Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 37 Myrkir músikdagar Síðustu tónleikar Myrkra mús- ikdaga verða af mörgum ástæðum að teljast til merkari tónlistarvið- burða hér á landi. Þar fór saman glæsilegur flutningur og einnig flutningur góðrar tónlistar, bæði af gamalli og nýrri gerð. Islensk tónsköpun, formbundin í stærri gerðum verka, er svo til ný í menningu okkar íslendinga. Þeir sem höfðu forgöngu um þessi mál eru nýgengnir hjá, lærisveinar þeirra orðnir fullorðnir menn og þriðja kynslóðin tekin að kalla menn til þagnar og hlustunar. Nú voru það Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir, sem fluttu hlustendum nýja og gamla tónlist, á hljóðfæri, sem sögulega brúa 200 ára bil í tónmennt Evrópu. Um það bil, eða á seinni hluta 18. aldar, er sembalinn var látinn víkja fyrir píanóinu, hefur þver- flautan náð feikna vinsældum, bæði sem hljómsveitar- og ein- leikshljóðfæri. Þverflautan hefur síðan notið meiri virðingar en flest önnur blásturshljóðfæri, en sembalinn aftur á móti verið friðaður af þögn gleymskunnar. Nú skeður það, „norður við heimskaut í svalköld- um sævi“, að hér í Reykjavík eru þessi hljóðfæri orðin samvirk í höndum afburða tónlistarmanna og félagsskapur þeirra leiðir til þess að kolbítar rísa úr öskustó til að yrkja brag og vinna stórvirki. Tvö hundruð ára menningarskil eru rofin, þar sem gamlar og nýjar gátur sameinast í líðandi nútíma. Rétt eins og eilífðin skynjuð í andartaks bergmáli löngu liðinna stunda, þar sem tímabilið, er skilur að liðið og það sem er að ské, er horfið. Tónleikarnir hófust á Sónötu eftir Mattheson, sem var uppi á fyrri hluta 18. aldar og var mjög frægur sem gagnrýnandi og höfundur ritverka um tónlist. Hann gerði tilraun til að skil- greina hljóðfæratónlist í sam- bandi við túlkun tilfinninga og er skilgreining hans á sérkennum hinna ýmsu dansþátta svítunnar mjög skemmtileg. Hann telur að hver dans sé gæddur sérstöku eðli, ákveðinni tilfinningu. Sem dæmi mætti nefna að hann telur Menu- ett vera meðal glaðlegan, rigaudon daðurslegan og þægilegan, sarab- ande metnaðarmikinn og Passep- ied lauslætisfullan. Hann þýðir einnig ítölsku hraðaheitin sem tilfinningatákn og vill láta Adagio túlka þunglyndi, eða dap- urleika, Andante von, Allegro huggun og Presto ánægju. Þrátt fyrir það, að slíkar vangaveltur séu ekki viðfangsefni nútíðar- manna, eru þær skemmtilegar eins og margt hjá Mattheson, sem talinn er vera fyrsti eiginlegi tónlistargagnrýnandinn. Annað verkið var Da eftir Leif Þórarins- son, verk fyrir sembal og var þetta frumflutningur þess. Leifur er einn þeirra íslensku tónskálda er leggur frekar áherslu á lagferlið en blæbrigðin og þess vegna er nauðsynlegt að heyra verk hans nokkrum sinnum, enda þola verk hans það vel. Það og að hljóðfæra- leikarinn nær sífellt betri tökum á verkefni sínu við hverja nýja uppfærslu kom ljóslega fram í næstu tveimur verkum, Stúlkunni og vindinum, eftir Pál P. Pálsson og Sonata per Manuela, eftir Leif Þórarinsson, sem þær stöllur fluttu síðastliðið sumar í Skál- holti. Það er í rauninni stórkost- legt a bera saman flutning þess- ara góðu verka þá og nú, hvernig sérkenni verkanna breytast í meistaralegum leik þeirra. Tón- leikunum lauk svo með h-moll flautusónötunni, eftir Bach, ein- hverju stórkostlegasta verki tón- bókmenntanna. Um flutning Manuelu Wiesler og Helgu Ing- ólfsdóttur er í rauninni ekkert hægt að segja annað en að tónleik- arnir í heild voru stórkostlegir. Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON P.s. Aðstandendur hátíðarinnar eru beðnir velvirðingar á því hversu seint þessi umfjöllun kemur fram, en til þess liggja persónulegar ástæður. J.Ásg. Efnisskrá: Berlioz: Rómverskt karnival op. 9 Prokoffjeff: Fiðlukonsert nr. 2, op. 63. Sjostakovits: Sinfónía nr. 5. op. 47 Einleikari: Pina Carmirelli Stjórnandi. Giibert Levinc Rómverska karnivalið eftir Berlioz var skemmtilega leikið, opnað á fallega leikinn sóló á enskt horn af Duncan Cambell, og var auðheyrt að hljómsveitar- stjórinn hafði lagt mikla rækt við túlkunarþáttinn. I fallegu sam- spili á milli fiðlanna og sellóanna vantaði mikið á að sellóin hefðu til jafns við fiðlurnar vegna mann- fæðar. Fámenni strengjasveitar- innar og ójöfn skipting í flokka gerir hljómsveitinni erfitt fyrir í flutningi stærri tónverka og leiðir til þess, að óeðlilegt álag er á strengjasveitinni, þegar hátt er reitt til höggs og óhjákvæmilega hlýtur það að koma niður á tóngæðunum. Annað verkið var 2. fiðlukons- ertinn eftir Prókoffjeff og lék Pina Carmirelli verkið mjög glæ- silega. Verkið er samið fyrir franskan fiðluleikara, Róbert Soetens, og var upphaflega hugsað fyrir fiðlu og píanó. A þessum tíma hafði Prókoffjeff samið fimm píanókonserta, fjórar srtl- fóníur, balletta, óperu, hljómsveit- arsvítur og nokkrar píanósónötur og þykir þessi konsert bera merki þess, að hann sé að leita fyrir sér varðandi stíl og tónmál, nokkuð mikið rómantískur og lagrænni en fyrri fiðlukonsertinn, sérstaklega þó annar þátturinn, sem er sérlega skýr og fallegur. Síðasta verkið á efnisskránni er eitt af meistaraverkum Sjostakó- vits, en þá hafði hann mátt þola Sinfóníutónleikar opinberar ávítur fyrir tónverk sín og fyrri sinfóníur hans, fyrir utan þá fyrstu, verið taldar ómögu- legar. Til að nefna dæmi, var fjórða sinfónían ekki frumflutt fyrr en 1962. Það er ekki nýtt að sovésk stjórnvöld hafi orðið sér til skammar vegna afskipta af skap- andi list, en þennan smánarblett er nauðsynlegt að minnast á, til að minna menn á að rugla ekki saman pólitískum ætlunarverkum og sköpun listar, sem að verulegu leyti sækir sköpunarkraft sinn í andstöðu við tískubundnar venjur og hefðir. Þegar slíkir atburðir hafa gerst, hefur það þráfaldlega komið fyrir að listaverkið stendur eins og æpandi mótsögn við allt að því ófyrirgefanlegt þekkingarleysi og heimsku. Flutningur sinfóní- unnar var að þessu sinni eins og hann væri magnaður mótmælum og baráttu gegn ófyrirgefanlegu ranglæti, þrunginn krafti og spennu er sprengir af sér allar viðjar lítilmótlegra álaga. Gilbert Levine hefur sterka tilfinningu fyrir „dramatískum“ leik tónanna og tókst að laða fram sterkar andstæður í geðsveiflum þessa tilfinningaþrungna verks. Eigum nokkra og fáum fljótlega fleiri Tovota bfla argerð 1979 á einstaklega góðu verði og góðum kjörum Verð frá kr. 3.756.000- Tegundir: Toyota Starlet Corolla 2ja dyra Corolla stadion Corolla 2ja dyra Hardtop Corolla Liftback Carina 2ja dyra Carina stadion Cressida 2ja dyra Hardtop beinskipt og sjálfskipt Cressida 4ra dyra Cressida stadion m TOYOTA UMBOÐIÐ NYBYLAVEGI 8 KÖPAVOGI SÍMI UMBOÐIÐ Á AKUREYRI: BLÁFELL S/F ÓSEYRI 5A — SlMI Vandaðir bílar fyrir vandláta kaupendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.