Morgunblaðið - 06.02.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRUAR 1980
15
Kekkonen:
Tilfínningum og ut-
anríkismálum verði
ekki blandað saman
Helsinki 5. íebr. AP.
KEKKONEN Finnlandsforseti
sagði í dag, að smáríki eins og
Finnland hefði ekki efni á því
að blanda tilfinningum, jákvæð-
um eða neikvæðum. saman við
ákvarðanir um utanríkisstefnu.
Sagði Kekkonen að reynslan
hefði kennt Finnum þetta.
Raunsæ utanríkisstefna hlyti
að grundvallast á því að vera
sér meðvitaður um meginþætti í
alþjóðamálum.
Kekkonen sagði þetta í setn-
ingarræðu á finnska þinginu í
dag. Hann sagði að meginmark-
mið Finna hlyti að vera að
varðveita sjálfstæði sitt og hlut-
leysi undir öllum kringumstæð-
um, með því væri tryggt öryggi
finnsku þjóðarinnar og sæti
þetta í fyrirrúmi, þegar afstaða
væri tekin í utanríkismálum.
Kekkonen sagði að hann véki
frá fyrri venju að fjalla ekki að
ráði um utanríkismál í þingsetn-
ingarræðu sinni, vegna þess að
stjórnmálaástandið í heiminum
hlyti að vera mönnum
áhyggjuefni. Hann sagðist vera
þeirrar skoðunar að framvinda
mála utan Evrópu ætti ekki að
eyðileggja þann árangur, sem
hefði náðzt í Evrópu. Ef það
væri gert myndi taka menn
langan tíma að ná aftur þvi sem
áunnizt hefði, ef það þá tækist
yfirleitt.
Kekkonen sagði að það væri í
þágu allra þjóða sem hlut ættu
að máli að styrkja viðleitni til að.
draga úr vígbúnaði í EvrópuT
Allt slíkt yrði til að grafa undan
slökunarstefnunni, sem myndi
þegar til lengri tíma væri litið
tryggja bezt öryggi allra þjóða í
álfunni.
Sovézka vél-
in farin frá
Kennedyvelli
New York 5. febr. AP.
SAMKOMULAG náðist í dag,
eftir tveggja daga þóf vegna
leyfis rússneskrar flugvélar til
flugtaks frá Kennedyflugvelli.
Féllust flugumferðarstjórar á
vellinum á að aðstoða vélina og
hélt hún á braut með sína 76
farþega og 12 manna áhöfn.
Starfsmenn á Kennedyflugvelli
hafa neitað að afgreiða sovézkar
vélar og hafði flugstjóri sovézku
vélarinnar einhverra hluta vegna
haft að engu fyrirmæli um að
lenda í þess stað á Dullesflugvelli.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins bandaríska sagði að þetta
þýddi ekki að afgreiðsla yrði leyfð
framvegis á sovézkum vélum og
hefði Sovétmönnum verið tilkynnt
um samþykkt flugvallarstarfs-
manna með nægum fyrirvara.
Ali reyndi að
hressa upp á
andlitíð í Kenya
Nairobi 5. febr. AP.
MUHAMMED Ali, sérlegur
sendimaður Carters Bandaríkja-
forseta á ferð um Afríkulönd,
tókst í dag að hressa eilitið upp á
orðstír sinn, eftir sérlega ólán-
lega byrjun farar. Hann lýsti þvi
yfir að enginn misskilningur eða
ágreiningur væri milli þeirra
Carters, hann fékk að hitta
fyrsta forsetann í ferðinni, Dan-
iel Arap Moi Kenyaforseta og
allmarga aðra háttsetta ráða-
menn landsins í forseta-
bústaðnum í Nairobi.
Ali hélt síðan fund með leiðtog-
um kristinna manna og múhamm-
eðskra. Hann fullyrti að nú væri
allur misskilningur úr sögunni. Að
svo búnu fór hann að skoða þjóð-
garð í grennd við höfuðborgina og
stakk þar upp á því að hann fengi
að boxa við ljón.
Vandi Alis hófst þegar frétta-
menn í Tanzaníu kröfðust að vita
hvers vegna Afríkuríki ættu að
taka þátt í að hundsa Olympiuleik-
ana í Moskvu, þar sem Bandaríkja-
menn hefðu neitað að taka höndum
saman við Afríkuríki í hundsun
þeirra á Montrealleikunum. Sökuðu
þeir Carter um að senda Ali til
Afríku að verja stefnu, sem væri
óþolandi svertingjum. Sagðist Ali
þá vera þeim innilega sammála og
hann hefði ekki af þessu vitað.
Síðar reyndi hann að leiðrétta
þetta og slétta úr með því að skella
skuldinni á starfsmenn bandaríska
utanríkisráðuneytisins fyrir að
setja sig ekki betur inn í málin,
enda væri hann alls óvanur að
kljást um stjórnmál við aðgangs-
harða fréttamenn.Það jók síðan enn
á mæðu Alis í Tanzaníu að Nyerere
forseti neitaði að hitta hann.
Sovétmenn
gera kaf-
bátakvíar
Kuwait 5. fobr. AP.
SOVÉTMENN eru að byggja meí
leynd kafbátakvíar meðfram
strönd Suður Jemens, sagði í frétt
blaðins A1 Anbaa í Kuwait í dag.
Blaðið sagðist hafa upplýsingar-
nar frá öruggum, en ónafngreindum
heimildum í París. Tekið var fram í
fréttinni að “töluverður" hópur sér-
fræðinga frá Sovétríkjum ynni við
verkið og birgðaflutningar hefðu
verið að staðaldri á þessar slóðir
upp á síðkastið.
Suður Jemenar hafa verið mjög
fylgispakir Sovétmönnum og þar er
marxisk stjórn. Suður Jemen er sagt
vera nánasti bandamaður Sovét-
manna á þessu hernaðarlega mikil-
væga svæði.
Þetta gerðist 6. febr.
1979 — Heimsókn Teng Hsiao-
ping til Bandaríkjanna lýkur.
1964 — Bretar og Frakkar
ákveða að leggja göng undir
Ermarsund.
1962 — Bardagar brjótast út í
Alsír milli franska hersins og
Leynisamtaka hersins (OAS).
1952 — Valdataka Elísabetar
drottningar II í Bretlandi.
1934 — Stavisky-óeirðirnar í
París (6.-7. feb.): fjármála-
hneyksli leiðir til falls tveggja
ríkisstjórna.
1930 — Austurriki og Ítalía
undirrita vináttusamning.
1922 — Ráðstefnunni um tak-
mörkun vígbúnaðar lýkur í
Washington.
1897 — Krít lýsir yfir samein-
ingu við Grikkland.
1885 — ítalir hertaka Massawa,
Erítreu.
1819 — Stamford Raffles stofn-
ar nýlendu í Singapore fyrir
hönd Austur-Indíu-félagsins.
1778 — Bretar segja Frökkum
stríð á hendur.
1715 — Utrecht-friðurinn bind-
ur endi á styrjöld Spánverja og
Portúgala.
1626 — Húgenottar og franska
krúnan undirrita friðinn í La
Rochelle.
1577 — Hinrik af Navarre við-
urkenndur leiðtogi Húgenotta.
Afmæli: Christopher Marlowe,
enskt leikritaskáld (1564—1593)
— Anna Englandsdrottning
(1665—1714) — Anton Hermann
Fokker, hollenzkur flugvéla-
brautryðjandi (1890—1939) —
Ronald Reagan, bandarískur
stjórnmálaleiðtogi & leikari
(1911 -).
Andlát: 1140 Thurstan erkibisk-
up í Jórvík — 1685 Karl II af
Englandi og Skotlandi — 1804
Joseph Priestley, vísindamaður
— 1952 Georg VI Bretakonung-
ur.
Innlent: 1968 „Óðinn“ bjargar
áhöfn „Notts County" — 1931
Nýi hafnargarðurinn í
Reykjavík stórskemmist — 1968
„Heiðrúnar" frá Bolungarvík
saknað með sex mönnum — 1879
f. Björn Þórðarson ráðherra —
1879 f. Magnús Guðmundsson
ráðherra — 1902 f. Sigfús Sigur-
hjartarson.
Orð dagsins: Látið fólkið vita
sannleikann og þá er landinu
borgið — Abraham Lincoln,
bandarískur stjórnmálaleiðtogi
(1809-1865).
ARGERÐ
22" iækiö er mikiö
tæki í nettum umbúö-
um. Eins og allir vita þá
hafa Luxor verksmiöj-
urnar lagt áherslu á
aö fullkomna litgæöin
í sjónvarpstækjunum.
Eitt tekur viö af öðru og nú hefur
Luxor endurbætt hljómburðinn. Tón-
gæðin eru jöfn hvort sem
styrkurinn er hár
MAL:
66x45x48 (B-H-D)
Þyngd 28.5 kg.
Fáanleg í hnotu.
20000
Eyðir orku eins og 75
Wpera.
Sjálfvirkur birtustillir.
meö hjólastelli
án hjólastells