Morgunblaðið - 06.02.1980, Side 12

Morgunblaðið - 06.02.1980, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980 12 Hátíðarstemmning á Neskaupstað vegna komu togarans Barða Það var sannkölluð hátíðar- stemmninti á Neskaupstað í lok síðustu viku vegna komu nýs togara Norðfirðinga, Barða NK 120. Daginn eftir að fleytan lagðist að bryggju eftir rúmra tveggja sólarhringa siglingu frá North Shieids á Englandi. þar sem gerðar voru nokkrar breytingar um borð. lagði starfsfólk frystihúss Síldar- vinnslunnar snemma niður vinnu og flykktist um borð í bjórdrykkju í boði útgerðarinn- ar. Var þar glaumur mikill og kátt á hjalla. og óhætt að segja að koma togarans hafi haft mikil áhrif á félagslífið á Nes- kaupstað þann daginn. Norð- firðingar hafa það fyrir sið að fagna komu nýrra skipa á þennan hátt og þá með al- mennri þátttöku. Fögnuður þeirra við komu Barða var ef til vill eðlilegur með tiiliti til þess að þeir háðu harða baráttu fyrir því að fá að kaupa hið nýja skip. Jóhann K. Sigurðsson útgerð- arstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað sagði í spjalli við blaðamann Mbl. að Barði væri rúmlega fjögurra ára gamalt skip, keypt í Boulogne í Frakk- landi. Er eitt 12 skipa í seríu sem Pólverjar smíðuðu fyrir franska aðila, en nú vaeri búið að kaupa fjögur þeirra til íslands, þar af tvö til Neskaupstaðar, Birting og Barða. Hin tvö væru Hegranes frá Sauðárkróki og Þorlákur frá Þorlákshöfn. Barði væri 362 tonn og 48 metrar að lengd, knúinn áfram af 1500 hestafla vél af Crepelle-gerð. Kostaði Barði einn milljarð króna með breytingunum. Gamli Barði var tekinn upp í kaupverðið og fengust fyrir hann 380 milljónir. Tekin voru erlend lán vegna kaupanna, þar sem ekki fékkst fyrirgreiðsla úr Fiskveiðasjóði eða ríkissjóði. Sagði Jóhann að gera hefði þurft ýmsar breytingar á Barða fyrir íslenzkar aðstæður, t.d. var aðallestinni breytt úr stíulest í kassalest, lestarlúgur voru stækkaðar, skutrennuloki var settur á skipið og breytingar gerðar á íbúðum og vistarverum. „Nú eigum við tvö skip af sömu gerð, og hefur það mikla kosti í för með sér við rekstur- inn. Við höfum lært ýmislegt varðandi útgerð Birtings og kemur það sér vel, t.d. er hægt að fyrirbyggja ýmsar bilanir og stöðvanir Barða vegna þess sem komið hefur upp á hjá Birtingi. Þá kemur sér vel að skipin eru eins þegar um varahluti er að ræða. Ég held að segja megi að við eigum nú tvö góð og keppileg skip þar sem eru Barði og Birtingur, við hefðum ekki efni á að reka dýrari skip en þessi, nýir togarar hefðu vart fiskað nema fyrir vöxtum," sagði Jóhann. Auk þeirra á Síldarvinnsla tog- Herbert Benjaminsson skip- stjóri í brúnni á Barða. arann Bjart, sjö ára skip, smíðað í Japan. Það kom fram í spjalli við þá Jóhann og Ólaf Gunnarsson for- stjóra Síldarvinnslunnar hf., að 32—350 manns störfuðu hjá Síldarvinnslunni þegar allt væri í fullum gangi, loðnubræðslan og frystihús. Um það bil 50 manns störfuðu í bræðslunni og 75—80 manns væru á skipum fyrirtæk- isins. Launagreiðslur fyrirtækis- ins á síðasta ári námu tæpum tveimur milljörðum, þar af voru greiðslur til sjómanna 815 millj- ónir. Jóhann sagði að alls hefðu tæplega 7.000 tonn af fiski borist til frystihússins á síðasta ári og 40.000 tonn af loðnu verið brædd á vetrarvertíðinni í fyrra. Hann sagði að sá Barði sem seldur var í skiptum fyrir nýja Barða hefði varla landað eftir 20. júlí, og því mætti búast við meiri afla á þessu ári ef allt gengi að óskum. „Þetta hefur ekki gengið nema í meðallagi hjá okkur, enda voru Bretar og aðrir útlendingar bún- ir að þurrka upp miðin hérna útaf Austfjörðunum 1966. Þetta er smám saman að batna, aflinn jókst í fyrra um 10—11% miðað við 1978, en aukningin var þó um 30% víðast hvar annars staðar við landið. Við erum óánægðir með að útlendingum skuli leyft að veiða hér á okkar slóð þar sem önnur mið við landið eru miklu arðbærari. Færeyingar fá að taka 17 þúsund tonn fyrir Austfjörðunum, þeir vilja veiða hér þar sem stytzt er hingað að fara.“ En það má þó segja að við séum sáttir við allt og alla þar sem Barði er nú kominn í höfn, það kostaði þriggja ára baráttu að koma eldri Barða í verð og að fá að gera þessi skipti. Þrír togarar eru algjör forsenda fullrar atvinnu á Neskaupstað. Tveir togarar duga ekki í mis- jöfnu fiskiríi og neyðarástand skapaðist ef mánaðarstöðvun yrði á togara vegna óhappa sem alltaf geta orðið.“ „En við erum þó afskaplega ósáttir við þá stefnu stjórnvalda að ekki megi endurnýja flotann," sagði Ólafur. „Ef ekki er um að ræða stöðuga endurnýjun þá er einungis verið að reisa stíflu sem síðar mun bresta, og þá mundi stór holskefla ríða yfir þjóðina." Ólafur Gunnarsson (t.h.) framkvæmdastjóri og Jóhann K. Sigurðsson útgerðarstjóri Síldarvinnslunnar við Barða NK 120 þar sem skipið liggur við bryggju á Neskaupstað. Bjarki Þórlindsson vélstjóri á Barða í vélarrúminu. Aðalvélin sér einnig um rafmagnsframleiðslu um borð, og því ekki þörf sérstakrar Ijósavélar eins og er í flestum skipum. Barði NK 140 við bryggju á Neskaupstað. Batikverk í Norræna húsinu Á NÆSTUNNI verða til sýnis í anddyri Norræna hússins batik- verk, gerð af Hrefnu Magnúsdótt- ur. Hrefna er Reykvíkingur, f. 1934, hún byrjaði mjög ung að teikna, en hóf að fást við batik upp úr 1965. Hún var við nám í Myndlistaskóla Reykjavíkur 1972—75. Á sýningunni í anddyri Norræna hússins verða batik- myndir frá árunum 1975—80, kjól- ar, pils, lampar o.fl., en Hrefna hefur undanfarin 8 ár selt batik- lampa á vegum íslensks heimilis- iðnaðar. Heimilið ’80 í Höllinni í haust DAGANA 22. ágúst til 7. septem- ber í sumar verður haidin í Laugardalshöllinni vörusýning undir nafninu „Heimilið ’80“, en innan þeirrar sýningar verður einnig sérsýning á matvælum og neyzluvarningi undir nafninu „Borð og búr“. Það er fyrirtækið Kaupstefnan hf. sem gengst fyrir sýningunni og þess má geta, að á 4 síðustu stórsýningum Kaupstefn- unnar hafa gestir verið 65—80 þúsund á hverri þeirra fyrir sig. Námskeið í hjálp í við lögum í Bolungarvík B Y GGÐALAGSNEFND Junior Chamber Bolungarvík hefur ákveðið að gangast fyrir nám- skeiði í hjálp í viðlögum dagana 8. — 10. febrúar í grunnskóla Bolungarvíkur og hefst klukkan 20 á föstudagskvöld. Því verður framhaldið á laugardags- og sunnudagseftirmiðdag. Leiðbein- andi verður Snorri Hermannsson frá tsafirði. Bolvíkingar eru hvattir til þess að sækja þetta námskeið, þar sem margsannað er að rétt viðbrögð rétt eftir að slys hefur átt sér stað eru mjög örlagarík. Slysin gera ekki boð á ..ndan sér og alltof oft hefur það komið fyrir að sökum kunnáttuleysis hefur verið brugð- izt við á rangan hátt og slíkt valdið ævilöngum örkumlum og jafnvel dauða. Þeir, sem áhuga hafa á að notfæra sér þetta tækifæri, geta skráð sig á lista, sem liggur frammi í búsáhalda- deild verzlunar Einars Guðfinns- sonar. Jafnframt mun byggðar- lagsnefnd JC Bolungarvík gangast fyrir sölu á sjúkrakössum á nám- skeiðinu og að því loknu verður gengið í öll hús bæjarins og kassarnir boðnir þar til sölu. (Fréttatilkynning). Þingstúka Reykjavíkur: Harmar að borgarráð skuli hafa mælt með fjölgun vínveitingastaða í borginni Borist hefur eftirfarandi samþykkt frá fundi Þingstúku Reykjavíkur 29. janúar s.l.: „Það þykir fullsannað að neysla afengis verður því meiri sem mönnum er auðveldara að veita sér áfengi og að áfengisböl stendur í hlutfalli við heild- arneyslu áfengis, þó þannig að vand- ræðin fjórfaldast þegar neyslan tvö- faldast. Það er rökrétt afleiðing þessara staðreynda, að heilbrigðisstofnun Sam- einuöu þjóðanna hvetur öll aðildarríki sín til að vinna að takmörkun drykkju- skapar með því að torvelda fólki áfengiskaup, með háu verði, fækkun sölustaða og styttingu veitingatíma, jafnframt því að efla bindindisstarf- semi. Þess er einnig að geta, að alls staðar þar sem til fréttist, eru lögboðin takmörk fyrir því hverjum megi selja áfengi, hvar megi selja það og hversu lengi. Með hliðsjón af þessu öllu lætur Þingstúka Reykjavíkur í ljós hryggð sína og vanþóknun vegna þess að borgarráð Reykjavíkur hefur nýlega mælt með fjölgun vínveitingastaða í borginni, en fjölgun þeirra mun leiða til þess að meira sé drukkið. Fyrir því heitir Þingstúkan á dómsmálaráðu- neytið að fylgja stefnu og ákalli heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóð- anna og leyfa ekki nýja vínveitinga- staði." Leiðrétting HLUTI setningar féll því miður niður í grein Sigurlaugar Bjarna- dóttur í blaðinu í gær. Ofarlega í öðrum dálki á að standa: „Það er rödd hinnar mannlegu samvizku, sem hlýtur að ráða niðurstöðu okkar hvers einasta einstaklings, sem á annað borð gefur sér tíma til að hugsa málið, mynda sér skoðun — taka af- stöðu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.