Morgunblaðið - 10.02.1980, Side 24
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980
fö Kvikmynda-
** - hátíð
2. — 12.
febrúar
1980
S Dagskrá:
S Sunnudagur
£ 10. febrúar
W 19 000
dagskrá II.
Tónleikar, Hringekjan, Fjallatónlist,
Vinur minn stóri Jói og Strákurinn
sem vildi veröa steppdansari.
Stuttar barnamyndir:
Dagskrá I.
í hverju heyrist, Dórótea og drekinn,
Klifurtréð hans Kalla: Vetur í borg-
inni, Þrír félagar, Ogg finnur upp
tónlistina, og Hestarnir á Miklaengi.
Kl. 15.00 og 17.00.
Með bundið fyrir augu
Leikstjóri Carlos Saura. Spánn
1978.
Tímamótaverk á ferli Carlosar Saura,
þar sem hann tekur til athugunar
nútíö og framtíö spænsks þjóöfélags.
Ein athyglisveröasta kvikmyndin sem
gerö hefur veriö á Spáni á síöustu
árum. Síöasta sinn. Bönnuö börnum.
Kl. 19.00, 21.00 og 23.00.
Woyzeck
Leikstjóri Werner Herzog —
V-Þýskaland 1979. Meóal leikenda
Klaue Kinski.
Herzog kom í heimsókn til islands í
fyrra og er sá ungra þýskra kvik-
myndamanna sem þekktastur er hér
á landi. Nýjasta mynd hans, Wyozeck
er byggð á samnefndu leikriti Bruh-
ners sem sýnt var i Þjóöleikhúsinu
■ fyrir nokkrum árum. Ungur og fátaek-
ur hermaöur er grátt leikinn af
mannfélaginu og verður unnustu
sinni að bana.
Næst síöasti dagur. Kl. 15.05, 17.05,
19.05, 21.05 og 23.05.
Krabat
Handrit og stjórn: Karel Zeman.
Tékkóslóvakia 1977.
Skemmtileg teiknimynd sem byggð
er á ævintýri frá Lausitz. Krabat er
fátækur drengur sem flakkar um
héraöiö og kemur að dularfullri myllu.
Þar lærir hann galdra og lendir í
hinum ýmsu ævintýrum. Kl. 15.10 og
17.10.
§s Skákmennirnir
Leikstjóri: Satyajit Ray — Indland
1978.
Ray er frægasti kvikmyndahöfundur
Indverja og er einkum þekktur fyrir
þríleikinn um Apu. Þetta nýjasta verk
hans gerist á nítjándu öld og fjallar
um tvo indverska yfirstéttarmenn
sem tefla skák meðan Bretar seilast
inn í ríki þeirra og kóngurinn segir af
sér.
Síöasta sinn. Kl. 19.00, 21.10 og
23.15.
J.A. Martin —
Ljósmyndari
Leíkstjóri: Jean Beaudin — Canada
1977.
Hjónaband Martins er að hruni kom-
ið, þegar eiginkona hans ákveöur að
skilja börnin eftir heima og fylgja
honum í einni Ijósmyndaferð. Myndin
gerist um aldamótin og var kosin
besta kanadíska kvikmyndin árið
1977. Monique Mercure fékk fyrstu
verölaun fyrir kvenhlutverk í Cannes
sama ár.
Síðasta sinn. Kl. 15.05 og 17.05.
Stefnumót Önnu
Leíkstjóri Chantal Akerman. Belgía/
Frakkland/ V-Þýskaland 1978.
Ung kvikmyndagerðarkona ferðast
um Þýskaland til að sýna myndir
sínar og kynnist ýmsu fólki.
Sérkennileg mynd. Lykillinn er
kannski í goösögninni um Gyðinginn
gangandi. Leikstjórinn Chantal Ak-
erman, ung eins og persóna myndar
hennar, er heiðursgestur hátfðarinn-
ar og veröur við frumsýninguna í
kvöld.
Síöasta sinn. Kl. 19.05, 21.05 og
23.05.
S Dækja
Leíkstjóri: Jacques Doillon. Frakk-
land 1978: Verólaun í Cannes 1979.
Dækja greinir frá raunverulegum
atburði, sem gerðist í Frakklandi.
þegar 17 ára piltur rændi 11 ára
stúlkg. Myndin fjallar um sambandið
sem þróast milli þeirra.
Síðasta sinn. Kl. 15.00, 17.00, 19.00,
21.00 og 23.00.
Mánudagur
11.febrúar
Syrpa af stuttum
barnamyndum
Kl. 15.00 og 17.00.
Woyzeck
Leikstjóri: Werner Herzog —
V-Þýskaland 1979. Meöal leikenda
Klaus Kinski.
Herzog kom í heimsókn til íslands í
fyrra og er sá ungra þýskra kvik-
myndamanna sem þekktastur er hér
á landi. Nýjasta mynd hans, Woyzeck
er byggö á samnefndu leikriti Bruh-
ners sem sýnt var í Þjóöleikhúsinu
fyrir nokkrum árum. Ungur og fátæk-
ur hermaöur er grátt leikinn af
mannfélaginu og veröur unnustu
sinni aö bana.
Sýnd kl. 19, 21 og 23.
Eplaleikur
Leikstjóri: Vera Chytilova — Tékkó-
slóvakía 1976.
Vera Chytilova er ein af upþhafs-
mönnum nýju bylgjunnar í Tékkó-
slóvakíu og varð heimsþekkt fyrir
myndina Baldursbrár sem sýnd hefur
veriö í Fjalakettinum. Þessi mynd
hennar gerist á fæöingarheimili og
lýsir af tékkneskri kímni ástarsam-
bandi fæöingarlæknis og Ijósmóöur.
Sýnd kl. 15.05 og 17.05.
Albert? —
Hvers vegna?
Leikstjóri: Josef Rödl — V-Þýska-
land 1978.
Silfurbjörninn í Berlín 1979.
Myndin fjallar um ungan mann sem
snýr aftur á sveitabýli sitf eftir dvöl á
geðveikrahæli. Hann lendir í úti-
stööum við þropsbúá vegna fordóma
þeirra í hans garö.
Þýska blaöiö Die Zeit: „Aldrei áður
hefur þögnin veriö eins djúp að
lokinni kvikmyndasýningu, og aldrei
hefur lófafakið að þögninni lokinní
verið svo yfirþyrmandi."
Sýnd kl. 19.05, 21.05 og 23.05.
Júgóslavneskar
teiknimyndir
Fuglinn og ormurinn, Farþegi á ööru
farrými, Flugan, Harmljóð, Veggur,,
Forleikur 2012 og Leikur.
Kl. 15 og 17.
Skipanir
Leikstjórn: Michel Brault — Kanada
1975. Verðlaun fyrir bestu leikstjórn
é hétíóinni í Cannes 1975.
Stríðsástandiö ( Quebec 1970, þegar
herlög voru selt og mörg hundruö
franskættaöra manna voru settar í
fangelsi fyrir engar sakir.
Kl. 19, 21 og 23.
An deyfingar
Leikstjóri. A. Wajda.
Wajda telur þessa mynd marka
stefnubreytingu í verkefnavali sínu,
en myndin er gerð áriö eftir „Marm-
aramanninn". Hér er fjallaö um þer-
sónuleg vandamál og skipulagða
lífslygi.
Sýnd kl. 19.10, 21.10 og 23.10.
Stúlkurnar frá Wilkó
Leikstjóri: A. Wajda. Pólland/
Frakkland 1979.
Nýjasta mynd Wajda sem sýnd er á
hátíöinni. Frábrugöin hinum fyrri.
Rómantísk saga af manni sem snýr
aftur til fæöingarbæjar síns. Meöal
leikenda Daniel Olbrychski, Christine
Pascal.
Sýnd kl. 15.05, 17.05 og 19.05.
Skákmennirnir
Leikstjóri: Satyajit Ray — Indland
1978.
Ray er frægasti kvikmyndahöfundur
Indverja og er einkum þekktur fyrir
þríleikinn um Apu. Þetfa nýjasta verk
hans gerist á nítjándu öld og fjallar
um tvo indverska yfirstéttarmenn
sem tefla skák meöan Bretar seilast
inn í ríki þeirra og kóngurinn segir af
sér.
Sýnd kl. 21 og 23.10.
Krabat
Handrit og stjórn: Karel Zeman.
Tékkóslóvakía 1977.
Skemmtileg leiknimynd sem byggö
er á ævintýri frá Lausitz. Krabat er
fálækur drengur sem flakkar um
héraðíö og kemur að dularfullri
myllu., Þar lærir hann galdra og
lendir í hinum ýmsu ævintýrum.
Kl. 15.10 og 17.10.
Aðgöngumiðasala
í Regnboganum
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Vökvamótorar
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA
Opið frá
kl. 8—1
Já, Johnny Hay
hefur sannað að
hann er sá besti
sjónhverfinga-
snillingur sem
fram hefur kom-
ið á íslandi í ára-
raðir
Diskótek
Boröapantanir f síma 23333.
Fjölbreyttur matseöill.
Áskiljum okkur rétt III að ráðstafa borðum eftir
kl. 21.00.
Spariklæðnaöur eingöngu leyfður.
Hljómsveitin
Geimsteinn
leikur fyrir dansi
InnlámilSikipti
leið til
lánaviArtkipU
BUNAÐARBANKl
' ISLANDS
^ Y
AUGLYSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Aóalstræti 6 simi 25810
VARAHLUTIR
PRESTOLITE KERTI
OLÍUSIGTI
LOFTSIGTI
BREMSUKLOSSAR
BREMSUBORÐAR
AURHLÍFAR
HOSUKLEMMUR
BLOKKÞÉTTIR
VATNSKASSAÞÉTTIR
HOLTS CATALOY
BODY FYLLIR
PAKKNINGARLÍM
GUN - GUM
FIRE - GUM
PÚST ÞÉTTIEFNI
PÚSTKLEMMUR
GEYMASAMBÖND
GEYMASKÓR
INNSOGSBARKAR
KERTALYKLAR
FELGUKROSSAR
ILMGLÖS
DEKKJAHRINGIR
LOFTDÆLUR
og margt fleira.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
KRISTINN GUÐNAS0N HF.
SUOURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633