Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 Stofna almenningshlutafélag til að hef ja fiskeldi hér á landi Kröfur farandverka- fólks njóti forgangs í samningaviðræðum Ljósm. Gmilía. Ronald Símonarson hefur opnað málverkasýningu í Asmundarsal og verður hún opin til 24. febrúar. Er þetta fyrsta málverkasýning hans og jafnframt yfirlitssýning á verkum listamannsins frá upphafi, en hann hefur lagt áherzlu á að fara eigin leiðir í námi. Hefur Rónald Símonarsson helgað sig málara- listinni eingöngu frá árinu 1978. Með honum á myndinni er sonur hans, Hermann Friðrik. MORGUNBLAÐINU heíur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá undirbúningsnefnd að stofnun almenningshlutafélags til að koma skriði á fiskeldismál hér- lendis, eins og það er orðað í fréttatilkynningunni: „Að undanförnu hafa augu manna hér á landi beinzt mjög að þeim möguleikum sem hér kynnu að vera fyrir hendi til fiskeldis í stórum stíl. Svo sem kunnugt er hafa Norðmenn á síðustu árum náð verulegum árangri í eidi laxfiska í sjó og er þessi ræktun farin að skila þeim miklum hagn- aði. Ýmisiegt bendir til þess að aðstæður tii laxeldis séu mjög hagstæðar hér á landi. I því sambandi ber að hafa í huga að nokkrar eldisaðferðir geta komið til greina svo sem hafbeit, eldi í fljótandi flotkvíum úti í sjó, eldi í tjörnum eða kerjum á landi eða einvher blanda þessara aðferða. Fáeinir aðilar hafa á undan- förnum árum hafið tilraunir til fiskeldis í litlum mæli hér á landi, en skortur á rannsóknum og fjármagni hefur til þessa staðið í veginum fyrir stórátaki á þessu sviði. Síðustu mánuði hefur á vegum áhugamanna og ýmissa þeirra sem fengist hafa við fiskiræktar- tilraunir starfað undirbúnings- nefnd sem faliÓ var að kanna hvert stefna bæri í þessum efnum. Undirbúningsnefndin hefur nú orðið sammála um að gangast fyrir stofnun almenningshlutafé- lags um fiskeidi sem hefði þann tvíþætta tilgang að gera skipulega úttekt á líffræðilegum, tækni- legum og fjárhagslegum mögu- leikum á fiskeldi hér á landi, þ.m.t. á markaðsmö^ .leikum og hefja að því búnu fiskeidi þegar fært og hagkvæmt þykir. Standa vonir til að með stofnun hlutafélags á almennum og víðtækum grundvelli takist að koma þeim skriði á fiskeldismál, að möguleikar Islendinga á því sviði verði ekki látnir ónýttir öllur lengur. Fundur tii undirbúnings undir stofnun slíks almenningshlutafé- lags verður haldinn í Kristalsal Hótel Loftleiða fimmtudaginn 14. febrúar n.k. kl. 2.30. Farandverkafólk: Mánudaginn 4. febrúar hélt Baráttuhópur farandverka- fólks fund í Festi í Grindavík um málefni farandverkafólks í fiskiðnaði. Á fundinum höfðu framsögu Þórður Hjartarson, Jakob Jónsson og Sheila Hardaker, nýsjálensk stúlka sem vinnur í frystihúsi þar í þorpinu. Þórður harmaði hve illa væri búið að þessu fólki víða um land og nefndi ófögur dæmi máli sínu til stuðnings. Þá minnti hann á kröfur farandverkafólks um bætt- an aðbúnað og aukin réttindi innan verkalýðsfélaga. Næstur talaði Jakob Jónsson farandverkamaður. Hann lýsti ástandi þeirrar verbúðar sem hann býr á í Grindavík, og taldi mikið skorta á, að hún gæti talist bústaður sæmandi mönnum. Sheila Hardaker ræddi um að- búnað þeirra erlendu stúlkna sem Gerð verður grein fyrir stöðu fiskeldismála og störfum undir- búningsnefndar, lögð fram og af- greidd drög að stofnsamningi og kosin nefnd til að undirbúa stofn- fund almenningshlutafélagsins. Allir áhugamenn eru hvattir til að fjölmenna. Undirbúningsnefnd.“ starfa í fiskiðnaði hérlendis, og sagði hann vera í litlu samræmi við þau loforð sem gefin voru þegar þær réðu sig til landsins. Þá kvað hún atvinnurekendur og verkalýðsfélög hafa vanrækt að kynna þeim réttindi og skyldur á íslenskum atvinnumarkaði. Að loknum framsöguræðum voru almennar umræður. Tóku þá m.a. til máls Jón Björnsson for- maður verkalýðsfélagsins í Grindavík og Karl Steinar Guðna- son alþingismaður og varafor- maður Verkamannasambands íslands. Karl Steinar kynnti fund- armönnum þingsályktunartillögu, sem hann hefur lagt fram á Alþingi, varðandi málefni erlends farandverkafólks á íslandi. Á fundinn mættu fast að sextíu manns, innlent og erlent farand- verkafólk. Einnig mættu þrír úr hópi atvinnurekenda. Andmæltu þeir ekki þeirri skoðun sem fram kom, að atvinnurekendur í fisk- iðnaði, sem ekki tryggja verka- fólki mannsæmandi aðbúnað á verðbúðum séu stétt sinni til skammar. Að lokum samþykktu fundar- menn einróma svohljóðandi álykt- un: „Almennur umræðufundur far- andverkafólks haldinn 4. febrúar 1980 í Festi í Grindavík ítrekar réttmæti krafna farandverkafólks um bætt kjör og aðbúnað. Einnig krefst fundurinn þess að þær njóti forgangs í samningum atvinnu- rekenda og verkalýðshreyfingar, sem nú standa yfir. Fundurinn átelur Verkalýðs- hreyfinguna fyrir seinagang í málefnum farandverkafólks, en hvetur jafnframt til virkara sam- starfs verkalýðsfélaga á hverjum stað með farandverkafólki í sam- eiginlegri baráttu fyrir bættum kjörum allri alþýðu til handa. Ennfremur gagnrýnir fundurinn harðlega forystu Sjómannasam- bandsins vegna neikvæðrar af- stöðu hennar gagnvart kröfum farandverkafólks, þrátt fyrir að mikill hluti farandverkafólks séu sjómenn. Fundur farandverkafólks í Grindavík vill að lokum senda farandverkafólki um land allt baráttukveðjur, og um leið hvetja það til virkrar samstöðu og bar- áttu fyrir bættum kjörum sínum.“ Þess skal að lokum getið að Baráttuhópur farandverkafólks hefur opnað skrifstofu og hyggst safna og miðla upplýsingum um aðbúnað á einstökum stöðum á landinu. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar \ Lækningastofa mín í Domus Medica verður lokuð frá 1. mars næstkomandi Grétar Ólafsson yfirlæknir. Sérgr.: Brjóstholsskurðlækningar, almennar skurölækningar. Byggðaþjónustan Atvinnurekendur — stofnanir — félög. Nú er rétti tíminn til að stilla upp bókhaldinu og gera drög að áætlun næsta árs. Bókhaldsþjónusta, skattaþjónusta, áætlana- gerð. Byggðaþjónustan, Ingimundur Magnússon, Birkihvammi 3, 200 Kópavogi, sími 41021. Iðnaðarhúsnæði óskast Upplýsingar í síma 71104, 71369 og 72973. Geymsluherbergi óskast Rúmgóð geymsla (helzt með stórum hillum) fyrir bækur og tímarit óskast á leigu. Gjarnan á jarðhæð, kjallara eða fyrstu hæö. Þurr og upphitaður bílskúr kemur til greina. Tilboð merkt: „Helzt í Vesturbæ — 4852“ sendist augld. Mbl. fyrir fimmtudaginn 14. febrúar. Við Bíldshöfða Til leigu iðnaðarhúsnæði á tveimur hæöum, jarðhæð 750 fm leigist frá 1. marz 1980, 2. hæð 1050 fm leigist innréttuð eöa óinnréttuð eftir nánara samkomulagi. Allar nánari uppl. í síma 32233. Akranes Til sölu tvílyft einbýlishús að grunnfleti 80 fm. Húsiö er álklætt með nýju gleri. Allt í toppstandi. Upplýsingar veittar í síma 31782. Skrifstofuhúsnæði 36 fm skrifstofuhúsnæði til leigu í gamla miöbænum, aðgangur að telexi ef óskaö er og hugsanleg símaþjónusta. Tilboð sendist augld. Mbl. merkt: „H — 4845“ fyrir 15. febrúar. Borgarnes — húsnæði til sölu Til sölu er lítið einbýlishús ásamt 200 m2 iðnaðarhúsnæði. Húsnæði þetta verður að telja heþpilegt t.d. fyrir iðnaðarmann eða aöila sem stendur í rekstri. Hagstætt verð. Góð atvinna í héraðinu. Upplýsingar gefur Halldór Brynjúlfsson símar 93-7370 og 93- 7355 (kvöldin). Skrifstofuhúsnæði — Austurborg Til leigu er vel innréttað skrifstofuhúsnæði örstutt frá Hlemmtorgi. Húsnæðið er fjögur skrifstofuherbergi m.m. og telst vera um 105 fm, brúttó, auk mögulegrar viðbótar, ef þörf krefur. Góð bílastæði. Húsnæðið getur verið laust hvenær sem er á tímabilinu 1. apr. til 1. júní. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 15. febr. n.k. merkt: „Skrifstofuhúsnæði — 216“. Skrifstofuhúsnæði Til leigu er skrifstofuhúsnæði á einum besta stað við Grensásveg. Húsnæðið sem er tilb. nú þegar er á 2. hæð. Frekari uppl. í síma 83539.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.