Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 Stórfjölskyldan er algengasta sambýlisformið í Vestur-Afríku. Hér er hluti Mandinka- fjöiskyldunnar sem Jón bjó hjá í Bakau. Við strönd Atlantshafsins. Fyrir norðurálfumenn hlýtur þetta að lita út sem Paradís á jörð, enda eru ferðamenn að byrja að streyma til Gambíu. Rannsakar galdramenn símaskránni. — Svo talað sé í alvöru, þá yrðu rannsóknir á slíkum hlutum hér á landi að byggjast nær eingöngu á könnun þjóðsagna og gamalla munnmæla, á meðan galdramenn eru aftur fjölmennir í löndum sem Gambíu. Þar eru þeir valdamiklir víða og hafa mikil áhrif, og það er til dæmis varla farin sú ferð og ekki byggt það hús, að ekki sé áður rætt við galdramanninn um þær fyrirætlanir." Bjó hjá innfæddri fjölskyldu — Hvar hafðir þú aðsetur á meðan þú dvaldist þarna? „Eg vissi satt að segja ekki kennsla í skólum landsins fer fram á ensku. Fólkið sem ég bjó hjá var af Mandinkaættbálki, sem er áhrifamikill á þessum slóðum. Annars eru þarna fjölmargir ætt- bálkar sem tala ólík og jafnvel óskyld tungumál, og menn verða að gera sig skiljanlega á ensku þó fáir kunni hana til nokkurrar hlítar. Fólk býr þarna í eins konar stórfjölskyldum, en þær geta til dæmis samanstaðið af bræðrum, foreldrum þeirra, eiginkonum og börnum, og oft fleiri ættmennum. Oft dveljast hjá fjölskyldunni ættingjar þeirra víða að, ýmist vegna þess að þeir vinna í ná- grenninu eða eru að leita sér að vinnu. Þarna eru því oft milli 20 og 40 manns í einni fjölskyldu. Atvinnuleysi er mikið og fólk býr að mörgu leyti við eymdar- kjör. Þó að sjaldan hafi ég fyrir- hitt jafn alúðlegt og viðkunnan- legt fólk. En flest það sem vestræn þjóðfélög státa af er ekki að finna á þessu svæði. Forstöðumaður þessarar stofn- unar var mér mjög hjálplegur og vinsamlegur, en hann er innfædd- ur Gambíumaður. Benti hann mér meðal annars á marga galdra- menn er ég síðar heimsótti og ræddi við, en langan tíma tók að kynna sér staðhftu þarna og allur undirbúningur tók töluverðan tíma. En í stofnun þessari las ég allt sem ég komst yfir um töfra, og fræðum þessum fylgdi þvílíkur kraftur að ljósaperur sprungu og kettir töluðu tungum! Eftir nokkurn tíma fór ég svo að fara út um landið til að ræða við galdramenn, og hafði ég þá með- ferðis túlk og svo segulband, sem ég tók viðtölin upp á. Heima á stofnuninni gat ég síðan fengið nákvæmari þýðingu, þegar farið var að vinna upp úr viðtölunum.“ Ferðaðist um í leigubílum — Hvernig ferðast menn á milli staða þarna? kostum og kynjum. Einnig sýndu þeir oft þakklæti fyrir það að menn skyldu vera að rannsaka það sem þeir eru að fást við, en flestir þessara manna trúa staðfastlega á það sem þeir eru að gera. Þetta eru alls ekki neinir loddarar, þótt falsspámenn finnist að sjálfsögðu innanum eins og annars staðar. Yfirleitt hafa þessir galdra- menn, sem líklega væri þó réttara að nefna galdralækna, tekið starf- ið í arf eftir föður sinn, og taka það mjög alvarlega. Eins konar þekkingararfleið sem gengur frá föður til sonar. En þó að okkur hafi víðast hvar verið ljúfmannlega tekið, þá minnist ég nokkurra sérkenni- legra atvika í sambandi við þessar heimsóknir. Viðtalið breyttist i prédikun Eitt sinn höfðum við til dæmis ferðast allan daginn í leigubíl að tilteknu þorpi, en er þangað kom og við fórum að spyrjast fyrir um hvar galdramaðurinn byggi, þá konur, börn og unglingar fylgdust með fyrir utan og í dyragættinni og gluggagötunum. Voru áheyr- endur að þessum viðræðum okkar því orðnir milli 30 og 50 talsins áður en lauk. En eftir því sem áheyrendum fjölgaði fór viðtalið að breytast úr eiginlegu viðtali í prédikun þar sem galdramaðurinn lagði út af spurningum mínum. Gekk svo lengi kvölds, eða allt þar til maður kom æpandi inn í kofann og lenti í hörkurifrildi við túlkinn, svo að um hríð hafði ég ekki hugmynd um hvað væri á seyði. Þegar hann loks mátti vera að því að útskýra fyrir mér hvað gengi á, kom í ljós að komumaður, sem var í miklum trúarhita taldi ástæðu til að minna viðstadda á að tími væri kominn til að ganga til bæna. Leystist hópurinn upp við svo búið og Umbi varð heim að hverfa. Þetta er aðeins lítið dæmi um hve erfitt gat verið að halda mönnum við efnið, og oft vildu þeir frekar ræða eitt og annað sem þeim var hugleikið, án tillits til þess sem spurt var um. Þeim var Hrísgrjón eru aðalfæða Gambíumanna. Hér eru konur að störfum við uppskeruna og Hluti stórrar bændafjölskyldu frá Albadar, litlu þorpi við landamæri Senegal og ekki slegið slöku við; tíu til tólf stunda vinnudagur í brennandi sólinni. Gambiu. mikið um land og þjóð áður en ég lagði af stað, en var svo heppinn að hitta í flugvélinni á leið þangað útlending búsettan í Gambíu, og fékk ég að hafast við hjá honum þar til ég fékk inni hjá innfædd- um. Var ég raunar hjá þéssum manni í um það bil viku, þar sem ég veiktist illilega og lá með háan hit.a í nokkra daga, hélt ég væri að deyja og fussum svei. Síðan fékk ég svo inni hjá fjölskyldu nokkurri skammt utan höfuðborgarinnar þar sem ég bjó mestan þann tíma sem ég var í landinu. Fólkið sem þarna býr, í nágrenni höfuðborgarinnar Banj- ul, er eiginlega á milli vita í menningarlegu tilliti. Má segja að það standi með annan fótinn í sinni gömlu menningararfleið, en hinn fótinn í vestrænni menningu sem þarna er að flæða yfir. Landið var áður bresk nýlenda, og bresk eða evrópsk áhrif eru þarna mikil, og enska er hið opinbera mál, og Fékk inni i þjóðháttar- rannsóknarstofnun Fljótlega eftir komu mína til Banjul komst ég svo í kynni við stofnun sem nefnist The Cultural Archives, menningarstofnun sem einkum fæst við þjóðháttarann- sóknir á þessum slóðum. Þar sem mínar rannsóknir féllu vel að því sem þessi stofnun var að fást við fékk ég þar aðstöðu til að vinna og afla upplýsinga, aðstöðu sem erf- itt hefði verið að vera án. Til dæmis fékk ég þarna túlka og margvíslega aðstoð þegar ég fór að ferðast um landið og ræða við fólk, og þá var þarna að finna margvíslegar upplýsingar um galdramenn og þjóðhætti sem ég gat notfært mér, en bandarískir og evrópskir sagnfræðingar sem hafa unnið að ritun sögu Vestur- Afríku hafa talsvert fjallað um þessa hluti. „Ég ferðaðist um á milli þorp- anna í eins konar leigubílum. Það gengur þannig fyrir sig að þeir fara ákveðna rútu, og fara ekki af stað fyrr en þeir eru orðnir fullir af fólki. Heldur eru þetta léleg farartæki, og ekki er óalgengt að farþegarnir verði að ýta þeim í gang áður en lagt er af stað! Vegirnir eru heldur ekki ýkja merkilegir, þetta eru moldarvegir, sem geta orðið erfiðir yfirferðar þegar regntíminn stendur yfir. Þegar komið var að því þorpi sem ætlunin var að heimsækja í það og það skiptið, byrjaði ég venjúlega á því að leita uppi galdramanninn í viðkomandi þorpi, og ræddi síðan við hann og spurði spurninga. Yfirleitt var okkur vel tekið, mér og túlknum, og oft með Viðtal: Anders Hansen kom í ljós að með okkur í bílnum allan daginn hafði verið ein af þremur eiginkonum hans! Eitt sinn höfðum við til dæmis ferðast allan daginn í leigubíl að tilgeknu þorpi, en er þangað kom og við fórum að spyrjast fyrir um hvar galdramaðurinn byggi, þá kom í ljós að með okkur í bílnum al'.an daginn hafði verið ein af þremur eiginkonum hans! Er við svo komum til hans voru hjá honum trúbræður hans að ræða við hann, en þeir fóru hvergi þegar við komum, og raunar var oft erfitt að fá að tala við þessa menn í einrúmi. í þessu tilviki reyndist auðsótt mál að fá viðtal við höfðingjann, en ekki þótti þeim félögum þó ráðlegt að hefja viðtalið fyrr en beðið hefði verið til Allah, og gerðu þeir það. Hófum við síðan að ræða sam- an, og fjölgaði smám saman þeim er hlýddu á okkur. Karlarnir í þörpinu komu inn og settust umhverfis okkur í kofanum, en til dæmis mjög í mun að segja frá forfeðrum sínum ýmsum og rekja ættir sínar, en það er raunar fyrirbrigði sem okkur er ekki alveg ókunnugt um hér heima! En raunar er margt fleira líkt með okkur Islendingum og þeim mönnum er byggja Gambíu, svo ólíklegt sem það kann að virðast. Hlutverk og staða galdramannanna Galdramenn þessir eða „moros“ eins og þeir eru kallaðir á man- dinkamáli, eru fjölmargir, og hlut- verk þeirra mjög margvísleg" seg- ir Jón þegar við spyrjum nánar út í hlutverk þessara galdramanna. „Það sem einkum greinir á milli þeirra, er hversu nátengdir þeir eru Islam, múhammeðstrú. Sumir þeirra byggja nánast allt á þeirri trú, en aðrir byggja svo aftur svo til allt á hinni gömlu afríkönsku þekkingu sem til var fyrir daga múhammeðstrúar á þessum slóð- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.