Morgunblaðið - 06.02.1980, Page 7

Morgunblaðið - 06.02.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980 I I I Óvæntur stuöningur við Alþýðu- bandalagið Dagblaðiö Vísir segir í leiðara í gær: „Takist sú tilraun til stjórnarmyndunar, sem Gunnar Thoroddsen, varaformaður Sjálfstæð- isflokksins, stendur nú að ásamt Framsóknar- flokknum og Alþýðu- bandalaginu, verður þaö sögulegur stjórnmálavið- burður, sem hafa mun ófyrirsjáanlegar afleið- ingar í íslensku stjórn- málalífi. Myndun slíkrar ríkis- stjórnar væri í fullkom- inni andstöðu við megin- þorrann af þingmönnum Sjálfstæöisflokksins og yröi því sjálfsagt afdrifa- ríkasti atburðurinn í þeim innanflokksdeilum, sem hrjáð hafa Sjálfstæðis- flokkinn nú í næstum heilan áratug. Af henni mundi leiöa alvarlegan klofning í Sjálfstæðis- flokknum, en að sjálf- sögöu mundi það, hversu alvarlegur klofningurinn yrði, ráðast af því, hvort einhverjir af þingmönn- um flokksins fylgdu Gunnari Thoroddsen, og þá hversu margir. Að vonum velta margir því fyrir sér, hvers vegna til ágreinings hafi þurft að koma innan Sjálfstæö- isflokksins um stjórn- armyndun með Fram- sóknarflokknum og Al- þýðubandalaginu. Þar sem ýmsir áhrifamenn innan flokksins hafi viljað halda opnum möguleika á stjórnarsamstarfi við Alþýðubandalagið og jafnvel mælt með því. Þrátt fyrir þetta mun það vera staðreynd að flestir af fyrirsvarsmönnum Sjálfstæöisflokksins munu hafa verið komnir að þeirri niðurstöðu, aö Sjálfstæðisflokknum yrði alls ekki stætt á því að mynda ríkisstjórn með Alþýðubandalaginu vegna sterkrar og sívax- andi andstööu gegn sam- vinnu við kommúnista bæði innan þingflokksins og meðal kjósenda flokksins, — nema þá hugsanlega sem neyðar- úrræði og þá í samstjórn allra flokka. Hér í Vísi hefur þráfaldlega verið mælt með því, að lýðræð- isflokkarnir reyndu að ná meö sér samstöðu um stjórn landsins. Því miður hafa flokkarnir ekki boriö gæfu til slíks samstarfs." Venjulegt vinstri- stjórnarkák Enn segir Vísir: „Ugglaust mun ýmsum þykja léttir að því, að hinni tveggja mánaða löngu stjórnarkreppu Ijúki nú loksins, þótt það veröi meö þeim miklu átökum, sem horfur eru á. En hætt er við, að sá léttir verði skammvinnur. Samkvæmt því, sem vitn- ast hefur um efni mál- efnasamnings hinnar væntanlegu ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens sýnist Ijóst að ekki sé ætlunin að taka af neinni alvöru á þeim efnahags- vanda, sem viö er að glíma í þjóðfélaginu. Oráðsían og verðbólgan munu halda áfram af full- um krafti. Úrræðin bera keim af venjulega vinstri stjórnarkáki, en svo sannarlega er það eitt- hvað annað en enn ein vinstri stjórnin, sem íslenska þjóðin þarfnast nú. Ef kostirnir í stjórn- armyndunarmálinu eru nú þeir, hvort mynda eigi þá ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens, sem hér hefur veriö um rætt, eöa utanþingsstjórn, er tvímælalaust, að utan- þingsstjórn er heppilegri kostur. Með myndun utanþingsstjórnar væri þó haldið opnum mögu- leikanum til að mynda meö eðlilegum hætti stjórn á vegum þingsins, þegar öldur heföi lægt og málefnastaðan skýrst. Hin ráðgerða ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens mun hins vegar ekki einu sinni geta dáið, hversu illa sem henni tekst til, nema meö leyfi Fram- sóknar og Alþýðubanda- lagsins, því að frá og með þeirri stundu, er Gunnar Thoroddsen og hugsan- legir liðsmenn hans úr Sjálfstæðisflokknum ganga til þessa stjórnar- samstarfs og brjóta þar með allar brýr að baki sér innan síns eigin flokks, eru þeir orðnir bandingj- ar í höndum Framsóknar og Alþýðubandalagsins." Range Rover Til sölu er þessi fallega Range Rover bifreiö, árg. 1978. Lítiö ekinn, vel meö farinn dekur bíll. Á kynningunni eru búlgarskir réttir framreiddir m.a. af þekktum búlgörskum matreiðslumönnum. IMlgaríukynning- á Hótel Loftleiðum BÚLGARÍUKYNNING heíst að Hótel Loftleiðum í dag og stendur til 10. febrúar í Víkingasal. Þeir sem að Búlgaríu- kynningunni standa eru Hótel Loftleiðir, Ferða- skrifstofa Kjartans Ilelgasonar og kynn- ingar- og Ferðamálaráð Búlgaríu. Þetta er í fjórða sinn sem Búlgarí- ukynning fer fram á Hót- el Loftleiðum en ferðum íslendinga til Búlgaríu hefur farið fjöigandi með hverju ári. A þessari kynningu eru búlgarskir réttir fram- reiddir af þekktum mat- reiðslumönnum frá hótel- um í Búlgaríu og öll kvöld skemmta búlgarskir lista- menn með þjóðdönsum, söng, töfrabrögðum, jafn- vægislist og leikur tríó fyrir dansi. Matseðlar eru númeraðir og eru nokkur númer dregin út á hverju kvöldi og búlgarskir list- munir þá í vinninga. Auk þess verður á sunnudag dregin út úr númerum ferð fyrir tvo á baðströnd í Búlgaríu. Búlgarskir listamenn koma fram. m.a. Irina Nikolova og Ludomir Argirov sem sýna jafnvægislist. Qompton Parkinson D112M to Frames D160M to D200L Frames D80 to D132M Frames D71 Frames RAFMÓTORAR Eigum ávallt fyrirliggjandi 1400—2800 sn/mín. rafmótora. 1ns fasa Vá—4 hö 3ja fasa Vz—25 hö Útvegum allar fáanlegar geröir og stærðir. VALD. POULSENf SUÐURLANDSBRAUT10 SÍMAR: 38520 — 31142.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.