Morgunblaðið - 06.02.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980
Nafn hins latna. UNGI maðurinn, sem drukknaði þegar bifreið hans fór
fram af Loftsbryggjunni í Reykjavíkurhöfn í fyrrakvöld, hét Guðni Rúnar
Halldórsson, Drápuhlíð 28, Reykjavík. Hann var 25 ára gamall, fæddur 13.
desember 1954. Myndin sýnir er unnið var að því að ná Lada- jeppanum upp úr
Reykjavíkurhöfn í fyrrinótt, skömmu eftir slysið.
Loðnuaflinn
að nálgast 200
þúsund lestir
LOÐNUAFLINN frá upphafi vertíðar er nú orðinn um
195 þúsund lestir. Veiðisvæðið er nú farið að nálgast
Kolbeinsey aftur, en loðnu hefur orðið vart á mjög stóru
svæði. Eftirtalin skip hafa tilkynnt um afla síðan á
mánudagskvöld.
Mánudagur: Þórður Jónasson
590, Gullberg 580. Samtals 13 skip
með 9.400.
Þriðjudagur: Hilmir II 540,
Sæbjörg 600, Fífill 600, Arnarnes
550, Súlan 770, Náttfari 520, Pétur
Jónsson 620, Skírnir 400, Helga
Guðmundsdóttir 520, Júpiter 1300,
Gísli Árni 600, Keflvíkingur 430,
Börkur 850, Víkingur 900, Harpa
550, ísleifur 360. Til klukkan 22 í
gærkvöldi 16 bátar með 10.110.
Stjórnarmyndunartilraun Gunnars Thoroddsen:
Fluttír hingað tíl að
afplána hassdóma
Þótti fyrst sniðugt. Nú
hikar fólk við og efast
— segir Svanhildur Björgvinsdóttir for-
maður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra
fluttir hingað til lands til þess að
afplána dómana.
Þrír af sex íslendingum, sem
hlutu dóma fyrir þátttöku í um-
fangsmiklu fíkniefnamáli í Gauta-
borg í Svíþjóð eru nýlega komnir
hingað til lands og afplána þeir nú
dómana á Litla-Hrauni og
Kvíabryggju. Þá var fluttur
hingað til lands í vikunni ungur
maður, sem hlotið hafði dóm í
Noregi fyrir fíkniefnamisferli.
Tveir norskir lögreglumenn fylgdu
manninum hingað og mun ekki
hafa veitt af, þvi maðurinn mun
hafa verið fremur ódæll á leiðinni.
Maðurinn var búinn að afplána
dóminn og var honum vísað úr
landi.
Engin köfunar-
aðstoð f rá varð-
skipum vegna
kjaradeilu
VEGNA kjaradeilu kafara um
borð í varðskipunum og Land-
helgisgæzlunnar sinnir gæzlan
ekki beiðnum um köfun. í
fyrradag bað bátur um aðstoð
vegna þess að hann hafði fengið
í skrúfuna 60 — 70 mílur vest-
norðvestur af Reykjanesi, en
þegar varðskipið tilkynnti að
kafari væri ekki til staðar,
afþakkaði báturinn aðra að-
stoð.
Það eru stýrimenn um borð í
varðskipunum sem annast köfun
og hafa þeir sett fram drög að
nýjum kjarasamningi og neita að
vinna nema eftir þeim drögum á
meðan ekki hefur verið lokið við
samninga. Hér er um að ræða
endurskoðun á kaupliðum, trygg-
ingamálum og útbúnaði, en köfun-
arútbúnaðurinn er í eigu gæzlunn-
ar. Með auknum veiðum loðnuflot-
ans á norðurmiðum hefur beiðn-
um um köfun fjölgað mjög, en
kafararnir telja búninga gæzlunn-
ar ekki hæfa til vinnu í 0 gráðu
heitum sjó.
Flokksráð boð-
að til fundar
FLOKKSRÁÐ Sjálfstæðisflokks-
ins hefur verið boðað til fundar
næstkomandi sunnudag 10.
febrúar klukkan 14.00 í Valhöll.
Á dagskrá fundarins er stjórn-
málaviðhorfið. Rétt til setu á
fundinum eiga rúmlega 200
manns, fulltrúar úr öllum kjör-
dæmum og landssamtökum, með-
limir starfsnefnda, formenn mál-
efnanefnda og frambjóðendur í
aðalsætum.
„ÉG KOM hingað suður og á þennan miðstjórnarfund gagngert til
að fá upplýsingar frá fyrstu hendi um þær stjórnarmyndunarvið-
ræður, sem fram hafa farið. og hafði þá óneitanlega mestan hug á
að ná tali af varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Hann mætti þvi
miður ekki á miðstjórnarfundinn og enga skýringu heyrði ég á
fjarveru hans. Ég harma það afskaplega mikið,** ságði Svanhildur
Björgvinsdóttir, formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra, í samtali við Mbl. i gærkvöldi.
„Ég var með kollinn fullan af
spurningum, sem við fólk úti á
landi höfum verið að velta fyrir
okkur og það má segja, að ég hafi
verið send til þess að fá svör við
þeim,“ sagði Svanhildur. „Sumum
þessara spurninga gat Gunnar
Thoroddsen einn svarað og ég
ætlast til þess, þegar ég mæti
svona á miðstjórnarfund að ég geti
að öllu forfallalausu gengið að
forystumönnum flokksins saman
og fengið hjá þeim þær upplýs-
ingar, sem almennu flokksfólki
liggur hugur á að vita.“
Mbl. spurði Svanhildi álits á
þeim atburðum, sem hafa verið að
gerast hjá sjálfstæðismönnum.
Hún sagði: „Nú fékk ég aðeins aðra
hlið málsins á miðstjórnarfundin-
um.
Ég verð þó að segja það eins og
er, að af þeim upplýsingum að
dæmá finnst mér Gunnar Thor-
oddsen ekki hafa staðið rétt að
málum. Ég vil ekki fordæma það
að menn reyni að mynda stjórn og
auðvitað eru það málefnin sem
mestu skipta. En ég ætlast til þess
að forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins starfi saman og hagi gjörðum
sínum í samráði hver við annan og
þingflokk flokksins."
Mbl. spurði Svanhildi þá, hvern-
ig þessi mál mæltust fyrir „úti á
landi". Hún sagði: „Ég hygg að
fólki hafi í fyrstu þótt þetta allt
bara sniðugt og fyrir mestu að
menn mynduðu ríkisstjórn.
En svo held ég að fólk hafi
hrokkið nokkuð við og farið að
efast um, að hlutirnir væru í raun
eins og .verið væri að telja því trú
um, bæði að þessar viðræður
Svanhildur Björgvinsdóttir
Gunnars við framsóknarmenn og
alþýðubandalagsmenn ættu sér
ekki lengri aðdraganda og hitt, að
enginn maðkur væri í mysunni,
hvað varðar tilganginn með þess-
um viðræðum. Og þegar þetta kom
upp í hugann, held ég að ánægjan
hafi farið fljótt af og orðið undir
vegna grunsemda um baktjalda-
makk og aðgerðir til að skemma
fyrir formanni flokksins og flokkn-
um sjálfum."
TALSVERT hefur verið um það
að undanförnu að íslendingar,
sem dæmdir hafa verið erlendis
fyrir fíkniefnabrot, hafi verið
Yfir fjórtán
þúsund
manns hafa
séð Land
og syni
FJÓRTÁN þúsund manns sáu
kvikmyndina Land og syni fyrstu
vikuna sem hún var sýnd. en hún
var frumsýnd samtímis í
Reykjavík og á Dalvík föstudag-
inn 25. janúar sl.
Að sögn Indriða G. Þorsteinsson-
ar sáu myndina fjórtán þúsund
manns fyrstu sýningarvikuna, en
eftir að sýningum lauk á Dalvík
var myndin sýnd á Akureyri og
síðan Sauðárkróki. Tvö eintök eru
-il af kvikmyndinni og verða þau
sýnd úti um land fram eftir vetri.
Aðsókn kvað Indriði hafa verið
jafna og góða það sem af væri.
stökk upp á við á nýjan leik.
Vegna þess hve olíu- og bensín-
vörur, sem nú eru í sölu, voru
keyptar á háu verði hafa olíufélög-
in ekki séð sér annað fært en óska
eftir að fá að hækka verðið hér
innanlands, eins og skýrt er frá á
baksíðu blaðsins í dag. Einnig
hefur gengissig að undanförnu
hækkunaráhrif og olíufélögin hafa
einnig bent á það, að síðasta
hækkunarbeiðni þeirra var skorin
verulega niður og ekki heimilaður
nema hluti þeirrar hækkunar, sem
þau höfðu óskað eftir.
Olíu- og bensínbirgðir, sem nú eru í sölu
innanlands, keyptar á mun hærra verði
ENN frekari lækkun hef-
ur orðið á gasolíu og svart-
oliu á olíumarkaðnum í
Rotterdam en verð á
bensíni hefur staðið í stað
undanfarna daga.
Samkvæmt skráningu 31. jan-
úar var verð á bensíni 362,50
dollarar hvert tonn en hafði verið
360 dollarar 24. janúar og 404
dollarar í byrjun janúar. Verð á
gasolíu var 297 dollarar hvert
tonn en hafði verið 324 dollarar
24. janúar og 367 dollarar í
janúarbyrjun. Verð á svartolíu var
134 dollarar hvert tonn en hafði
verið 151 dollari 24. janúar og 178
dollarar í janúarbyrjun. Gasolíu-
verðið hafði ekki verið jafn lágt
síðan um miðjan mái á síðasta ári.
Verðlækkunin á olíumarkaðn-
um í Rotterdam í janúarmánuði
hefur því verið umtalsverð eða
10,3% á bensíni, 19,1% á gasolíu
og 24,7% á svartolíu.
Hins vegar er allsendis óvíst að
þessi lækkun komi okkur Islend-
ingum til góða, samkvæmt þeim
upplýsingum, sem Morgunblaðið
aflaði sér í gær. Þær olíubirgðir,
sem nú eru í sölu, voru keyptar af
Sovétmönnum þegar miklu hærra
viðmiðunarverð var í gildi. Þannig
var meðalinnkaupsverð (fob) á
gasolíu, sem nú er í sölu, 355
dollarar hvert tonn og meðalverð
á þeim bensínförmum, sem nú eru
í sölu, er 396,50 dollarar. Næstu
oliu- og bensínfarmar verða ekki
lestaðir fyrr en í lok febrúar og
byrjun marz og kann þá svo að
fara að markaðsverðið hafi tekið
Enn frekari lækkun
á Rotterdammarkaði