Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 55 fclk í fréttum Ný rödd í Morgunpósti ÁRRISULIR útvarpshlustend- ur, sem alla jafna hlýða á Morgunpóstinn yfir morgun- verðarborðinu munu hafa tekið eftir því í byrjun þessa mánað- ar, að komin var ný rödd í póstinn. Með karlaroddum þeirra Sigmars B. og Páls Heiðars heyrðist nú engilblíð kvenrödd, karlkynshlustendum örugglega til mikillar ánægju. Við eftirgrennslan kom í ljós að eigandi raddar'innar er Erna Indriðadóttir. Erna hefur séð um útvarpsþætti, og auk þess unnið við blaðamennsku, og er því ekki alveg ókunnug fjölmiðlun er hún tekur við starfi sem „febrúar- stúlka" Morgunpóstsins. Erna Indriðadóttir við skrifborð Morgunpóstsins. í býtið einn morguninn fyrir helgi. Myndina tók Kristján Einarsson. íslendingur kvaddur RITSTJÓRASKIPTI standa nú fyrir dyrum á vikublaðinu íslendingi á Akureyri, eins og áður hefur verið skýrt frá hér í Morgunblaðinu. Gísli Sig- urgeirsson ritstjóri hefur nú kvatt blaðið, eins og meðfylgjandi úrklippa úr Islendingi ber með sér. Ekki hefur hins vegar verið gert opinskátt hver tekur við ritstjórastóln- um, en heyrst hefur þó að blaðstjórn Islendings hyggst leita fyrir sér í einu nágrannabyggðar- lagi Akureyrar í því efni. Fyrst í stað mun hins vegar fjögurra manna rit- stjórn annast efnisval, en í henni eiga sæti þeir Sigurður J. Sigurðsson, Gísli Jónsson, Guðmund- ur Heiðar Frímannsson og Björn Jósef Arnviðar- son. Fréttastjóri verður hins vegar Gunnar Berg Gunnarsson. Illjómsveitin Qmen 7, talið frá vinstri: ólafur Aðalsteinsson, sem leikur á gítar og hljómborð, og er aðalsöngvari; Birgir Guðjónsson trommuleikari og Sigurgeir Jónsson bassa og gítarleikari. Vestmannaeyjar: „Garan- terað stuð“ hjá Qmen 7 í Allanum I Vestmannaeyjum er starf- andi hljómsveit er ber hið furðu- lega nafn Qmen 7. Fyrir gos voru raunar tvier liðsmanna hennar saman í hljómsveit er hét Eldar og frá þeim tíma er nafnið Qmen 7 komið. Þeir voru eitt sinn á ferðalagi austur á fjörðum, hittu þar fólk að máli og spurðu hverjir væru vinsælastir austur þar. Svarið var að það væri Amon Ra og var spurt á móti hvað þeir nefndust sem spyrðu. Qmen 7 datt þá allt í einu út úr gítarleikaranum svona til mót- vægis við Austfjarðanafnið. Eft- ir gos þegar leiðir lágu saman að nýju í hljóðfæraleik var síðan ákveðið að taka upp þetta nafn og hafa þeir félagar leikið saman í þrjú ár undir því nafni. í byrjun var hljómsveitin fjögura manna og voru ýmsir þekktir menn þar á meðal svo sem Sigurgeir Björgvinsson, Jóhann- es Johnsen og Sigurður Rúnar Jónsson en í ársbyrjun 1979 var ákveðið að gera Qmen 7 að tríói og þannig er það í dag. Aðallega hafa þeir félagar leikið í Vestmannaeyjum, eink- um í Alþýðuhúsinu, bæði á einkadansleikjum og almennum böllum en skroppið upp á megin- landið af og til og spilað víða t.d. í Glæsibæ. I vetur verða teknar nokkrar rispur upp á land og eru þeir bókaðir fjögur eða fimm kvöld í Stapa og Festi. Höfuðvandamál- ið segja þeir að komast yfir allt það sem þeir eru beðnir og er hljómsveitin bókur flestar helg- ar fram á sumar, ýmist í Eyjum eða uppi á landi. Lagaval er við það miðað að geta gert sem flestum til hæfis, áhersla er lögð á að hafa jafnan þau lög sem eru á toppnum það og það sinnið, en þekktastir munu þeir þó fyrir hressilegt rokk og einnig sínar eigin út- setningar á gömlum og góðum lögum. I Eyjum er sagt að það sé „garanterað stuð“ í Allanurp ef Qmen 7 er þar. ár I víni og ostum hjá Portúgölskum UNDANFARNA daga hefur verið hér portúgölsk sendi- nefnd til könnunarviðræðna við íslendinga um áframhaldandi viðskipti landanna. Eins og alkunna er hafa íslendingar selt Portúgölum mikið magn saltfisks um mörg ár og var um hríð svo komið að viðskipti landanna voru Portúgölum mjög í óhag og við borð lá að endurskoða yrði öll saltfisk- kaup af þeirra hálfu og beina viðskiptunum annað. þar sem íslendingar keyptu ekkert á móti. I fyrirsvari sendinefndarinnar var sendiherra Portúgals á Islandi, Fernando Reino og viðskiptafulltrúi Joao Sousa Machado, en þeir hafa aðsetur í Osló. Auk þess komu fimm fulltrúar frá iðnaðar-, viðskipta- og utanríkisráðuneytunum í Lissabon hingað til fundanna. Þegar menn höfðu skeggrætt í tvo daga slógu Portúgalarnir síðan upp samkvæmi og var þar boðið upp á portúgölsk vín og osta. A efri myndinni sjást þeir takast í hendur glaðlega Fern- ando sendiherra Reino og Ön- undur Ásgeirsson, forstjóri Olís, og að baki honum er Sousa Macado viðskiptafulltrúi á tali við einn gesta. Á neðri myndinni má m.a. sjá Kristján Jónsson, rafmagns- stjóra, Vilmund Gylfason, þá- verandi menntamálaráðherra, Inga R. Helgason, hrl, Gunnlaug Stefánsson, fyrrv. alþingismann, Einar Benediktsson, sendiherra, Örn Steinssen skrifstofustjóra og Jóhönnu Kristjónsdóttur, blm. Myndirnar tók Gunnar V. Andrésson ljósmyndari Börnin tóku við bú- rekstrinum, heimilis- faðirinn fór á þing Því hljóta að fylgja miklar breyt- ingar, er menn verða skyndilega alþingismenn, eins og hent hefur margan góðan dreng á þessum síðustu umbrotatímum íslenskra stjórnmála! — Ekki hvað síst hljóta að fylgja því miklar breytingar fyrir menn úti á landi, sem flytja verða til höfuðborgarinnar, og stofna þar nýtt heimili. Við spurðum Egil Jónsson, alþingismann og bónda á Seljavöllum hvernig hann hefði farð að því að leysa sín mál er hann tók sæti á þingi. „Það er alveg rétt, að því fylgja miklar breytingar á einkahögum, að taka sæti á þingi, jafnvel þó það hafi ekki komið mér alveg á óvart“ sagði Egill. „Ég gat þó leyst þetta á þann hátt að fá frí í eitt ár til að byrja með frá ráðunautsstörfum mínum, og búskapnum er vel fyrir séð, því tvö barna minna sem uppkomin eru, búa heima og hafa tekið hann að sér. Þá er sonur minn á Bændaskólanum á Hvanneyri, og kemur hann heim um miðjan maí til að hjálpa til við búskapinn.“ Egill sagði þau hjónin hins vegar hafa flutt heimili sitt til fteykjavíkur um hríð, þar sem þau leigja ágæta íbúð. Egill Jónsson. alþingismaður, ráðunautur og bóndi á Selja- völlum í Nesjahreppi í Austur- Skaftafeilssýslu. Myndina tók Ólafur K. Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.