Morgunblaðið - 03.01.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980
27
Gunnar lokaði millihurðinni og
stakk sverum nagla, sem hékk í
bandi, í rifu svo hurðin hélst
lokuð. Hann kveikti á rafmagns-
ofninum og nuddaði saman lúkum,
greip teak-kubb og handlék. Svo
opnaði hann fyrir útvarpið,
mannrödd heyrðist eftir dálitla
stund, harmonikkuspil, svo
prump. Gunar barði í útvarpið. Þá
þagnaði það.
„Andskotans drasl.“
Gunnar sagaði stubb af planka
úr brenni, velti honum fram og til
baka, teiknaði á hann með blýanti.
Brátt setti hann kubbinn í
skrúfstykkið og byrjaði að hefla,
raspa, blóta og hrósa sjálfum sér.
Næstu kvöld fram að jólum var
hann í skúrnum. Úr skúrnum
glumdi dægurtónlist frá transis-
tortæki og ljósið úr glugganum
lýsti á snjóinn í rabbarbaragarð-
inum.
„Ertu að sfníða eitthvað úti í
skúr,“ sagði móðir hans.
„Nei. Nei. Ég er bara að klára að
smíða böndin í nýja bátinn."
Klukkan sex á aðfangadags-
kvöld borðuðu Gunnar, faðir hans
og móðir jólamatinn; svínasnitsel
með rauðkáli og brúnuðum kart-
öflum. I eftirmat var möndlubúð-
ingur með þeyttum rjóma. Með
matnum var jólaöl og rauðvín.
Þau sátu við sporöskjulagað eikar-
borð, á því var hvítur dúkur og
koparkertastjaki með fimm kert-
um. I stofuglugganum var ljósa-
sería.
Víð gluggann stóð gervi-jólatré
og pakkar upp við fótinn.
„Svakalega er þetta svínakjöt
saðsamt."
„Þú þarft nú eki að borða svona
hratt.“
Þarna voru tvær samliggjandi
stofur. Skeinkur, skápur með
glerhurð, pendúl-klukka, stand-
lampi með stórum skerm með
kögri var í annarri en í minni
stofunni var sófi, innskotsborð og
stólar með útsaumuðu áklæði.
Ljós var á hverri peru. Veggir
höfðu verið skrúbbaðir og nýjar
gardínur settar upp. Gunnar var
klæddur ljósgráum jakkafötum,
svartri skyrtu og með blágrátt
silkibindi. Móðir hans angaði af
ilmvatni, með nýlega hárlagningu,
í samkvæmiskjól. Gamli maður-
inn var nýgreiddur, glansandi í
framan, í gráköflóttum jakkaföt-
um og með mjóa slaufu. Það skipti
engu hver fékk möndlupakkann,
þau borðuðu öll sælgætið úr hon-
um.
Gunnar hjálpaði móður sinni
við að bera leirtauið inn í eldhús,
faðirinn gekk um gólf og púaði
vindil. Óhreint leirtau hrúgaðist
upp í eldhúsinu. Þau voru fimm
systkinin, Gunnar var yngstur.
Ein systirin hafði fyrir sið að
koma á aðfangadagskvöld og biðu
þau þrjú með að opna pakkana
þangað til. Loks var dyrabjöllunni
hringt. Faðirinn fór til dyra,
einhver kom inn og stappaði af sér
snjó.
„Við ætluðum aldrei að komast,
búin að vera hálftíma á leiðinni".
„Er svona léleg færð?“
„Það er blindbylur á Hafnar-
fjarðarveginum. Margir bílar hafa
verið skildir eftir“.
„Jæja. Gleðileg jól“.
„Gleðileg jól“.
Útihurðinni var skellt. Inn
höfðu komið kona á miðjum aldri
með ljóst hár og bauga undir
augum, dökkhærður maður með
snöggklippt yfirvaraskegg og ung
stúlka. Fólkið kyssti hvert annað.
Nokkru seinna sátu þau öll í
litlu stofunni, á innskotsborðum
vorurauðvínsglös, sælgætisshár og
bauga undir augum, dökkhærður
maður með snöggklippt yfirvar-
askegg og ung stúlka. Fólkið
kyssti hvert annað.
Nokkru seinna sátu þau öll í
litlu stofunni, á innskotsborðum
voru rauðvínsglös, sælgætisskálar
og vindlar í öskubökkum. Um-
búðapappír í kjöltu flestra. Stúlk-
an las á pakka og færði. Sáust
gleðibros og glampar ía augum.
Karlmennirnir höfðu fengið bæk-
ur og vindlakassa, konurnar bað-
vigtar eða útflúraða diska til að
hengja upp á vegg. Gunnar fékk
handklæði, þrjár drykkjarkönnur
og bók.
„Nei. Sjáið hvað ég fæ frá
Gunnari", sagði móðirin og sýndi
staut úr eik, fínpús°aðan og glær-
lakkaðan, sem passaði undir svert
kerti sem hún hélt mikið upp á.
„En flott".
Stúlkan fékk brauðbretti. Það
var smíðað úr furu og brennt með
gaslampa, burstað með vírbursta
á eftir, með handfangi og minnti á
ristað brauð.
„Þú getur notað þetta í búið,
þegar þar að kemur", sagði Gunn-
ar með stríðnisbros á vör.
„Ó, guð. Hvað fæ ég?“ sagði
systirin og lyfti trésleif úr teaki,
með bognu haldi, upp úr umbúða-
pappírnum, borað var gat í end-
ann svo að hægt væri að hengja
hana upp.
„Sniðugt hjá þér að smíða jóla-
gjafir handa okkur".
Gunnar fékk kossa á kinn.
Faðirinn var að bjástra við
einhvern hlut.
„Hvað ert þú með þarna? Tóti“,
sagði móðir Gunnars og þau
horfðu á gamla manninn.
„Neftóbakspontu", sagði gamli
maðurinn brosandi og sýndi pontu
úr birki.
Pontan var nær hringlaga, flöt
með tveimur töppum, annar
stærri. Grópað var fyrir töppun-
um svo þeir stæðu ekki út. Hún fór
vel í lófa var fínpússuð og mjúk að
strjúka. Pontan var látin ganga á
milli manna.
„Hvernig fórstu að hola hana að
innan?" spurði mágur Gunnars og
strauk pontuna.
„Ég smíðaði hana í tvennu lagi,
límdi svo saman".
„Já. En það sjást engin sam-
skeyti".
„Ja, það verður ekki af þér
skafið, drengur“, sagði móðir
hans.
„Þetta er ekki svo erfitt, maður
á bara að reyna“, sagði Gunnar og
strauk varlega rauða blöðru í
lófanum.
Horft var á aftansöng í sjón-
varpi, biskupinn yfir Islandi mess-
aði.
Á gamlárskvöld var Gunnar að
sniglast í eldhúsinu, gestir voru
inni í stofu. Móðir Gunnars var að
útbúa kaffi og kökur. Tómar
serríflöskur stóðu á eldhúsborð-
inu. Barnabörnin höfðu nýlega
hlaupið út með gáska til að sjá er
strákarnir kveiktu í brennunni.
„Pabba þínum þykir svo vænt
um pontuna að hann geymir hana
undir koddanum á nóttunni",
sagði móðir Gunnars.
„Er það virkilega?“
Gunnar fór inn í svefnherbergi
þar sem faðir hans stóð við
gluggann og hafði lyft gardínun-
um frá. Utar í götunni, á sjávar-
kambi, logaði brenna, rauður
glampi kom á andlit mannsins.
Brak og brestir heyrðust í bálkest-
inum þegar eldtungur læstust um
trarkambi, logaði brenna, rauður
glampi kom á andlit mannsins.
Brak og brestir heyrðust í bálkest-
inum þegar eldtungur læstur um
trékassa og papparusl. Brennur
loguðu á Álftanesinu; hinum meg-
in fjarðarins. I næstu görðum
voru krakkar með stjörnuljós og
jókerblys, sumsstaðar loguðu
eilífðarkerti.
„Jæja, hvað segirðu þá?“ sagði
Gunnar.
„Allt fínt“.
„Hvernig reynist pontan?"
„Stórfín“.
Gamli maðurinn tók pontuna úr
rassvasanum og sló henni á hand-
arbakið og myndaði hrauk.
„Vilt þú í nefið?“
„Nei, takk“.
Gamli maðurinn sogaði neftób-
akið upp í aðra nösina á þunnu
nefinu, burstaði afganginn af
handarbakinu. Tóbak sat eftir á
efrivörinni.
„Hvers vegna notarðu ekki fínu
pontuna sem afi smíðaði?"
„Því þessi er betri".
„Af hverju?"
„Af því að þú smíðaðir hana“.
Gunnar brosti. Flugeldi var
skotið upp í næsta garði, eldglær-
ingar sáust og það heyrðist hvin-
ur. Gamli maðurinn kippist við.
Þátturinn hefir tekið saman
hvad er næst á dagskrá hjá
nokkrum bridgefélögum og fer
það hér á eftir:
Barðstrendingafélagið
Tveimur umferðum er lokið í
aðalsveitakeppni félagsins og
verður þriðja umferðin spiluð 7.
janúar.
Bæjarleiðir —
BSR - Hreyfill
Sjö umferðum er lokið í aðal-
sveitakeppninni og verður 8.
umferðin spiluð 7. janúar.
Tafl- og
bridgeklúbburinn
Aðalsveitakeppni félagsins
hefst 10. janúar n.k. Spilað
verður í tveimur flokkum.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Board a Match-sveitakeppni
hefst hjá félaginu 9. janúar.
Bridgedeild
Húnvetningafélagsins
Aðalsveitakeppni félagsins
hefst 9. janúar.
Knattspyrnufélagið
Fram — bridgedeild
9. janúar hefst sveitakeppni.
Bridgefélag Reyðar-
f jarðar og Eskif jarðar
Sveitakeppni hefst 8. janúar.
Bridgefélag Breiðholts
Tvímenningur verður spilaður
8. janúar.
Bridgefélag Akureyrar
Níu umferðum er lokið í aðal-
sveitakeppnini og verður 10. um-
ferðin spiluð 6. janúar og 11.
umferðin 8. janúar.
Bridge
Umsjónt ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgedeild
Sjálfsbjargar
Aðalsveitakeppni deildarinnar
hefst 14. janúar.
Bridgefélag Kópavogs
Fyrir jól lauk 3ja kvölda
tvímenningskeppni hjá Bridge-
félagi Kópavogs. 24 pör tóku þátt
í keppninni og var spilað í 2
riðlum. Sigurvegarar urðu
Grímur Thorarensen og Guð-
mundur Pálsson.
Röð efstu para varð þessi: stig
1. Grímur Thorarensen
— Guðmundur Pálsson 571
2. Haukur Hannesson
— Valdimar Þórðarson 540
3. Sævin Bjarnason
— Ragnar Björnsson 534
4. Sigrún Pétursd.
— Valdimar Ásmundss. 523
5.-6. Birgir ísleifsson
— Birgir Þorvaldsson 522
5.-6. Sigurður Thorarensen
— Ragnar Stefánsson 522
7.-8. Jón Kristinn Jónsson
— Þórir Sveinsson 519
7.-8. Óli M. Andreasson
— Guðmundur Gunnl.s. 519
Ekki verður spilað yfir há-
tíðirnar en starfsemi félagsins
hefst að nýju fimmtudaginn 3.
janúar með eins kvölds tvímenn-
ingi. Spilað er í Þinghól, Hamra-
borg 11, og hefst spilamennskan
kl. 20.00.
Bridgefélag kvenna.
Á mánudaginn kemur hefst á
ný starfsemi félagsins með aðal-
sveitakeppni. Eru konur beðnar
að tilkynna þátttöku sína í síma
17987 eða 17933 sem allra fyrst.
Spilað er í Domus Medica og
hefst keppnin kl. 19.30.
Styrkið og fegrið líkamann
DÖMUR OG HERRAR
Ný 4ra vikna námskeiö hefjast 7. janúar.
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt yoga og megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki, eða þjást af
vöðvabólgu. Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — nudd
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295.
Júdódeild Armanns
Ármúla 32.
ORDLAND
NÝ CA. FRÁ
BENCO
Verð aðeins 108.340.-
BENCO Bolholt 4. R.
S: 91-84077 — 91-84077
P&T rtfiadofcewnr 7847A
Ssr«» nr
VOU.!\*e SOUEtC.H
ORDLAND 01-800FW