
Eftir umferðina í gær er Jó-
hann með 6 V2 vinning af tólf
mögulegum og sagði Jóhann að ef
hann næði sigri í síðustu umferð-
inni sem tefld verður á morgun,
gæti hann með smáheppni náð
fimmta sætinu á mótinu.
FÆÐINGUM á fæðingadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri fjölgaði um nálega 22% á
árinu 1979 frá því sem var árið
1978. 1979 voru 429 fæðingar, þar
af sex tvíburafæðingar, þannig að
alls fæddust 435 börn á árinu. Arið
1978 fæddust hins vegar aðeins
354 börn.
Þegar þetta er skrifað um klukk-
an 17.00 2. janúar hafa fæðst fjögur
börn frá áramótum og það fimmta
er um það bil að sjá dagsins ljós.
Fyrsta barnið á árinu fæddist
klukkan 04.45 á aðfaranótt 1. jan-
úar s.l.
á aðveituæðinni sem er samtals
e'inn kílómetri. En vegalengdin frá
borholunni hingað til Þorláks-
hafnar eru 12 km. Þegar þessari
einangrun er lokið nýtist hitinn að
sjálfsögðu mun betur. Þetta mikla
verk hefur gengið framar vonum
vel. Því mörg hafa ljónin verið á
veginum þann tíma sem verkið
hefur staðið yfir, m.a. hefur oft
staðið á afgreiðslu nauðsynlegra
hluta t.d. forhitara, en einn slíkur
er í hverju húsi hér og svo nú
síðast einangrunarefni á aðveitu-
lögnina og er því sem fyrr segir
enn ekki lokið og ekki alveg séð
hvert hitastig veitunnar verður
hingað komið. Hiti er ágætur í
húsum hér nú þegar og orka er
ómæld enn sem komið er. Nánar
verður svo skýrt frá þessu máli
síðar þegar hitaveitan hefur verið
tekin endanlega í notkun svo sem
varðandi kostnað við verkið o.fl.
Ragnheiður.
Kviknaði í
út f rá arni
ELDUR kom upp í íbúð á 2. hæð
hússins Bárugata 18 um áramót-
in.
Sprunga hafði myndast í
hleðslu í arni og neisti komist í tré
bakvið arininn. Slökkviliðið kom
fljótt á staðinn og var eldurinn
slökktur á skammri stundu en
talsverðar skemmdir urðu á íbúð-
inni, þar sem rífa þurfti upp
parkett til þess að komast að
eldinum.
Áramótin voru hér einstaklega
friðsamleg samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem fengust hjá lögreglunni.
Enginn gisti fangageymslur á ný-
ársnótt og lá ekki við að svo þyrfti.
Veður var stillt og bjart, glamp-
andi tunglsljós, en nokkuð hart
frost.
Mikið var um flugelda og skraut-
elda ýmiss konar og brennur voru á
fjórum stöðum. Þá kveiktu skátar
að venju ártöl í Vaðlaheiði, með
stórum ljósastæðum gerðum úr
blysum. Fyrst ártal ársins 1979 sem
síðar breyttist í 1980 um áramótin.
SV.P.
Sparnaðar- og samdráttar-
aðgerðir á öllum sviðum
— segir Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða
TÖLUR um tapreksturinn á
síðasta ári liggja enn ekki fyrir,
en því er ckki að leyna að
verulegur halli varð vegna mark-
aðsaðstæðna á Amerikuleiðinni
og eldsneytishækkunin fór langt
framúr því sem ráð hafði verið
fyrir gert, sagði Sigurður Ilelga-
son forstjóri Fiugleiða er Mbl.
ræddi við hann í gær.
Sigurður var að því spurður
hvort sótt hefði verið um niður-
fellingu á lendingagjöldum á við-
komustöðum félagsins:
— Sótt var um niðurfellingu
lendingagjalda í Luxemborg fyrir
nokkrum mánuðum og er enn
beðið svars, en við höfum einnig
leitað eftir því við íslensk yfirvöld
að fá felld niður lendingagjöldin í
Keflavík og er það mál nú til
skoðunar hjá þeim. Nema þau
gjöld 3—4 hundruð milljónum
króna á ári, en lendingagjöld í
Bandaríkjunum eru tiltölulega
Iág og því hefur ekki verið sótt um
niðurfellingu þeirra.
Tvær þotur Flugleiða eru nú á
söluskrá svo sem fram hefur
komið í Mbl., ein Boeing 727 og ein
DC-8.
— Ákveðið var að hafa einni
flugvél færra í Atlantshafsflug-
inu en verið hefur og því hefur
verið sagt upp áhöfnum DC-8
véla, sem að mestu hafa annast
það flug. Eftir verða 15 áhafnir
sem fljúga DC-8 og DC-10 þotum
félagsins og 11 áhafnir er fljúga
Boeing vélunum auk þeirra er
starfa á Fokker vélunum. Vegna
þess að hjá flugmönnum Flug-
leiða eru nú 2 starfsaldurslistar
koma uppsagnirnar eingöngu nið-
ur á þeim er starfa á DC-8 þotum
úr því að fækka á um slíka vél.
Hefur verið rætt um að selja
DC-10 þotuna?
—Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um það, en allt hefur
komið til tals og við veltum öllum
möguleikum fyrir okkur. Sparn-
aðar- og samdráttaraðgerðir
verða að koma til á öllum sviðum
og verður þannig einnig fækkað
starfsmönnum Flugleiða erlendis,
en ekki hefur enn verið ákveðið
endanlega með það.
Kemur samdrátturinn í fluginu
ekki niður á hótelrekstri félags-
ins?
— Samdrátturinn hefur án efa
áhrif á hótelreksturinn að vetr-
arlagi, en við vonum að það verði
ekki mikið og á sumrin ætti að
geta verið áfram góð nýting.
Þá var Sigurður að síðustu
spurður um væntanlegar viðræð-
ur við Luxemborgarmenn:
— Hugmynd er uppi um það
meðal Luxemborgarmanna að
stofna flugfélag í Luxemborg til
að annast flug á langleiðum, en
flugfélag þeirra, Luxair, annast
eingöngu flug á styttri leiðum.
Ekki liggur fyrir hvernig stofnun
þessa félags muni bera að verði af
henni, en Flugleiðum hefur verið
boðin þátttaka vegna aðildar að
Cargolux sem einnig yrði eigandi,
en félagið yrði eign einkaaðila.
Sagði Sigurður að viðræður
þessar stæðu fyrir dyrum á næst-
unni og myndu þá fulltrúar frá
Luxemborg koma hingað til lands.
22% aukning fæð-
inga á Akureyri
Akurcyri, 2. ianúar.